Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2001, Síða 14
14
Helgarblað
LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2001
DV
Tugir manna sofa undir berum himni í Reykjavík:
Fleiri heimilislausir
- erfitt að horfa upp á þetta ástand, segir Guðbjörg Sveinsdóttir í athvarfinu Vin
Mannslíf í húfi
Úrræðaleysi og neyð eru orð sem
koma upp í hug flestra sem starfa að
þessum málum. Starfsmaður í athvarfi
í miðborginni orðaði það svo að þrátt
fyrir að hið opinbera heíði vilja til að
leysa þessi mál þá væri kerfið þungt og
hiutirnir tækju alltof langan tíma.
Menn gleymdu því að mannslíf eru i
húfi en ekki bara verið að fást við töl-
ur um fólk án fastrar búsetu í þjóð-
skránni.
Guðbjörg Sveinsdóttir segir ástand
mála ekki gott og fremur hafa versnað
síðustu misserin. Hún segir vanda
heimiiislausra fara lágt og kallar eftir
viðbrögðum. „Spumingin hlýtur að
vera: hvað ætlum við að gera til að
koma þessu fólki til hjálpar. Það kem-
ur fólk til okkar að morgni með svefn-
pokann sinn eftir að hafa dvalið ut-
andyra alla nóttina. Það þarf ekki að
segja nokkrum manni að tilvera þessa
fólks er ansi döpur. Starfsmenn hér
hafa í auknum mæli orðið þess
áskynja að gestimir eiga sér ekkert
heimili. Það hljóta allir að vera sam-
mála að það er grundvallarþörf og
mannréttindi hvers manns að eiga þak
yfir höfuðið og það er afskaplega erfitt
að horfa upp á þetta,“ segir Guðbjörg
og bætir við að Félagsþjónustan sé
vissulega að vinna að þessum málum
en hún efast um að nóg sé að gert.
Þá segir Guðbjörg sumarlokanir
geðdeildanna hafa sín áhrif en vanda-
málið sé fiölþætt,
það er að segja
bæði af heil-
brigðistoga og fé-
íagslegt. „Það er
bráðnauðsynlegt
að efla þjónustu
•Og aðgengi fólks |
'að henni. Ef ekk-
ert verður að gert ..,
er það sambæri-
legt við að segja
að þetta fólk komi okkur ekkert við,“
segir Guðbjörg Sveinsdóttir.
Kemur á óvart
Athvarfið Vin tekur að jafnaði á
móti um 30 manns á dag en þar er
hægt að dvefia daglangt við ýmsa iðju
auk þess að njóta þjónustu. Handan
Hverfisgötunnar rekur Samhjálp ann-
að athvarf sem hefur verið Qölsótt í
mörg ár og fiöldi gesta hefur farið yfir
hundraðið á dag undanfarið. „Við sem
störfum hér fáum ekki betur séð en
heimilislausum hafi fiölgað í maí og
munurinn frá því í apríl sé marktæk-
ur. Þetta kemur svolítið á óvart því
venjan er að sumrin séu rólegri tími
hjá okkur,“ segir Heiðar Guðnason,
Heimilislausum fer fjölgandi
Starfsmenn athvarfa í miöborginni fullyröa aö vandi heimilislausra fari vaxandi. Neyöin blasir viö alltof mörgum og því miöur er
ekki margt til ráða. Myndin er sviösett.
Guðbjörg Sveinsdóttir hjá Vin
„Þaö erumannslíf í húfi og til dæmis kemur fólk til okkar aö morgni meö
svefnpokann sinn eftir að hafa dvaliö utandyra alla nóttina."
limlent frettaSjös
Arndís Þorgeirsdóttir
blaöamaöur
forstöðumaður .Samhjálpar við Hverf-
isgötu.
Heiðar þekkir vel til málefna heim-
ilislausra enda eru
þeir daglegir gest-
ir í athvarfinu.
Hann segir hlutfall
heimilislausra af
heildarfiöldanum
rétt rúmlega 30
prósent og það fari
hækkandi. Það
þýðir að nokkrir
tugir gestanna hjá
Samhjálp eiga
ekki þak yfir höfuðið. „Hér er fullt út
úr dyrum á degi hverjum og það sem
er óvenjulegt við maímánuð er að
fiöldinn var meiri en vant er í byrjun
mánaðarins. Venjulega dettur aðsókn-
in niður í fyrstu viku mánaðar á með-
an margir eiga enn styrkinn sinn. Nú
bar svo við að það fiölgaði hjá okkur,“
segir Heiðar.
Neyðin er mikil að sögn Heiðars og
úrræðin fátækleg. Eitt þeirra er gisti-
skýlið við Þingholtsstræti sem hefur
upp á fimmtán rúm að bjóða. Þar hef-
ur verið full nýting mánuðum saman
og oftar en ekki sem fólk verður frá að
hverfa sökum plássleysis.
„Það hefur alltaf verið til hópur
manna sem sefur úti og á sér ekkert
heimili. Hversu margir þeir eru, er
erfitt að segja til um, en líklega hleyp-
ur það á nokkrum tugum. Hópurinn
sem lendir tímabundið í vandræðum
er stærri, það er fólk sem lendir í
vandræðum tímabundið, flakkar á
milli og reynir að bjarga sér frá degi til
dags. Ef ekki verður gripið til ein-
hverra ráða á næstunni kæmi mér
ekki á óvart að báðir þessir hópar fari
vaxandi," segir Heiðar Guðnason.
Ný kynslóð fíkla
Stuðningsþjónusta Geðhjálpar hefur
um þrjátíu skjólstæðinga undir sínum
verndarvæng og um fimmtíu manns
bíða þess að komast að. Biðlistinn er
ekki nýr af nálinni.
„Neyðin er gríðarleg og margir bók-
staflega á húninum hjá okkur. Sem
betur fer geta sumir okkar skjólstæð-
inga dvalið hjá ættingjum en einhverj-
ir búa á götunum, svo mikið er víst.
Það kemur manni ekki lengur á óvart
að fólki sofi úti, þannig hefur það ver-
ið í mörg ár og engin ný sannindi þar,“
segir Tryggvi Bjömsson, starfsmaður
Stuðningsþjónustu Geðhjálpar.
Tryggvi kveðst óttast framtíðina ef
ekki verði gripið í taumana. Hann seg-
ir smnarlokanir á geðdeildum einn
anga vandans en fleira komi til. „Það
er að koma upp ný kynslóð eitur-
lyfiafikal sem margir hverjir þjást af
geðröskunum. Vandinn sem blasir við
Stuðningsþjónustunni er húsnæðis-
skortur en nú er unnið hörðum hönd-
um að því að bæta þar úr. Vonandi
tekst okkur að stytta biðlistana á
næstu mánuðum - en menn virðast ofl
gleyma því að það er mun ódýrara að
hýsa fólk á sambýlum en á spítölum.
Munurinn hleypur á tugum þúsunda á
Fullt út úr dyrum
Fjöldinn sem sækir athvarf Samhjálpar viö Hverfisgötu hefur sjaldan eöa
aldrei veriö meiri en í maímánuöi.
Gisting ffyrir heimilislausa
Gistiskýiiö viö Þinghoitsstræti getur
tekiö fimmtán i rúm.
dag fyrir utan hvað sambýlið er mann-
eskjulegra form,“ segir Tryggvi
Bjömsson stuðningsfulltrúi.
Staðan ekki nógu góð
„Félagsþjónustan hefur haft áhyggj-
ur af þessum málum eins og aðrir. Við
finnum fyrir vandanum á skrifstofum
okkur í borginni og höfum verið að
kortleggja þetta í dálítinn tima,“ segir
Ellý Þorsteinsdóttir, formaður vinnu-
hóps um heimilislausa hjá Félagsþjón-
ustunni. Ellý segir vinnuhópinn hafa
fundað með félagsmálaráðherra í febr-
úar síðastliðnum. „Þar lýstum við því
yfir að staðan er ekki nógu góð og úr-
ræða er svo sannarlegatþörf. Síðan þá
hefur Félagsmálaráð samþýkkt að
komið verði á fót tveimur heimilum
fyrir heimilislausa sem samanlagt
munu hýsa 10 til 15 manns," segir Ellý.
Félagsþjónustan hefur kortlagt
vanda heimilislausra og samkvæmt
þeirra tölum eru rúmlega fiörutíu
manns skilgreindir heimilislausir.
„Það kann að vera að talan sé hærri en
þetta er fólk sem við vitum um. Okkar
hlutverk er að koma þeim sem eiga í
ekkert hús að venda til aðstoðar. Við
vitum að fleiri eru heimilislausir en
við leggjum á það áherslu að forgangs-
raða og byrja á að leysa brýnasta vand-
ann. Þessi mál verða hins vegar aldrei
leyst með einu handtaki," segir Ellý
Þorsteinsdóttir en hópur hennar skilar
niðurstöðum í þessum mánuði og von-
ir standa til að stofnað verði til samýl-
anna tveggja í framhaldi af því.
„Fjöldi heimilislausra sem sækja
þjónustu hjá okkur hefur tvöfaldast frá
því í byrjun árs. í janúar voru þeir átta
en eru nú sextán. Það segir sína sögu.
Þvi miður rikir mikið úrræðaleysi í
þessum málum og ég óttast að okkar
gestir séu bara toppurinn á ísjakan-
um,“ segir Guðbjörg Sveinsdóttir, for-
stöðumaður í athvarfinu Vin við
Hverfisgötu.
Heimilislausu fólki virðist fara fiölg-
andi í Reykjavík og dæmið hér á und-
an er ekki einstakt. Fleiri hafa sömu
sögu að segja. Spurningunni um
hversu margir séu í raun heimilislaus-
ir i Reykjavík, búi á götunni og eigi
ekki í nein hús að venda, verður hins
vegar ekki svarað svo auðveldlega. Það
hefur einfaldlega ekki verið rannsakað
en samkvæmt opinberum tölum voru
rúmlega fiörutíu manns heimilislausir
í Reykjavík um síðustu áramót og hef-
ur að líkindum fiölgað fremur en hitt.
Liklegt þykir að talan sé enn hærri því
sá hópur fólks sem lendir tímabundið
í hrakningum er ekki tekinn með i
reikninginn. Hvemig sem á það litið
eru þessar tölur ískyggilegar og ættu
ekki að þekkjast í okkar góða þjóðfé-
lagi.