Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2001, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2001, Blaðsíða 25
25 LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2001 X>V _________________________________________________________________________________________________Helgarblað Bítlar fara yfir fjöllin sjö og syngja í sjávarþorpi: Kórsöngur á Kolbeinstanga - sungið undurblítt fyrir Vopnfirðinga sem með söngnum sækja sér yl í kroppinn á köldu vori. Þreytan á heimleið í fylgd með lífsgleðinni Fínu fötin kórstjórans Snorrí Guövaröarson, einn af forkólfum í hljómsveit Bítlakórsins, hugar að fötum Erlu kórstjóra. Starfiö er margt. í hughrifum blaðamannsins sem situr úti í sal og hlustar á söng karlakórsins er eins og ilm af salt- fiski og hamsatólg leggi að vitum hans. íslensk ættjarðarlög og aðrir standardar sem sígildir teljast minna á síðasta lag fyrir fréttir í Útvarpinu, sem ævinlega er leikið á meðan soðningin mallar í pottin- um. Á þessari stundu er klukkan hins vegar ekki tuttugu mínútur gengin í eitt heldur rúmlega níu að kvöldi. Vopnfirðingar láta ekki menningarviðburöi fram hjá sér fara og hafa fjölmennt í félags- heimilið Miklagarð til að hlusta á félaga í Karlakór Akureyrar-Geysi sem komnir eru yfir fjöllin sjö til að syngja á Kolbeinstanga, en svo heitir annnesið sem Vopnafjarðar- kauptún stendur á. Söngur alþýðunnar Það var hrollkalt þegar við stig- um út úr rútubílnum á Vopnafirði sl. laugardag. Enn eru skaflar nið- ur í miðjar hlíðar fjalla. Þetta mun þó væntanlega breytast von bráð- ar, því hvergi er veðursælla og hitatölur ná hvergi viðlíka hæðum hér á landi sem einmitt í Vopna- firði. Kannski er það kuldans vegna sem þorpsbúar koma í fé- lagsheimilið; til að fá yl í kroppinn með undurbliðum söng langt að kominna gesta. Smókingklæddum söngmönnum er fagnað með dúndrandi lófataki þegar þeir ganga á sviðið. Þeir hefja upp raust sina og syngja með því lagi að boðlegt gæti talist í hverju ein- asta óperuhúsi heimsins. Fyrst og síðast eru þetta þó íslenskir al- þýðumenn sem eiga sér sönginn sem skemmtun frá amstri daganna og bláköldu brauðstritinu; leigu- bllstjóri, kennari, mjólkurfræðing- ur, bifvélavirki, læknir, rafvirki og sjúkranuddari. son. Toppurinn er svo þegar Erla kórstjóri syngur sjálf með körlun- um sínum svo undurblítt að tár blikar á hvarmi harðgerðustu manna. Eða einhverjum sýndist svo vera. Bítlar á gallabuxum Eftir hina hefðbundnu karla- kórstónleika skipta kórmenn um úniform, fara í gallabuxur og vinnuskyrtur, enda er klæðaburð- urinn í nokkru samræmi við lögin sem sungin eru. Það eru ódauðleg- ir smellir af efnisskrá ijórmenn- inganna fræknu frá Liverpool, Bítlanna. Forsöngvari er Kjartan Höskuldsson sem er yngstur allra söngmannanna, aöeins 21 árs, en hinir elstu eru komnir á níræðis- aldur. Kjartan dillar sér í hverju spori þegar hann kyrjar smelli eins og Here, There and Ev- erywhere, Strawberry Fields for- ever, Long and Winding. Kórinn söng siðan lög eins og All My Lov- ing, PS I Love You og Can’t Buy Me Love. Þetta er eitthvað sem all- ir kunna, eins og stundum er sagt um íslenska rútubílasmelli sem menn syngja allra helst á þriðja glasi eða fjórða bjór. Samkomu- gestir láta hrifningu sina óspart í Ijós, enda ekki á hverjum degi sem bítlar koma yfir fjöllin sjö í þetta litla sjávarþorp. Sem þó hefur marga mæta einstaklinga alið upp, svo sem alheimsfegurðardrottn- ingu og utanrikisráðherra. Þegar tónleikum lýkur er síðan slegið upp balli. Hljómsveitin einn og sjötíu frá Akureyri leikur fyrir gesti sem dilla sér í hverju spori. Sungið í smóking Fétagar í Karlakór Akureyrar-Geysi syngja undurblítt svo undir tekur - og ekki þótti Vopnfiröingum saka hve þessi langtaðkomnu menn voru sériega flottir í tauinu. Fataskiptin Kórmenn hafa fataskipti, bregöa sér úr smókingnum í Bítlafötin. Á myndinni eru söngmennirnir Guömundur Ingólfsson og Björn Jósef Arnviðarson. Höfuð, herðar hné og tær. Ekki er slegið af fjörinu fyrr en klukkan er farin að ganga fjögur um nóttina. Þá eiga kórmenn hins vegar næg- ar orkubirgðir eftir til þess að halda stuðinu áfram í náttstað sín- um. Og hætta því ekki í bráð. Það er engin leið að hætta Eða hvers vegna ættu kórmenn svo sem að hætta en ekki lyfta sér á kreik þegar farið er að sjá fyrir end- ann á vel lukkuðu vetrarstarfinu. Það er engin leið að hætta. Jafnvel þótt það kosti lystarleysi í morgun- matnum næsta dag eða höfga svefns á heimleið í bítlarútunni þegar sól- in er hvað hæst á lofti. Akureyri tekur á móti okkur síðdegis á sunnudegi með silfursléttum Pollin- um. Margir kórmenn eru þreyttir eftir ferðina. En í öllu falli var þetta þreytan sú sem er í fylgd með lífs- gleðinni, þeim fognuði sem fylgir gjarnan því að syngja beint frá rót- um sálarinnar eða að vera bítill þó ekki sé nema eina kvöldstund á Kol- beinstanga. -sbs Bítill í sveiflu Kjartan Smári Höskuldsson var for- söngvari Bítlakórsins og kirjaöi sívin- sæla smelli fjórmenninganna frá Liverpool. Eitthvað sem allir kunna, eins og gjarnan er sagt Síðust gengur fram í salinn stjórnandi kórsins, Erla Þórólfs- dóttir. Ung og brosmild kona að sunnan sem nýlega er tekin við stjórn kórsins. Sjálf sveiflar hún höndum og kórmenn hlýða handa- skipunum hennar. Sveifiast frá dýpstu bassatónum upp í hinar hæstu hæðir en alltaf með því lagi að þeim fipast ekki. Saltfisksöngur tónleikanna gengur vel og bragð- auki er einsöngur þriggja kórfé- laga. Þeirra á meðal er hið verald- lega yfirvald Eyfirðinga, sýslu- maðurinn Björn Jósef Arnviðar- Stjórnandi og formaöur Kórstjórinn Erla Þórólfsdóttir og Höskuldur Höskuidsson kórformaöur fremst í fríöri fyikingu kórmanna. 5 daga helgarferð til Mílanó 22. júní frá 36.433 Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt helgarævintýri til Mílanó þann 22. júní á hreint frábærum kjörum. Nú getur þú kynnst þessari einstöku borg, sem er miðstöð tísku og hönnunar á Italru, og notið þess að skoða mörg frægustu listasöfn ftala, sjá síðustu kvöldmáltíð Leonardos með eigin augum, II Duomo- dómkirkjuna í miðbænum, þriðju stærstu dómkirkju heims, versla í Galeria Vitorio Emanuelle eða kanna veitingastaði og næturlífið í Corso Como. Hotel Soperga, gott 3ja stjörnu hótel í hjarta borgarinnar. Öll herbergi með /t '>'1 sjónvarpi, síma, baði, loftkælingu. Verð kr. M.v. hjón með bam, flug, hótel, skattar. Verð kr. 39.995 Heimsferðir M.v. 2 í herbergi með morgunmat, flug, skattar. Skógarhlíð 18 sími 595 1000 www.heimsferdir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.