Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2001, Side 11
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2001
ÐV
Útlönd
u
Enn stefnir í stórsigur
Verkamannaflokksins
Kosningabarátta íhaldsflokksins í
Bretlandi virðist hafa misst alger-
lega marks og samkvæmt nýjustu
könnunum leiðir Verkamannaflokk-
urinn með 19 prósentustiga mun.
Síðasta kosningamál Williams
Hagues, formanns íhaldsflokksins,
var baráttan gegn fjölgun innflytj-
enda en eins og önnur baráttumál
hans virðist það ekki hafa náð hylli
kjósenda.
Innanríkisráðherrann, Jack
Straw, kynnti í gær hugmyndir rík-
isstjórnar Verkamannaflokksins
um að setja þak á fjölda innflytj-
enda. Eitt af öðru kosningamálum
Hagues hefur verið kæft af Verka-
mannaflokknum og slagsmál Johns
Prescotts aðstoðarforsætisráðherra
við velskan vinnumann á miðviku-
dag virðast hafa snúist flokknum í
hag.
Vinnumaðurinn, sem henti eggi í
Prescott, segist sjá eftir atburðin-
um. Engu að síður sagðist hann geta
útkljáð deilumálin við Prescott ef
þeir væru tveir saman í klefa. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum styður
meirihluti Breta viðbrögð Prescotts
við athæfi bóndans. 58 prósent voru
í heimsókn á sjúkrahúsi
íhaldsflokkurinn hefur ekki roö
viö Tony Blair en skoöanakannanir
sýna metfylgi Verkamannaflokks
í hálft annaö ár.
fylgjandi ráðherranum en 35 á móti.
Edward Heath, fyrrverandi for-
sætisráðherra íhaldsflokksins í
Bretlandi, sagði flokk Hagues vera
„ókjósanlegan". Hann segist vona
eftir afgerandi ósigri flokksins í
kosningunum 7. júní, svo breyting-
ar fari fram innan hans.
Skoðanakannanir sýna mesta for-
skot Verkamannaflokksins í 18
mánuði. Innanríkismál hafa ein-
kennt kosningabaráttuna hingað til
en talið er að Evrópumálin séu næst
á dagskrá. Talsmaður Blairs segir
að Verkamannaflokkurinn muni
„éta“ íhaldsmenn í því máli, rétt
eins og í skattamálum.
Verkamannaflokkurinn hefur
lýst því yfir að hann hyggist lýsa
yfir striði gegn barnaníðingum.
Hugmyndin er að gera Netið öruggt
fyrir börn. Þá er í burðarliðnum að
setja saman baráttusveit til að ráð-
ast á tölvuglæpi og er þar innifalin
dreifing barnakláms og tölvuvírusa.
Leiðtogar flokkanna tóku sér hlé
frá kosningabaráttunni í gær og
Tony Blair fagnaði eins árs afmæli
sonar síns með eiginkonu sinni
Cherie.
Kosningar í Chad
Kosningadagur var í Miö-Afríkuríkinu Chad í gær. Forseti landsins, Idriss Deby, vonast til aö sigra sex keppinauta sína
og framiengja 10 ára valdatíö. Andstæöingar hans saka hann um aö skipuleggja kosningasvindl en hann hóf valdafer-
il sinn meö byltingu. Chad er afar fátækt land en olíulindir gefa vonir um aö breyting veröi þar á.
Óstööugur Wahid vill
neyðarástand
Abdurrahman Wahid, forseti
Indónesíu, íhugar að lýsa yflr neyð-
arástandi í landinu tU að bregðast
við hættu á að hann verði ákærður
fyrir spillingu. Það myndi gera hon-
um kleift að leysa upp óvinveitt
þing landsins sem færist sífellt nær
því að ákæra hann.
Wahid er fyrsti lýðræöislega
kjörni leiðtogi Indónesíu, en landið
er fjölmennast allra múslímaríkja í
heiminum, með 225 milljónir íbúa.
Hann hefur setið nítján mánuði á
valdastóli og hefur tvisvar verið
ávíttur af þinginu fyrir fjármála-
hneyksli. Leiðtogar helstu flokka á
þinginu hafa fundað upp á síðkastið
um mögulegan eftirmann hans á
forsetastóli. Talið er fullvíst að
varaforsetinn, Megawati
Sukarnoputri, muni taka við for-
Abdurrahman Wahid
Indónesíuforsetinn er óstöðugur -
bæöi á fótum og vaidastóii.
setaembættinu af hinum hálfblinda
og óstöðuga Wahid innan nokkurra
mánaða. Megawati segist ekki hafa
sérstakan áhuga á forsetaembætt-
inu en að hún muni taka það á sig
ef flokkur hennar krefjist þess af
henni. Tugþúsundir fylgismanna
hennar hvöttu hana á baráttufundi
flokks hennar fyrir skemmstu og
kölluðu á hana í forsetastólinn. Hún
er dóttir Sukarnos, fyrrverandi for-
seta Indónesíu.
Óttast er að ef Wahid verði steypt
af stóli muni stuðningsmenn hans
efna til uppreisnar. Wahid er
múslímskur klerkur og á stuðning
bókstafstrúarmanna visan. Ástand-
ið í Indónesíu er rafmagnað og búist
er við aðgerðum bæði af hálfu
þingsins og Wahids, sem hefur her-
inn sín megin.
Tílboð