Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2001, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2001
DV
Tilvera
Hársnyrtivörur í úrvali
■
afburða gott grip
verð
frá verksmlðju
• Frábart
Róttarhálsl 2, síml 687 6588
Sklpholtl 85, síml 558 1855
ÞJónustuaðllar um land allt
Glldir fyrir þriöjudaginn 22. maí
Vatnsberlnn (?0. ian.-18. febr.l:
Vinir og fjölskylda
skipa stóran sess í dag
I og þú ferð ef til vill á
mannamót. Þú kynnist
nýjum hugmyndum varðandi
starf þitt.
Fiskarnlr (19. febr.-20. mars);
Vertu sjálfum þér sam-
‘ kvæmur þegar þú tjáir
fólki skoðanir þínar.
Þú lendir í vandræð-
um ef þú heldur þig ekki við
sannleikann.
Hrúturlnn (21. mars-19. april);
Þú verður að sýna
' sjálfstæði og ákveðni í
vinnunni þinni. Ekki
taka gagnrýni of nærri
þér en hlustaðu á hana og gættu
að því sem betur má fara.
Nautið (20. apríl-20. maí):
Þér tekst eitthvað sem
þú hefur mikið verið
f 1 ” að reyna við undanfar-
iö. Farðu varlega og
íhugaðu vel hvert einasta skref
sem þú tekur í nýju starfi.
Tviburarnir 121. maí-21. iúníi:
Láttu eftir þér að slaka
' á í dag en gættu þess
að láta ekki nauðsyn-
leg verk sitja á hakan-
■ þinn kemur í heim-
sókn í kvöld.
i viuuídnin u
um. Vinur \
da
ao
Krabblnn (22. iúní-22. íúiíí:
Þú veltir fyrir þér að
i fara í stutt ferðalag. Þér
finnst þú þurfa á
einhverjum nýjungum
! þyrftir að gefa þér tíma
til að gera eitthvað fyrir sjálfan þig.
Uðnlð (23. iúlí- 22. áeústi:
Þú finnur fyrir breyt-
ingum i fari ákveðinn-
ar manneskju og ert
ekki viss um að þér
líki hún þó að aðrir virðist vera
afar ánægðir.
Mevian (23. áeOst-22. sept.):
Þú átt ánægjulegan
dag. Rómantíkin gerir
vart við sig og þú ert í
^ r góðu jafnvægi þessa
dagana. Þú færð hrós fyrir vel
unnin störf.
Stofnuð 1918
Hárgreiðslustofan
Klapparstíg
Sími 551 3010
DV-MYND GS
Grunnurinn lagður
Grunnur aö fyrsta sumarhúsinu sem fyrirtæki hans framleiðir.
Flateyri:
Sumarhús úr
rekaviöi
„Það lá beint við að fara út í
framleiöslu sumarhúsa. Fyrirtækið
framleiðir ailt timbur sem þarf í
sumarhús þannig að þetta er bara
beint framhald," segir Sævar Ingi
Pétursson, framkvæmdastjóri tré-
smiöjunnar Særeka ehf. á Flateyri.
Fyrirtækið byrjaði nú í vor smíði
sumarhúsa og þegar er búið að selja
fyrsta húsið sem er í smiðum. Upp-
haf timburvinnslunnar má rekja
um áratug aftur er Sævar fór að
sækja rekavið á hinar fengsælu í]ör-
ur á Ströndum og vann hann úr
þessu smíðaefni, svo sem gólfborð,
húsaklæðningu og fleira, auk þess
sem smíðuð hafa verið óhefðbundin
garðhúsgögn úr rekaviðnum.
„Eftirspurnin óx mjög hratt
þannig aö rekaviðurinn dugði
hvergi nærri til að anna eftirspurn.
Við fórum því að kaupa trjáboli
beint frá útlöndum og vinna hérna á
Flateyri. Mest af afurðunum fer suö-
ur á land þannig aö mér fannst til-
valið að reyna að fullvinna timbrið
meira hér á staðnum og sumarhúsa-
framleiðslan er einn liöur í því,“
segir þessi athafnamaður.
-GS
Vogin (23. sept-23. okt.l:
J Dagurinn verður
skemmtilegur og þú
\ f færð eitthvað nýtt að
r f hugsa um. Kvöldið
verður líflegt og skemmtilegt.
Happatölur þinar eru 10, 16 og 39.
Sporddreki 124. okt.-21. nóv.):
I Þér gengur vel að ná
sambandi við fólk og
) átt auðvelt með að fá
það til að hlusta á þig.
ér tækifærið til að kynna
hugmyndir þínar.
Nýttu
Boeamaður (22. nóv.-2i. des.):
Þú rekur þig á ýmsa
veggi í dag. Þér reynist
erfiðara en þú hélst að
nálgast ákveðnar upp-
sem þú telur mikilvægar.
Happatölur þínar eru 3, 9, 18.
Stelngeltln (22. des.-19. ian.l:
^ - Þú ættir ekki að treysta
algerlega á eðhsávisun-
* ina þar sem hún gæti
brugðist þér. Þú hittir
persónu sem heillar þig. Farðu
varlega því ekki er allt sem sýnist.
DV-MYND RAGNAR EIÐSSON.
Með hjálm á höfði og bros á vör
Hér er æskufólkiö í Djúpavogi ásamt stjórnum Bárunnar og Rauöa krossins. Allir meö hjálm á höföi og bros á
vör. Sumrinu er fagnaö meö ábyrgum og öruggum hætti, allir setja upp reiöhjólahjálmana.
Allir með
hjálma á höfði
Smáauglýsingar
Allt til alls
►I 550 5000
PV. DJUPAVOGI:
Þegar bjartir vordagamir fara í
hönd draga ungir sem aldnir fram
reiðhjólin sín og njóta hoflrar úti-
veru og hreyfmgar á þeim farar-
tækjum. En því miður, slys geta
orðið þar sem annars staðar og tii
að draga úr áhættu á alvarlegum af-
leiðingum reiðhjólaslysa hefur
Slysavamafélagið Bára og Djúpa-
vogsdeild Rauða krossins gefið nem-
endum í 1.-7. bekk Grunnskóla
Djúpavogs reiðhjólahjálma ásamt
glitaugum á hjól. Þetta er hvatning
til allra að sleppa aldrei hjálmum ef
hjólað er hvort sem vegalengdir eru
stuttar eða langar og minnka þar
meö líkur á alvarlegum áverkum ef
illa fer. Stjórnarmenn í Rauðakross-
deildinni og Slysavamafélaginu
ásamt lögreglu staðarins afhentu
hjálmana og spjölluðu við bömin
um notkun reiðhjóla í umferðinni.
Vonandi verður þetta framtak til
þess að á Djúpavogi sést enginn
framar hjóla án hjálms. -RE
Benidorm
Stokktu til
36.985
1.júníí6nætur frá kr.
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tækifæri á síðustu
sætunum til Benidorm 1. júní í vikuferð, 6 nætur, miðað
við heimflug þann 7. júní. Þú bókar núna og 4 dögum
fyrir brottför segjum við þér hvar þú gistir.
Verðdœmi kr.36.985
Verð á mann miðað við hjón með 2 börn,
2—11 ára,flug, gisting, skattar.
Verðdœmi kr. 45.930,- Heimsferðir
Skógarhlíð 18, sími 5951000. www.heimsferdlr.ls
Verð á mann miðað við 2 i íbúð.
Judge Rein-
hold 45 ára
Bandaríski gaman-
leikarinn Judge Rein-
hold er afmælisbarn
dagsins og verður
hann 44 ára í dag. Fer-
ill Reinholds er lang-
ur og meðal þekktra
mynda sem hann hefur leikið í má
nefna gamanmyndirnar Beverly
Hms Cop 1, 2 og 3, en þar lék hann
aðstoðarmann Eddies Murphy og
gerði það vel. Reinhold hefur leikið
í um sextíu kvikmyndum.