Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 9
9 ÞRIDJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001_____________________________________ I>V _________________________________________ Neytendur Myndirnar úr sumarfríinu Eitt af því sem fylgir sumarleyf- um og ferðalögum er myndatökur. Þær verða að teljast nánast ómissandi partur af dagskránni í hverjum áningarstað. Það er að segja þegar veður leyfir. Það er líka ómissandi partur af dagskrá síðkvöldanna að fletta sumarfris- myndunum og ylja sér við minn- ingarnar. Hlæja að svipbrigðum samferðafólksins, jafnvel rifja upp skondnar sögur sem tengjast hverri mynd. Þá reynir líka á landafræðikunnáttuna, hvernig gengur að muna örnefni og eftir- tektarverða staðir. Stafrænar vélar Margar gerðir af myndavélum eru á markaðinum. Mesta nýjung- in í þeirri deild eru stafrænu myndavélarnar. Hingað til hafa þær vélar virst býsna flóknar og varla á færi nema kunnáttumanna að meðhöndla. Nú eru hins vegar komnar stafrænar vélar á markað sem virðast notendavænni og með hæfilega mörgum tökkum fyrir hvem sem er. Bestu myndirnar á jóla- kortið Margs er að gæta þegar teknar eru myndir á stafrænar vélar. Meðal annars að þær séu teknar með nægilega sterkum upplausn- um þannig að gæðin verði eins og best verður á kosið. Hvert minniskort tekur við ákveðnu magni af upplýsingum og verði myndimar of margar er það á kostnað gæðanna. Þeir sem taka myndir á stafræn- ar vélar kannast við aö hætta get- ur verið á að týna þeim inni í tölv- unni. „Hvar eru myndirnar úr sumarfríinu okkar?“ spyr eigin- konan eða eiginmaðurinn ein- hvem tíma á jólafostunni þegar á að finna bestu barnamyndirnar á jólakortið. Vonandi finnast mynd- irnar og sé góður prentari á heim- Oinu og ljósmyndapappír tO staðar Myndaalbúmið Það er líka ómissandi partur af dagskrá síókvöldanna aó fletta sumarfrísmyndunum og ylja sér viö minningarnar. má reikna með að hver mynd kosti 55-60 krónur, miðað við að fjórar myndir séu á einni A4 örk. Filmur og framköllun Hægt er að fá myndir af stafræn- um myndavélum framkallaðar á pappír í sums staðar þar sem hefð- bundnar fOmur eru framkallaðar. Þó ekki aOs staðar - ekki enn. Verðið er mismunandi. Hjá FOm- um og FramköOun í Hafnarfirði kostar stykkið sléttar 100 krónur af stærðinni 10x15 sé miðað við 24 myndir. Ef um mikið magn er hins vegar að ræða af myndum gerir fyr- irtækið tilboð í prentunina. Myndsmiðjan Hjá Myndsmiðjunni á EgOsstöö- um eru tæki tO að prenta myndir úr stafrænum vélum. Hægt er að senda myndirnar sem vfðhengi þangað í tölvupósti og taka fram hversu mörg stykki af hverri eigi að prenta og í hvaða stærð. En ef um margar þungar myndir er að ræða er ódýrara að senda kortið úr myndavélinni í pósti (annars getur komið ljótur símareikningur). Mið- að við 24 myndir i stærðinni 10x15 kostar stykkið 70 krónur. Verðið lækkar hins vegar þegar um fleiri myndir er að ræða. Ljósmyndabúöin í Ljósmyndabúðinni Sunnuhlíö á Akureyri eru prentaðar myndir úr tölvum og kostar stykkið 80 krónur af myndum í stærðinni 10x15 þegar magnið er miðað við 24. Bæði er hægt að senda þær í tölvu (þá gOdir það sama og hjá Myndsmiðjunni) eða senda kortið í pósti. Framköllunarþjónunstan I FramköOunarþjónustunni í Borgamesi er einnig búnaður tO prentunar mynda úr stafrænum vélum. GaOinn er hins vegar sá að fyrirtækið hefur ekki nettengst enn en það stendur tO bóta innan nokkurra vikna. Því þarf að nota póstþjónustuna og senda mynda- kortið tO fyrirtækisins með öllu saman. Myndin kostar 80 kr. mið- að við 24 stykki og lækkar eftir þvi sem magnið er meira. Hægt er aö fá myndimar svarthvítar eða með gamaldags brúnum blæ ef óskað er, auk litaprentunar. Hans Petersen Hans Petersen er með sam- skiptaforrit á heimasíðu sinni. Því forriti þarf notandinn að hlaða inn á sína tölvu tO aö geta nýtt sér þjónustuna. Þar getur hann sett myndir sínar inn á og fengið upp- lýsingar um hvort þær eru i nægi- lega góðri upplausn fyrir þá stærð sem óskað er. Miðað við 24 myndir í stærðinni 10x15 er stykkjaverðið hjá Hans Petersen 69 krónur. Brennt á geisladiska Þær framköllunarþjónustur sem hér eru nefndar að ofan bjóða aOar upp á að brenna myndir á geisla- diska - gOdir það jafnt um tölvu- myndir og venjulegar pappírs- myndir. Inni á þeim diski er þá forrit sem opnar diskinn. Síðan er hægt að prenta þær út eftir þörf- um. Verðið á diskunum er víðast 990 krónur miðaö við 24 myndir (stykkið 41 kr.) og þá er boðið upp á myndirnar í margs konar upp- lausn. Hjá FramköOunarþjónust- unni í Borgarnesi kostar diskurinn 500 og þar er um eina upplausn að ræða sem hentar ágætlega í myndastærðina 10x15. -Gun Garðhorn: Dvergar og slútandi greinar Helga Hauksdóttir, garðyrkjufræð- ingur hjá Garðheimum, heldur áfram í þessum pistli að fræða lesendur DV um forvitnilegar trjá- og runnategund- ir sem reynst hafa ágætlega í görðum hér á landi. Að þessu sinni segir hún frá dvergreyni, steinbjörk og slút- birki. Bleikrauðir tónar „Eins og nafnið gefur til kynna er dvergréynir (Sorbus reducta) lágvax- in reynitegund. Hann vex aOur á werveginn með rótarskotum og verð- Hengibjörk Eldri tré fá tígulegan vöxt þar sem greinaendarnir slúta eóa hanga. ur ekki hærri en 50-60 cm. Dvergreyn- ir hefur dafnað vel í Grasagarðinum í Reykjavík og er framleiddur af Gróðr- arstöðinni Borg í Hveragerði. Hann hefur verið tO sölu í Garðheimum í sumar og verið mjög eftirsóttur af þeim sem á annað borð vita af honum. Dvergreynirinn er yndislegur sem þekjuplanta þótt hann vaxi fremur hægt, hann hefur mjög fallegt dökk- grænt lauf og rauða miðtaug. Blómin eru hvít og berin fá sérkennUegan bleikan eða dökkrauðbleikan lit. HausOitimir eru alveg frábærir i sér- Stelnbjörk Tréö er m.a. eftirsótt vegna sérstaks litar barkarins sem breytist eftir því sem þaö eldist. kennilegum bleikrauðum tónum. Dvergreynir hentar í blönduð beð og steinhæðir og svo fer hann sérlega vel með sígrænum plöntum. Steinbjörk og slútbirki Steinbjörk (Betula ermanii) og slút- birki (Betula pendula) eru tvær faOeg- ar birkitegundir sem þegar hafa sann- að sig víða um land en eru ekki mik- ið þekktar. Helga segir að steinbjörkin sé öOu kraftalegri en íslenska birkið og lauf- ið grófara. „Hún vex sem hátt ein- stofna tré eða stór runni. Steinbjörk er eftirsótt vegna hins sérstaka litar sem er á berkinum. Tveggja ára grein- ar eru rauðgular til koparlitar, ung tré eru aftur á móti með koparlitan tO svartan börk. Miðaldra tré eru með bleikhvítan eða gulhvítan börk og gömul tré fá dökkan og grábrúnan börk. Tegundin er harðger en þarf meiri hlýju og skjól en íslenska birk- ið. Slútbirki, eða hengibirki eins og sumir kjósa að kaOa það, er svipað is- lensku birki við fyrstu sýn en þegar nánar er að gáð er margt sem skilur tegundimar að. Á slútbirkinu er leir- brúnn börkurinn alsettur litlum, ljós- um vörtum. Blöðin era ljósgræn og enda í löngum oddi, þau eru þynnri en á íslenska birkinu þannig að það hristist mikið í vindi. Slútbirkið ilm- ar ekki en eitt af því sem gerir það glæsOegt er að eldri tré fá tígulegan vöxt þar sem greinaendarnir slúta eða hanga. Bæði trén njóta sín best ef þau fá nægt pláss og standa stök innan um lágvaxinn gróður, stakstæð á flöt eða í stórum röðum.“ -Kip Dvergreynir Plantan hentar í blönduð beö og steinhæöir og fer sérlega vel meö sígræn- um plöntum. HF SUZUKI BILAR Skeifunni 17. Sími 568 51 00. 3ja DYRA HÁTT 0G LÁGT DRIF Meðaleyðsla 8,01 2.080.000,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.