Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2001, Blaðsíða 9
9
FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001____________________________________________________________________________________________
I>V Útlönd
ísraelar beita flugskeytum á Gaza og Vesturbakkanum:
Israelskur ráðherra úti-
lokar ekki allsherjarstríð
Ráðherra öryggismála í ísrael
sagði í gær að ísraelar væru að
herða aðgerðir sínar í átökunum
við Palestínumenn, sem hafa staðið
í átta mánuði, og varaði við því að
ef til vill þyrfti að grípa til allsherj-
arstíðs tii að kveða uppreisninga
niður.
„Palestínska heimastjórnin hefur
greinilega ákveðið að auka hryðju-
verkin þar til hún getur með ofbeld-
isverkum knúið fram tilslakanir
sem við erum ekki reiðúbúnir að
gera,“ sagði ráðherrann, Uzi
Landau, í viðtali við sjónvarps-
fréttastofu Reuters i New York.
„Við erum einnig að herða aðgerðir
okkar til að verjast. En ég tel að áð-
ur en yfír lýkur verðum við að fara
í allsherjarstríð við þá.“
Landau er i New York til að ræða
þar við leiðtoga gyðinga um
vargöldina fyrir botni Miðjarðar-
hafsins.
ísraelskar herþyrlur skutu flug-
skeytum sínum á stöðvar palest-
ínskra öryggissveita á Gaza og Vest-
Reykur á Vesturbakkanum
ísraelskur lögregluþjórm fylgist meö flutningabíl aka í gegn um reykjarmökk-
inn sem leggur frá brennandi bíldekkjum nærri landnemabyggðinni Maale
Michmash á Vesturbakkanum. Landnemar gyöinga kveiktu í dekkjunum þeg-
ar fram fór útför eins úr hópnum sem féll fyrir hendi Palestínumanna.
urbakkanum í gærkvöld, í þriðja
sinn á einni viku.
Að minnsta kosti fjórtán Palest-
ínumenn særðust í flugskeytaárás á
bækistöðvar öryggissveita í Jabalya
flóttamannabúðunum á norðan-
verðri Gazaströndinni, þar sem hátt
í níutíu þúsund manns búa.
Þá skutu tvær ísraelskar þyrlur
að minnsta kosti sjö flugskeytum að
aðallögreglustöð Vesturbakkaborg-
arinnar Jenin, að sögn sjónarvotta.
Ekki er vitað til að neinn hafi særst
í árásinni en rafmagnslaust varð i
borginni á eftir.
Árásirnar voru gerðar á sama
tíma og verið er að reyna að koma á
fundi milli Colins Powells, utanrik-
isráðherra Bandaríkjanna, og Yass-
ers Arafats, forseta Palestínu-
manna, í ferð Powells til Evrópu og
Afríku dagana 22. til 30. maí næst-
komandi.
Bashar al-Assad Sýrlandsforseti
og Hosni Mubarak Egyptalandsfor-
seti ræddust við í Egyptalandi í gær
um ástandið í Mið-Austurlöndum.
Mohammad Khatami
íransforseti gerir sér vonir um aö
veröa endurkjörinn í næsta mánuöi.
Khatami þarf að
keppa við níu um
forsetaembættið
Æðsta ráð írans hefur samþykkt
tiu frambjóðendur í forsetakosning-
unum 8. júní næstkomandi, þar á
meðal núverandi forseta, Mo-
hammad Khatami.
Ekki er búist við öðru en að
Khatami verði endurkjörinn. Hann
gerir sér vonir um að fá nægilega
mikinn stuðning kjósenda til að
sigrast á andstöðu íhaldssamra
klerka við umbótastefnu sína.
Annar áberandi frambjóðandi í
forsetakosningunum verður land-
vamaráðherrann Ali Shamkhani
sem talið er að muni höfða til her-
manna og frana af arabískum upp-
runa úr heimahéraði hans.
Geimferðalangur fær sér salt og brauð
Bandaríkjamaöurínn Dennis Tito, sem varö fyrstur manna til aö fara sem feröalangur út f geiminn, fær sér salt og
brauö, eins og siöur er í Rússlandi, viö athöfn í Stjörnuborg utan við Moskvu. Tito og tveir rússneskir geimfarar, þeir
Júrí Batrúrín og Talgat Músaþajev, sneru nýlega heim eftir nokkurra daga dvöl í alþjóölegu geimstööinni.
Jane Andrews
Fyrrum aöstoöarkona Fergie var
fundin sek um að hafa myrt elsk-
huga sinn sem vildi ekki eiga hana.
Aðstoðarkona
Fergie dæmd í
lífstíðarfangelsi
Fyrrum aðstoðarkona Söru
Ferguson, hertogaynjunnar af Jór-
vík, var dæmd í lífstíðarfangelsi í
gær fyrir að myrða elskhuga sinn á
síðasta ári.
Jane Andrews var fundin sek um
að hafa lamið Tommy Cresman í
höfuðið með krikketkylfu og síðan
stungið hann til bana með stórum
eldhúshnífi á meðan hann svaf. Meö
þessu vildi Andres hefna sín á elsk-
huganum sem hafði neitað að kvæn-
ast henni.
Andrews sagði að hún hefði
stungið Cresman af slysni i átökum
milli þeirra þegar hann reyndi að
nauðga henni. Andrews sýndi engin
svipbrigði þegar dómurinn var upp
kveðinn.
Eftir morðið flúðu hún til vestur-
hluta Englands þar sem hún fannst
í bíl sínum þremur dögum síöar.
Hún hafði þá tekið of stóran
skammt af verkjalyfjum.
Sænskur axar-
maður hengdi sig
á sjúkrahúsi
Axarmaðurinn sem hjó 6 ára
stúlku í höfuðið í Ljungby i Svíþjóð
fyrir tíu dögum síðan hengdi sig í
rúmfötum á geðsjúkrahúsi sem
hann dvaldist á í gær.
Ódæðismaðurinn, sem vildi verða
frægur fyrir að myrða smástúlkur,
hjó hnátuna í höfuðið þar sem hún
var ásamt vinkonu sinni á leik-
svæði. Hann flúöi á reiðhjóli.
Fjölskylda mannsins er ævareið
út í forráðamenn geðsjúkrahússins
og hyggst kæra það fyrir van-
rækslu. Hún segir læknana hafa
svikið sig. Axarmaðurinn slapp af
geðsjúkrahúsi nóttina áður en hann
framdi ódæðið. Fiölskyldan segir
læknana hafa verið að spara pening
og því skorið niður lyfjaskammtinn
fyrir hann. Eftir árásina á stúlkurn-
ar sagðist maðurinn vilja deyja en
hann hefur verið haldinn alvarlegri
geðveilu í tíu ár. Stúlkan sem var
höggvin er á batavegi en samfélagið
i Ljungby er slegið yfir atburðun-
um.
Makedónar reyna að foröast
borgarastríð Albana og Slava
Makedóníustjórn stendur frammi
fyrir því erfiða og hættulega verk-
efni að berja niður albanska skæru-
liða í hæðunum við landamæri
Kosovo og um leið að forðast borg-
arastyrjöld í landinu. slavneski
meirihlutinn í Makedóníu fer fram
á stórsókn á hendur skæruliðunum
á meðan albanski minnihlutinn vill
vopnahlé til að forðast mannfall
meðal óbreyttra borgara. Serbar
hafa beitt þeirri aðferö að senda sér-
sveitarmenn hús úr húsi á svæðum
skæruliða og reka þá á brott. Þetta
hefur skilað góðum árangri.
Boris Trajkovski Makedóníufor-
seti vill hefja allsherjarsókn gegn
Makedóníuforseti og ESB
Trajkovkski Makedoníuforseti kynnir
ESB hernaöaráætlun sína.
skæruliðunum og segir mannskaða
meðal óbreyttra borgara vera á
þeirra ábyrgð, þar sem þeir skýli
sér á bak viö borgarana. í sjón-
varpsávarpi hvatti hann íbúa á
svæðum undir stjóm skæruliða til
að flýja fyrir hádegi í dag. Hins veg-
ar eru líkur á því að flestir þeirra
hafi misst af ávarpinu þar sem raf-
magnsleysi er viðvarandi vegna
stórskotaárása makedónska hers-
ins.
Skæruliðar hafa hótað eftirmál-
um ef ráðist verði á þá. NATO hvet-
ur skæruliða Albana til að leita frið-
ar og forðast blóðbað og segir að
ekki felist vansæmd í því.
TOYOTA LANDCRUISER
VX DÍSIL TURBO 3,0 cc,
07/98, ekinn 56 þús. km,
ABS.álfelgur, sjálfskiptur,
geislasp.,dráttarkrókur,
sumar- og vetrardekk,
vínrauður tvílitur, rafdr. o.fl.
Ásett verð kr. 2.900.000.
ÁHV. BÍLALÁN kr.
1.700.000.
Bíldshöfða 5 • S. 567-4949
bilahollin.is