Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 10
10 Útlönd ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 I>V Undir pressu Sharon íhugar nú hvernig bregöast eigi við auknu ofbeldi. Landnemi myrtur Ariel Sharon, forsætisráöherra ísraels, kallaði í morgun saman ör- yggisráð sitt til að ræða viðbrögð við síauknu ofbeldi fyrir botni Mið- jarðarhafs. Svo virðist sem átök hafi aukist eftir að Colin Powell, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, ræddi við deiluaðila í síðustu viku til að bjarga vopnahléi sem enn heldur þrátt fyrir mannfall. Um 24 hafa fall- ið frá því að vopnhléið komst á, 15 Palestínumenn og 9 ísraelar. ísraelskur landnemi fannst skot- inn til bana í hæðunum við Hebron á Vesturbakkanum. Einnig féllu Palestínumaður og ísraeli í tveim aðskildum tilvikum. Sendifulltrúar Sameinuðu þjóð- anna telja úti um vopnahléið. Japan: Krafist handtöku í nauðgunarmáli Lögregluyfirvöld á japönsku eynni Okinawa kröfðust handtöku yhr bandarískum herflugmanni á eynni. Hann er sakaður um að hafa nauðgað japanskri konu í síðustu viku. Um 26 þúsund bandarískir starfsmenn eru á herstöð á eynni og er það helmingur allra sem starfa á vegum Bandaríkjahers í Japan. Yfirmaöur bandariska hersins í Okinawa lofaði í morgun fullri sam- vinnu við Japana. Ef hermaðurinn verður látinn í hendur lögreglunnar er það aðeins í annað skipti sem Bandaríkjaher láta starfsmann sinn í hendur japanskra lögregluyfir- valda áður en opinbert mál hefur verið höfðað á hendur honum. Mikil reiði er meðal ibúa Ok- inawa vegna málsins. David Trimble Afsögnin viröist ekki hafa tilætluö áhrif. Enn engin afvopnun Vonir um að bjarga megi friðar- samkomulaginu, kenndu við föstu- daginn langa, á milli stríðandi fylk- inga á Norður-írlandi minnka nú með hverjum deginum. Afsögn David Trimble, fyrsta ráð- herra landsins, átti að þvinga írska lýöveldisherinn til að hefja afvopn- un. Enn hefur hins vegar ekkert skref verið stigið í þá áttina af skæruliðasamtökunum. Til að auka enn á spennuna var ganga mótmæl- enda um hverfl kaþólikka bönnuð. Neitar aö svara: Stuttar fréttir Milosevic byöur birginn í Haag Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, mætti í sína fyrstu yflrheyrslu fyrir striðsglæpa- dómstól Sameinuðu þjóðanna í Hag klukkan 8 i morgun að íslenskum tíma. Hann bauð dómstólnum birg- inn og neitaði að svara ákæruatrið- um. í kjölfarið kallaði hann stríðs- glæpadómstól SÞ ólöglega stofnun sem hann myndi ekki virða svars. Venjan er sú að sakbomingar lýsi því yfir að þeir séu saklausir eða sekir. Richard May, dómari í mál- inu, sagöi yfirlýsingu hans flokkast undir það að hann hafi lýst sig sak- lausan. Milosevic var rólegur í upphafl yfirheyrslunnar og neitaði að taka við heymartólum sem heföu gefið honum þýðingu á því sem fram fór. Hann afþakkaði þjónustu lögfræð- inga í yflrheyrslunni og mætti einn fyrir dómstólinn. Hann segist ekki viðurkenna lögsögu dómstólsins og hafa fylgismenn hans líkt framsali hans við mansal. Lögfræðingar for- Slobodan Mllosevic Þverskaiiast viö aö viöurkenna Stríösglæpadómstólinn í Haag. Neit- ar að svara ákæruatriöum setans fyrrverandi skiluðu þeirri yf- irlýsingu frá Milosevic að dómstól- inn væri í raun að framkvæma „þjóöarmorð" gegn serbnesku þjóð- inni með baráttu sinni. Milosevic er þekktur sem „slátr- arinn frá Belgrad" meðal óvina sinna en í augum fækkandi fylgis- manna sinna er hann hetja serbnesku þjóðarinnar. í stríðs- glæpadómstólnum í Haag mun hann svara fyrir ásakanir um glæpi gegn mannkyninu sém hann er sagður hafa framið með þjóðernishreinsun- um í Kosovo árið 1999. Þegar Milosevic mætti fyrir breska dómaranum Richard May í morgun varð sögulegt augnablik að veruleika. Hann er fyrsti þjóðarleið- toginn fyrrverandi til að standa frammi fyrir ákærum af hálfu stríðsglæpadómstólsins. Einnig er hann fyrsti þjóðarleiðtoginn til að vera ákærður fyrir stríðsglæpi á meðan hann sat enn í embætti. Frá samherja til skúrks Þegar Stobodan Milosevic tók viö völdum í Júgóslavíu árið 1989 litu vestræn stjórnvöld á hann sem bandamann sem hægt væri aö treysta. Þaö álit hefur hins vegar sífellt fariö minnkandi síöan Bosníustríöiö hófst. Kosovo stríöiö fyllti síðan mælinn þar sem júgóslavneski herinn var gerandinn í þjóöarmoröum á Kosovo-Albönum. Mexíkóforseti kvænist talsmanni sínum Vicente Fox, forseti Mexíkó, kom löndum sínum þægilega á óvart í gær þegar það var tilkynnt að hann hefði gengið að eiga Martha Sahag- un. Martha hefur verið talskona for- setans siðan hann tók við embætti fyrir ári. Að Fox og Martha skyldu gifta sig var ekki aðalundrunarefnið fyrir Mexíkóbúa, sem höfðu vitað af ást- arsambandinu i langan tíma. Hins vegar var athöfnin ekki tilkynnt heldur var hún sýnd i sjónvarpi eft- ir á. íviðtali við fréttamenn sagði Fox að hann hefði beðiö sinnar heittelskuðu fyrir einum mánuði. „Ég sagði henni að það væri engin ástæða til að bíða lengur. Ég væri ástfanginn og við ættum aö gifta okkur,“ sagði forsetinn og bætti við: „Lengi lifl ástin.“ Turtildúfur Um 50% Mexíkóa eru samþykk nýj- um ráöahag forsetans. Frú Sahagun sagði þegar í stað af sér sem talskona forsetans og í hennar stað setti Fox ímyndarfræð- ing sinn Francisco Ortiz. Martha Sahagun hefur verið áberandi í starfsliði forsetans frá því hann tók við. Hún hefur jafnvel verið talin stjórna á bak við tjöldin. Svo langt hefur það gengið að sést hefur til hennar skamma ráðherra í ríkis- stjóm núverandi eiginmanns síns. Það er hins vegar talið að Sahag- un hafi átt í sífellt meiri erfiðleik- um með samræma þátt ástkonunn- ar og talskonunnar. Nú getur Sa- hagun andað léttar og telja margir að nú sé enn ein valdamikil forseta- frú komin fram í heimsálfunni Ameríku. Á undan hafa komið Evita Peron, Eleanor Roosevelt og Hillary Clinton. Slæmur í öxlinni Dick Cheney, varaforseti Banda- ríkjanna, bar sig vel eftir aðgerð um helgina þar sem í hann var græddur gangráöur á stærð við símboða. Hins vegar fann hann til sársauka í öxlinni, en sagði hann mundu ganga yfir. Maðkur í McDonalds McDonalds-veitingakeðjan hefur verið kærð af 11 ára gömlum dreng sem segist hafa borðað hluta af hamborgara með lifandi möðkum frá einum veitingastað keðjunnar. Að eigin sögn gleypti hann 6 maðka með hamborgaranum. Hann krefst um 105 milljóna króna fyrir sinn snúð. Belgar taka forystu í ESB Belgía tók í gær við forystu í Evr- ópusambandinu til 6 mánaöa, á eft- ir ágætlega lukkaðri stjórn Svía. Þeir segjast ætla að berjast fyrir samstæðari Evrópu í málefnum allt frá innflytjendum til matareftirlits. Viðskiptabann óbreytt Ríkisstjóm Bandaríkjanna ákvað í gær að setja lagfæringar á við- skiptabanni Sameinuðu þjóðanna á írak í salt. Ágreiningur hafði verið um breytingartillögurnar sem mið- uðu að því aö írakar gætu keypt all- ar vörur frjálst nema þær sem hægt væri að nota til vopnaframleiðslu. írakar munu því áfram geta keypt mat fyrir olíu. Rekur lífverði Gyanendra, nýr konungur Nepals, hefur látið reka fjóra úr konunglegu lifvarðasveitinni í kjölfar fjöldamorðs Dipendra krónprins á konungsfjölskyld- unni. Þeir eru sagð- ir hafa vanrækt störf sin. Drepin af geitungum Fjögurra ára kambódísk stúlka og amma hennar voru drepnar af reið- um geitungasveimi á dögunum. 4 aðrir fjölskyldumeðlimir slösuðust. Montesinos talar Fangelsaöi njósn- aforinginn, Vla- dimiro Montesinos, svaraöi i gær spum- ingum dómara. Hann er undir rann- sókn vegna ásakana um morð, spillingu og fleira í þeim dúr. Áður hafði hann heitið því að opna ekki munninn nema hann yrði flutt- ur úr alræmdu fangelsi, sem hann sjálfur lét byggja. Kynlífsbúð lokað Einu kynlífsbúð Kambódíu var lokað í gær, einungis degi eftir að hún var opnuð. Lögreglan gerði at- lögu að búðinni með það fyrir aug- um að konum steðjaði hætta af henni. Menem fagnar afmæli Carlos Menem, fyrrverandi for- seti Argentínu, fagnaði 71 árs af- mæli sínu í gær. Hann situr í stofu- fangelsi á búgarði sínum fyrir meinta aðild að fikniefnadreifingu á valdatíma sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.