Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2001, Page 12
12
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2001
Skoðun H>V
Þröstur Sveinsson nemi:
Ferrari F50, rauður.
Ólafur Símon Aðalsteinsson nemi:
Ford GT90, hvítur.
Þorvaldur Einarsson nemi:
Dodge Aspen, gangfær, brúnn.
Kristinn Styrmisson vinnuvélastjóri:
Ford Fairiane 500, 1959, svartur.
Sigurður Már Davíösson nemi:
Opel Astra coupé, svartur.
Gengisskráning
st j órnmálamanna
Það er aldrei að
bera í bakkafullan
lækinn að skrifa
um stjórnmál -
sem sumir nefna
aldrei annað en
pólitík og oft í
niðrandi merk-
ingu. í Bandarikj-
unum t.d. slá
menn oft saman
orðunum „politics
and poker“ þegar
rædd eru stjómmál og skýra þannig
þekkt áhugaleysi þarlendra á kosn-
ingum og stjórnmálaþátttöku yfir-
leitt. - Segja sem svo, að engu skipti
þátttaka almennings í kosningum,
allt sé ákveðið með einum eða öðrum
hætti í Washington. Þetta kann að
vera rétt ályktað hjá bandariskum al-
menningi og gengur þó allt með eðli-
legum hætti á þarlendan mælikvarða.
Hér á landi er aðra sögu að segja af
stjórnmálum. Þátttaka er almenn í
kosningum til þings og sveitarstjórna
og þykjast menn með henni ráða
verulega hvernig landinu er stjórnað
þótt svo enginn viti með vissu hver
eða hverjir stjórna eftir kosningar,
því þá byrjar nú fyrst ballið. - Timi
stjórnarmyndunarviðræðna er því
oft meiri spennutími en úrslit kosn-
inganna sjálfra.
Nú er hins vegar farið að bæta um
betur hér á landi því ungliðahreyf-
ingar stjórnmálaflokka, sem standa
sig vel í útgáfumálum vefmiðla
sinna, hika ekki við að gefa stjórn-
málamönnum einkunnir fyrir
frammistöðu þeirra. í stað þess að
ólmast eingöngu gegn andstæðingum
í öðrum flokkum, kryfja nú vefmiðl-
ar ungliðahreyfinganna frammistöðu
„í stað þess að ólmast ein-
göngu gegn andstæðingum
í öðrum flokkum, kryfja nú
vefmiðlar ungliðahreyfing-
anna frammistöðu sinna
stjórnmálamanna og gefa
þeim einkunnir.“
sinna stjórnmálamanna og gefa þeim
einkunnir. Frumkvöðlar að þessu
eru vefmiðlarnir Frelsi.is (vefrit
Heimdellinga og ungra sjálfstæðis-
manna) og Maddaman. is (vefrit
ungra framsóknarmanna). Þeir hika
ekki við að gengisfella þá stjórnmála-
menn sem lítið eða ekki koma við
sögu í stjórnmálunum, halda að sér
höndum eða fyrirgera rétti sínum að
þeirra mati til að vera þingmenn alls
landsins en draga taum sins kjör-
dæmis sérstaklega.
Taka má undir með vefmiðlum
þessum að því leyti að stjórnmála-
menn sem lítið láta að sér kveða í
þjóðmálaumræðunni og koma þá
helst fram þegar sykursæt dægur-
málin ber á góma i utandagskrárum-
ræðunni eru vart á vetur setjandi.
Alþingi er til þess að fjalla um
lagastafi, nýja eða endurgerða, en
ekki ætlað að gerast handbendi hags-
munahópa né að mynda hræðslu-
bandalag með stundarbrjáluðum
skyndisóknum alþjóðar í allsnægta-
þjóðfélagið úti við sjóndeildarhring-
inn. Gengisskráning stjórnmálanna
ætti að vera tiltæk og fastur liður í
þjóðlífmu og ekki minna marktæk en
aðrar skoðanakannanir um stöðu
stjórnmálamanna. Gengisskráning
stjórnmálamanna á vefritum ungliða-
hreyfinganna er nýjung í fjöl-"
miðlaflórunni og ætti enginn að firrt-
ast af því framtaki. - Ný kynslóð,
nýir taktar.
Samgöngumálin brýnasta verkefnið
Ásgeir Ásgeirsson
skrifar:
Margir fullyrða að samgöngur
þjóðar séu sífellt forgangsverkefni.
Áður en hugað er að auknu athafna-
lífi á hinum og þessum stöðum á ís-
landi er áreiðanlega meiri þörf á
bættum samgöngum, betra vega-
kerfi og greiðara. Þangað sem sam-
göngur eru greiðar allt árið þar
eflist atvinnulífið sjálfkrafa. Engum
dettur í hug að setja sig niður til bú-
setu eða framkvæmda nema þar
sem greiðfærar samgöngur tengjast
nærliggjandi eða næsta þéttbýlis-
svæði. Þetta á ekki síst við í sjávar-
útvegsgeiranum, þ.m.t. í fiskvinnsl-
unni sem hefur flust frá þekktum
sjávarútvegsplássum norðanlands
og vestan til þéttbýliskjarnans í
„Það er auðvitað megingalli
á framkvæmdaáætlun hins
opinbera að svo mikilvœgur
þáttur í þjóðfélaginu sem
samgöngumálin skuli ekki
sæta forgangi fram yfir aðr-
ar verklegar framkvæmdir
hins opinbera. “
kringum Akureyri og svo höfuð-
borgarsvæðisins og byggðanna
sunnan þess. En samgöngumálin
eru í verulegum ógöngum að segja
má um land allt. Höfuðborgarsvæð-
ið og þá sérstaklega Reykjavík eru
ekki undan skilin.
í ágætum leiðara í DV sl. fimmtu-
dag um þessi mál sem snúast þó að-
allega um eina eða tvær götur í
borginni, Kringlumýrarbraut og
Miklubraut allt að Vesturlandsvegi
og Suðurlandsvegi, er vandamálið
rætt itarlega. Eins og þar segir líka
eru verkefnin mörg og brýn og öll á
toppi þjóðhagslegrar hagkvæmni.
Það er auðvitað megingalli á
framkvæmdaáætlun hins opinbera
að svo mikilvægur þáttur i þjóðfé-
laginu sem samgöngumálin skuli
ekki sæta forgangi fram yfir aðrar
verklegar framkvæmdir hins opin-
bera. Flug er sífellt minnkandi þátt-
ur samgangna en bUlinn blívur og
mikilvægi hans í samgöngum í borg
og byggð vegur æ þyngra. Tilkoma
nýrrar orku fyrir bílana dregur
ekki úr þeirri staðreynd.
Garrí
Gleði á himnum yfir djúsdólgi
Fátt þykir eftirsóknarverðara erlendis en að
falla undir þá skilgreiningu sem jafnan er
skammstöfuð VIP og mun merkja „Very Impor-
tant Person,“ eða „afar mikilvæg persóna" upp á
íslensku. Þennan flokk fylla helst mikilmenni á
borð við kvikmynda- ellegar poppstjömur, þjóð-
arleiðtoga, fótboltakappa, milljarðamæringa,
kynbombur og raunar allir þeir sem eru frægir
fyrir eitthvað, jafnvel af endemum eða bara
frægir fyrir að vera frægir. Þetta VlP-fólk fær yf-
irleitt öðruvísi og betri trakteringar og þjónustu
en meðaljónar og jónur, það er snúist í kringum
það i flugvélum og stjanað við það á veitinga- og
gististöðum og það ekki síst gerir það svo eftir-
sóknarvert að vera VIP.
Það eru ekki margir íslendingar sem geta gert
tilkall til að vera meðhöndlaðir sem afar mikil-
vægar persónur. Vissulega Björk, hugsanlega
Ólafur Ragnar og ef til vill Kristján Jóhannsson.
Varla fleiri. Og jú, reyndar einn enn, ef marka
má DV um helgina, sem sé enginn annar en
sjálfur flugdólgurinn og tannlæknirinn Ómar
Konráðsson.
Ýsa í raspi
Ómar þessi varð landsfrægur fyrir meinta ölv-
un og ólæti um borð í Flugleiðavél á leiö til
Mexíkó fyrir einhverjum mánuðum og var í kjöl-
farið settur í flugbann og talinn óalandi en ekki
síst óferjandi í háloftunum.
En batnandi manni er best að lifa og Ómar er
nýkominn heim frá Mallorca og fór báðar leiðir
með Flugleiðum.
Og það væsti ekki um kappann um borð, enda
drakk hann aðeins að eigin sögn ávaxtadjús
bæði á út- og heimleið. Það var stjanað við hann
um borð, hann fékk flottasta sætið í vélinni,
besta matinn sem í boði var (ýsu í raspi) og þeg-
ar út var komið var honum útveguð flottasta
íbúðin á hótelinu. Og heimkominn tóku tollverð-
ir á móti Ómari eins og gömlum vini og hleyptu
honum í gegn óskoðuðum.
Ómar afturbataflugdólgur fékk sem sé í þess-
ari ferð þá þjónustu sem aðeins er veitt afar
mikilvægum persónum og er því kominn í VIP-
hópinn, einn örfárra íslendinga.
99 bindindismenn
En hvers vegna? Hljóta margir að spyrja, ekki
síst fólk sem hefur flogið bláedrú fram og aftur
um heiminn með Flugleiðum og aldrei verið til
vandræða, en aldrei fengið viðlika þjónustu og
fyrrum flugdólgur.
Ástæðan er ósköp einföld og hana er að finna
í hinni góðu bók, nánar tiltekið í Lúkasarguð-
spjalli, en þar segir m.a. að það sé „meiri gleði á
himni yfir einum syndara, sem gjörir iðrun, en
yfir 99 réttlátum, er ekki þurfa iðrunar við.“
Með öðrum orðum: Líkar eru Flugleiðir
himnaríki og gleðjast meir yflr einum iðrandi
flugdólgi, sem breytt hefur víni í appelsín, en
yfir 99 sífljúgandi bindindismönn-
um sem einskis hafa að iðra. G3ITI
Látiö úr höfn
Orðnir leiöir á þrasinu.
Sjómenn fegnastir
Þórarinn hringdi:
Þrátt fyrir hróp og köll nokkurra
manna í hópi mótmælenda við Alþing-
ishúsið sl. miövikudag þar sem sjó-
menn voru sagðir í meirihluta (sem ég
þó efast um að hafi verið) var staðan
sú, eftir að lög voru sett tU lausnar sjó-
mannaverkfallinu, að sjómenn voru
yfir sig ánægðir að fara á sjóinn. Þetta
kom glögglega fram í sjónvarps-
fréttaviðtali við einn þeirra sem var
að ganga um borð í skip sitt. Hann
sagðist vera orðinn dauðleiður á að
hanga svona og vita ekkert hvað yrði
um sig. Orð þessa sjómanns eru dæmi-
gerð fyrir aðra starfsbræður hans. Sjó-
mannaforustan á liklega ekki upp á
pallborðið hjá umbjóðendum i bráð.
Fyrirmyndar-
auglýsing Elko
Þóra Björnsdóttir skrifar:
Ég sá mér til ánægju opnuauglýs-
ingu í dagblaði frá Elko í Kópavogi. Ég
tel þessa auglýsingu vera tU fyrir-
myndar fyrir önnur fyrirtæki vegna
þess að hún var bara svart/hvít en
ekki í mörgum litum sem er margfalt
dýrara og auðvitað leggst sá kostnaður
á hlutina sem auglýstir eru. Ég hygg
að svona einfaldar auglýsingar geri
það m.a. að verkum, að Elko getur
boðið neytendum vörur sínar ódýrari
en aðrar verslanir sem selja svipaðar
vörur. Þarna fylgir verslunin sömu
stefnu og maður sér t.d. í stórblöðum í
Ameríku og víðar. Þar þykir nægja að
auglýsa matvörur og aðrar neysluvör-
ur í svart/hvítu. Það nægir líka.
Sjúkraliðar
enn í verkfall
Guðrún ÁgúsLsdóttir hringdi:
Það er ekki
langt síðan sjúkra-
liðar stóðu í
ströngu verkfalli
vegna launabar-
áttu. Maður er
hættur að hafa
samúð með þess-
um stéttum sem sí
og æ standa I
■.....■"*. kröfugerð um
kaup og kjör. Ég efa ekki að sjúkralið-
ar eru ekki oflaunaðir en þeir eru
áreiðanlega heldur ekki svo lágt laun-
aðir að þeir þurfl aö knýja á ríkis-
hirsluna með verkfalli eina ferðina
enn. - Maður getur ekki haft samúð
með neinum þeim sem ætlar að knýja
fram hækkuð laun með verkfalli. í
landi sem býr við margfalt góðæri
miðað við flestar aðrar þjóðir, með
miklu lengra sumarfrí en tíðkast í
öðrum löndum og annað eftir þvi.
Sjúkraliðar enn
á ferö
Er samúöin
að dvína?
Frábærar myndir
Vilhjálmur Alfreósson skrifar:
Tvær frábærar kvikmyndir eru nú
sýndar í Reykjavík, „Enemy at the
Gates“ og „Thirteen Days“. Fyrri
myndin er um orrustuna við Stalin-
grad 1942-1943 og sú seinni um Kúbu-
deiluna árið 1962. Ég fylgdist með öll-
um atburðunum á þessum árum, frá
degi til dags. í Kúbudeilunni var ég
ansi hræddur vegna þess að þar voru
ekki margir til að taka ákvörðun utan
tveir forráðamenn stórveldanna
tveggja, Sovétríkjanna og Bandaríkj-
anna. Á langri ævi hef ég lent i ýms-
um hættum en gat stjórnað sjálfur að
miklu leyti hvemig ég komst út úr
þeim. En í Kúbudeilunni var ekki um
slíkt að ræða. Hún var því martröð
fyrir mér eins og milljónum annarra.
Vonandi þarf mannkynið ekki að
ganga í gegnum svona aftur.
[dv Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.