Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2001, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2001, Side 40
48 Helgarblað LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2001 I>V Skipulagðar gönguferðir á íslendingaslóðir í Kaupmannahöfn: Ný vegahand- ^rbók um Dan- mörku Þeir sem hyggjast aka um hinar grösugu eyjar Danmerkur í sumar ættu að huga að því að næla sér í gott vegakort. Út er komin ný og vönduð 200 síðna vegahandbók í A- 4 formi frá Kraks í Danmörku þar sem er að finna kort af u.þ.b. 7000 km vegalengdum vítt og breitt um Danmörku. í þessari þriðju útgáfu Kraks hefur verið bætt inn nýjum merkingum sem segja hvar geti ver- m_ ið spennandi að beygja út af þjóð- veginum langi ferðalanga að hvíla sig á hraðbrautinni og keyra hluta af leiðinni í gegnum fallegt landslag. Þá eru einnig á kortunum sérstakar merkingar um ferðaskrifstofur, sögufræga staði, kastala, herra- garða, skemmtigarða, golfvelli, far- fuglaheimili, tjaldstæði, smábáta- hafnir og fleira áhugavert fyrir þá sem vilja sjá sem mest á leið sinni um hina dásamlegu Danmörku. Muniö eftir brúnni til Sví- þjóöar Akandi ferðamenn í Danmörku ættu að hafa í huga þann möguleika að geta ekið yfir Eyrarsundsbrúna til Svíþjóðar. Það getur verið skemmtilegt að skreppa í lautarferð til Suður-Svíþjóðar og það er mjög fallegt á Skáni, ekki síst núna þegar eplatrén eru í fullum blóma en á Skáni eru miklir eplaframleiðend- ur. Þegar ekið er yfir brúna skal halda sig lengst til hægri og þegar á að rukka veggjaldið skal taka það fram að um dagsferð sé að ræða en gjaldið fyrir dagsferð er 350 d.kr. Allt frá því árið 1973 hafa verið haldnar djasshátíðir í ítalska bæn- um Perugia. Djasshátiðirnar ganga undir nafninu Umbria Jazz og eru haldnar bæði innandyra og utan á götum bæjarins og litlum torgum hér og hvar. Djassinn í Perugia dun- «4, ar í sumar daglega frá morgni til kvölds í tíu daga, frá 13. til 22. júlí, og fyrir áhugasama eru einnig í boði djassnámskeið á tímabilinu. Lúxusvillur fyrir hálfvirði á ! Spáni Á vefsíðunni planet.co.uk er þessa dagana verið að bjóða lúx- ' usvillur á Spáni til leigu í vikutíma fyrir hálfvirði. Um fjölmarga staði á Spáni er að ræöa og má nefna sem dæmi Andalúsíu, Costa Blanca, Ibiza, Menorca og Mallorca en á öll- um þeim stöðum er einkasundlaug við villuna og bílaleigubíll innifal- inn í verðinu. Allt að átta manns geta gist á hverjum stað og því til- valiö fyrir fjölskyldur að leigja sam- an. Um nokkra verðflokka er aö ræða og gildir tilboðið til 24. júní. Djassað á Ítalíu „Jónas“ í boði hússins Islands Center í Kaupmanna- höfn hefur nú hafið skipulagðar gönguferðir á íslendingaslóðir í Kaupmannahöfn að nýju. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á þessum ferðum frá síðasta sumri sem felast aðallega í því að nú eru fleiri ferðir í boði, eða fjórar á viku í stað tveggja áður. Utan fastra ferða geta hópar og fyrir- tæki pantað sérstakar ferðir, bæði gönguferðir og rútuferðir um borg- ina sniðnar að óskum hvers og eins. Þar voru Fiölnismenn og flelri Gönguferðirnar hefjast alltaf á Ráðhústorgi, fyrir framan Ráðhús- iö, en síðan er stikað yfir Vestur- vegg og inn í gömlu Kaupmanna- höfn, þar sem þorri íslendinga bjó á öldum áður. Við sögu koma menn eins og Baldvin Einarsson, Jón Sigurösson, Fjölnismenn ásamt fleirum. Á leiðinni er farið fram hjá síðasta bústað Jónasar Frá Kaupmannahöfn Margir frægir íslendingar hafa alið manninn í Kaupmannahöfn, Hallgrímssonar, Háskólanum, Gamla Garði og Sívala tuminum, svo eitthvað sé nefnt. Komið er inn á handritabrunann árið 1728 og sagan skoðuð í ljósi hans. í öll- um ferðum er gerður stuttur stans hjá Nacho’s Cantina á Kolatorg- inu, þar sem hægt er að svala þorsta sínum. Þá hefur verið fitjaö upp á þeirri nýjung að bjóða upp á síðdegisgöngu á laugardögum sem enda á einu af vinsælustu veit- ingahúsum Kaupmannahafnar, Restaurant Philippe við Grá- bræðratorg. Veitingamaðurinn og íslandsvinurinn Morten Sorensen hefur sett saman sérstakan mat- seðil fyrir göngulúna íslendinga þar sem flestir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi en fyrst fá allir einn „Jónas“ í boði hússins. Leiðsögumaður í gönguferðun- um er Guðlaugur Arason rithöf- undur. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Islands Center: www.islandscenter.dk eða í síma +45 21908207. W Stuttar dagsferðir um hvítasunnuna: Gengið eftir Atlantshafs- hryggnum á þurru landi Áð í fjallgöngu Jónsmessugangan um Fimmvörðuháls er án efa sú vinsælasta á landinu af styttri ferðum. Það er fátt yndislegra en að vera einn með sjálfum sér á gangi ein- hvers staðar úti í náttúrunni á þess- um tíma árs og fylgjast með því hvernig allt er í óðaönn að lifna við eftir vetrardvalann. Að hlusta á grasið spretta, lækina fossa í leys- ingunum, finna dásamlegan ilminn frá gróðrinum, fylgjast með fuglum 1 hreiðurgerð, hlusta á suðið í flug- unum og finna að þetta er lífið sjálft. En það er ekki síður gaman að ganga í félagsskap með vini á uppáhaldsstaðina sína eða fara í fyrir fram skipulagðar gönguferðir með ferðafélögum en ferðafélög viðs vegar um landið bjóða upp á fjöl- breyttar styttri eða lengri göngu- ferðir með leiðsögn. Gönguferðir á hvítasunnu Á hvítasunnudag er hægt að fara í göngu um hluta af gamalli þjóðleið sem kallast Reykjavegur. Þá er gengið frá Eldvörpum, sem eru norðaustan við Grindavík, að Méltunnuklifi austan megin og tek- ur gangan 6 tíma. Reykjanesskaginn er nokkurs konar framhald af Mið- Atlantshafshryggnum á landi og þar rekur risastórar plötur jarð- skorpunnar í sundur um 2 cm á ári. Reykjavegurinn er gönguleið eftir miðbiki skagans og má því segja að þar sér gengið eftir Atlantshafs- hryggnum á þurru landi. Gönguleið- in er 130 km löng og nær frá einu jarðhitasvæði til annars í öllum fjórum eldstöðvakerfum skagans. Hún liggur meðfram helsta þéttbýli landsins en ber samt yfirbragð ör- æfa. Lagt verður af stað frá BSÍ með Útivist kl. 10.30 á hvítasunnudags- morgun. Á annan í hvitasunnu verður svo gengið yfir Þríhnúka að Stórabolla í Grindaskörðum sem er suðvestur af Bláfjöllum og eru u.þ.b. 550 metrar á hæð. Þessi ganga tekur einnig 6 klukkustundir og er lagt af stað frá BSÍ kl. 10.30 á mánudagsmorgun. Ekkert er um að ræða hættuleg klifur í þessum leiöum og ættu flest- ir sem treysta sér í nokkurra klukkustunda göngu að geta verið með. Það er mjög mikið atriöi að vera vel skóaður, í góöum og þægi- legum hlífðarfatnaði og hafa með sér nesti. Ferðirnar eru ekki bara fyrir skráða félaga í ferðafélögum en það getur munað 10 til 15 pró- sentum á þátttökugjaldi. Jónsmessuganga Það eru einnig farnar lengri gönguferðir, eins og t.d. yfir Fimm- vörðuháls og er þá bæði um að ræða tveggja og þriggja daga ferðir. Þá er lagt af stað upp frá Skógum, gist eina nótt í skálanum á Fimmvörðu- hálsi og gengið niður í Bása í Þórs- mörk næsta dag. Næturgöngur eru líka vinsælar yfir Fimmvörðuháls og er Jónsmessugangan svokallaða þeirra vinsælust en aðsóknin í hana hefur verið mjög mikil á undanförn- um árum og í sumar lítur út fyrir að hún muni slá öll aðsóknarmet því hátt í 300 manns hafa nú þegar skráð sig í hana. í Jónsmessugöngunni er gengið alla nóttina án þess að gista á miðri leið eins og tiðkast i öðrum nætur- göngum og tekur gangan á að giska 10 klukkustundir. Veður getur veriö misjafnt, allt frá slagveðursrigningu í blíðviðri með rómantísku sumar- tungli svo það er um að gera að vera vel búinn. -W Reykjavík: Hvalaskoðun og skemmtiferðir Nýtt og glæsilegt hvalaskoðunar- og skemmtiferðaskip, Hafsúlan, hef- ur bæst í skipaflota höfuðborgarinn- ar. Þetta er tvíbolungur (katamar- an) sem gerir það mjög stöðugt í sjó og fer vel með farþegana. Hafsúlan verður gerð út frá Reykjavík, en þar sem ganghraðinn er 23 milur er athafnasvæði skips- ins allt Faxaflóasvæðið. Hafsúlan er í föstum áætlunarferðum á hvala- skoðunarslóðir og siglir daglega kl. 10.30 frá Reykjavíkurhöfn. Hver ferð tekur 2,5-3 tíma og sést til hvala í flestum ferðum. Gerist það ekki er fólki boðiö að fara í aðra ferð frítt þegar því hentar. Yfir sumartimann eru það mest útlendir ferðamenn sem sækja í þessar ferðir, en þó er mjög vaxandi að íslendingar komi með. Hafsúlan tekur 150 farþega og er búið glæsilegum veitingasal sem tekur um 110 farþega til borðs. Ofan þilja er rúmgott útsýnissvæði þar sem hægt er að njóta útsýnisins. Yfir sumartímann eru það mest út- lendir ferðamenn sem sækja í þess- ar ferðir, en þó er mjög vaxandi að íslendingar komi meö. I sumar verður einnig boðið upp á miðnætursiglingar þar sem siglt verður frá Reykjavík og fylgst með sólarlaginu. f WHAU’WATCHINGÍffi Hafsúlan Gerö út frá Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.