Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2001, Page 28
NISSAN ALMERA
www.ih.is
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
g—m Grensásvegi 3
C VnU s: 533 1414
Sér ekki
eftir neinu
í Helgarblaði DV á morgun er
ítarlegt viðtal við Engilbert Jen-
sen, trommara og tenór, sem söng
sig inn í hjörtu landsmanna meö
Hljómum frá Keflavík hér um
árið. Engilbert lítur yfir farinn
veg, sorgir og sigra og segist ekki
sjá eftir neinu.
Fjallað er um fjóra unga karl-
menn sem orðið hafa morðingjar
á stuttum tíma, sagt frá rang-
feðruðum stóðhesti og rætt við
Matthías Viðar Sæmundsson um
Píslarsögu Jóns þumcds. Síðast en
ekki sist er rætt við Kristin H.
Gunnarsson um slaginn sem
stendur um smábátana þar sem
Kristinn leikur pólitískan einleik.
KEA, FYRIR SJALF-
,STÆÐA AKUREYRINGAIJ
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2001
DV-MYND HARI
Sumariö hafiö af alvöru
Borg og bæir um allt land eru heldur betur farnir aö grænka, enda fyrsti dagur júnímánaðar runninn upp. Þessar
biómarósir voru aö störfum í Ártúnsbrekku þar sem Reykjavíkurmerkið er búiö til úr blómum.
Veruleg bensínhækkun - en:
Heimsmarkaðs-
verð hríðlækkar
Ekki varð af hækkun á bensínverði
á miðnætti eins og gert hafði verið
ráð fyrir. Gert er ráð fyrir að bensín-
verð hækki í dag. Samkvæmt heimild-
um sem DV aflaði sér í morgun telja
oliufélögin sig þurfa að hækka lítrann
um a.m.k. 5 krónur. Telja þau þörf á
þeirri hækkun vegna þróunar heims-
markaðsverðs að undanfórnu og veik-
ingar krónunnar gagnvart dollar.
Samkvæmt upplýsingum Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda í morgun hef-
ur heimsmarkaðsverð á bensíni farið
hríðlækkandi undanfarinn hálfan
mánuð. Heimsmarkaðsverð á 95 okt-
ana bensíni á Rotterdammarkaði var
komið upp í um 360 dollara tunnan í
byrjun maí. Síðan tók það að lækka,
en um miðjan maimánuð varð nokkur
hækkun aftur og fór í um 355 dollara
tunnan. Síðan hefur verðið verið i
„frjálsu falli“ eins og talsmaður FÍB
orðaði það við DV í morgun. Þá var
tunnan komin niður i 300 dollara sam-
kvæmt síðustu fregnum Reuters.
Talsmenn olíufélaganna vUdu ekki
staðfesta neinar tölur í morgun en
sögðu að menn ættu eftir að reikna út
síðustu breytingar.
-JSS
Lax á mettíma
Laxveiði byrjaöi afkrafti í morgun.
Noröurá:
Lax á þrem-
ur mínútum
DV. SQRGARFIRDI:
Laxveiði byrjaði af krafti í Norðurá
í Borgarfirði í morgun. Bjarni Ómar
Ragnarsson, formaður Stangaveiðifé-
lags Reykjavíkur, var aðeins þrjár
mínútur að fá fyrsta laxinn.
• „Þetta er stórkostlegt," sagði Bjarni
við DV, lafmóður eftir glímuna við
laxinn. Hann veiddi fískinn á flugu og
sleppti honum eftir að staðfest hafði
verið að skepnan vó 8,5 pund.
Kukkan hálfniu í morgun höfðu
veiðst 10 laxar en helmingi þeirra var
sleppt.
Stjórn og fyrrverandi formenn
Stangaveiðifélagsins riðu á vaðið í
laxveiðunum þetta árið. Kalsaveður
var í Borgarfirðinum í morgun og
hitastig við frostmark. Kuldinn náði
þó ekki að afmá sólskinsbros veiði-
mannanna sem nú eru skriðnir úr
vetrarhíði sínu. „Góð byrjun," sagði
einn veiðimannanna í morgun þegar
hann fékk mælt fyrir glímuskjálfta.
-G. BenderArt
Krónan braggast
Krónan braggaðist örlítið í gær. í
morgun kostaði hver dollar 105,20
krónur og hafði lækkað úr 106,08
krónum. Pundið kostaði 148,94
krónur en var í gær á 150,35 krónur.
Mikill hrollur er á markaðnum
vegna yfirvofandi spár fiskifræð-
inga um bágt ástand þorskstofnsins
sem talið er að stuði krónuna enn
-rt
meira.
Aðeins hluti
Kjalvegar opinn
Ástand vega er nú betra en í meðal-
árferði og minni snjór á hálendinu en
mörg undanfarin ár í byrjun júnímán-
aðar. Allir helstu vegir í byggð eru vel
færir. Björn Svavarsson, hjá Vegagerð
ríkisins, segir að þrátt fyrir það séu
fjallvegir ekki opnir að undanskildum
Kjalvegi úr Blöndudal að norðan í
Hveravelli en þar fyrir sunnan er veg-
urinn víða ófær vegna bleytu. Búast
má við að eftir sjómannahelgi fari
fjallvegir að opnast. Hret gerði norð-
austanlands í vikunni og þurfti að
moka Hellisheiði, milli Vopnaíjarðar
og Héraðs, af þeim sökum. Hún er nú
opin og einnig Lágheiði, milli Ólafs-
fjarðar og Fljóta. Engar þungatak-
markanir eru á Lágheiði sem er
óvenju snemmt. -GG
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Krókódílaeldi skoðað
Kennedybræður á Akureyri hætta að kaupa SS-pylsur:
Pylsustríð á Akureyri
Höldur ehf., sem rekur Essonestin á
Akureyri, hefur hætt innkaupum á
SS-pylsum þannig að viðskiptavinir fá
nú KEA-pylsur þegar þeir panta eina
með öllu. Það eru akureyrskir at-
hafnamenn, svokallaðir Kennedy-
bræður, sem reka Höldur en talsmað-
ur söluskálanna vill ekki tjá sig opin-
berlega um málið.
Hallgrímur Hólmsteinsson, mark-
aðsstjóri SS, segir að riftun kaupanna
hafi verið einhliða ákvörðun hjá
Höldi og væntanlega séu peningalegar
ástæður fyrir ákvöröuninni. HaO-
grímur telur góðar líkur á að SS-pyls-
umar komi aftur inn í Esso-nestin á
Akureyri. „Það standa yfir samninga-
Ein meö öllu
Pylsustríö milli KEA og SS.
viðræður milli fyrirtækjanna sem
vonandi enda með réttri ákvörðun. Is-
lendingar borða SS-pylsur og það vita
þeir hjá Höldi,“ segir Hallgrímur.
Löng hefð er fyrir viðskiptum Höld-
urs við SS en sláturfélagið hefur haft
allt að 90% markaðshlutdeild í pyls-
unum á landsvísu. Heimildamenn DV
innan matvörugeirans segja ekki ólík-
legt að norðanmenn séu með þessu að
taka pólitíska ákvörðun en hörð sam-
keppni hefur verið milli SS og KEA.
Viðskiptavinir hafa lýst óánægju
með umskiptin í samtölum við DV en
starfsmaður Esso-nestanna kannast
ekki við að hafa heyrt kvartanir frá
neytendum vegna málsins. Markaðs-
stjóri SS telur að skýringin á því sé
einfaldlega sú að viðskiptavinirnir
hafi snúiö sér annað. Þetta mál kunni
jafnvel að hafa áhrif á ferðaþjónustu á
Akureyri. -BÞ
Landbúnaðarráðuneytið er að
skoða umsókn Húsvíkinga um
hvort til greina komi að ala krókó-
dila i affallslóni í bænum. Eins og
DV hefur greint frá hefur bæjar-
stjórinn ásamt fleirum áhuga á að
kanna þennan möguleika, bæði
vegna ávinnings í ferðaþjónustu og
fleiri þátta. Heimamenn líta til fyr-
irmyndar i Colorado í Bandaríkj-
unum þar sem slík tilraun hefur
gefist vel þrátt fyrir talsvert norð-
Krókódílar noröur
Yfirdýralæknir skoöar
erindi Húsvíkinga.
lægari heimkynni en krókódílar
eiga að venjast.
Sigurður Örn, staðgengill yfir-
dýralæknis, segir að málið sé komið
á borð embættisins en hann geti
ekkert tjáð sig um það á þessu stigi.
Búið er að senda Húsvíkingum
staðlaðan spumingalista þar sem
m.a. er kannað hvort hætta sé fyrir
hendi á blöndun við innlendar teg-
undir.
-BÞ
X-TREÖÁÉ
Jói útherji
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • sími 588 1560
Hafnarfjörður:
Tryggvi hættir
í bæjarstjórn
Tryggvi Harðarson, einn af for-
ingjum jafnaðarmanna í bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar sl. 15 ár, lýsti
því yfir á fundi
hjá Samfylking-
unni í Hafnar-
firði í gær að
hann myndi ekki
sækjast eftir sæti
á lista flokksins í
næstu bæjar-
stjómarkosning-
um. Tryggvi
sagðist þó ekki
hættur afskipt-
um af stjórnmálum þó hann vildi
hætta í bæjarstjóm og taldi hann
líkur á að hann myndi láta tfi sín
taka í almennu starfi Samfylking-
arinnar. Á þessum fundi var jafn-
framt samþykkt að efna til skoð-
anakönnunar meðal almennra
flokksmanna Samfylkingarinnar í
Hafnarfirði um uppstillingu á lista
fyrir kosningamar að ári. Skoð-
anakönnuninni á að vera lokið eigi
síðar en 14. október í haust.
Nánar á bls. 7 -BG
W*'I
Tryggvi
Haröarson.