Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001
r>v
Fréttir
Foreldrar mjög fatlaðs drengs
Föst í Danmörku
- hvorki getum né munum flytja heim til íslands, segir móðir barnsins
íslensk hjón sem eiga mjög fatl-
aðan sjö ára son sem fékk vírus í
heila fyrir fimm árum segjast upp-
lifa sig sem gísla í Danmörku þar
sem þau geti ekki flutt til Islands.
Ástæðan sé sú að íslensk félags-
málayfirvöld geti ekki séð drengn-
um fyrir fullnægjandi sólarhrings-
vistun en það sé hins vegar fyrir
hendi í Danmörku.
Kristín Guðmundsdóttir, móðir
drengsins, segir að hún og maður
hennar, Bragi Ragnarsson, hafi
unnið að því í heilt ár að flytja
heim til íslands - nú sé hins vegar
útséð um að þau geti það. Sonur
þeirra er svo fatlaður að læsa þarf
heimilinu að utan og innan á næt-
uma svo hann gangi ekki fyrir bíl
sem hann annars gæti gert án þess
að skynja nokkra hættu, svo dæmi
séu tekin - því þurfi hann stöðuga
umönnun. Sú aðstoð sem félags-
málayfirvöld á Islandi bjóða for-
eldrunum í stuðning eru fimm
virkir samfelldir
dagar í mánuði.
í Danmörku er
hins vegar boðið
upp á 15-20 daga,
eins og staðan er
í dag. Danir
bjóða fólkinu
einnig að hafa
drenginn á stofn-
un allan sólar-
hringinn alla
daga ársins, en
foreldrarnir geti
komið og heim-
sótt drenginn
eða tekið hann
til sín í frítím-
um.
Sveitarfélagið
á Suður-Sjá-
landi, þar sem
fólkið býr, hefur
sent bréf til ís-
lands þar sem
Helmþrá
Kristín Guðmundsdóttir ásamt Ragnari
syni sínum. Danir búa betur að
fötluöum.
það býðst til að
vista drenginn á
meðan foreldr-
arnir og bróðir
drengsins flytja
lögheimili sitt
heim, koma sér
fyrir og finna
viðunandi aðstoð
fyrir hann hér.
Það sé hins veg-
ar háð því skil-
yrði að ísland
borgi uppihaldið
ytra þar sem
barnið er ís-
lenskur ríkis-
borgari. Þessu
boði synjaði hins
vegar félags-
málaráðuneytið
sem sagði að það
teldi að hið ís-
lenska velferðar-
kerfi væri ekki í
stakk búið til að taka á móti fjöl-
skyldunni og veita henni nauðsyn-
lega aðstoð og þjónustu.
„En vegna þessarar synjunar
erum við dæmd til að búa hérna
áfram ef við ætlum að fá sólar-
hringsaðstoð fyrir son okkar,“ seg-
ir móðir hans. „Getur það verið
rétt að við sem íslendingar getum
ekki flutt aftur til heimalandsins?"
íslenska fjölskyldan flutti til
Danmerkur árið 1990 með það fyrir
augum að búa ytra í 4-5 ár. Árið
1995 fékk sonurinn, Ragnar, tveggja
ára, æxli i heilann. Þegar hann
vaknaði upp af dái kom í ljós að
hann var gríðarlega heilaskaðaður
vegna víruss sem hann hafði feng-
ið. Þetta er talið einstakt dæmi.
Sérmenntaðir barnalæknar í Dan-
mörku, með heilaskaða sem sér-
grein, hafa fullyrt að fotlun barns-
ins sé svo mikU að ekki geti verið
leggjandi á nokkra fjölskyldu að
hafa það heima til lengri tíma. -Ótt
Vélstjórar fá
það sama
Kjaradómur úrskurðaði fyrir
skömmu að sjómenn skyldu fá
meiri hækkun en vélstjórar höfðu
samið um. Aö sögn Friðriks J.
Arngrímssonar, framkvæmda-
stjóra LlÚ, munu vélstjórar fá
sömu hækkun og aðrir sjómenn.
„Við funduðum með þeim í gær
og það hefur alltaf legið fyrir að
þeir komi ekki verr út úr þessu
en aðrir og betur ef eitthvað er.“
-Kip
Fimm fullir
Fjórir ökumenn voru stöðvaðir
af lögreglu í nótt, grunaðir um ölv-
un við akstur. Kópavogslögreglan
stöðvaði einn ökumann vega gruns
um ölvun. Að sögn lögreglu er
þetta fremur mikið á þessum tíma
vikunnar. Þá var einn tekinn á of
miklum hraða í höfuðborginni í
nótt. -aþ
DVWND E.ÓL
Vélstjórar fá líka hækkun
Helgi Laxdai, formaður Vélstjórafélags ísiands, og Friðrik J. Argrímsson.
Alþýðusamband íslands leggur til erlenda lántöku ríkisjóðs:
Líst vel á tillögu ASÍ
- segir Vilhjálmur Egilsson, formaður efnahagsnefndar Alþingis
DV4AYN0 E.ÓL.
Krepputillögur kynntar
Forsvarsmenn ASl kynntu í gær tillögur sinar til styrktar krónunni. Svo er að heyra aö hugmyndirnar falli í góðan jarðveg.
Alþýðusamband
íslands hefur lagt
til að ríkissjóður
taki 15-20 milljarða
króna erlent lán, og
verði fénu varið tU
að greiða niður inn-
lendar skuldir rík-
isins. Talið er að
þessi aðgerð gæti
orðið til þess að
styrkja krónuna
gagnvart öðrum gjaldmiðlum.
„Mér líst bara nokkuð vel á þessa
tillögu. Mér sýnist að gengið sé orð-
ið allt of lágt, og miklu lægra en
efnahagslegar forsendur gefa tilefni
tU,“ segir Vilhjálmur EgUsson, þing-
maður Sjálfstæðis-
flokksins og for-
maður efnahags- og
viðskiptanefndar
Alþingis. „Það má
segja að það sé út-
sala á krónunni og
því sé ekki óskyn-
samlegt fyrir ríkið
að taka erlent lán
Ögmundur tU að borga niður
Jónasson. erlend lán. Þaö
myndi einnig væntanlega styrkja
gengi krónunnar. Ég myndi telja aö
þetta hefði jákvæö áhrif“ segir Vil-
hjálmur.
„Ég hef ekki farið sérstaklega yfir
þessa tUlögu Alþýðusambandsins.
Ég tek hins vegar undir það megin-
sjónarmið að nauðsynlegt sé að
gjaldmiðillinn styrkist vegna þess
að veiking krónunnar er ávísun á
kjaraskerðingu. Það sem mér finnst
hins vegar mest áhyggjuefni nú um
stundir er hvert verið er að velta
kostnaðarbyrðum í þjóðfélaginu og
vísa ég þar á aukna kostnaðarþátt-
töku sjúklinga, hækkun notenda-
gjalda á ýmsum sviðum, s.s. í al-
menningssamgöngum hér á höfuð-
borgarsvæðinu. Þetta finnst mér
mikið athugunarefni. TiUögu ASÍ
þarf aö skoða virkilega vel,“ segir
Ögmundur Jónasson, þingmaöur
Vinstri grænna.
-gk
Kópavogsbúar óhressir
Ármann Kr. Ólafs-
son, forseti bæjar-
stjórnar Kópavogs,
segir nauðsynlegt að
kanna möguleika á
þvi að Kópavogur
hefji eigin raforku-
framleiðslu. Orku-
nefnd Kópavogs segir
raforkuverð sem bærinn greiðir
Reykjavíkurborg sé 2-10% hærra en
nágrannasveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu þurfi að búa við.
Ríkið tapaði
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
hafnað kröfu ríkislögmanns vegna
máls sem ASÍ höfðaði gegn ríkinu
vegna lagasetningar á verkfall sjó-
manna í vor. Jafnframt var rikinu gert
aö greiða 300 þúsund króna málskostn-
að.
Elsa ráðin
afciirr~ I Elsa Púðfínns-
ÍWBffiÉádóttir hefur verið
H ráðin aöstoðarmaöur
I Jóns Kristjánssonar,
9 heUbrigðis- og trygg-
\ 'W ingamálaráðherra.
"FF7 m Elsa var lektor við
Háskólann á Akur-
-------- eyri 1991-1999 en hef-
ur síðan starfað við Landspítala há-
skólasjúkrahús.
Rýtingur í bakið
Konráð Alfreðsson, formaður Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar og varafor-
maður Sjómannasambandsins, segir að
Vélstjórafélag íslands hafi rekið rýting
í bak sjómanna með samningi sínum
við útgerðarmenn í vor. Hann segir
Sjómannasambandið ekki hafa
nokkum skapaðan hlut að ræða við
forustu vélstjóra.
„Innbrot" í El Grillo
Tveir menn vom i gær staðnir að
því að hafa kafað niður að flaki E1
GrUlo í Seyðisfn-ði og tekið loftvarna-
byssu úr flakinu sem þeir ætluðu að
eiga. Byssan var tekin af þeim, enda
hafa bæjaryfirvöld í Seyðisfirði sam-
þykkt að enginn megi kafa niöur að
flakinu án leyfis, hvað þá að taka úr
því hluti án leyfis.
Sagnanetiö opnað
Björn Bjamason menntamálaráð-
herra opnaði i gær Sagnanetið í Þjóðar-
bókhlöðunni, vef þar sem íslenskar
bókmenntn- er að finna á stafrænu
formi.
Páll ákveðinn
Páll Pétursson félagsmálaráðherra
hefur blásið á þær
sögusagnir að hann
sé á leið út úr pólitík.
PáU segist viö bestu
heUsu og stefnir
ótrauður að þvi að
leiða lista Framsókn-
arflokksins í Norð-
vesturkjördæmi í
kosningum tU Alþingis árið 2003.
Dómur í dag
Héraðsdómur Reykjavíkur kveður í
dag upp úrskurð vegna lögbannsbeiðni
þriggja stjórnarmanna Lyfjaverslunar
íslands vegna þeirrar ákvörðunar
stjómarinnar aö kaupa Frumafl. Deilu-
aðilar leita einnig sátta i málinu.
Stjórnarflokkar tapa
Fylgi stjómarflokkanna hefur
minnkað um 5% frá í maí ef marka má
nýja skoöanakönnun GaUup, Fram-
sókn stendur í stað, Sjálfstæðisflokkur-
inn tapar en VG eykur fylgi sitt um 3%
samkvæmt könnuninni.
Tollverðir samþykktu
ToUverðir hafa samþykkt nýgerðan
kjarasamning snm viö ríkið. Um 90
toUverðir tóku þátt í atkvæðagreiðslu
um samninginn og vom 68 þeirra
þeirrar skoðunar að samþykkja bæri
samninginn. -gk