Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2001, Blaðsíða 22
26
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
75 ára_________________________
Karen Vilbergsdóttir,
Sléttuvegi 13, Reykjavik.
70 ára_________________________
Halla S. Nikulásdóttir,
Giljaseli 12, Reykjavik.
Jónas Geir Sigurösson,
Lækjarbraut 2, Hellu.
Sveinn Eysteinsson,
Þambárvöllum 2, Brú.
60 ára_________________________
Birgir Brandsson,
Breiövangi 58, Hafnarfirði.
Magnea Thomsen,
Ennishlið 4, Ólafsvík.
Páll Þorsteinsson,
3irkihvammi 18, Kópavogi.
Thomas Mikael Ludwig,
Brúnalandi 17, Reykjavík.
Yngvi Guónason,
Kirkjulækjarkoti 1, Hvolsvelli.
50 ára_________________________
Agnes Helga Vigfúsdóttir,
Mávahlíð 19, Reykjavík.
Gísli Salómonsson,
Litlagerði 1, Húsavík.
Guöbjörg Davíösdóttir,
Hörðalandi 10, Reykjavík.
Margrét Gunnarsdóttir,
Hrauntúni 69, Vestmannaeyjum.
40 ára_________________________
Aöalsteinn Aöalsteinsson,
Stóragerði 16, Reykjavík.
Alfreð Guömundsson,
Hamraborg 26, Kópavogi.
Erling H. Ellingsen,
Ugluhólum 4, Reykjavík.
Fanney Hauksdóttir,
Hrafnabjörgum 2, Akureyri.
:ritz Már Jörgensson,
Seilugranda 8, Reykjavík.
tristinn Halldórsson,
Smiðjugötu 8a, ísafirði.
Steinunn Helga Siguröardóttir,
Eskihlíð 4, Sauðárkróki.
Sæmundur Pálmi Jónsson,
Bylgjubyggð 31, Ólafsfirði.
550 5000
visir.is
550 5727
Þverholt 11,
105 Reykjavík
Vignir Sveinsson, fyrrv. lögregluþjónn og
ökukennari, lést í bílslysi í Svíþjóð
mánud. 14.5.
Guörún Þórarinsdóttir, Mánagötu 22,
Reykjavík, varö bráðkvödd á heimili sínu
þriðjud. 14.5.
Soffia Lilja Jónsdóttir Lyons, áður til
heimilis á Smyrilsvegi, Grimsstaöaholti,
lést á heimili sínu í New York föstud.
11.5. Útförin hefur farið fram.
Anna B. Benediktsdóttir frá Moldhaug-
um lést á dvalarheimilinu Hlíð þriðjud.
24.4. Útförin hefur farið fram t kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Gústaf Bergmann Einarsson, Hverfis-
götu 59, lést þriöjud. 15.5.
Gíslína Jónsdóttir, Laugavegi 61,
Reykjavík, lést á líknardeild Landspítal-
ans Fossvogi aö morgni þriðjud. 15.5.
FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001
DV
Fólk í fréttum
Þórhildur Líndal
umboðsmaður barna
Þórhildur Líndal, umboðsmaður
barna, hefur vakið athygli á neyð úti-
gangsbarna í Reykjavík. Hún hvetur
barnaverndarnefndir til að breyta
áherslum sínum og starfsaðferðum í
því skyni að öðlast meiri trúnað
bama í neyð. Þetta kom fram í DV-
frétt í gær.
Starfsferill
Þórhildur fæddist í Reykjavik 28.1.
1951 og ólst þar upp. Hún lauk stúd-
entsprófi frá MH 1971, embættisprófi í
lögfræði frá HÍ 1977 og öðlaðist hdl.-
réttindi 1989.
Þórhildur var fulltrúi hjá yfirborg-
ardómaranum í Reykjavík frá 1977,
skipaður fulltrúi þar 1980, varð yfir-
lögfræðingur í félagsmálaráðuneytinu
1985, deildarstjóri þar 1986, var lög-
fræðingur við forsætisráðuneytið frá
1993 og er umboðsmaður barna frá
1995.
Þórhildur hefur átt sæti í ýmsum
nefndum til undirbúnings löggjafar á
sviði sveitarstjómarmála, brunamála
og vinnuréttar og verið formaður
sumra þeirra. Hún sat í stjóm Inn-
heimtustofnunar sveitarfélaga
1991-93, sat í stjórn Félags háskóla-
menntaðra starfsmanna Stjómarráðs-
ins 1987-89, í Fræðsluráði og síðan í
stjórn Stjórnsýslufræðslu ríkisins
1988-90 og í stjórn íslandsdeildar nor-
rænu lögfræðingaþinganna frá 1988.
f^ölskylda
Þórhildur giftist 25.8. 1973 Eiríki
Tómassyni, f. 8.6.1950, hrl. og lagapró-
fessor við Hí. Hann er sonur Tómasar
Árnasonar hrl., fyrrv. bankastjóra
Seðlabanka íslands, og k.h. Þóru
Kristínar Eiríksdóttur húsmóður.
Synir Þórhildar og Eiríks eru Páll,
f. 6.5. 1974, hdl., búsettur í Reykjavík,
kvæntur Díönu Júlíusdóttur flug-
freyju og háskólanema; Tómas, f. 19.6.
1978, laganemi við HÍ en
sambýliskona hans er Gréta
Bentsdóttir, BS í viðskiptafræði; Jó-
hannes, f. 15.7.1983, nemi við VÍ.
Bræður Þórhildar eru Jón Úlfar, f.
12.7. 1952, starfsmaður á
vinnustofunni Ási i Reykjavík; Björn
Líndal, f. 1.11. 1956, lögfræðingur og
framkvæmdastjóri við Landsbanka ís-
lands, kvæntur Sólveigu Guðmunds-
dóttur lögfræðingi og eiga þau tvö
böm.
Hálfbróðir Þórhildar, samfeðra, er
Páll Jakob, f. 14.12. 1973, BS í líffræði
og nemi í sálfræði við HÍ.
Foreldrar Þórhildar: Páll Jakob
Líndal, f. 9.12. 1924, d. 25.7. 1992, lög-
fræðingur og ráðuneytisstjóri um-
hverfisráðuneytisins, og Eva Úlfars-
dóttir, f. 27.12. 1925, fyrrv. deildar-
stjóri í Stofnun Áma Magnússonar.
Ætt
Föðurbróðir Þórhildar er Sigurður
Líndal, lagaprófessor og sagnfræðing-
ur. Páll var sonur Theodórs Lindals
lagaprófessors, sonar Björns Lindals
yfirdómslögmanns Jóhannessonar.
Móðir Theodórs var Sigríður Metúsal-
emsdóttir, b. á Amarvatni, Magnús-
sonar, bróður Þórarins, langafa Magn-
úsar Torfasonar hæstaréttardómara.
Móðir Páls var Þórhildur, dóttir
Páls Briem amtmanns, bróður Eiriks
prestaskólakennara, Ólafs, alþm. á
Álfgeirsvöllum, afa Þórðar Björnsson-
ar ríkissaksóknara og bróður Kristín-
ar Claessen, ömmu Gunnars Thorodd-
sens forsætisráðherra, og langömmu
Magnúsar Thoroddsens hæstaréttar-
dómara. Páll var sonur Eggerts
Briem, sýslumanns á Reynistað,
Gunnlaugssonar Briem, amtmanns á
Grund, ættfóður Briemættarinnar.
Móðir Páls amtmanns var Ingibjörg
Eiríksdóttir, sýslumanns í Kollabæ,
Sverrissonar. Móðir Þórhildar var
Álfheiður, systir Jón biskups og
Tómasar læknis, fóður Helga yfir-
læknis, föður Ragnhildar, fyrrv. ráð-
herra. Álfheiður var dóttir Helga,
kennara og alþm. Hálfdánarsonar, og
Þórhildar Tómasdóttur Fjölnismanns
Sæmundssonar.
Eva er dóttir Úlfars, skósmiðs á
Seyðisfirði, bróður Sigurðar, afa Sig-
urðar Karlssonar leikara. Úlfar er
sonur Karls Friðriks, verslunar-
manns á Vopnafirði, Jónssonar, og
Guðrúnar Eiríksdóttur frá Neðri-
Brunná. Móðir Guðrúnar var Fell-dís
Felixdóttir, systir Eyþórs, afa Ásgeirs
Ásgeirssonar forseta. Móðir Evu er
Jónína Steindórsdóttir, kennara Jó-
hannessonar, hins markfróða á
Kambsstöðum, Jónssonar. Móðir
Steindórs var Sigurbjörg, dóttir Guð-
mundar, b. í Fjósatungu, Guðmunds-
sonar og Helgu Eiríksdóttur.
Sjötug
Guöfinna K. Kristjánsdóttir
kennari í Reykjavík
Guðfinna Kristín Krist-
jánsdóttir kennari, Blá-
skógum 3, Reykjavík, er
sjötug í dag.
Starfsferill
Guðfinna fæddist á Suð-
ureyri og ólst þar upp. Hún
lauk landsprófi frá Héraðs-
skólanum að Núpi við Dýrafjörö
1947, stúdentsprófi frá MR 1952 og
kennaraprófi frá KÍ 1957.
Guðfinna stundaði skrifstofustörf
hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs og
menntamálaráðuneytinu 1952-56,
kenndi við Langholtsskóla 1957-77
og við ölduselsskóla 1977-97.
FJölskylda
Guðfinna giftist 8.6. 1963 Einari
Ólafssyni, f. 13.1. 1928, íþróttakenn-
ara. Hann er sonur Ólafs Einarsson-
ar, læknis í Reykjavík og Hafnar-
firði, og Sigurlaugar Einarsdóttur
húsmóður.
Börn Guðfinnu og Einars eru
Ólafur, f. 1.12.1963, líffræðingur, bú-
settur í Reykjavík, kvæntur Mar-
gréti Blöndal, f. 26.11. 1964, ferða-
málafræðingi og eru synir þeirra
Einar, Axel og ísak; Kristján B„ f.
2.7. 1965, rekstrarverkfræðingur,
búsettur í Kópavogi,
kvæntur Helgu Jóhönnu
Bjamadóttur, f. 18.7. 1966,
efnaverkfræðingi og eru
börn þeirra Bjarki Viðar
og Margrét Kristín; Sig-
urður, f. 10.1.1968, læknir í
framhaldsnámi í Banda-
ríkjunum en kona hans er
Sigrún Ragna Helgadóttir, f. 28.6.
1968, rafmagnsverkfræðingur og eru
böm þeirra Ragna, Ninna og Sig-
urður Sölvi.
Systkini Guðfinnu eru Þórður, f.
18.6. 1924, húsasmiður í Reykjavík;
Sigríður, f. 31.8. 1929, húsmóðir í
Reykjavík; Eyrún Ósk, f. 15.3. 1934,
skristofumaður í Reykjavík; Ásdís,
f. 26.8. 1936, kennari í Reykjavík.
Foreldrar Guðfinnu voru Kristján
Bergur Eiríksson, f. 26.11. 1894, d.
9.9. 1973, trésmiður í Súgandafirði
og Reykjavík, og k.h., Helga Guðrún
Þórðardóttir, f. 21.9. 1903, d. 18.1.
1997, húsmóðir.
Kristján var sonur Eiríks Egils-
sonar og Guðfinnu Ólafar Daníels-
dóttur. Helga var dóttir Þórðar
Þórðarsonar, hreppstjóra á Suður-
eyri og Sigríðar E. Einarsdóttur.
Guðfinna og Einar verða að heim-
an.
Sjötug
Steinunn G. Sveinsdóttir
bóndi að Kastalagerði í Ásahreppi
Steinunn Guðný Sveins-
dóttir, bóndi í Kastala-
brekku í Ásahreppi, er sjö-
tug í dag.
Starfsferill
Steinunn fæddist á
Þykkvabæjarklaustri í
Álftaveri og ólst þar upp.
Fjórtán ára flutti hún með foreldr-
um sínum að Skeggjastöðum í Mos-
fellssveit.
Steinunn og maður hennar
bjuggu í Reykjavík og voru
ráðsmenn að Geldingalæk á Rangár-
völlum hjá Skúla Thorarensen í eitt
ár en fluttu að Kastalabrekku 1951
og hafa stundað þar búskap síðan.
Steinunn var formaður kvenfé-
lagsins Framtíðarinnar og slysa-
varnardeildarinnar í Ásahreppi.
Fjölskylda
Steinunn giftist 3.12. 1949 Sigurði
Jónssyni, f. 4.11. 1926, bónda. Hann
er sonur Jóns Gíslasonar, bónda og
alþm. í Norðurhjáleigu, og k.h., Þór-
unnar Pálsdóttur.
Börn Steinunnar og Sigurðar eru
Sveinn, f. 5.4.1951, húsasmíðameist-
ari á Hvolsvelli, kvæntur Gróu Ing-
ólfsdóttur og eiga þau fjögur börn;
Þórunn, f. 31.10. 1954, gler-
listamaður á Hellu, var gift
Guðmundi Ágústssyni og
eiga þau fimm böm; Sigur-
veig Þóra, f. 4.2. 1957,
bamalæknir í Reykjavík,
gift Lárusi Ásgeirssyni og
eiga þau tvo syni; Hildur, f.
16.3. 1958, hjúkrunarfræð-
ingur og lektor við HÍ, gift Áma Sig-
urðssyni og eiga þau sex börn;
Bjarni, f. 4.3.1961, d. 1985, trésmiður
en sambýliskona hans var Hulda
Hansen og á hún tvö börn; Guðlaug,
f. 12.2.1965, rafmagnsverkfræðingur
í Reykjavík en maður hennar er
Agnar Rúnar Agnarsson og eiga þau
tvö börn; Hjördís, f. 13.6. 1969, mat-
vælafræðingur í Bolungarvík, gift
Aðalsteini Bjarnasyni og eiga þau
tvö börn; Jóna, f. 13.9. 1970, tann-
smiður, gift Svani Kolbeini Gunn-
arssyni og eiga þau þrjú böm.
Foreldrar Steinunnar voru
Sveinn Jónsson, f. 5.4. 1881, d. 23.12.
1959, bóndi að Þykkvabæjarklaustri
i Álftaveri, og k.h., Hildur Jónsdótt-
ir, f. 10.8. 1891, d. 1983, húsfreyja.
Steinunn og Sigurður taka á móti
gestum að Laugalandi í Holtum,
laugard. 19.5. kl. 15.00-18.00.
BK
var R. Kvaran leikari fæddist í
Reykjavík 17. maí 1916, sonur Ragn-
ars Hjörleifsson Kvaran, prests og land-
kynnis, og Sigrúnar Gísladóttur hús-
freyju. Afi hans var Einar Kvaran rit-
höfndur. Ævar lauk stúdentsprófi frá
MR 1936, embættisprófi í lögfræöi viö
HÍ 1941, stundaði leiklistar- og söng-
nám við Royal Academy of Dramatic
Art og Royal Academy of Music í
London 1945-47 og jafnframt leikstjórn-
arnám við BBC.
Ævar var einn virtasti leikari þjóð-
arinnar á 20. öld. Hann var fastur leikari
við Þjóðleikhúsið frá stofnun, 1950-80, leik-
stýrði fiölda verka fyrir Þjóðleikhúsið, Leik-
félag Reykjavíkur, leikfélög utan Reykjavíkur
og lék í og leikstýrði fiölda leikrita fyrir rík-
isútvarpið. Hann kenndi við Leiklistar-
skóla Þjóðleikhússins og rak um skeið
eigin leiklistarskóla sem fiöldi leikara
lærði við.
Ævar sat í stjóm LR, var formaður
Félags íslenskra leikara, Bandalags ís-
lenskra leikfélaga og Leikarafélags
Þjóöleikhússins. Hann var áhugamað-
ur um dulrænar gáfur og forseti Sálar-
rannsóknarfélags íslands um skeið.
Ævar var lipur penni og höfundur ým-
issa rita um íslenska örlagaþætti, kyn-
lega kvisti, framhaldslíf og miðilsgáfur.
Hann var vinsæll útvarpsmaður, með
skýran og fallegan framburð og óvenju seið-
andi og róandi rödd. Hann lést 7. janúar 1994.
Ævar R. Kvaran
Jarðarfarir
Útför Hjalta S. Svavarssonar, Vallarhúsi
41, Reykjavík, fer fram frá Hallgríms-
kirkju fimmtud. 17.5. kl. 15.
Jarðarför Aaga Hansen frá Hvítanesi,
dvalarheimilinu Höfða, fer fram frá Akra-
neskirkju föstud. 18.5. kl. 14.
Jarðarför Emu Ingólfsdóttur, Brúnalandi
6, Reykjavík, fer fram frá Lágafellskirkju
fimmtud. 17.5. kl. 13.30.
Útför Svans Jóhannssonar, Furugrund,
Kópavogi, fer fram frá Fossvogskirkju
föstud. 18.5. kl. 13.30.
Ingólfur Eggertsson, Unufelli 23, verður
jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtud.
17.5. kl. 13.30.
Sigríður Guöjónsdóttir, Hjallavegi 60,
Reykjavík, veröur jarðsungin frá Áskirkju
fimmtud. 17.5. kl. 13.30.