Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2001, Síða 10
10
Útlönd
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2001
DV
Saddam Hussein
Getur líklega flutt inn vestrænar
munaðarvörur á næstunni.
Viðskiptafrelsi
kemur sér vel
fyrir Saddam
írösk regnhlífarsamtök andstæð
Saddam Hussein forseta vara Vest-
urlönd við því að afnám viðskipta-
banns á írak kunni aö koma sér
betur fyrir forsetann en þegna hans.
Bretar hafa lagt til að leggja nið-
ur 10 ára gamalt viðskiptabann á
írak og leyfa innflutning á vörum
sem ekki er hægt að nota til hemað-
arframleiðslu. Viðskiptabannið hef-
ur verið eitt helsta vopn Saddams í
áróðursstriði hans gegn Vesturlönd-
um. Andstæðingar Saddams segja
líklegra að hann muni nota við-
skiptafrelsið til að kaupa lúxusvör-
ur fyrir hirðina frekar en að bæta
hag hrjáðra landsmanna. Þeir segj-
ast samt fylgjandi tillögum Breta
þar sem þá geti Saddam ekki lengur
logið um orsakir eymdarinnar í
landinu.
Vilja flytja út
grænlenska ísinn
Fyrirtæki bíða nú í röðum eftir
að fa leyfi til að vinna neysluvatn
úr grænlenskum ís. Mikill skortur
er yfirvofandi á neysluvatni í heim-
inum og bæði grænlenska heima-
stjórnin og fyrirtæki hyggjast hagn-
ast á því.
Sagt er að hreinasta vatn heims-
ins sé að finna í grænlenska jökul-
ísnum, sem myndaðist áður en
mengun af mannavöldum kom fram
á sjónarsviðið.
Lagafrumvarp um nýtingu og út-
flutning grænlenska vatnsins var
lagt fram í ágúst síðastliðnum en
það hefur verið gagnrýnt af stjórn-
málamönnum sem fjármálaspek-
úlöntum, en þeir vilja margir hverj-
ir fá einkarétt.
George Bush
Kallar hið „umhyggjusama
þjóðfélag“ til vopna.
Bush fer í stríð
gegn fátækt
George Walker Bush Bandaríkja-
forseti hyggst halda áfram stríði
fyrrverandi forsetans, Lyndons B.
Johnsons, gegn fátækt. Hann vill
virkja hið „umhyggjusama þjóðfé-
lag“ til að takast á við fátæktar-
vandann. Ætlunin er að veita and-
virði 25 þúsundum milljarða króna
til að hjálpa jafnt ófrískum tánings-
stúlkum sem heimilislausum.
Bush vill fá kirkjur og moskur i
lið með sér við að framfylgja góð-
verkunum.
Sharon gagnrýndur
fyrir herþotuárásir
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, var harðlega gagnrýndur af
þjóðarleiðtogum fyrir loftárásir á
Palestínumenn sem ætlað var að
hefna sjálfsmorðsárásar í versiunar-
miðstöð á fostudag.
Sharon sendi F-16 herþotur ísra-
elshers til atiögu gegn palestínskum
íbúum Vesturbakkans. Þetta er í
fyrsta skipti síðan 1967 sem F-16 þot-
ur ísraelshers eru notaðar gegn
Palestínumönnum á Vesturbakkan-
um. Bandaríkjamenn gáfu Israelum
F-16 þoturnar þeim til verndar á
sínum tíma.
Sharon svaraði gagnrýni um-
heimsins með því að ísrael myndi
nota eins mikinn hernaðarmátt og
nauðsynlegt væri til að vernda ísra-
elska borgara. ísraelsk dagblöð
gagnrýndu Sharon harðlega og
sögðu loftárásirnar tilgangslausar
og heimskulegar. Efast er um að
árásir sem þessar muni koma í veg
fyrir sjálfsmorðsárásir Palestínu-
manna.
Talið er að 11 Palestínumenn hafl
fallið i árásunum en að minnsta
Ariel Sharon
Israelski forsætisráðherrann fagnaöi
töku Jerúsaiemborgar fyrir 34 árum
á sunnudag. Sama dag sendi hann
F-16 orrustuþotur á Palestínumenn
og uppskar reiði umheimsins.
kosti 50 féllu í þyrluárásum ísra-
elska hersins á laugardag. 441
Palestínumaður og 87 ísraelar hafa
fallið í átökum þjóðanna sem hófust
í september síðastliðnum.
Shimon Peres, utanríkisráðherra
Israels, er í tveggja daga heimsókn I
Rússlandi. Rússar hafa fordæmt
loftárásir ísraela og segjast hafa
miklar áhyggjur af þróuninni í Mið-
Austurlöndum. Peres sagði það vera
erfitt að berjast við óvin sem notar
hryðjuverk sem helsta tæki til að ná
pólitískum markmiðum sínum.
Viðbrögð Bandaríkjamanna eru
kunnugleg. Þeir segja einfaldlega að
ísraelar og Palestínumenn verði að
hætta átökunum svo hægt sé að setj-
ast að samningaborðinu. Colin
Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, kallaði á stuðning allra
þjóðarleiðtoga á svæðinu til að
binda enda á átökin.
ísraelar fögnuðu i gær Jerúsalem-
deginum, sem markaði þau tímamót
árið 1967 að ísraelsmenn hertóku
höfuðborgina núverandi.
Gin- og klaufaveiki í Brasilíu
Brasillskur lögreglumaður skvettir joðiausn á hófa hross við vegatálma nærri landamærum Uruguay. Þrjú ný tilfelli af
gin- og klaufaveiki greindust í Brasilíu á dögunum en veikin kom þangað fyrst í apríl. Þetta gerist einungis tveimur
dögum eftir að stjórnvöld fyrirskipuðu slátrun á 323 gripum í suðurhluta landsins.
NATO hleypir Serbum á
verndarsvæði við Kosovo
Albanskir skæruliðar hafa nú
misst síðasta athvarf sitt því friöar-
gæslusveitir NATO hleyptu
serbneska hernum inn á hlutlaust
svæði sem skæruliðarnir halda sig
á.
Friðargæsluliðar NATO settu upp
hlutlaust svæði við landamæri
Serbíu að Kosovo eftir að serbneski
herinn var rekinn þaðan fyrir
tveimur árum. Tilgangurinn var að
aðskilja serbneska herinn og al-
banska flóttamenn. Verndarsvæðið,
sem er um 400 ferkílómetrar að
stærð, hefur verið notað af albönsk-
um skæruliðum síðasta ár en þeir
vilja brjótast undan stjórn Serba og
kljúfa sig frá júgóslavneska sam-
bandsrikinu.
Skæruliðamir segjast munu
standa yfirvofandi árásir Serba af
sér en þeir hafa þurft að hörfa frá
Forseti í felubúningi
Boris Trajkovski, forseti Makedóníu,
mætti á vígstöðvarnar um helgina.
herjum Serba og Makedóna upp á
síðkastið.
Serbneskar herdeildir munu fara
inn á svæðið á fimmtudag. Stjórnin
í Belgrad hefur látið prenta dreifirit
á albönsku og serbnesku þar sem
þau skilaboð eru færð íbúum svæð-
isins að ekkert sé að óttast, enda
verði afli ekki beitt að óþörfu. Hug-
myndin er, að sögn aðstoðarforsæt-
isráðherrans Nebojsa Covic, að
þetta verði friðsamleg aðgerð.
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna hefur varað við að ef að-
gerðin gangi ekki sem skyldi gæti
svo farið að 20 þúsund Albanar
muni streyma frá Suður-Serbíu. Er-
ic Morris, sérlegur erindreki Flótta-
mannahjálparinnar á Balkanskaga,
hefur lýst yfir efasemdum með að
öryggi Albana á svæðinu sé tryggt.
Arroyo í góðum málum
Byrjað er að telja
atkvæði i blóðug-
ustu kosningum á
Filippseyjum i ára-
tug. Flokkur Gloriu
Arroyo hefur for-
ystu samkvæmt
óopinberum tölum
en ílokkur Josephs
Estrada, fyrrverandi forseta, rekur
lestina.
Rannsóknari SÞ ákærður
Rannsóknari dómstóls Samein-
uðu þjóðanna í Rúanda hefur verið
ákærður fyrir þjóðarmorð. Þetta er
í fyrsta skipti sem starfsmaður dóm-
stólsins er færður fyrir hann.
Njósnavél flýgur ekki
Njósnavélin umtalaða, sem nauð-
lenti á Hainan-eyju við Kína í síð-
asta mánuði, er ekki talin geta flog-
ið heim. Hún verður send heim í
kössum.
Kínverjar lífláta 29
Kínverjar tóku af lífi 29 meðlimi
glæpasamtaka í gær. Stjórnvöld í
Kína hafa sett í gang átak gegn
glæpahringjum, með þeim árangri
að hundruð manna hafa verið tekin
af lífi síðustu sex vikur.
Rólegt í íran
Lítið er rætt um komandi kosn-
ingar i írönskum tjölmiðlum og
saka umbótasinnar íhaldsmenn um
að stjórna ríkisfiölmiðlunum til að
tryggja lélega kosningaþátttöku.
Annan skýtur á Bush
■1 Kofi Annan, aðal-
ritari Sameinuðu
þjóðanna, gagnrýn-
. ir tillögur George
' Bush Bandaríkja-
forseta í orkumál-
| um. Hann segir að
þar sem Bandaríkin
j losi mest allra ríkja
af gróðurhúsalofttegundum sé það
nauðsynlegt að þeir skrifi undir
Kyoto-samninginn.
Langferðabíll sprakk
Rúta sprakk í E1 Salvador á laug-
ardagskvöld með þeim afleiðingum
að sex létust og 40 særðust. Taliö er
að slysið megi rekja til gasleka.
Kardínálar funda
Kardínálar
heimsins hafa safn-
ast saman í Vatí-
kaninu til að ræða
framtíð rómversk-
kaþólsku kirkjunn-
ar en þeir eru
helstu ráðgjafar
páfa. Aðeins eitt
mál er formlega bannað að ræða,
það er hver verður eftirmaður Jó-
hannesar Páls páfa annars, sem er
81 eins árs og heilsuveill.
Flæðir að Yakutsk
Borgin Yakutsk í Síberíu var i
gærkvöldi í stórhættu vegna flóða
sem stefndu að henni úr ánni
Lensk. í borginni búa um 200 þús-
und manns.
Mongólar kjósa
Kosningar voru haldnar í Mið-
Asíuríkinu Mongólíu i gær. Næsta
öruggt þykir að núverandi forseti og
fyrrverandi Sovétkommúnistinn
Natsagiin Bagabandi haldi sæti
sínu annað kjörtímabilið í röð.