Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2001, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2001, Side 6
LAUGARDAGUR 2. JUNI 2001 Fréttir DV Framhaldsfundar Mæðrastyrksnefndar beðið með eftirvæntingu: Formaðurinn þarf að víkja - svo nefndin verði ekki eyðilögð, segir fyrrverandi varaformaður Asgeröur Jóna Flosadóttir „Formaðurinn þarf að víkja ef þetta á ekki að eyðileggja nefnd- ina alveg. Þetta er afar sorglegt og öll þessi um- fjöllun fer illa með nefndina," segir Ingibjörg Snæbjarnardótt- ir, fyrrverandi varaformaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, vegna þeirrar ólgu sem ríkir vegna sólarlandaferðar sem nefndin fór fyrir fé sem að öllu jöfnu er notað til að styrkja fátækar mæður. Ásgerður Jóna Flosadóttir for- maður hefur orðið tvísaga í málinu. Hún hélt því staðfastlega fram í fjöl- miðlum að nefndarmenn hefðu um árabil farið í skemmtiferðir innan- lands á kostnað nefndarinnar. Þessu hafa aðrir nefndarmenn mót- mælt sem staðlausum stöfum. Ferð- ir sem nefndarmenn hafi farið hafi verið með skjólstæðinga. „Hún segir ósatt hvað eftir annað og ruglar svo mikið með að við sendum skjólstæðinga okkar í ferð- ir. Einn eða tveir nefndarmenn fóru með sem fararstjórar án þess að þiggja annað en ánægjuna að laun- um. Reyndar greiddu fararstjórarn- ir ekki fyrir ferðina," segir Ingi- björg sem á sínum tíma sagði af sér vegna meints ofríkis formannsins. Hún segir að þegar starfsmaður nefndarinnar var rekinn hafi sér of- boðið. „Ég sagði af mér nokkru eftir að þessi kona, Ásgerður, varð formað- ur. Hún rekur konur miskunnar- laust úr starfi ef þær ekki gera eins og henni líkar. Á sínum tíma ofbauð mér þegar hún rak gjaldkerann. Sú kona var einstaklega samviskusöm og mátti ekki vamm sitt vita. Hún hafði starfað þama í rúm 20 ár og passaði hvern einasta eyri svo varla mátti kaupa kafFibrauð. Hún var í senn heiðarleg og vinnusöm. Það var náttúrlega byrjað á að reka hana því henni fannst ekki allt gott sem stungið var upp á. Einnig rak formaðurinn endurskoðanda sem við höfðum haft í áraraöir," segir Ingibjörg. Heilaþvegnar? Hún segir að aðrar konur í nefnd- inni hafi dáð hinn nýja formann sökum þess hve ung hún var og menntuð. „Mér líkaði ekki hve leiðitamar þær voru. Örfáar konur eru eftir en þær eru einhvern veginn heila- þvegnar, blessaðar gömlu konurnar. Það er ekki hægt að stjórna með þessum hætti,“ segir Ingibjörg. „Þar eru ekki bara stórir menn að styrkja heldur er þarna eyrir ekkjunnar líka. Gamlar konur voru að koma til okkar með smáupphæð- ir sem þær gáfu vegna þess að nefndin hafði hjálpað þeim þegar Mæöur fá aöstoö Mædrastyrksnefnd hefur um árabil aðstoðað skjólstæðinga sína, fátækar mæöur. Nú gustar um nefndarmenn í framhaldi þess að formaður og fleiri nefndarmenn brugðu sér í sótarferð til Portúgals á kostnað nefndar sinnar. þær voru ungar og áttu bágt,“ segir Ingibjörg. Svo sem fram hefur komið í DV tókst Mæðrastyrksnefnd Reykjavík- ur ekki að ljúka aðalfundi sínum í byrjun vikunnar. Framhaldsaðal- fundur verður að líkindum haldinn í næstu viku. Þess er beðið með nokkurri eftirvæntingu hver verður niðurstaða hans. Ingibjörg segist ekki vita hvað standi í vegi fyrir að fundinum ljúki. Hún hafi þó heyrt ávæning af því að nefndarkonur sitji yfir gömlum fundargerðum. „Þær ku vera að leita í fundar- gerðarbókum að ávirðingum á hendur okkur en þær hafa væntan- lega ekki fundið neitt,“ segir hún. Ásgerður Jóna Flosadóttir hefur lýst því við DV að hún vilji ekki tjá sig frekar um málefni Mæðrastyrks- nefndar fyrr en framhaldsaðalfund- inum lýkur. -rt Lögregluskólinn: Aldrei fleiri konur - meðal umsækjenda Konur verða þriðjungur nema í Lögregluskóla ríkisins á næsta ári en alls hafa fjörutíu manns verið valin úr hópi 122 umsækjenda. Tæp- ur helmingur umsækjenda, eða 55, stóðust inntökupróf og úr þeim hópi hefur verið valinn 40 manna hópur til að hefja nám í skólanum í janúar á næsta ári - 28 karlar og 12 konur. Ef allar konurnar skila sér til náms verður hlutfall þeirra 30% sem er það hæsta frá stofnun skólans. Árið 1999 náði hlutfall kvenna síðast há- marki, var 26,6%, en konur eru að- eins 17% þeirra sem hófu nám á þessu ári. -aþ Átök vegna verkfalls hjúkrunarfræðinga: Sló í brýnu á FSA Til átaka kom á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri í vikunni þegar tveggja daga verkfall hjúkrunar- fræðinga stóð yfir. Hjúkrunarfræð- ingar töldu að verkfallsbrot hefði verið framið og fjölmenntu á sjúkra- húsið til að koma einni stallsystur sinni frá störfum. Svo fór að lokum að meintum verkfallsbrjóti var fylgt út úr sjúkrahúsinu en ekki kom þó til handalögmála. Baldur Dýrfjörð, starfsmanna- stjóri FSA, hefur ritað bréf til hjúkr- unarfræðinganna vegna málsins. Hann telur að ekkert verkfallsbrot hafi verið framið en málið er afar flókið. „Um ræðir starfsmanna- stjóra hjúkrunar sem jafnframt er hjúkrunarfræð- ingur. Hún er jafnframt starfs- maður á skrif- stofu fram- kvæmdastjóra hjúkrunar en fram- kvæmdastjóri hjúkrunar er undan- þeginn verkfalli. Viðkomandi starfs- Baldur Dýrfjörö. maður er jafnframt staögengill framkvæmdastjóra hjúkrunar og við vildum meina að hún mætti vinna þess vegna en því voru hjúkr- unarfræðingar ekki sammála og þess vegna skarst í odda,“ segir Baldur Dýrljörð. Að sögn hans var starfsmanna- stjórinn aðeins á staðnum en gekk ekki í nein störf. Aðeins hafi verið tekist á um viðveru hennar innan spítalans. Ekkert tjón varð á spítalanum í verkfallinu en starfsemin raskaðist verulega, að sögn Baldurs. -BÞ Ný umferöarmannvirki á Reykjanesbraut: 600 milljóna gatnamót við Stekkjarbakka - eru á vegaáætlun 2004 til 2005 Ný mislæg gatnamót á Reykja- nesbraut á mótum Stekkjarbakka í Breiðholti og Skemmuvegar í Kópavogi eru enn á hugmyndastigi á teikniborði Vegagerðarinnar. Þau eru ekki á vegaáætlun fyrr en árið 2004-2005. Þarna er um gríðar- mikið umferðarmannvirki að ræða en samt mun veigaminna í kostn- aði en mannvirki á gatnamótum Reykjanesbrautar og Breiðholts- brautar sem nú er unnið að. Á mótum Stekkjarbakka og Reykjanesbrautar eru nú gatnamót með umferðarljósum en harðir árekstrar og slys eru þar mjög tíð. Samkvæmt fyrirliggjandi hug- myndum er þarna í raun um að ræða tvær brýr auk undirganga fyrir hjólreiða- og göngufólk og flókinna að- og afreina. Áætlað er að kostnaðurinn við gerð þessara gatnamóta geti orðið um 600 millj- ónir króna en til samanburðar kosta gatnamót Reykjanesbrautar og Breiðholtsbrautar um 1.200 milljónir króna. Að sögn Jónasar Snæbjörns- sonar hjá Vegagerðinni er vonast til að hönnun verði boðin út á næsta ári og ljúki ekki seinna en 2003 en í kjölfar þess fer fram verkútboð. -HKr. Ný gatnamót á mótum Reykjanesbrautar, Stekkjarbakka og Skemmuvegar munu leysa af hólmi ein af mörgum hættulegum og miklum slysagatnamótum í Reykjavík. Urnsjón: Hörður Kristjánsson netfang: hkrist@ff.is Algjör HORROR? Mörgum íbúa höfuðborgarsvæðis- ins hefur yfirleitt þótt nóg að lesa úr einum rafmagnsreikningi og öðrum hitaveitureikningi til að átta sig á því hvort verið væri að snuða hann eða ekki. En þegar ákveðið var að bjóða upp á einn reikning fyrir bæði hita og rafmagn reyndist ófáum öllu erfiðara að átta sig á ' öllu saman, ekki síst eldra fólki. Sagt er að forsvarsmenn Orkuveit- unnar, með Alfreð Þorsteinsson í broddi fylkingar, hafi verið að velta þessum sameiginlegu reikningum fyrir sér og rissað ferlið upp en brugðið mjög er eftirfarandi blasti við: Hita- og Rafmagnsveita Reykja- víkur, Orkuveita Reykjavíkur ...skammstafað HORROR...! Úr launsátri Katrín Fjeldsted, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fékk það heldur betur óþegið á Frelsisvef ungra sjálf- stæðismanna fyrir skömmu. Þar var Katrín kölluð „hræðUegasti þing- maður sjálfstæðis- manna fyrr og síð- I ar,“ í sérstakri ein- kunnagjöf á frammi- stöðu þingmanna flokksins. Vermir hún þar botnsætið númer 26 með einkunnina 3,5. Um hana var m.a. sagt: Bregst ekki röng- um málstað. Er líkt og harður vinstrimaður þegar kemur að menn- ingarstyrkjum og álíka sjóðasukki. Hvað er þessi kona að gera í Sjálf- stæðisflokknum?" - Vfst er að þessi einkunnagjöf fór fyrir brjóst margra sjálfstæðismanna og á dögunum svaraði Katrín fyrir sig i Mogganum og skammaði Frelsisliða HeimdaUar með þessum orðum: „Þeir vUja hafa frelsi til að berja á samUokksmönn- um úr launsátri..." Davíð kommi? Frelsisvefurinn er ekki af baki dottinn í gagnrýni sinni á forystu SjálfstæðisUokksins þrátt fyrir að hann lofi Davíð í hástert, m.a. í margfrægri ein- kunnagjöf. Nú I hlakkar Frelsarinn til að mæta á lands- fund Sjálfstæðis- Uokksins í haust tU | að taka til hendi. Frelsarinn heldur I síðan áfram og segir m.a.: Á síðasta landsfundi varð um- ræðan oft svo ótrúlega vinstrisinnuð að Frelsarinn áttaöi sig á stundum ekki á hvort hann væri á aðalfundi Samfylkingarinnar eða á fundi ungra sósíalista í MÍR-salnum. Frelsarinn hvetur aUa frjálshyggju- menn, sem hafa tök á, til að mæta á landsfundinn og láta í sér heyra. Því auðvitað muni byltingin koma frá hægri! - Pottverjar velta því fyrir sér hvort þeir séu þá að meina að foringi landsfúndarins, sjálfur Dav- íð Oddsson, sé kommúnistaleiðtogi eftir aUt saman...! Með krókódílahaus Fréttir af fyrirhuguðu krókódíla- eldi á Húsavík hefur vakið óskipta athygli mörlandans, enda krókódílar ekki dagsdaglega taldir til heim- skautadýra sem helst í lifa á svo ; norðlægum slóðum. Enn meiri athygli hafa þó vakið varúðarráðstafanir yfirdýralæknis- embættis sem sendi spurningalista til væntanlegra krókódllaræktenda nyrðra. Þar er meðal annars spurt um hættuna á blöndun krókódíla við innlendar tegundir..! Munu sumir Húsvíkingar hafa orðið hvumsa yfir svo fáránlegri spurningu. Sagt er að þeir hafi ekki sett upp hundshaus vegna þess heldur séu þeir hreinlega með krókódílahaus og grænar bólur út af heimsku yfirdýralæknis...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.