Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR X. JÚNÍ 2001 r>v Tilvera 27 yeni Morgan Freeman 64 ára í dag er frumsýnd hér á landi nýjasta kvikmynd Morgans Freemans, Along Came a Spider. Það hittist svo á að kappinn á afmæli í dag. Morgan Freeman er sjálfsagt með- al virtustu leikara í Hollywood og kvik- myndir hans hafa ákveöinn gæðastimpil. Freeman var búinn að leika lengi í sjón- varpi og kvikmyndum áður en frægðin sótti hann heim. Það var ekki fyrr en á tíunda áratugnum sem hann fór aö vekja athygli og sýna hvaö í honum býr og hefur hann í ár- anna rás verið að festa sig í sessi sem einn eftirtektarverðasti leikari vestanhafs. Gildir fyrir iaugardaginn 2. júní Vatnsberinn (20. Ían.-18. febr.n , Vinur þinn á í vanda ' og leitar til þín eftir aðstoð. Reyndu að hjálpa honum af fremsta megni. Kvöld- ið verður rólegt og ánægjulegt. Fiskamlrng. fehr.-20. marsV Þú þarft að fara var- llega í fjármálum og forðast alla óhóflega eyðslu. Ef þú ert snið- ugur getur þú loksins látið gaml- an draum rætast. Hrúturlnn (21. mars-19. april): . Þú hefur minna að Igera í dag en þú bjóst við en forðastu að sitja auðum höndum. i vera duglegur og klára það sem þú þarft að klára. Nautlð (20. apríl-20. maíl: Ákveðinn atburður sem átti sér stað ný- lega setur mikinin svip ___ á lif þitt þessa dagana og veldur þér leiða. Reyndu að horfa á björtu hliðamar. Tvíburarnir (21. maí-21. iúní): Vertu þolinmóður þó að /^^einhver sýni þér tillits- / I leysi og æthst til of mik- ils af þér. Reyndu að setja þig í spor annars fólks í stað þess að hugsa alltaf bara um sjálfan þig. Krabblnn (22. iúní-22. iúiíi: Þú leysir verk sem þér | var sett fyrir í vinn- ’ imni vel af hendi en það gæti gengið illa að leysa úr ágreiningsmáli heima fyrir. Llónlð (23. iúli- 22. áeústl: Dagurinn lofar góðu í sambandi við félagslíf- iö og er liklegt að það verði líflegt. Þú þarft að huga að eyðslunni og passa að hún fari ekki úr böndunum. Meyjan (23. ágúst-22, gepf.): Þú ert ofarlega í huga ákveðinnar manneskju ^^^lLog skalt fara vel að S henni og ekki gagn- rýna of mikið það sem hún gerir. Vogin (23. se tekið meiri löngu, Vogin (23. sept.-23. okt.): Þú ættir að hugsa þig vel um áður en þú tek- ur að þér stórt verk- efni þvi að það gæti tekið meiri tíma en þú heldur í fýrstu. Sporðdreki (24. okt.-2l. nóv.l: Samband þitt við vini þína er gott inn þessar jmundir og þú nýtur virðingar meðal þeirra sem þú úmgengst. Happatölur þín- ar eru 4, 18 og 23. Bogamaður (22. nóv.-2l. des.): JÓvæntur atburður set- rur strik í reikninginn og gæti raskað áætlun sem var gerð fyrir ýertu þolinmóður við þína nánustu í dag. Steingeltin (22. des.-19. ian.i: Fyrri hluti dagsins verðiu- rólegur en þeg- ar líður á daginn er hætt við að þú hafir ekki tíma til að gera allt sem þú þarft af gera. Vísnakeppni Skagfirðinga ... arangurinn oftast fer eftir stundarheppni Vísnamenn Björn Björnsson dómnefndarmaður, Stefán Guömundsson, sem samdi bestu vísuna, og Ingimar Jóhannsson, umboðsmaöur Sjóvár-Almennra á Sauöár- króki. Hreinn Guðvarðsson, sem botnaði best, var ekki í bænum. DV, SAUÐARKRÓKI: Það er orðinn árviss viðburður að Sæluvika Skagfirðinga er sett á samkomu í Safnahúsinu upp úr há- degi á sunnudegi og þá um leið kynnt úrslit í Vísnakeppni Safna- hússins og Sjóvár-umboðsins á Sauðárkróki er veitir 10 þúsund króna verðlaun fyrir bestu vísuna og botninn. Eins og fyrr voru það Hjalti Pálsson, fyrrum safnvörður, og Björn Björnsson skólastjóri sem fengu það vandasama hlutverk að meta kveðskapinn til verðlauna og það var Björn sem gerði grein fyrir vísnakeppninni að þessu sinni. Björn kvað ástæðu til að geta þess hversu ánægjulegt það er að keppn- in hefur unnið sér fastan sess í vor- komunni og vorverkum Skagfirð- inga: „Vissulega er það lika nokkurt ánægjuefni að visnavinir og hagyrð- ingar utan Skagafjarðar senda enn vísur og. botna og mér vitanlega er þetta eina árlega vísnakeppnin sem fram fer hérlendis,“ sagði Björn. Að þessu sinni voru birtir þrír fyrripartar sem skyldu botnaðir og einnig átti að yrkja vísu um Hóla. Heldur minni þátttaka var nú en stundum áður, þó ekki mikið, en einnig ber að hafa í huga að þátt- taka í fyrra var mjög góð og sú besta frá upphafi. Dómnefndinni fannst að þessu sinni ekki mikið um af- bragsðsgóðar vísur og botna en hins vegar ekki mikið um það sem lagt var til hliðar og kom ekki til álita. Það var Hreinn Guðvarðsson á Sauðárkróki sem hlaut verðlaunin fyrir besta botninn en hann botnaði þannig þennan vorlega fyrripart. Fellur sólar geisla glit á grundir hól og bala. Gefur kjóli grœnan lit góðu skjóli dala. Stefán Guðmundsson, ríkisstjóri sem kallaður er á Króknum, útibús- stjóri ÁTVR, sendi að mati dóm- nefndar bestu vísuna um Hóla og er hún þannig: Einn á róli út viö sjá, eg finn skjólin rofna. Þegar Hólum fór eg frá fannst mér sólin dofna. Björn Björnsson taldi við hæfi að enda á vísu sem féll úr umslagi með dulnefninu Draupnir sem reyndist vera Rúnar Kristjánsson á Skaga- strönd. Þjóöleg stundum þykir mér þessi vísnakeppni. En árangurinn oftast fer eftir stundarheppni. Kvað Björn þetta með stundar- heppnina eiga einkar vel við i Sælu- vikunni, og sagði eitthvað á þá leið að sjálfsagt væri það oft stundarlán sem segði fyrir um það hvernig menn kæmust frá glaumnum í Sæluvikunni. -ÞH DV-MYND HARI Leikhópurinn Hedwig veröur sýnt í Loftkastalanum í sumar. Æfingar hafnar á rokksöngleiknum Hedwig: Kynskiptingur segir sögu sína Æfmgar eru hafnar hjá Leikfélagi Islands á rokksöngleiknum Hedwig sem frumsýndur verður þann 29. júní í Loftkastalanum. Hedwig er söngleikur sem hlaut einróma lof gagnrýnenda þegar hann var frumsýndur í New York fyrir þremur árum. Frá þeim tíma hefur hann farið sigurfór um Bandaríkin og er nú sýndur í fjölda borga þar auk sýninga viða um Evr- ópu. Nýverið var frumsýnd samnefnd kvikmynd sem sópað hefur að sér verðlaunum á kvikmyndahátíðum, meðal annars var myndin valin sú besta á Sundance-kvikmyndahátíð- inni. Hedwig er fyndin en sársaukafull saga hins ólánsama Hedwigs sem eftir mislukkaða kynskiptaaðgerð eltir her- mann til Ameríku frá Austur-Berlín og endar sem söngkona i vafasömum næt- urklúbbi 1 Kansas. Hedwig, sem minn- ir bæði á Ziggy Stardust og Marlene Dietrich, segir sögu sína í tónlistinni sem er blanda af villtu pönki, glamúr- rokki og ljúfsárum ballöðum. Sagan á sér stað á tónleikum Hedwigs og hljómsveitarinnar Reiðu restarinnar sem er nefnd í höfuðið á mjög ákveðn- um líkamshluta Hedwigs. Reiða restin er skipuð uppgjafarflóttamönnum frá Balkanskaga. Einvalalið listamanna stendur að uppsetningunni. Björgvin Frans Gísla- son fer með hlutverk Hedwigs en Björgvin var að ljúka námi við leiklist- ardeild Listaháskóla íslands. Ragnhild- ur Gisladóttir leikur Yitzak og Reiða restin er skipuð þeim Stefáni Má Stef- ánssyni, Guðna Finnssyni, Birgi Bald- urssyni, Pétri Þór Benediktssyni og Jóni Ólafssyni sem einnig er tónlistar- stjóri sýningarinnar. Höfundar Hedwigs eru John Camer- on Mitchell og Stephen Trask. Leik- stjóri er Magnús Geir Þórðarson og þýðandi er Gísli Rúnar Jónsson. NS008 VF850 Daihatsu Rocky EL Verð: 1.050.000 Nýskr. 08.1995,2800cc diesel vél, 3 dyra, 5 gíra, vínrauður, ekinn 63 þ. 35" breyttur, dráttarkrókur o.m.fl. Fiat PalioWeekend Verð: 980.000 NR040 Renault Laguna RT Verð: 1.250.000 úrval af góðum notuðum bílum í síma 575 1230 bilaland.is Nýskr. 09.1998,2500cc diesel vél, 5 dyra, sjálfskiptur, hvítur, ekinn 65 þ. Nýskr. 05.1999, I300cc vél, 5 dyra, 5 gíra, grænn, ekinn 23 þ. Nýskr.05.2000, 1600cc vél, 3 dyra, 5 gíra, hvftur, ekinn 17 þ. Topplúga, spoiler o.m.fl. Grjóthálsi I Hyundai Galloper GLS Verð: 1.690.000 Hyundai Coupe Verð: 1.260.000 TZ046 Nýskr. 09.1997,2000cc vél, 5 dyra, sjálfskiptur.grænn, ekinn 68 þ. Leður, álfelgur o.m.fl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.