Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2001, Qupperneq 24
40
\
Kawasaki
fjórhjólin
traust & lipur
KLF 220 2WD. 620.000 m/vsk.
KVF 300 4WD, h/l drif. 839.000 m/vsk.
KVF 400 4WD, h/l drif. 949.000 m/vsk.
Leikhúskórinn sýnir:
Sígaunabaróninn
eftir Johann Strauss.
Leikstjóri Skúli Gautason.
Tónlistarstjórn Roar Kvam.
Einsöngvarar:
Alda Ingibergsdóttir,
Ari J. Sigurösson,
Baldvin Kr. Baldvinsson,
Haukur Steinbergsson,
Hildur Tryggvadóttir,
Sigríður Elliðadóttir,
Steinþór Þráinsson,
Sveinn Arnar Sæmundsson
og Þórhildur Örvarsdóttir.
Miðvikud. 23. maí,
síðasta sýning.
Sýningar hefjast kl. 20.30
Sniglaveislan
eftir:
Ólaf Jóhann Ólafsson
Leikstjórn:
Siguröur Sigurjónsson.
Sýningar í
Loftkastalanum
Lil illJÚljliijOiiiMiIliulLIIJI
|lnlDlnj^3^1FOl
ItítQSElíWfjGl'v
ll.EIKrtLAr. akiibtvbabI
Miöasalan opin alla virka daga,
nema mánudaga, frá kl. 13:00-
17:00 og fram að sýningu,
sýningardaga.
Sími 462 1400.
www.leikfelag.is
____________________________________________________________________________MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2001
Tilvera DV
Jósep Rósinkransson bóndi bregöur búi:
Nútímabóndi þarf að vera
vel inni í tölvutækninni
DV-MYND GUOFINNUR
Jósep Rósinkransson, bóndi á Fjaröarhorni
/ dag er varla nokkur liötækur viö búskap nema hann sé vel inni
í tölvutækninni
Það standa fyrir dyrum miklar
breytingar hjá Jósep Rósinkrans-
syni, bónda á Fjarðarhorni og fyrr-
verandi ráðunaut hjá Búnaðarsam-
bandi Strandamanna, því hann ætl-
ar að bregða búi á árinu og snúa sér
að öðru.
Dóttirin tekur við
„Ég hóf búskap á Fjarðarhorni
árið 1959 en hafði áður verið ráðu-
nautur hjá Búnaðarsambandi
Strandamanna um tveggja ára
skeið,“ segir Jósep. „Það má segja
að það séu að verða straumhvörf i
lífi mínu, að minnsta kosti í mínum
búskap, þar sem ég er að bregða húi
á árinu en dóttir min og tengdason-
ur að taka við. Ég veit ekki hvenær
skiptin fara formlega fram, dóttir
mín kemur í sauðburðinn eins og
hún hefur gert síðustu ár. Tengda-
sonur minn er rafvirki í álverinu í
Straumsvík en hættir þar um næstu
mánaðamót. Þau eru hæði kunnug
hér og hafa aðstoðað mig mikið við
búskapinn.
Jörðin var í ábúð þegar ég keypti
hana en hafði verið leigð um
nokkurn tíma og húsakostur var lé-
legur og ræktað land ekki mikið. Ég
keypti bústofninn af fráfarandi
bónda og var fyrstu árin með kýr til
heimilisins og um 150 kindur. Síðan
stækkaði ég búið eitthvað en húsin
leyfðu þó ekki mikið. Á meðan ég
var að koma undir mig fótunum
starfaði ég með þúskapnum á jarð-
ýtu, þvi þegar ég eignaðist jörðina
var ég allslaus en átti þó fyrir afsal-
inu. Að öðru leyti var hún keypt í
skuld og þurfti ég því að afla tekna.“
Gæðastýring
Jósep hefur kynnst miklum um-
skiptum í búskaparháttum og nú
síðast hefur hann verið að kynna
sér gæðastýringarkerflð sem á að
fara að setja á. „Tækniframfarir
hafa náttúrlega orðið miklar, svo og
vélvæðingin. í dag er varla nokkur
liðtækur við búskap nema hann sé
vel inni í tölvutækninni sem ég er
nú reyndar ekki.
Ég hef svolítið kynnt mér nýja
gæðastýringarkerfið og líst að
mörgu leyti vel á það ef skrifflnnsk-
an verður í hófl. Bændur hafa ekki
tíma til að eyða of miklum tíma í
slíkt og þess vegna þarf að hafa
kerfið eins einfalt og mögulegt er.
Ég held t.d. að sauðfjárbúskapur í
framtiðinni verði nánast útilokaður
nema menn fari út i gæðastýring-
una.“
Virkur í félagsmálum
Jósep hefur verið virkur í félags-
málum og hann var snemma kjör-
inn á búnaðarþing þar sem hann sat
í 24 ár.
„Undir það síðasta var ég orðinn
samtímis á búnaðarþingi og fulltrúi
á stéttarsambandsfundum, þá baðst
ég undan endurkjöri á stéttarsam-
bandsþingi. Ég hef einnig verið for-
maður Búnaðarfélags Bæjarhrepps í
Hrútafirði og var einmitt að koma
af fundi.
Það má segja að nýir bændur hafi
komið á annað hvert býli i sveitinni
hin síðari ár. Sjálfur verð ég sjötug-
ur á næsta ári og ég hef fyrir löngu
tekið þá ákvörðun að vera ekki við
búskap eftir sjötugt.
Það verður nóg að gera hjá dóttur
minni og tengdasyni þegar þau taka
við þvi viðhald hefur verið lítið
undanfarið. Á sinum tima fór ég út
í loðdýraræktina sem varð nú til
þess að maður tapaði verulegum
fjármunum og einnig framleiðslu-
rétti í sauðfjárræktinni sem varð til
þess að ég dró saman í búskapn-
um.“
Jósep segir það óráðið hvað taki
við hjá honum þegar hann hættir
búskap. „í sumar verð ég hér en hef
ekki tekið ákvörðun um framhaldið.
Það getur alveg eins farið svo að ég
flytji suður á mölina." -GF
Hjónavígsla
að heiðnum sið
- Ingólfur Júlíusson gengur að eiga Moniku Haug
Hjónavígsla að heiðnum sið fór
fram við Árbæ á laugardaginn en
þar gaf Jörmundur Ingi Hansen
allsherjargoði saman þau Moniku
Haug og Ingólf Júliusson. Ingólfur
er lesendum DV að góðu kunnur
enda hefur hann unnið á blaöinu
um nokkurra ára skeið ýmist sem
ljósmyndari eða umbrotsmaður.
Ekki er laust við að samnorrænt
andrúmsloft hafi myndast í brúð-
kaupinu enda er Monika norsk og
fjölmenntu ættingjar hennar hingað
til lands af þessu tilefni. Að hjóna-
vígslunni lokinni var slegið upp
heljarinnar veislu þar sem norskur
og íslenskur hátíðarmatur var á
boðstólum, mjöðurinn flaut í bun-
um og dansinn dunaði fram undir
morgun.
r- 1
™ $ * * . Jvt" ■ *> ■ # ó 1 , 'i 4
Vaskir hjálparkokkar
Möröur Gunnarsson og Arnar Einars-
son voru allsherjargoöanum innan
handar viö athöfnina. Aö sjálfsögöu
klæddu þeir sig upp eftir tilefninu.
Sopinn góður
Ingólfur teygar mjöö úr horni aö
hætti fornmanna. Ekki er annaö aö
sjá en aö kappinn kunni vel aö meta
guöaveigarnar.
Glösum lyft
Ekki haföi Jörmundur Ingi fyrr gefiö Ingólf og Moniku saman en glös gesta
voru fyllt af bjór og skálaö fyrir brúöhjónunum ungu.
DV-MYNDIR EINAR J.
Hringarnir settir upp
Brúöhjónin setja upp hringana að heiðnum siö.
Ung og ástfangin
Monika Haug og Ingólfur Júlíusson voru aö vonum sæl á svip aö
athöfn lokinni.