Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2001, Side 9
Nánari upplýsingar um dagskrá og þjónustu er að finna á: www.broadway.is » Netfang: broadway@broadway.is
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2001___________________________________________________ 9
DV Fréttir
Deilt um framtíö skóla undir Eyjafjöllum
Hugmyndin er aö færa allt skólahald sveitarfélaganna aö Seljalandi í Vestur-Eyjafjallahreppi frá hausti 2002.
Deilur vegna skólamála undir Eyjafjöllum:
Sveitarstjórn fer gegn
vilja foreldranna
- segir formaður foreldraráös í Austur-Eyjafjallahreppi
ÞÚ GEYMIR í GÁMI
Vffi GEYMUM GÁMINN
Geymsla í skemmri eða iengri tíma
Þarft þú geymslu undir órstíðabundinn lager, eða þarftu að
geyma búslóðina eða tjaldvagninn? Þó eru geymslugámarnir frá
Hafnarbakka kjörin lausn. Cámarnir eru í mörgum stærðum og
eru staðsettir á læstu svæði Hafnarbakka.
Sá sem leigir gám fær lykil að
geymslusvæðinu og að gámnum.
DV. SUDURLANDI:______________________
„Við viljum halda byggð í hreppn-
um og þar meö skólanum. Við teljum
að það sé grundvöllur fyrir því að
halda áfram úti skólanum í Skógum.
Ef það verður ofan á að skólinn verði
lagður niður þýðir það hrun samfé-
lagsins. Það er ósköp einfalt. Ég veit
þegar um nokkrar öölskyldur sem
eru búnar að segja mér að þær fari ef
þetta verður raunin," sagði Sigurgeir
Ingólfsson íbúi og foreldri í Austur-
Eyjaflallahreppi.
Sigurgeir sem jafnframt er formað-
ur foreldraráðs grunnskólans hefur
ásamt fleirum mótmælt fyrirhuguð-
um breytingum á skólahaldi i Aust-
ur- og Vestur-Eyjafjallahreppum.
Vegna fækkun nemenda í skólum
hreppanna var ákveðið síðastliðið
haust að leita leiða til sameiningar
skólanna. AIls eru nú 58 nemendur í
báðum skólunum, 20 að Seljalandi og
38 1 10 bekkjardeildum að Skógum.
Þar af eru 17 nemendur í eldri bekkj-
um skólans í Skógum úr Vestur-Eyja-
fjallahreppi. Leitað var til Kennara-
háskóla íslands eftir ráðgjöf í mál-
inu. Niðurstaða sérfræðings KHÍ var
sú að sameina skyldi skólana og færa
allt skólahald sveitarfélaganna að
Seljalandi í Vestur-Eyjafjallahreppi
frá hausti 2002. Nú hefur verið ákveð-
ið af sveitarstjórnum beggja hrepp-
anna að stefna að því að skóli verði
að Seljalandi fyrir börn i 1.-7. bekk úr
báðum hreppunum, en að eldri börn
fari til náms á Hvolsvöll.
í Austur-Eyjafíallahreppi hefur
hópur foreldra brugðist illa við þess-
ari breytingu. Þar hefur verið safnað
undirskriftum foreldra, þar sem
skorað er á sveitarstjórn að breyta
ekki núverandi skólahaldi í Skógum.
„Við sáum á eftir héraðskólanum fyr-
ir tveim árum, svo á þetta að koma
nú í ofanálag. Þetta mál er búið að
fara í marga hringi. Nú er sveitar-
stjórn okkar hér í Austur-Eyjafjalla-
hreppi að fara i blóra við vilja for-
eldranna, og ég tel meirihluta allra
íbúa, með því að stefna að því fara
með yngri nemenduma að Seljalandi
og hina út í Hvolsvöll," sagði Sigur-
geir. Hánn var einn af þeim sem fóru
af stað með undirskriftalista meðal
foreldra skólabarna. „Undir listann
skrifuðu foreldrar allra barna í skól-
anum úr Austur-Eyjafjallahreppi
nema fjögurra. Þann lista ákvað sveit-
arstjórn á aukafundi þann 10. maí að
hunsa algerlega. Sveitarstjóm sam-
þykkti að stefna að þvi á þeim fundi að
fara þá leið að keyra börnin að Selja-
landi og á Hvolsvöll og með því að
leggja niður skólann í Skógum," sagði
Sigurgeir. Hann segir að búið sé að
krefjast opins borgarafundar um mál-
ið, sem menn bíði eftir að verði hald-
inn, svo menn geti rætt málin á opn-
um vettvangi.
Ákvörðun liggur fyrir
„Þetta er ákvörðun sem sveitar-
stjórn er búin að taka og að svo stöddu
vill ég ekki tjá mig frekar um þetta
mál,“ sagði Ólafur Tryggvason oddviti
Austur-Eyjafjallahrepps þegar DV leit-
aði til hans vegna málsins.
Fámennið bitnaði á nemendunum
„Menn vom sammála um að börnin
okkar væru orðin í svo miklu fá-
menni, að þau væru farin að líða fyrir
það félagslega og sáu að við slíkt væri
ekki ráðið öðruvísi en að bregðast við
þvi með breytingu á skólastarfi. Við
ákváðum í sameiningu hér í hreppun-
um að fá reyndan sérfræðing til að
taka út skólamálin hjá okkur. Hann
gaf okkur þær ráöleggingar að sam-
eina þessa tvo skóla á einum stað og
best væri að allir nemendur gmnn-
skólastigsins yrðu þar. Meðal annars
með tilliti tfi þess tíma sem bömin
þurftu að eyða í skólabílum var mælt
með því að sameinaður skóli yrði að
Seljalandi," sagði Guðjón Árnason
sveitarstjóri Vestur-Eyjafjallahrepps.
Hann sagði að í byrjun hafi menn
virst sáttir með niðurstöðu málsins,
en þegar einn skóli verði til úr tveim
og annar er lagður niður verður oft
ósætti. Menn líta svo á að bæði tapist
vinna og tekjur. „Ákveðið var að
reyna að vinna sig út úr málinu í róleg-
heitum, við gáfum öllúm 'þann tíma
sem við töldum að þyrfti til að ná sátt-
um og til að átta sig á hlutunum. Sam-
starf sveitarstjórna hreppanna hefur
verið mjög gott í þessu máli, en það
dugði ekki til. Því er niðurstaðan orðin
sú að skóli yngri deildar 1.-7. bekkjar
verði hér á Seljalandi en eldri nemend-
umir fari í skóla á Hvolsvelli," sagði
Guðjón Árnason. -NH
HAFNARBAKKI
Suðurhöfninni Hafnarfirði Sími 565 2733 Fax 565 2735
Um 100 kílómetra tölvustrengir á Landspítalanum:
Tölvum fjölgaði
um 320 í fyrra
Tölvum fjölgaði um 320 á Land-
spítalanum í fyrra, eða um 17%, og
þurfti að stækka net- og gagnaflutn-
ingskerfið sem því nam, samkvæmt
ársskýrslu Landspítalans. Upplýs-
ingatæknisvið sér um tölvukerfi
spítalans sem er ekkert smáræði. Á
spítalanum eru um 100 hugbúnaðar-
kerfi, 2200 tölvur og 500 prentarar
sem allt er tengt við um 100 kíló-
metra af tölvustrengjum. Starfsmenn
spítalans voru í rúmlega 4100 árs-
verkum í fyrra.
Ljósleiðari milli Hringbrautar og
Fossvogs var tekinn i notkun í fyrra,
samkvæmt samningi við Línu.Net,
sem gefur möguleika á mjög hrað-
Landspítallinn við Hringbraut.
virkri nettengingu og miklum gagna-
flutningi. Jafnframt var samið við
Línu. Net um að bæta Landakoti og
Kleppi við með hringtengingu. Það
þýðir að staðirnir yrðu áfram í sam-
bandi hver við annan þótt ljósleiðar-
inn rofni á einum stað. -HEI
á Broadway
Beiii útsending á Skjá-einum
Kynnar: DóraTakefusa
og Bjami Ólafur Guðmundsson
Dómnefud
Grub Smitli aðalritstjóri breska
tímaritsins FHM,
Þórarimi Jón Magnússon ritstj óri og
útgefandi Heimsmyndar,
Nanna Jónsdóttir markaðsfulltrúi Mbl.
Þórunn Högnadóttir förðunarmeistari,
Hörður Vilberg, fréttamaður á Skjá 1,
Hákon Hákonarson framkvæmdastjóri,
Elín Gestsdóttir framkvæmdastjóri
Fegurðarsamkeppni íslands.
Dagskrá
Keppendur koma fram í
tískusýningum frá Collections og Nanoq,
Casall baðfatasýningu og á síðkjólum.
Frábærir skemmtilcraftar:
Páll Óskar Hjálmtýsson,
Yesmine Olsson,
Guðrún Ámý Karlsdóttir.
DJ Páll Óskar í diskótekinu
að lokinni krýningu.
Matseðill
Fordrykkurí bodi Karls K. Karlssomr
Gaddakrabbaseyðim/humarbitum
Túnjisktartar m/raitdlauksvinayretk'
Kalkúna-timbali, jyllt með reyktum
kalkún.fumhnetum og kantarellusveppum
Súkkuiaði- og hnetuterta „Palet Or“
VeriI kr. 6.90U.mei) mat
kr. 2.500 eftirkl. 22:00
IbfCTd^PS
RADISSON SAS, HÓTEL ÍSLANDI
Forsala miða og borðapantanir alla virka daga kl. 11*19.
Sími 5331100 • Fau 533 1110
.inaí 2001
SKJÁREINN
FtUGFÉLAG ÍSLANDS
zjkt^ ^mbl.is
„JALLTA* eITTHV*£> tnvrr-
"MWNHHW ’ - k
collections oávfnes clarins
um «ucp ot.uís
FACE
HEIMSMYND
KONUR
mojo monroe
tttnpl&fa&urKÍi I
QBQBUj
casall’
NANOQ>
msm WWÍflRThte Davines
TRIM/XfORM
Kailn Haizog
Swlli.iland
KAKl K KARLSSON