Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Síða 5
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001 5 Fréttir Kaupmáttur þroskaþjálfa 9% lægri en árið 1987: KJör þroskaþjálfa hafa rýrnað á síðustu árum - kaupmáttur annarra heilbrigðisstétta hækkað 130% til 210% Kaupmáttur dagvinnulauna þroska- þjálfa var 9% lægri í árslok 2000 en árið 1987 og hefur enn lækkaö síðan. Þroskaþjálfar eru einu opinberu starfs- mennimir sem minna en enga kaup- máttaraukningu hafa fengið á síðustu árum. Frá 1987 hafði kaupmáttur allra annarra háskólamenntaðra heilbrigð- isstétta hækkað frá 130% til 210%, samkvæmt fréttariti Kjararannsóknar- nefndar opinberra starfsmanna sem vinnur úr upplýsingum frá launa- vinnslukerfum rikis og borgar. Kaup- máttur þeirra lægstlarmuðu, heilbrigð- ishóps innan BSRB, hefur aðeins hækkað um 14% en hækkunin varð mest hjá heilsugæslulæknum. Meðallaunin 120 þúsund Dagvinnulaun þroskaþjálfa voru að- eins um 121 þús. kr. að meðaltali á síð- ari hluta ársins 2000 og heildarlaunin um 185 þúsund. Dagvinnulaun ann- arra háskólamenntaðra heilbrigðis-og umönnunarstétta en lækna voru á bil- inu 163 til 180 þúsund á mánuði (35-50% hærri). Og heildarlaunin frá 224 til 250 þúsund. BSRB-hópurinn varð að nægjast með 103 þús. að meðaltali fyrir dagvinn- una en 148 þús. kr. heild- arlaun. Meðallaun lækna voru u.þ.b. þrefalt hærri. -HEI Þróun kaupmáttar dagvinnulauna heilbrigðisstótta - ef kaupmáttur hafí verlö ÍOO áriö 1987 100 120 140 160 180 200 220 Heilsugæslulæknar 21$ Ljósmæöur 152 Sjúkrahússlæknar 14$ Tæknar 14$ Sjúkraliöar 140 Hjúkrunarfræöingar 136 ! | 1 Þjálfar 131 Heilbrigöishópur BSRB 114 Þroskaþjáífar Málefni fatlaðra: Hef ekki frumkvæöi að frekari viðræðum - segir ráðherra „Sem stendur eru málefni fatlaðra á Akureyri hjá Akureyrarbæ sem reynsluverkefhi sveitarfélagsins og það hefur ekki verið ákveðið hvað ger- ist þegar reynslu- tímanum lýkur um næstu ára- mót,“ segir Páll Pétursson félags- málaráðherra en félagsmálayflrvöld á Akureyri hafa skorað á Samband íslenskra sveitar- félaga og félags- málaráðherra að halda áfram við- ræðum um flutn- ing á félagsþjón- ustu fatlaðra til sveitarfélaganna. Upp úr þeim viðræðum slitnaði fyrir skömmu og sagði ráðherra þá að hann hefði orð- ið að slíta þeim vegna afstöðu stóru sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæð- inu til málsins. Ekki eru aðilar þó á einú máli um það og hefur Samband íslenskra sveitarfélaga m.a. ályktað í þá veru að viðræðumar verði teknar upp að nýju. Páll Pétursson segist opinn fyrir þeim möguleika að gera samning við Akureyrarbæ um að þessi verkefni verði áfram hjá bænum, annaðhvort í óbreyttu formi eða á annan hátt, og það sé alveg burtséð frá því hvað gerist varðandi aðra. „Það er ekki stefnan að fara að taka þessi mál frá þeim sveitar- félögum sem hafa haft með þennan málaflokk að gera en það eru öll sveitar- félög á Norðurlandi, á Suðausturlandi og í Vestmannaeyjum," segir Páll. Um möguleika á áframhaldandi við- ræðum við önnur sveitarfélög segir ráðherrann: „Það eru engar viðræður við önnur sveitarfélög, það hefur verið horfið frá því að færa þennan mála- flokk yfir til sveitarfélaganna á lands- visu og ég mun ekki hafa frumkvæði að því.“ Félagsmálaráð Akureyrarbæjar hef- ur eins og áður segir skorað á Sam- band íslenskra sveitarfélaga og félags- málaráðherra að halda áfram viðræð- um um flutning á félagsþjónustu fatl- aðra frá ríki til sveitarfélaganna og flnna lausn á ágreiningsmálum. Fé- lagsmálaráðið sagði enn fremur í nið- urstöðu sinni að það teldi þessa þjón- ustu best komna hjá sveitarfélögunum. „Ég tek heils hugar undir þessa ályktun ráðsins," segir Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri. Hann segir málið hafa verið komið mjög langt í vinnslu á vettvangi ríkis og sveitarfélaga þegar viðræðum var slitið af hálfu félagsmálaráðherra og það sé ástæðulaust að leggja málið til hliðar. „Þetta snýst fyrst og fremst um að menn leggi meira á sig til að ná samkomulagi um ýmsa hluti,“ segir Kristján. -gk Kristján Þór Júlíusson. Pallaolíutiiboð 1.245 kr. 3 lítrar af Jotun pallaolíu fjöldi litamöguleika HÚSASMIÐJAN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.