Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2001, Page 23
23
LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2001
DV
Helgarblað
Snorri Guövaröarson, málari á Akureyri.
Hefur málningu í gömlum sveitakirkjum
sem sérgrein:
Reyni að vera
upprunanum trúr
- segir Snorri Guðvarðarson. Gott að
hugsa í gömlum kirkjum
„Sjálfsagt eyði ég meiri tíma í guðs-
húsum en velílestir prestar landsins.
Mér líður ákaflega vel við þessa iðju,
það gefst nægur tími til þess að hugsa
í kirkjunum," segir Snorri Guðvarðar-
son, málari á Akureyri, og er kíminn á
svip. Hann hefur til íjölda ára haft það
nánast sem sérgrein í iðn sinni að mála
gamlar sveitakirkjur og er þessa dagana
að byrja að munda pensilinn í einni
þeirra, Uspakapeliu við Dalvík. Fleiri
verkefni bíða Snorra á næstunni.
Völdust út firá listrænum
hæfileikum
Snorri dregur enga dul á að vanda-
verk sé að mála kirkjur svo vel fari.
Fyrir það fyrsta sé mikilvægt að halda
upphaflegum litum kirknanna og þá
þurfi menn gjaman að leysa upp eldri
málningu eða slípa sig niður á neðsta
lag til að sjá hvaða litir voru notaðir,
þá fyrir kannski 100 til 150 árum.
„Ég reyni að vera upprunanum trúr
og þá þarf að eltast við ótal hluti, eins
og til dæmis liti, gljástyrk, áferð og
svona gæti ég áfram haldið. Allt skal
vera eins og i upphafi var. Ég hef átt
sérstaklega gott samstarf við Magnús
Skúlason hjá Húsafriðunamefhd. Ég
hef komið nærri því að mála ótalmarg-
ar eldri kirkjur og þegar ég fer að
skoða handverk kirkjumálara fyrri tíð-
ar verður ekki annað sagt en til þeirra
starfa hafi menn valist afar mikið út
frá listrænum hæflleikum. Handbragð-
ið er víða fallegt. Þetta er talsvert ann-
að en í dag þegar plastmálning er sett
á alla veggi og menn reyna að hespa
verkið af i sem mestum flýti til að
standast útboð. Sjálfsagt er þetta í
nokkm samræmi við almennt breytt
viðhorf í þjóðfélaginu; að peninga-
hyggjan hafi um margt borið hið list-
ræna ofurliði."
Blandar löginn sjálfur
Annað sem Snorri nefnir er að á
fyrri tíð hafi kirkjur gjaman verið
málaðar með línolíumálningu, sem var
eins konar fyrirrennari olíumálningar-
innar. „Þetta er ákaflega meinlaust
efni, þú gætir þess vegna fengið þér
gúlsopa af þessu og haldið svo áfram
að skrifa," segir Snorri við blaðamann.
Efnin í línolíumálningunni em meðal
m.a. femisolía, terpentína, títanhvíta,
krít og þurrkefni. Þetta þurfa kunn-
áttumenn að blanda þannig að úr verði
nothæf málning. Segist Snorri raunar
telja að afskaplega fáir kunni orðið að
búa svona málningu til þannig að góð
verði, en þetta blandar hann oft sjálfur
til þess að vera upprunanum trúr, eins
og hann kemst sjálfur að orði.
Kapellan á Upsum, sem Snorri er nú
að byrja að mála, er aðeins kórinn af
gamalli kirkju sem þama stóð en fauk
í ofsaveðri snemma á síðustu öld. „Ég
get varla verið langan tíma með þetta
verkefni því strax og þessu lýkur þarf
ég að fara austur í Vopnafjörð og mála
kirkjuna sem er þar í kauptúninu,"
segir Snorri sem hefúr í gegnum árin
málað ótalmargar aðrar kirkjur vítt og
breitt á Norður- og Austurlandi. Þar
segir hann að óneitanlega hljóti kirkj-
an á Grund í Eyjafirði að verða efst á
blaði. Snorri segist hafa verið að mála
í henni alltaf af og til síðustu tuttugu
og fimm árin og um kirkjuna alla megi
segja að hún sé eitt stórt listaverk.
Gott að láta hugann reika
Flestir þekkja sjálfsagt þá tilfmn-
ingu að ganga inn í kirkju þegar sem
dauðar fiskiflugur era í haugum í
hverjum glugga. Þar sem stóísk ró er
yfir ölfu. Við slíkar kringumstæður er
gott að láta hugann reika, eins og
Snorri raunar sjálfur segir. „Maður
sem liflr jafnfiölbreyttu og flóknu lifi
og ég þarf á slíku að halda. Hér á Ak-
ureyri er ég kennari við tvo skóla,
Verkmenntaskólann og Glerárskóla,
auk þess sem ég er að mála kirkjur og
spila síðan á böllum um nánast hverja
helgi. Það er gott að geta átt næðis-
stundir frá þessu amstri þegar maður
er einn að mála í einhverri kirkjunni,"
segir Snorri sem nýlega hefur fest
kaup á gömlu húsi í Innbænum á Ak-
ureyri, Davíðsbæ, sem er frá 1877.
Vinnur hann nú þegar stundir gefast að
endurbótum á húsinu og er að koma því
í sem upprunalegast horf, rétt eins og
hann kappkostar í starfl sínum sem
málari gömlu kirknanna. -sbs
Blanchett á
von á barni
Leikkonan Cate Blanchett og
eiginmaður hennar, handritahöf-
undurinn Andrew Upton, eiga von
á fyrsta bami sínu síðar á þessu
ári. „Þetta eru dásamleg tíðindi og
við gætum ekki verið hamingju-
samari,“ segir í yfirlýsingu sem
blaðafulltrúi Blanchett hefur sent
út. Cate Blanchett, sem er 32 ára,
var útnefnd til óskarsverðlauna
1999 fyrir leik sinn i myndinni El-
ísabet I. Hún er nú við tökur á
myndinni The Shipping News sem
Kevin Spacey leikur einnig í.
Cate hefur nýlokið leik í
Charlotte Gray í Englandi og
Frakklandi og hún leikir á móti
Bruce Willis í Bandits sem tekin
var í Bandaríkjunum. Hún hefur
verið önnum kafin og býst nú við
að hafa enn meira að gera þegar
fjölskyldan stækkar.
Hamingjusöm
Cate Blanchett á von á barni
síöar á árinu.
lrmköllun:
Rafræn skráning
hlutabréfa Skeljungs hf. frá og meö 27. ágúst 2001
TVIánudaginn 27. ágúst 2001 veröa hlutabréf í Skeljungi hf.
tekin til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu lslands hf.
í samræmi viö ákvörðun stjórnar Skeljungs hf. þar að lútandi.
Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins
þann dag. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf
í fyrirtækinu í samræmi við ákvæði laga og reglugerðar um
rafræna eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf i Skeljungi hf. tekin til
rafrænnar skráningar en þau eru öll i einum flokki, auökennd
raðnúmerunum A -1 til A - 9000, og gefin út á nafn hluthafa.
Útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem
telja nokkurn vafa leika á að eignarhald þeirra sé réttilega fært
i hlutaskrá Skeljungs hf. að staðreyna skráninguna meö
íyrirspurn til hlutaskrár Skeljungs hf. að Suðurlandsbraut 4, 108
Reykjavík, eöa í síma 560-3829, netfang: kj@skeljungur.is.
Komi i ljós við slika könnun að eigendaskipti hafi ekki verið
skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu
fyrir nefndan dag.
Ennfremur er skoraö á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til
ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á
framfæri viö fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka, verðbréfa-
fyrirtæki eða sparisjóð sem gert hefur aðildarsamning við
Verðbréfaskráningu íslands hf., iyrir skráningardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf
félagsins verða ógild sjálfkrafa og þvi er ekki þörf á að skila
þeim til félagsins.
Jafnframt er vakin athygli á að ferii rafrænnar skráningar hefur
engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga viöskipti með hluti
sina í félaginu aö undanskildum sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reiknings-
stofnun umsjón með eignarhlut sinum í félaginu til að geta
framselt hluti sína svo sem vegna sölu eða skipta. Reiknings-
stofnun mun i þessu skyni stofna VS-reikning i nafni
viðkomandi hluthafa. Hluthafar félagsins fá nánari upplýsingar
sendar í pósti.
Stjóm Skeljungs hf.