Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2001, Síða 28
44
_________________________________________________MÁNUDAGUR 21. MAÍ 2001
Tilvera i>'V
>
■ BIO I RAFEIND Rafelnd. Egils-
stööum, sýnir myndina The Wedding
Planner k>. 20.
Fundir
■ ZEN HUGLEIÐSLA GEGN
STREITU Zen-meistarinn Jakusho
Kwong - roshi heldur almennan
fyrirlestur um Zen hugleiöslu I
Gerðubergl í kvöld og hefst hann
stundvíslega kl. 20.00.
Mörg okkar upplifa streitu, kvíöa og
vonleysi í hinu daglega lífi. Aukinn
hraöi og spenna í þjoöfélaginu hefur
f för með sér aukinn skort á
mikilvægum mannlegum eiginleikum
á borð við kyrrö, hlýju og samúð.
Zen byggir á öndun og vakandi
huga, byöur upp á tækfifæri til þess
aö staldra við, beina huganum inn á
viö og kynnast sjálfum sér.
Fyrirlestur Jakusho Kwong fer fram á
ensku.
Sýníngar
a LIFSINS BRAUT Jonína
Magúsdóttir, „Nlnný", hefur opnaö
sýninguna Lífsins braut í Gallerí List
í Skipholti 50 d. Þar sýnir hún
myndir sem hún hefur unnið á
þessu ári og síöasta. Efniviöurinn er
olía, akrýllitir og strigi. f myndunum
veltir Ninný fýrir sér tilverunni og
lífinu sem flæðir stööugt fram.
Sýningin er opin alla virka daga til 8.
júní frá 11 til 18 og laugardaga frá
11 til 14.
■ SÝNING Á MOSAIK
VERKUMHópur kvenna sem kallar
sig Mosaik 2001 hefur opnaö
sýningu á mósaíkverkum í
Listmunahúsl Ófeigs viö
Skólavöröustíg.
■ UÓSMYNDSÝNING í GALLERÍ
GEYSI Hin Hollenska Fenke Kuiling
hefur opnaö einkasýningu í Gallerí
Geysi, Hinu húslnu viö Ingólfstorg.
Fenke hefur dvaliö hér á landi í ár
og í Gallerí Geysi sýnir hún
Ijosmyndir teknar á íslandi þar sem
hún reynir aö fanga andrúmsloftiö í
landslaginu, þar sem eitthvaö
augljóst getur litiö út fyrir að vera
eitthvaö annaö séö gegnum linsu
myndavélarinnar. Sýningin stendur
til 3. júní.
■ BÁTASÝNING Öldungurinn síungi
Diörlk Jónsson sýnir báta sem hann
hefur smíðaö á undanförnum árum
aö Dalbraut 27. Sýningin er oþin
virka daga frá 13 til 16.
■ MESSÍANA TÓMASDÓTTIR í
HAFNARBORG Sýning Messíönu
Tómasdóttur, Selló, veröur opnuð í
Hafnarborg í Hafnarfirðj í dag klukk-
an 16. Á sýningunni verða plexí-
skúlptúrar og verk fyrir barnaóper-
una Skuggaleikhús Ófelíu. Messí-
ana er fædd áriö 1940 og stundaöi
nám í myndlist og fleiru í Danmörku
og Frakklandi auk heimalandsins.
Hún hefur sett upp átta myndlistar-
sýningar og nær sextíu leikmyndir
fyrir leikhús og sjónvarp í hinum
ýmsu löndum. Sýningin er opin frá
11-17 alla daga nema þriöjudaga og
stendur til 3. júní.
Sjá nánar: Lífið eftir vlnnu á Vísl.ls
Spáö í fyrirsagnir fréttablaðs klúbbsins
Crístina Attensperger og Ólína Guðmundsdóttir, ásamt setningarmanninum Einari Björnssyni.
SV-MYND HARI
Öflugt starf hjá Geysi:
Tækifæri til að
nýta hæfileikana
Tælenskt kvöld
Taílensk matargerö og smakk,
sólhlífardans og sýning á taí-
lenskum þjóðbúningum veröur á
dagskrá Listaklúbbs
leikhússkjallarans í kvöld. Auk
þess er kynning á landafræði og
lífsháttum Tælands í máb og
myndum, umræður og fleira.
Dagskráin hefst klukkan 20.30
en húsið opnar klukkustund
áður.
Matarilm leggur að vitum blaða-
manns þegar hann ber að garði á
Ægisgötu 7, í húsnæði klúbbsins
Geysis. Þar er verið að steikja „ekta
danskar frikadellur" í hádegismat-
inn. Geysir er klúbbur fyrir einstak-
linga sem hafa átt eða eiga í geð-
rænum vanda en þar er enginn
sjúklingabragur á neinu enda fólk í
klúbbnum ekki sjúklingar heldur fé-
lagar.
Fimmtán lambalæri krydduð
Mikið annríki er á heimilinu því
norræn ráðstefna er að hefjast og
undirbúningur á lokastigi. Ráð-
stefnugögnin raöast upp og í eldhús-
inu er verið aö krydda 15 lambalæri
handa gestunum. Auk íslenskra
þátttakenda kemur fólk á ráðstefn-
una frá sams konar klúbbhúsum
annars staðar á Norðurlöndum og
Eistlandi. Einnig eru væntanlegir
tveir bandarískir fulltrúar og John
Bowis, fyrrum heilbrigðisráðherra
Breta, sem heldur fyrirlestur.
„Hann hefur mikla reynslu i hvaða
úrræði skila árangri fyrir einstak-
lingana og samfélagið," segir Ólína
Guömundsdóttir, annar tveggja
starfsmanna Geysis. Hinn er Anna
Valdimarsdóttir iðjuþjálfi. Þær eru
fremstar meðal jafningja og hvorug
á sérstakt borö eða stól innan húss-
ins. Þarna er grasrótarstefnan í
sinni gleggstu mynd.
Ef enginn vill elda þá er
enginn matur
Geysir er eins og hálfs árs gamall
klúbbur, rekinn eftir alþjóðlegri
hugmyndafræði sem upprunnin er i
Ameríku fyrir um 50 árum. Nú eru
starfrækt 350 hús í 27 löndum eftir
þeirri hugmyndafræði. „Þetta er
vonandi vísir að enn öflugra starfi
hér á landi," segir Ólína og telur þörf
á að opna fleiri hús undir sömu for-
merkjum á höfuðborgarsvæðinu og
stærri stöðum úti á landi. Skráðir fé-
lagar í Geysi eru 65 og daglega koma
um 15-25 einstaklingar á Ægisgötuna
til að leggja hönd á plóg í þeim verk-
efnum sem fyrir liggja. „Geysir held-
ur uppi annars konar starfsemi en
hefur verið í boði til þessa. Hér fólk í
vinnu en ekki afþreyingu og gefst
tækifæri til að nýta sina hæfileika,"
segir Ólína og bætir við að enginn sé
í þiggjenda- eða neytendahlutverki
heldur beri allir ábyrgð á daglegum
rekstri. „Ef enginn vill elda hér þá er
enginn matur," segir hún til að
skerpa myndina.
Útgáfa og alls konar starf-
semi
Anna segir að auk vinnu við inn-
kaup, matargerð, þrif og strauingu
gefi klúbburinn út blað, „Klúbburinn
Geysir fréttabréf." Fólk taki viðtöl,
skrifi greinar, selji styrktarlínur og
taki myndir. Það fer heldur ekki fram
hjá blaðamanni að hann er staddur á
ritstjórn þar sem verið er að skrifa og
skapa. Anna nefnir lika símavörslu,
bókhald, móttöku nýrra félaga og
kynningu á starfsemi klúbbsins sem
dæmi um verkefni klúbbfélaga. „Svo
fer mikill tími í að sinna samskiptum
við erlenda klúbba því Geysir er part-
ur af alþjóðasamtökum," segir hún.
Fjármagn til Geysis segir hún koma
frá ríki, sveitar- og stéttarfélögum og
tólf manna stjórn sjái um að útvega
það. „Fólk er ekki á launum hér held-
ur er það að ná persónulegum mark-
miðum,“ segir hún.
Þrettán á vinnumarkað
Þær Ólína og Anna leggja
áherslu á að þeim klúbbfélögum
sem treysti sér til að fara í 50%
starf á vinnumarkaðinum sé
hjálpað til þess. „Þá fer önnur
hvor okkar með einstaklingnum í
starfsmannaviðtal og fái hann
vinnuna þá lærum við starfið líka
til að geta hoppað inn í ef hann
veikist. Á þessum 18 mánuðum
hafa 13 manns hafa farið út að
vinna á þessum forsendum og það
hefur bara einu sinni hent að ég
hafi þurft að leysa af, það var
vegna flensu," segir Ólína. Nú eru
kjötbollurnar dönsku komnar á
dúkað borð en þar sem blaðamað-
ur og ljósmyndari þurfa að hafa
hratt á hæli afþakka þeir góð-
gjörðir í þetta sinn.
-Gun.
Stórveisla í aðsigi
Jón Bragason kryddar lambalæri.
Lopez er lang
kynþokkafyllst
Enn einu sinni hefur uppáhalds-
leikkonan okkar verið kjörin kyn-
þokkafyllsta kona í heimi. Hér er að
sjálfsögðu átt við latínubombuna
Jennifer Lopez sem trónir efst á
kynþokkalistanum annað árið í röð.
Það mun vera í fyrsta sinn sem
nokkur hefur tvisvar sinnum verið
í efsta sætinu.
„Ég er yfir mig glöð,“ sagði Jenni-
fer, eða J-Lo eins og hún kallar sig
víst nú, þegar henni voru færð tið-
indin. „Ég er ekki þessi venjulega
Hollywoodmjóna og því kitlar það
að vera kölluð kynþokkafull." Og
aðrar konur vilja heyra slíkt sagt.
lyier hrifinn af
dóttur Jaggers
Ameríski gúmmívarapopparinn
Steve Tyler, aðalsöngvari Aer-
osmith, ku vera bálskotinn í Eliza-
beth, sautján ára gamalli dóttur
Micks Jaggers yfirrollings. Heimild-
ir herma að Mikki sé ekki par hrif-
inn af þessari athygli sem gamling-
inn sýnir dóttur hans. Elizabeth
Jagger er fyrirsæta og það var á
tískusýningu sem Steve Tyler sá
hana og leist bara svona skrambi
vel á. Stúlkan á hins vegar unnusta,
23 ára gamlan tískusýningarpilt
sem heitir Damien van Zyl. Skötu-
hjúin dvelja í ráðhúsi Jaggers á
Manhattan þegar þau eru í New
York.
Fergie óttast
hneykslisskrif
Sara Ferguson, eða Fergie, óttast
nú mjög að fyrrum aðstoðarkona
hennar, sem var dæmd í ævilangt
fangelsi fyrir morð á dögunum,
muni leysa frá skjóðunni og upplýsa
heiminn um alls kyns hneykslismál
úr hallarlífinu í London.
Aðstoðarkonan Jane Andrews
vann fyrir Fergie í níu ár og veit því
meira en margur maðurinn um ást-
arlíf hertogaynjunnar af Jórvík,
skuldir hennar og deilur innan
bresku konungsfjölskyldunnar.