Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 Fréttir I>V Sigrún Magnúsdóttir, formaöur borgarstjórnarflokks R-listans, telur viðræður flokka geta hafist fljótlega: Fagnar ákvörðun Vinstri grænna - sem samþykktu viðræður um R-lista í gærkvöldi „Málefni R-listans eru á réttri leið og ég fagna niðurstöðu fundar Vinstri grænna. Þaö er ekkert óeðlOegt við það að hver hópur sem kemur að þessu komi fram með sínar áherslur og það er ná- kvæmlega það sem við framsókn- armenn ákváðum á fundi okkar fyrr í vikunni," sagði Sigrún Magnúsdóttir, oddviti Framsókn- arflokksins í R-lista samstarfinu í morgun, þegar borin var undir hana niðurstaða fundar Vinstri grænna í gærkvöldi. „Það er mín tilfinning að viö- ræður milli aðila muni hefjast fljótlega eða í þessum mánuði, síð- an taki menn sér frí í júli en komi svo aftur að borðinu í ágúst eftir að hafa skoðað málin betur. Ég er mjög bjartsýn á að við náum sam- Ingibjöeg Sólrún Sigrún Gísladóttlr. Magnúsdóttir. an og R-listinn geti haldið áfram sínu góða starfi í borginni, fram- boðsmálin ein og sér eiga ekki að koma í veg fyrir slíkt,“ sagði Sig- rún. Reykjavíkurfélag Vinstri grænna samþykkti í gærkvöld nán- ast einróma að fara út i könnunar- viðræður við Framsóknarflokkinn Inga Jóna Sigríöur Þóröardóttir. Stefánsdóttir. og Samfylkinguna um samstarf í Reykjavíkulistanum. Sigríður Stef- ánsdóttir, formaður stjómar fé- lagsins, sagði við DV í morgun að ekki hafi verið tekið afstaða til framboðs sem slíks. „Framhaldið er ekki gefið en fólk er sammála um að fara með heilum huga í þessar viðræður. Þetta er ekki afgerandi skref en vilji félagsmanna er greinilega sá að láta kanna hvort samstarfs- grundvöllur sé meðal þessara flokka,“ segir Sigríður. Skoðanir hafa verið skiptar með- al vinstri grænna um hvort þeir ættu að bjóða fram sjálfstætt en á fundinum í gærkvöld talaði enginn opinberlega fyrir slikum sjónar- miðum. Stjórnin fær umboð til að kanna málið allt til 15. september og þá mun stjóm gera félaginu grein fyrir stöðunni. Sigríður vill ekki meta líkumar á því hvort Reykjavíkurlistinn muni starfa áfram. „Nei, ég treysti mér ekki til að leggja mat á þaö á þessu stigi." Að sögn hennar voru 80-100 manns á fundinum. -BÞ/gk Hjólin að fara að snúast: Atvinnu- leysisskrá- in tæmist Hjólin eru að fara að snúast hjá Bakkavík í Bolungarvík, rækju- verksmiðjunni sem yfirtók rekstur Nasco-Bolungarvík fyrir skömmu. Stefnt er að því aö vinna allt að 100 tonn af hráefni í verksmiðjunni á viku. Starfsemin verður algjör bylt- ing í atvinnumálum Bolvíkinga þar sem hefur verið mjög dapurt allt frá því Nasco-Bolungarvík varð gjald- þrota í árslok 2000. Samningar um hráefniskaup eru í burðarliðnum en verð á hráefni er nú allhagstætt. Forsvarsmenn Bakkavíkur vinna nú að því að koma vinnslunni af stað, en stefnt er að því að fyrsti vinnudagur verði eftir sjómanna- daginn sem er 10. júní. Lárus Benediktsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Bolung- arvikur, segir að 43 fái vinnu í verk- smiðjunni og eftir að auglýst hafi ver- ið eftir starfsfólki hafi 36 manns hringt og spurt um starf. 33 voru á at- vinnuleysisskrá í Bolungarvík svo sú óvinsæla skrá ætti að tæmast að mestu. Á Vestíjörðum öllum voru um 70 manns á atvinnuleysisskrá. -GG Sandlóu bjargaö úr grútarpolli Ungir sveinar úr vesturbænum í Reykjavík fundu í gær sandlóu sem hafiö lent í grútarpoili viö hús Lýsis á Granda. Þeir komu fuglinum inn í Húsdýragarö þar sem tekiö var til óspilltra málanna viö aö hreinsa hann en síöan stóö til aö sleppa honum. Bjargvætturinn fremst á myndinni, Friörik, sem og félagar hans i bakgrunni, voru hinir ánægöustu meö björgunina. Lögregla og foreldrar með viðbúnað í Paradísardal: At hjá sátta í gær og í nótt var 21 samninga- fundur í gangi hjá Þóri Einarssyni rík- issáttasemjara. Voru alls 14 kjara- samningar undir- ritaðir í þesari lotu. Samið við Sinfóníu Félag íslenskra hljómlistarmanna og ríkiö hafa samið um nýjan kjara- samning fyrir hljóðfæraleikara í Sin- fóníuhljómsveit íslands. Samningur- inn gildir til október 2004 og hefur i för með sér miklar breytingar á vinnutíma hljómsveitarmeðlima. Hækkun hjá ÁTVR Verð á áfengi og tóbaki hækkar í dag. Bjór hækkar að meðaltali um tæp 4% og annað áfengi að meðaltali um 2,5%. Verð á tóbaki hækkar að meðaltali um 3,3%. Lítil framleiðní Framleiðsla á vinnustund í krón- um talið er töluvert minni hér á landi en í helstu samkeppnislöndunum. Af 23 löndum er ísland í 18. sæti með 2.211 krónur í framleiðslu á hverja vinnustund. I efsta sæti er Lúxem- borg með 3.356 krónur á hvem vinnu- tíma og síðan Belgía og Bandaríkin. Auka Rammsteintónleikar Þýska rokkhljómsveitin Ramm- stein hefur samþykkt að halda aukatónleika hér á landi en miöar á tónleika þeirra þann 15. júní seldust upp á rúmum klukkutima. Litii karfaveiði Karfaafli togara á Reykjaneshrygg er og hefur verið afar dræmur. Marg- ir togaranna eru hættir að reyna við karfann og hafa leitað annað, einkum i grálúðu. Löggan á skólabekk Nær 20 íslenskir lögreglumenn sátu á skólabekk í gær hjá sérfræð- ingi Europay Intemational í vörnum gegn kortasvikum. Kynntu þeir sér aðferðir við rannsókn á greiðslu- kortamisferli. Framtíð Landspítala Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra, hefur skipað þriggja manna nefnd til að fara yfir og leggja fram tillögur um staðsetningu og hvernig standa beri að uppbyggingu Landspítala - há- skólasjúkrahúss. Djammað í leyndu dalverpi flestir til fyrirmyndar, segir foreldri DV-MYND TEITUR Allt meö kyrrum kjörum Ungmenni leggja leiö sína í Paradísardal á vorin til aö sýna sig og sjá aöra. Lögregla og foreldrafélag Árbæjar verða með viðbúnað í Paradísardal í kvöld en um síðustu helgi söfnuðust um tvö hundruð unglingar þar sam- an. Paradísardalur er dalverpi fyrir norðan Rauðavatn. Þangað liggur ekki akvegur og þar hefur, að sögn Árbæinga, verið vinsæll samkomu- staður ungmenna um þriggja áratuga skeið, einkum að vorinu. Fjöldi lögreglumanna stóð vaktina í Paradísardal um síðustu helgi og fór skemmtun unglinganna að mestu leyti vel fram. Að vísu þurfti að hella niður töluverðu áfengi og nokkrum var vísað frá vegna þess að þeir höfðu ekki aldur til að vera úti. Gera má ráð fyrir að unglingar safnist aftur saman í dalnum í kvöld en lögregla dregur stórlega í efa að fjöldinn verði viðlika mikill og um síðustu helgi. Þá hefur verið í gangi orðrómur um að unglingar hyggist þess í stað efna til skemmtanahalds í Elliðaárdal en á báðum þessum stöð- um verður lögregla með eftirlit - enda stendur ekki til að dalimir verði fastir samkomustaðir unglinga á sið- kvöldum. Auk lögreglunnar var um sextán manna hópur foreldra úr Árbænum í Paradísardal um síðustu helgi. Að sögn Bergþóru Valsdóttur, sem tók þátt í foreldraröltinu, var kvöldið mikil upplifun og hrósaði hún bæði unglingum og lögreglu. „Langflestir unglinganna voru til fyrirmyndar en auðvitað er alltaf hópur sem vill drekka en jafnframt vera í mannfjöld- anum. Mér fannst lögreglumenn taka vel á málum, þeir töluðu við ungling- ana og um miðnætti voru allir farnir sáttir til síns heima,“ segir Bergþóra og bætir við að venjan sé að svo mik- ill fjöldi unglinga komi jafnan saman í Paradísardal einu sinni á ári. Eftir það sé fjöldinn minni og síðan hverf- andi þegar líður á sumarið. -aþ Methagnaður ISAL Hagnaður ÍSAL eft- ir skatta árið 2000 var 3,1 milljarður króna. Velta fyrirtækisins var 22,9 milljarðar króna. Skattgreiðslur ÍSAL vegna ársins 2000 voru tæpir 1,4 milljarðar króna og er þetta mesti hagnaður í sögu fyrirtækisins. Ær láta lömbum Um 150 ær á bænum Bjamanesi 2 í Nesjum við Hornafjörð hafa látið lömbum af völdum campylobakter- sýkingar. Búist er við að allt að 300 lömb hafi drepist af þessum sökum og er tjón ábúenda þvi tilfinnanlegt. Síðasti dagur Kvótaþings Síðasti starfsdagur Kvótaþings var í gær, 31. maí, og verður starfsemi Kvótaþings því aflögð frá og með 1. júní. Talið er að afnám Kvótaþings einfaldi flutning aflamarks á milli skipa. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.