Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2001, Side 26
42
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2001
íslendingaþættir _____________________________________________________________________________________________________3PV
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Ffmimtiiiigluir
Kristján Valdimarsson
forstöðumaður í Reykjavík
Stórafmæli
85 ára__________________________
Jónheiður Níelsdóttir,
Njálsgötu 1, Reykjavík.
75 ára_________________________
Sigríöur Guðmundsdóttir,
Laugarásvegi 23, Reykjavík.
70 ára_________________________
Aðalheiöur Magnúsdóttir,
Rauöhömrum 10, Reykjavlk.
Þorvaröur Haraldsson,
Nýbýlavegi 66, Kópavogi.
60 ára_________________________
Guðrún Ester Halldórsdóttir,
Fossheiöi 2, Selfossi.
Gunnþórunn R. Þórhallsdóttir,
Valhúsabraut 21, Seltjarnarnesi.
Hólmsteinn Arason,
Hamraborg 16, Kópavogi.
Jón Þorbjörnsson,
Ljósheimum 8a, Reykjavlk.
Ragnhildur Lýðsdóttir,
Þrúövangi 22, Hafnarfirði.
Unnstelnn Arason,
Berugötu 16, Borgarnesi.
50 ára_________________________
Anna Sigurlína Karlsdóttir,
Látraseli 7, Reykjavík.
Björg Ásgeirsdóttir,
Kögurseli 2, Reykjavík.
Jón F. Sigurðsson,
Herjólfsgötu 8, Hafnarfiröi.
Ólafía Björk Davíösdóttir,
Mávahllð 17, Reykjavlk.
Sigurveig Sigtryggsdóttir,
Ásbúö 44, Garöabæ.
40 ára
Kristján Valdimarsson forstöðu-
maður, Háteigsvegi 14 í Reykjavik,
er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Kristján er fæddur á Akureyri og
ólst þar upp til flmm ára aldurs er
hann flutti til Reykjavíkur. Hann
lauk landsprófi frá Gagnfræðaskóla
Vesturbæjar 1968, stúdentsprófi frá
MA 1972 og BA-prófi I stjórnmála-
fræði frá HÍ 1976.
Kristján starfaði hjá Olíuverslun
íslands í skólaleyfum 1964-75, hjá
KEA á Akureyri 1972-73, við rann:
sóknir hjá Félagsvísindadeild HÍ
1976 og var deildarfulltrúi þar
1976-79.
Kristján var framkvæmdastjóri
Alþýöubandalagsfélagsins í Reykja-
vík 1979-84, skrifstofustjóri Alþýðu-
bandalagsins 1984-88 og fram-
kvæmdastjóri Alþýðubandalagsins
1988-90. Hann var deildarstjóri í
fjármálaráðuneytinu 1991 en hefur
frá 1991 verið forstöðumaður starfs-
þjálfunarstaðarins Örva.
Kristján sat m.a. í stjóm Æsku-
lýðssambands íslands 1977-79, í
Æskulýðsráði Reykjavíkur 1978-86,
átti sæti í samstarfsnefnd Æsku-
lýðsráðs Reykjavíkur og Fræðslu-
ráðs 1982-86, var annar fulltrúi fs-
lands í Norræna æskulýðssjóðnum
(Kommittén for nordiskt ungdoms-
samarbete) 1978-85, var varaformað-
ur sjóðsins 1978-80, átti sæti í stjórn
Neytendafélags höfuðborgarsvæðis-
ins 1986-89 og jafnframt i stjórn
Neytendasamtakanna.
Kristján er formaöur Samtaka
um vinnu og verkþjálfun (SVV) og
er varamaður í félagsmálaráði
Reykjavíkur.
Fjölskylda
Kristján kvæntist 1971 Örnu
Hólmfríði Jónsdóttur, f. 10.9. 1953,
lektor. Foreldrar hennar eru Jón
Magdal Bjarnason, f. 26.10.1931, raf-
virkjameistari í Hafnarfirði, og Jón-
ína Þorsteinsdóttir, f. 14.8. 1932,
röntgentæknir á Akureyri. Kristján
og Ama skildu 1985.
Sonur Kristjáns og Örnu er Hrafn
Kristjánsson, f. 30.10. 1972, íþrótta-
kennari á ísafirði.
Kristján kvæntist 1999 Ragnheiði
Bóasdóttur, f. 30.12. 1964, náms- og
starfsráðgjafa í Fjölbrautaskólanum
við Ármúla. Foreldrar Ragnheiðar
eru Bóas Gunnarsson, f. 15.12. 1932,
og Guðfinna Kristin Sigfúsdóttir, f.
6.12. 1933, frá Stuðlum í Mývatns-
sveit.
Dóttir Kristjáns og Ragnheiðar er
Amý Eir Krist-
jánsdóttir, f. 14.1.
1999.
Sonur Ragn-
heiðar er Arnald-
ur Bjamason, f.
24.6. 1990.
Kristján átti
einn bróður,
Valdimar Valdi-
marsson, f. 18.2.
1954, d. 6.2. 1993.
Börn Valdi-
mars eru Fanney
Dögg Valdimars-
dóttir, f. 5.8.1979,
og Valdimar
Svan Valdimars-
son, f. 1.4. 1993.
Móðir Fanneyjar
Daggar er Jóna
Vilborg Guðmundsdóttir, f. 5.5.1955,
hjúkrunarfræðingur. Móðir Valdi-
mars Svans er Guðrún Svanhvít
Sigurðardóttir, f. 6.7. 1955.
Foreldrar Kristjáns voru Valdi-
mar Jakobsson, f. 24.7. 1928, d. 25.3.
1989, deildarstjóri og Fanney Unnur
Kristjánsdóttir, f. 18.2. 1927, d. 27.9.
1982, auglýsingastjóri.
Ætt
Valdimar var sonur Jakobs Frí-
manns Kristinssonar, útgerðar-
manns í Hrísey, en bjó lengst af á
Akureyri. Jakob var ættaður frá
Stóra-Eyrarlandi á Akureyri.
Móðir Valdimars var Filipía Guð-
rún Valdimarsdóttir, ættuð frá
Litla-Árskógi á Árskógsströnd.
Fanney var dóttir Kristjáns Páls-
sonar, bónda á Hólslandi í Eyja-
hreppi, og k.h., Danfríðar Brynjólfs-
dóttur.
Gunnhildur Jónasdóttir,
lllugagötu 55, Vestmannaeyjum.
Hafþór Breiðfjörð Sigþórsson,
Unufelli 27, Reykjavlk.
Hjörtur Sævar Steinason,
Dúfnahólum 4, Reykjavlk.
Magnús Helgi Björgvinsson,
Arnarsmára 4, Kópavogi.
Valdimar Valdemarsson,
Hófgeröi 1, Kópavogi.
U
bílar og farartæki
húsnæði
markaðstorgið
atvinna
qf
einkamál
550 5000
IHBræður
Sigurður Elías Eyjólfsson
prentari á Seltjarnarnesi
Sigurður Elías Eyjólfsson prent-
ari, Skólabraut 3, Seltjamamesi, er
níræður í dag.
Starfsferill
Sigurður fæddist við Grettisgöt-
una í Reykjavík. Hann hóf nám í
prentiðn við ísafoldarprentsmiðju
1929 og lauk þar námi.
Sigurður starfaði við ísafoldar-
prentsmiðju til 1941. Hann var verk-
stjóri í Víkingsprenti 1941A14 og var
síðan verkstjóri í vélasal Alþýðu-
prentsmiðjunnar 1944-64.
Sigurður stofnaði Hagprent 1964
með Eyjólfi syni sínum og starf-
ræktu þeir fyrirtækið til 1981 er
þeir seldu það.
Sigurður sat í iðnfræðsluráði
1954-62 og var endurskoðandi reikn-
inga þar 1951-54, sat í stjórn Hins ís-
lenska prentarafélags 1957-61, var
varaformaður félagsins 1961-64, var
formaður fulltrúaráðs Alþýðu-
flokksins í tvö ár og sat í stjórn þess
í nokkur ár og var prófdómari í
prentun 1951-69.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 23.7. 1938
Ragnhildi Sigurjónsdóttur, f. 16.7.
1918, frá Vestmannaeyjum. Hún er
dóttir Sigurjóns Sigurðssonar og
Kristínar Óladóttur.
Börn Sigurðar og Ragnhildar eru
Eyjólfur, f. 29.11. 1938, búsettur í
Belgiu, en kona hans er Sjöfn Ólafs-
dóttur, f. 2.6. 1942;Jóhanna Ingi-
björg, f. 22.5. 1942, búsett í Hafnar-
firði, en maöur hennar er Guð-
mundur Guðjónsson; Gísli Ragnar,
f. 19.9. 1943, búsettur í Hafnarfirði,
en kona hans er Þórdís Brynjólfs-
dóttir, f. 28.8. 1949; Óli Kristján, f.
23.1. 1946, d. 9.7. 1992, var kvæntur
Gunnþórunni Jónsdóttur, f. 28.1.
1946; Guðrún, f. 1.3. 1952, búsett í
Reykjavík, en maður hennar er
Hlöðver Sigurðsson, f. 16.3. 1945.
Afkomendur Sigurðar og Ragn-
hildar eru nú fjöratíu og einn tals-
ins.
Systkini Sigurðar: Gíslína Ragn-
heiður Eyjólfsdóttir, f. 1904, d. 1925;
Sigurður Elías Eyjólfsson, f. 1907, d.
í fæðingu; Jón Elías Eyjólfsson, f.
21.8. 1916.
Foreldar Sigurðar voru Eyjólfur
Sigurðsson frá Pétursey í Mýrdal, f.
2.11. 1879, d. 14.10. 1940, og Guðrún
Gísladóttir frá Hafþórsstöðum í
Norðurárdal, f. 16.7. 1880, d. 31.7.
1971.
Sigurður verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Óli Bergholt Lúthersson
húsvörður hjá Tónlistarhúsi Kópavogs
Óli Bergholt Lúthersson, húsvörður hjá Tónlistarhúsi Kópavogs, Ásbraut 21, Kópavogi, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Óli fæddist í Bergsholti í Staðarsveit
á Snæfellsnesi og ólst þar upp í for-
eldrahúsum til tvítugsaldurs. Hann stundaði nám viö Héraðsskólann á fitsa
Laugarvatni 1947-48.
Óli ók hjá Bifreiöastöö Steindórs í
fimm ár, hjá Landleiöum í átta ár og var
leigubifreiðarstjóri á eigin bíl hjá Bæjar- leiðum í tólf ár. Hann starfaði hjá ísal í
Straumsvík í fimm ár og vann hjá Rad-
íóbúðinni í nítján ár, fyrst við afgreiðslu
á verkstæði og síðan fyrir skrifstofuna.
Hann hefur nú verið húsvörður hjá
Salnum í Kópavogi sl. tvö ár.
Óli sat í stjórn Hreyfils og Frama,
sat i stjóm Lánasjóðs Frama, hefur
starfað mikið í sjáifstæðisfélögunum í
Kópavogi og sungið með Snæfellinga-
kómum og Kór Kirkju óháða safnaðar-
ins.
Fjölskylda
Eiginkona Óla er Svana Svanþórs-
dóttir, f. 26.3. 1934, húsmóðir og mat-
ráðskona hjá íslandsbanka FBA. Hún
er dóttir Svanþórs Jónssonar, f. 5.9.
1912, múrarameistara og Sigurástu
Ásmundsdóttur, f. 11.3. 1912, verslun-
arkonu.
Börn Óla og Svönu eru Ragna, f.
19.10. 1956, skrifstofumaður og hús-
móðir, gift Eiríki Guðbjarti Guð-
mundssyni múrarameistara og eiga
þau þrjú börn;Kristín Theodóra, f.
12.1. 1960, verslunarmaður og hús-
móðir, gift Óla Sævari Halldórssyni
Laxdal verslunarmanni og eiga þau
fjögur böm; Ásdís, f. 22.4. 1967, ljóð-
skáld og listhönnuður; Lúther, f. 14.1.
1972, húsasmíðameistari.
Systkini Óla em Jón, f. 13.2. 1914,
fyrrv. bóndi að Brautarholti í Staðar-
sveit og verslunarmaður, nú búsettur
í Reykjavik; Svafa, f. 27.7.1915; Krist-
ín Ásthildur, f. 1.4. 1917, d. 21.4. 2000
Guðrún Fjóla, f. 8.6.1921, d. 12.7.1998
Petrea, f. 19.2.1925; Pétur Bergholt, f
2.9.1936, húsgagna- og innanhússarki
tekt.
Foreldrar Óla era Lúther Jónsson
frá Valshamri á Skógarströnd, f. 22.9.
1892, d. 28.4. 1974, bóndi í Bergsholti í
Staðarsveit, og k.h., Kristín Theodóra
Pétursdóttir frá Árnhúsum á Skógar-
strönd, f. 21.11.1890, d. 18.2.1984, hús-
freyja og saumakona í Bergsholti.
Öli og Svana verða að heiman á af-
mælisdaginn.
Merkir Islendingar
Torfi Hjartarson, tollstjóri og ríkissáttasemj
ari, fæddist á Hvanneyri i Borgarfirði 21
maí 1902. Foreldrar hans voru Hjörtur
Snorrason alþingismaður, skólastjóri á
Hvanneyri og bóndi á Skeljabrekku og í
Arnarholti, og k.h„ Ragnheiður hús-
freyja, dóttir Torfa, skólastjóra í Ólafs-
dal, Bjamasonar. Bróðir Torfa Hjartar-
sohar var Snorri skáld. Meðal barna
Torfa eru Hjörtur hæstaréttardómari
og Ragnheiður, rektor MR.
Torfl lauk stúdentsprófi frá MR 1924,
embættisprófi 1 lögfræði frá HÍ 1930 og
dvaldi í London við framhaldsnám
1930-31.
Torfl naut feikilegs trausts sem vandað-
ur embættismaður enda tollstjóri í Reykja-
vík 1943-72, sáttasemjari á sama tíma frá 1945
Torfi Hjartarson
til sjötíu og átta ára aldurs og oddviti yfir-
kjörstjórnar við bæjarstjórnarkosningar í
Reykjavík 1949-70. Þá kom hann eitt sinn
sterklega til greina sem borgarstjóraefni
sjálfstæðismanna og sem ráðherra í
utanþingsstjóm. Hann varð fyrsti for-
maður Sambands ungra sjálfstæðis-
manna 1930 og hélt eftirminnilega
ræðu á afmæli SUS á Þingvöllum,
1990. Þar mælti hann skörulega gegn
EB-aöild og sagði íslendinga ekki hafa
brotist undan Dönum til að láta þá
stjóma sér aftur i gegnum Brussel.
Torfi var látlaus og hressilegur í við-
móti, hélt góðri heilsu fram á elliár og ók
eins og herforingi sínum hálfrar aldar
gamla Willys-jeppa, er hann sjálfur var kom-
inn á tíræðisaldur. Hann lést 8. október 1996.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Einarsson
útfararstjóri
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Utfararstofa Islands
Suðurhlíö35' Sími 581 3300
allan sólarhringinn. www.Utforin.is