Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2001, Page 56
* Mlw,, , . vwó* '«.»IUV>
NISSAN ALMERA
Noröurá:
15 laxar fyrsta
hálfa daginn
- þrír 12 punda
Þroskaþjálfi í fæðingarorlofi:
Fær engin laun
- í verkfalli
„Ég varð fyrir miklum vonbrigð-
um,“ sagði Katrín Þórdís Jacobsen, yf-
irþroskaþjálfl hjá Félagsþjónustu
Reykjavikurborgar, þegar hún fékk
t ekki launin sín greidd í gær, 1. júní.
Katrín er í fæðingarorlofl og bjóst við
útborgun launa. En sú varð ekki raun-
in og hún mun ekki fá greidd laun svo
lengi sem þroskaþjálfar eru í verkfalli.
„Þeim er víst stætt á því að borga
ekki, samkvæmt mati kjaraþróunar-
nefndar Reykjavikurborgar, þótt ég sé
búin að vinna mér þetta inn,“ sagði
Katrín og bætti við: „Mitt starf liggur
ekki niðri vegna verkfalls. Það var
kona fengin til að gegna því þegar ég
fór í fæðingarorlofið og hún er ekki í
verkfalli,“ sagði Katrín sem kvaðst
myndu hafa samband við stéttarfélag
sitt vegna málsins. -JSS
VERO Á LÍTRA í 0 0 0
Hafnfirskt bensín
Bensínsölumaðurinn á Shell-stöð-
inni við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði
auglýsir bensínlítrann á 10 krónur og
9 aura á einni af dælum sínum. Þegar
inn er komið kostar lítrinn hins veg-
ar 102 krónur og 90 aura.
„Tæknibúnaður okkar ræður ekki
við svona háar tölur. Það var aldrei
gert ráð fyrir að lítrinn færi yfir 100
krónur," segir Vignir Pétursson á
Shell-stöðinni sem fékk Verðlagseftir-
litið í heimsókn á dögunum og gerði
það ekki athugasemdir við tilboð
hans. Margir Hafnfirðingar hafa hins
vegar látið ginnast af tilboðinu og
staðið ánægðir við dæluna þar til upp
' fyrir þeim rann ljós. -EIR
www.ih.is
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREISEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 2. JUNI 2001
Laxveiðin hófst með látum í Norð-
urá í Borgarfirði í gær en á fyrstu
vaktinni veiddust 15 laxar og voru
þrír þeirra 12 pund. Bjarni Júlíusson
setti í vænan lax á Eyrinni en fiskur-
inn slapp eftir stutta baráttu.
„Þetta var mjög góð byrjun, 15 lax-
ar, og þremur var sleppt. Við erum
hress hérna við Norðurá með þessa
opnun,“ sagði Árni Eyjólfsson, vara-
formaður Stangaveiðifélags Reykja-
víkur, í samtali við DV í gær.
„Flestir laxarnir veiddust fyrir
neðan Laxfossinn en það veiddist lika
lax i Kýrgrófarhylnum og það er
merkilegt að lax veiðist þar svona
snemma. Það verður spennandi að sjá
hvernig næstu vaktir verða og hvem-
ig veiðist," sagði Árni enn fremur.
Blanda var líka opnuð í gærmorg-
un en ekki fékkst fiskur á fyrstu vakt-
inni. „Þetta gengur rólega," sagði
Árni Baldursson við Blöndu í gær.
-G.Bender
Neyðaróp 15 fanga á almennum refsigangi:
Fyrirmyndarfangar
drottna á Litla-Hrauni
slúðra í fangaverði og selja dóp
Fimmtán fangar á almennum
refsigangi á Litla-Hrauni kvarta
sáran yfir samfóngum sínum á „fyr-
irmyndargangi" fangelsisins í bréfi
sem þeir hafa sent frá sér. Á „fyrir-
myndarganginum" eru ellefu fangar
sem allflestir hafa verið dæmdir fyr-
ir stórfelldan fikniefnainnflutning
til landsins; meðal annars í stóra
fikniefnamálinu sem skók reykvísk-
an eiturlyfjaheim fyrir skemmstu.
Fangarnir fimmtán segja fyrir-
myndarfangana stjórna öllu á Litla-
Hrauni. Þeir séu með fangaverðina
i vasanum og ljóstri upp öllum
leyndarmálum sem í gangi eru í
fangelsinu og ljúgi jafnvel til að ná
sér niðri á öðrum. Fangaverðirnir
beri jafnvel lotningu fyrir fóngun-
um ell-
l«.WfWllrtRA._ 'm,*n«*ta.
efu en
um þá
segir
orð-
rétt
í I
bréfi
fang-
anna:
„Þessir menn sjá hin-
um fóngunum fyrir dópi í
hagnaðarskyni. Það er
óskiljanlegt hvað þessir
menn geta haft það náð-
ugt í fangelsinu. Þeir fá
ýmis hlunnindi sem við
hinir eigiun enga mögu-
leika á, svo sem eins og
frjálsan aðgang að símum,
klefum er ekki lokað,
svo eitthvað sé nefnt.
Einnig fá svonefndir
■
llu
Uí
Hr-
Bréf fanganna
„ Viö erum aö hrópa á hjálp.
Litla-Hraun
Rimma er komin upp á milli fanga á
fyrirmyndargangi og almennum
refsigangi.
fyrirmyndarfangar mun fleiri heim-
sóknir og gefst þeim því kjöriö tæki-
færi til að hitta bandamenn sína og
skipuleggja glæpi eins og þeim er
einum lagið. Hvað varðar eigin
i fangelsinu
sem minnst
bréfs fanganna
kannast ekki við neitt af þessu.
Biörgun mistókst:
Oenealogia
gjaldþrota
Tryggvi Pétursson, stjórnarfor-
maður útgáfu- og ættfræðifyrirtæk-
isins Genealogia Islandorum, óskaði
í gær eftir því að
fyrirtækið yrði
tekið til gjald-
þrotaskipta.
Lauk þar með
langvinnu björg-
unarstarfi sem
miðaði að því að
reisa fyrirtækið
við eftir margs
konar hremming-
Tryggvi
Pétursson
ar sem aldrei sá Gafstuppígær
fyrir endann a. —-.........
DV-MYNDIR G.BENDER
Lax, lax, lax og aftur lax ...
Bjarni Júlíusson meö fjóra af fyrstu löxunum sem veiddust í Noröurá í gærmorgun þegar veiöin byrjaöi í ánni.
Nú síðast var Páll
Bragi Kristjónsson, viðskiptafræð-
ingur og bókaútgefandi, kallaður til
og reyndi hann árangurslaust að
koma skikki á málin. Gjaldþrot fyrir-
tækisins er mikið áfall fyrir marga af
helstu viðskiptajöfrum landsins þvi
meðal hluthafa voru stórfyrirtækin
Burðarás og Sjóvá-Almennar. -EIR
OZ tapar
forstjórinn bjartsýnn
„Bróðurparturinn af tapinu er til-
kominn vegna kaupa okkar á
kanadiska fyrirtækinu sem við
greiddum fyrir
fikniefnaneyslu þá passa þeir sig á
því að nota LSD þar sem það lyf
finnst ekki við mælingu...“
í lok bréfs sins segjast fangarnir
fimmtán óska eftir því að
starfsaðferðir
stjórnenda
og fanga-
i varða á
Litla-
Hrauni
verði
teknar til
endurskoð-
unar og tekið
verði fyrir yf-
irgang og
drottnunar-
girni fyrir-
myndarfanganna
ellefu. Orðrétt
segja þeir: „Við
erum að hrópa á
hjálp.“
Sigurður Stein-
dórsson, deildarstjóri
á Litla-Hrauni, vildi
tjá sig um innihald
en sagði þó: „Ég
með hlutabréf-
um. Þau hluta-
bréf veröum við
að afskrifa á
þremur árum og
þau koma því inn
í bókhaldið sem
kostnaður. En
þetta eru ekki
raunverulegir
peningar," sagði
Skúli Mogensen,
forstjóri undra-
fyrirtækisins OZ,
Skúli Mogensen
Á 500 milljónir
handbærar.
sem kynnti af-
komutölur sínar fyrir síðasta ár og
fyrsta ársfjórðung þessa árs í gær.
Bókhaldslegt tap fyrirtækisins á
tímabilinu nemur hálfum milljarði
en séu hlutabréfin sem fóru í kaup
á kanadiska fyrirtækinu dregin frá
nemur tapið ekki nema rúmum
hundrað milljónum króna. Vegna
afkomunnar hefur stjórn fyrirtækis-
ins gripiö til þess ráðs að loka skrif-
stofum sínum í Stokkhólmi en þar
voru starfsmenn rúmlega tuttugu
talsins. Þrátt fyrir allt er forstjórinn
bartsýnn:
„Ég er ekki óánægður. Það var
búið að spá því að við yrðum búnir
með alla peninga í mars en það er
öðru nær. Við eigum 500 milljónir
handbærar í lausafé og viðskipta-
kröfum. Peningar geta verið fljótir
að fara en þeir geta líka verið fljót-
ir að koma,“ sagði Skúli Mogensen,
forstjóri OZ. -EIR
-EIR
/
/
Þrír menn játa innbrot í Svarthamar:
Gemsinn kom upp um þá
Þrír menn hafa játað fyrir lögreglu
aðild að innbroti í málverkagalleríið
Svarthamar við Skólavörðustíg þann
27. apríl síðastliðinn. Einn þremenn-
inganna er sá hinn sami og var hand-
tekinn á hlaupum skammt frá gallerí-
inu skömmu eftir innbrotið. Hann sat í
vikulöngu gæsluvarðhaldi strax en
neitaði allri sök á þeim tíma.
Að sögn lögreglu eru flest málverk-
anna komin í leitirnar og virðast þau
að mestu óskemmd. Meðal myndanna
voru verk eftir Kjarval, Svavar Guðna-
son, Ásgrím Jónsson og fleiri meistara.
Bárður Halldórsson, eigandi Svart-
hamars, sagðist í samtali viö DV vera
DV-MYND ÞOK
Innbrot og skemmdarverk
Friðrik Stefánsson, starfsmaöur Svart-
hamars, með málverk eftir Sigurbjörn
Jónsson. Innbrotsþjófurinn lét sig hafa
þaö aö stórskemma myndina.
ánægður með að málverkin væru kom-
in í leitirnar en Ijóst væri að nokkur
vantaði enn. Hann sagði gsm-síma hafa
komið upp um þjófana. „Þeir hringdu
nokkrum sinnum í mig og buðu mér
verkin til sölu. Þeir notuðu talfrelsi og
þess vegna var ekki hægt að átta sig á
númerinu sem hringt var úr. Ég tók
því upp á því að skrifa hjá mér tíma-
setningar símtalanna og með þær upp-
lýsingar komst lögreglan á sporið. Ég
er feginn að það sér fyrir endann á
þessu máli og lögreglan hefur staðið
með afbrigðum vel að rannsókninni,"
sagði Bárður Halldórsson, eigandi
Svarthamars. -aþ
Jói útherji
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • sími 588 1560