Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Page 9
9
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001________________
DV ____________________________________________________________Neytendur
Garðaúðun í fullum gangi
-kostar 3-10.000 kr. á garð
Nú er sá tími sem garðeigendur
fara að huga að úðun garða sinna og
er töluvert um að bankað sé upp á
hjá fólki og því boðin úðun. Ekki
ætti að kaupa slíka þjónustu nema
að raunveruleg þörf sé á henni því
notkun eiturefna ætti ávallt að vera
í hófi. Rétt tímasetning á úðun er
mikilvæg, ekki ætti að úða of
snemma þar sem það hefur engin
áhrif ef gróðurinn og þar með skor-
dýrin eru ekki komin af stað. Tima-
setningin er mismunandi eftir stað-
setningu því gróður fer misfljótt af
stað í landshlutum og hverfum. T.d.
er gróðurinn mun fyrr á ferðinni i
skjólsælum gróðursælum hverfum,
eins og í Fossvogi, en í Árbænum.
Óþarfi er að úða sumar tegundir
plantna þar sem þær hafa sín eigin
varnarkerfi gegn óþrifnaðinum.
Meðal tegunda sem eru pöddusækn-
ar eru víðir og birki en grenitré er
algjör óþarfi að úða á þessum tíma
árs. Best er að skoða garðinn vand-
lega og ef mikið er af lús og maðk
þarf að úða þar sem kvikindin geta
hreinlega gengið af plöntunum
dauðum ef þær fá að athafna sig að
vild. Einn og einn maðkur gerir
ekki mikinn skaða en
séu blöð trjánna farin
að rúllast upp eða étið
hefur verið af þeim í
einhverju magni um
allan garð þarf að gripa
til aðgerða. Fylgjast
þarf með garðinum. Um
mánaðamótin júní -
júlí má ætla að hann sé
sloppinn.
Kostar 3-10.000
kr.
Mikil samkeppni rik-
ir í garðaúðun og þar
sem hún felst í því að
ná sem flestum görðum
hefur það leitt til þess
að ákveðnir aðilar fara
sífellt fyrr af stað og
úða eins og þeir eigi lífið að leysa.
Heyrst hefur af aðilum sem voru
byrjaðir á því verki fyrir þremur
vikum og að sögn kunnáttumanna
er það allt of snemmt og þeir garð-
eigenduc sem létu glepjast hafa því
kastað peningum sínum á glæ. Tölu-
vert er um undirboð, yfirleitt kostar
frá 6-8.000 kr. að úða meðalgarð við
um og yfir 10.000 kr.
Allir sem úða garða
gegn greiðslu þurfa tO
þess leyfl frá Hollustu-
vernd.
Fyrirbyggjandi
aðgerðir
Hægt er að spara
hluta þessarar upphæð-
ar með því að úða garð-
inn sjálfur. Eigi að
nota til þess eitur þá er
Permasect tUvalið því
það hefur breiða verk-
un og drepur flest þau
skordýr sem herja á
garðinn. Eitrið er í
hættuflokki C þannig
að ekki þarf sérstakt
leyfi til að nota það en
flestir þeir sem eru í garðaúðun
vinna með þetta efni. Glas af eitrinu
kostar aðeins um fjórðung þess sem
tekið er fyrir verkið hjá fagmönnum
og getur það dugað í nokkur ár.
Nauðsynlegt er að fylgja öUum leið-
beiningum og varúðarráðstöfunum
á umbúðum þess. Efninu er blandað
í vatn og blandan síðan sett í úða-
Garöaúðun
Hana ætti ekki aö framkvæma nema nauösynlegt sé. Ekki er
alltaf þörf á að nota eitur því til eru aörar aöferöir sem vinna á
þæöi maöki og lús.
einbýlishús en verðið er breytUegt
eftir stærð og magni gróðurs en
heyrst hafa tölur áUt niður í 3000.
kr. I lauslegri könnun, sem gerð var
i fyrra, kom í ljós að verðið var um
5-7.000 kr. og því virðist sem verðið
hafi hækkað um 1000 kr. síðan þá.
Sé um stóra garða að ræða getur
kostnaðurinn orðið mun meiri eða
dælu sem hægt er að kaupa í bygg-
ingavöruverslunum og verslunum
eins og Blómavali og Garðheimum.
Verð þeirra er misjafnt en borgað
getur sig að fjárfesta í vandaðri
dælu því hana á að vera hægt að
nota árum saman. Sé dælan þrifin
vel eftir notkun má einnig nota
hana tU annarra garðstarfa eins og
t.d. að úða iUgresislyfi.
Þeir sem ekki vUja eitur í garðinn
sinn geta notað grænsápu í staðinn
en þegar það er gert verður að ná að
úða áður en maðkurinn hefur náð
að vefla laufinu utan um sig. Græn-
sápan virkar nefnilega ekki nema
hún lendi á pöddunum sjálfum, þar
harðnar hún og kemur í veg fyrir að
þær geti andað. Notuð er ein slétt-
fuU matskeið af sápunni í einn lítra
af volgu vatni. Hræra þarf upp í
blöndunni þannig að vatnið freyði.
Önnur leið er að úða garðinn með
Maxi-crop áburði. Sú leið er fyrir-
byggjandi því áburðurinn leggst á
blöð trjánna og breytir bragði
þeirra þannig að skorkvikindin fæl-
ast frá. Hægt er að nota Maxcrop
gegn nær öUum kvikindum nema
maðkinum. -ÓSB
Geitungar í garðinum
Um þessar mundir eru geitungar
að fara á stjá og víst er að ekki
hugsa aUir fallega til þeirra. Þessi
óvelkomni gestur nam land hér fyr-
ir um 15 árum og hefur fjölgað
stöðugt síðan og nú er svo komið að
þeir finnast í nær hverjum garði,
sveimandi um í leit að æti. Hér
sunnanlands var vetur mildur og
því má búast við að stofninn verði
nokkuð öflugur í sumar og því víst
að þau verða mörg geitungabúin
sem fjarlægja þarf þegar líða tekur
á sumarið. Snemmsumars stafar yf-
irleitt ekki mikU hætta frá einstök-
um geitungum sem eru á sveimi en
því lengra sem liður á sumarið
verða þeir árásagjarnari og nær það
hámarki í ágúst. Sé hins vegar
hróUað óvarlega við búum þeirra
getur verið hætta á ferð. Best er
auðvitað að fá fagmenn til að fjar-
lægja þau en hægt er að gera það
sjálfur. Þá er hættuminnst að láta
til skarar skríða að nóttu til þegar
geitungarnir eru aUir inni í búinu.
Þeir verða viðskotaiUir ef búið er
fjarlægt að degi tU og þeir snúa
heim og heimUi þeirra er horfið.
Sólgnir í sætindi
Bit geitunga eru yfirleitt ekki
hættuleg en geta verið sársaukafuU
en hafi sá sem bitinn er ofnæmi fyr-
ir geitungabiti ætti hann að leita
læknis sem fyrst eftir stunguna. Of-
riæmið lýsir sér m.a. í doða í kring-
um munn og getur sá doði færst
ofan í kok og valdið öndunarerfíð-
Geitungabú
Þau eru úr pappírskenndu efni og
geta oröiö nokkuö stór. Best er að
fjarlægja þau aö nóttu til þegar geit-
ungarnir eru inni í búinu.
leikum. Eins getur komið fram
kláði annars staðar á líkamanum.
Þeir sem eru með ofnæmi ættu að
umgangast geitungana með varúð
allt sumarið. Eins þarf að gæta
ungra barna, t.d. með því að setja
flugnanet fyrir op barnavagna þegar
böm eru látin sofa úti. Þá þarf að
gæta þess sérstaklega vel að netið
loki öUum opum vandlega því ef á
því eru glufur geta geitungar ratað
þangað inn og orðið Ulir ef þeir
finna ekki leiðina út. Laugardagar,
sem oft eru nammidagar hjá börn-
um hér á landi, geta líka skapað
hættu. Geitungar sækja í sætindi og
lítið barn með sleikibrjóstsykur get-
ur laðað þá að munni sér. Gos-
drykki ætti heldur ekki að drekka
beint úr ógagnsæjum dósum því
heyrst hafa hryUingssögur af fólki
sem drukkiö hefur gos beint úr
slíkri dós og endað með geitungabit
í munni eða hálsi. Þeir eiga það
nefnUega tU að skríða ofan í dósirn-
ar til að ná sér í sætindin sem þar
eru geymd.
Geitungabanar
Til eru ýmsar leiðir tU aö minnka
ónæðið af geitungum. Gott getur
verið að setja kjötsneið, t.d. roast
beef, í eitt horn garðsins þegar ver-
ið er að nota hann, t.d. griUa. Þá
sækja geitungamir í sneiðina og
láta aðra hluti í friði á meðan. Eins
má kaupa sérstakar geitungagildr-
ur. TU eru gildrur sem duga í
skamman tíma, og aðrar sem duga í
nokkrar vikur. Þá er plastílát hengt
í eitt hom garðsins og í það er sett
efni sem dregur að sér geitunga. Op
Uátsins er þannig að þeir komast
ofan í en ekki upp úr. Á nokkurra
vikna fresti er innihaldið endurnýj-
að svo gildran geri fuUt gagn og
lokki tU sín geitungana.
Komi geitungar inn í hús er ráð
að úða á þá með hárlakki. Oftast
dugar ein góð gusa til að þeir verði
ófærir um að fljúga og drepast
skömmu siðar. Gott er að kaupa
brúsa af ódýru hárlakki, helst svo-
lítið klístruðu, tfl að eiga til þessara
nota því enginn tímir dýra fina hár-
lakkinu á þessi leiðindadýr. En geit-
ungarnir eru komnir til að vera og
því verður mannfólkið að reyna að
lifa með þeim eins þægUega og kost-
ur er. -ÓSB
Trúlofunar-
hringir
Gott verð,
mikið úrval
Skartgripaverslun
Laugavegi 5,sími 551 3383
Spönginni.Grafarvogi, sfmi 577 1660
S túden tas tjarn q I4k gull.
Allt í sólpallinn og skjólvegginn
Pallaefni
21x95 mm 102 kr. pr. m
28x95 mm 138 kr. pr. m
95x95 mm 385 kr. pr. m
200x37 cm 6.213 kr.l
iWM
I 200x167 cm
-9J>48 krj
12QQx127 cm..
10.371 krJ
I 200x167 cm
11.193 krj
Húsasmiðjan er leiðandi í sölu og þjónustu á girðingar- og pallaefni. Við kynnum nýjung sem er tilbúnar grindur í skjólveggi.
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is