Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2001, Page 7
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2001
DV
7
Fréttir
Áhugamenn hyggjast hitta borgarstjóra:
Vilja frestun á færslu
Hringbrautar
- telja forsendur 800 milljóna framkvæmda brostnar
Samtökin Betri byggð, Háskóli ís-
lands og fleiri áhugamenn um
skipulag miðborgarinnar hyggjast
reyna að fá frestun á færslu Hring-
brautar sem ráðgert var að bjóða út
í haust. Þar er um að ræða færslu
Hringbrautar á kaflanum frá Rauð-
arárstig að suðurenda Tjamarinnar
og er áætlað að kostnaður fram-
kvæmdanna geti numið um 800
milljónum króna. Samkvæmt heim-
ildum DV telja andstæðingar þess-
ara framkvæmda að forsendur séu
brostnar þar sem óvissa sé um
framtíðarþróun Landspítala á svæð-
inu. Áætlanirnar byggi auk þess á
gömlum og úreltum hugmyndum.
Telja þeir að verið sé að byrja á öf-
ugum enda og vilja að aðalskipulag
sem nú er í endurskoðun veröi
klárað áður en ráðist verði í slíkar
framkvæmdir.
Áhugamenn um málið hyggjast
ganga á fund borgarstjóra i vikunni
en funda átti í miðborgarstjórn í
morgun -HKr.
DV-MYND SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON
Þriggja hjóla kassabíll:
Nokkrir
strákar í
stað vélar
DV, VÍK:
Þeir Hróðmar, Björn Þór, Sölvi og
ökumaðurinn og eigandinn, Gunnar
Sveinn, voru glaðir að ferðast um
þorpið í Vík í Mýrdal á nýsmíðuð-
um kassabíl. Aðspurður sagði
Gunnar Sveinn að pabbi sinn hefði
aðstoðað sig við smíðina. Við verð-
um alltaf að vera nokkrir saman og
skiptast á að ýta bílnum af því að
það er engin vél í honum, sögðu
strákarnir.
-SKH
Ársreikningar Reykjavíkur:
Afgangur hjá
borgarsjóði
Borgarsjóður skilaði 1,9 milljarða
króna tekjuafgangi í fyrra samkvæmt
ársreikningi Reykjavíkurborgar sem
lagður var fram í
síðusu viku. Er
þetta besti árang-
ur sem náðst hefur
í rekstri borgar-
sjóðs um árabil.
Skatttekjur borg-
arinnar námu
rúmum 21 millj-
arði króna og voru
bæði tekjur og
gjöld í góðu sam-
ræmi við fjárhagsáætlunina. Rekstur
málaflokka sem hlutfall af skatttekjum
hækkaði i fyrra frá árinu áður, en árið
1999 nam hann 79% af skatttekjum og
í fyrra var hann kominn í 81,2%.
Heildarskuldir borgarinnar hafa lækk-
að að raungildi um 1,5 milljarða króna
en í árslok 1999 námu þær 14,7 millj-
örðum en voru í fyrra komnar niður í
13,9 milljarða. Á blaðamannafúndi í
gær viðraði Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir borgarstjóri áhyggjur af vaxtaþróun
og gengisbreytingum og taldi að þar
væru nú blikur á lofti. -BÞ
Lína.Net tímaskekkja:
Borgin á
hálum ís
Inga Jóna Þórðardóttir, leiðtogi
sjálfstæðismanna í borgarstjórn, er
ekki sammála meirihlutanum um
glæsilega afkomu Reykjavíkurborg-
ar. Hún segir
tvennt vekja
mesta athygli 1
ársreikningun-
um sem nú hafa
verið birtir. Ann-
að sé að skatt-
tekjur Reykjavík-
urborgar hafi frá
1997-2000 aukist
um 5 milljarða
króna en á sama
tíma hafi nánast
ekkert af því fé verið notað i að
lækka skuldir heldur hafi megnið
farið í raunaukningu útgjalda.
„Þetta sýnir að í góðærinu hafa
menn ekki sýnt aðhald í útgjöldun-
um. Tækifærið hefur verið misnot-
að og nú er ýmislegt sem bendir til
að hægt hafi á uppsveiflunni. Þar
með verða menn komnir í vandræði
fyrr en varir,“ segir Inga Jóna.
Hitt atriðið sem Inga Jóna gagn-
rýnir er hin „sérkennilega bylting"
sem orðið hafi hjá hluta stjórnenda
borgarinnar. Nú taki þeir þátt í
áhættusömum fyrirtækjarekstri
eins og Línu.Neti og kostnaður
Reykjavíkurborgar sé þegar farinn
að koma fram í reikningum borgar-
innar. Hallareksturinn hafi numið
tæpum hálfum milljarði í fyrra og
af 5,2 milljarða skuldaaukningu sé
heill milljarður bara vegna
Línu.Nets. „Þarna eru kjörnir full-
trúar komnir út á svið sem sveit-
arstjómarmenn eiga ekki að vasast
i. Það er ekki hlutverk stjórnmála-
manna að standa í áhættusömum
fyrirtækjarekstri," segir Inga Jóna.
-BÞ
Inga Jóna
Þóröardóttir.
2000
2001
Fjdrfestu d meðart verðið er Idgt
og njóttu góðrar dvöxtunar d næstu drum
Eftir lækkun síðustu 15 mónuði bendir nú margt
til að hækkun sé fram undan ó fslenskum og
bandarískum hlutabréfamörkuðum.
Þrótt fyrir lækkunina undanfarið hefur heimsvísitala
hlutabréfa hækkað að meðaltali um 19%* ó ári frá
ársbyrjun 1996 og íslensk hlutabréf hafa á sama tfma
hækkað um 14% á ári. Það borgar sig þvf að fjárfesta
til lengri tfma!
Ábending: Ávöxtun ífortíð er ekki endilega vísbending um ávöxtun íframtíð.
Gengi verðbréfa getur lækkað jafnt sem hækkað.
Gríptu tækífærið
t.d. nrieð fjárfestingu í:
• Astra heimssafninu sem fylgir heimsvfsitölu
hlutabréfa og erlendum Atvinnugreinasjóðum VÍB.
> Aðallistasjóði VÍB (Sjóði 6) og Úrvalssjóði VÍB
(Sjóði 10) sem fylgja íslenskum hlutabréfavfsitölum
Ki'ktu
eða talaðu viS ráSgjafa VIB
f sfma 560 8900.
VERÐBREF - EIGNASTyRING
Kirkjusandi • www.vib.is • vib@vib.is
ÍSLANDSBANKIFBA