Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 11 DV Utlönd Japan er ekki á móti Kyoto-sátt málanu m Sói og öryggisfilma. Sandblástursfilmur Junichiro Koizumi, forsætis- ráðherra Japans, segir að það hafi verið misskilningur að Japan ætlaði sér að taka sömu afstöðu og Bandaríkjamenn gegn Kyoto- sáttmálanum. Á fréttamanna- fundi, sem haldinn var þegar Bush Bandaríkjaforseti heimsótti Koizumi um síðustu helgi, var haft eftir Koizumi að hann væri ekki vonsvikinn vegna breytingar á afstöðu Bandaríkjamanna gagn- vart Kyoto-sáttmálanum. Forsætisráðherrann japanski, sem nú er á ferð um Evrópu að hitta þjóðarleiðtoga þar, leiðrétti við blaðamenn: „Við höfum ekki fært okkur nær afstöðu Banda- ríkjanna. Við viljum að bæði Bandaríkin og Evrópu taki þátt svo að samkomulagið komi ein- hverju til skila.“ Þrýstingur á Japan um að gefa Bandaríkjunum langt nef, svo að segja, og hefja samstarf við Evrópu Koizumi vill snúa Bush Forsætisráöherrann japanski telur þaö nauösynlegt aö fá Bandaríkjamenn til aö taka þátt í Kyoto-sáttmálanum, annars sé hann lítils viröi. um að koma Kyoto-sáttmálanum í framkvæmd. Koizumi hefur hins vegar lagt áherslu á það í Evrópu- fór sinni að Japan sé reiðubúið til þess að gerast sáttasemjari milli Evrópusambandsins og Bandaríkj- anna svo hægt sé að koma átaki í umhverfismálum á skrið. Koizumi hefur viðurkennt að það sé tæknilega mögulegt að samþykkja Kyoto-sáttmálann án samþykkis Bandarikjanna. Það sé hins vegar hæpið að slíkur samn- ingur gerði eitthvert gagn. Nauð- synlegt sé að koma Bandaríkjun- um aftur inn í samningaferlið. Yf- irlýsing þess efnis kom eftir að Koizumi hitti Tony Blair, forsæt- isráðherra Bretlands, í gær. í dag mun Koizumi hitta Lionel Jospin, forsætisráðherra Frakklands, og á miðvikudaginn hittir hann svo forseta Frakklands, Jacques Chirac. Báðir eru harðir stuðn- ingsmenn Kyoto-sáttmálans. Efnishyggjan veldur þunglyndi Þrátt fyrir að hraðskreiðir bilar og merkjavörur séu draumar millj- óna manna getur löngunin í þessa hluti valdið þunglyndi og reiði, samkvæmt nýjum vísindarannsókn- um. Ástralskir vísindamenn fundu jákvæða fylgni milli efnishyggju, eða óhóflegra áhyggna af efnisleg- um hlutum, og sálfræðilegra vanda- mála i fólki. Shaun Saunders, einn rannsakendanna, sagði viðfangsefn- ið þarfnast frekari athugana. „Á meðan vaxandi áhyggjur eru af um- hverfislegum áhrifum neysluhyggj- unnar hefur lítilli athygli verið beint að sálfræðilegum áhrifum hennar á fólk.“ • Stórminnkar sólarhita • Gerir sólabirtuna mildari og þægilegri • Útilokar nánast útfjólubláa geisla og upplitun • Eykur öryggi í fárviðmm og jarðskjálftum • Eykur öryggi gegn innbrotum ■ Brunavarnarstuðull er F15 • Einangrar gegn kulda, hita og hávaða • Glerið verður 300% sterkara ■ Minnkar hættu á glerflísum I andlit • Gerir bílinn/húsið glæsilegra GLÓIHF Dalbrekku 22 • Kópavogi sími 544 5770 Smáauglýsingar Allt til alls ►I 550 5000 Avalon LIFRÆNAR JURTIR FYRIR HUÐ OG HÁR Sprett úr spori fyrir hönd sóknarinnar Þessir ítölsku knapar eru aö taka þátt í Palio-kappreiöunum í borginni Siena á Italíu. Heföin fyrir kappreiöunum nær aftur til ársins 1224 og fara þær fram tvisvar á ári þar sem hlaupið er kringum aöaltorg borgarinnar. Einn knapi keppir fyrir hverja kirkjusókn í héraöinu og hvergi er slegiö af í kappinu. Skæruliðar sleppa tveim filippseyskum gíslum Liðsmenn filippseysku skæruliða- samtakanna Abu Sayyaf, sem hald- ið hafa 20 manna hópi, þ.a. þrem Bandaríkjamönnum, í gíslingu und- anfarnar 5 vikur, slepptu í dag tveim gíslum. Greint var frá þvi að lausnargjald hefði veriö greitt. Gislarnir tveir, 15 ára ung- lingstúlka og 32 ára kona, voru úr upphaflega 20 manna hópnum og voru því orðnar hraktar, enda á stöðugum göngum í gegnum frum- skóga. Stöðugt hefur bæst í hóp gísl- anna þar sem skæruliðarnir hafa ít- rekað ráöist á lítil þorp og tekið fleiri gísla. Skæruliðarnir hafa verið dugleg- ir við að hóta að lífláta gíslana, sér- staklega þá bandarísku. Fundist hafa lík fjögurra filippseyskra gísla og voru þrir þeirra hálshöggnir. Talsmaður skæruliðanna segir að Myrtur gísl Skæruliöar hafa m.a. hálshöggvið þrjá filippseyska gísla. einnig sé búið að lifláta einn banda- rískan gisl. Það hefur ekki fengist staðfest þar sem ekkert lík hefur fundist. Samkvæmt yfirlýsingum tals- manns skæruliðanna er markmið Abu Sayyaf samtakanna að vinna að sjálfstæðu múslímsku ríki í suð- urhluta Filippseyja, sem eru að mestum hluta kaþólskar. Auk þess vilja þeir að vestræn ríki dragi til baka allar herstöðvar sínar og viðskipti frá Mið-Austur- löndum og hætti stuðningi við ísrael. Flestir eru hins vegar famir að hallast að þeirri skoðun að von um lausnargjald sé það eina sem reki skæruliðana áfram. Filippseyska hernum hefur verið skipað að beita hörku ef hann lendir í átökum við skæruliðana. Með blómavatni Kynning í dag frá kl. 14-18 Lyfju Lágmúla og Lyfju Hamraborg Miövikudag 4. júlí Lyfju Smáratorgi Fimmtudag 5. júlí Lyfju Setbergi og Lyfju Smáratorgi Föstudag 6. júlí Lyfju Grindavík og Lyfju Garðabæ LYFIA LYF Á LÁGMARKSVERÐI ■ Lyfja Lágmúla • Lyfja Hamraborg • Lyfja Setbergi • Lyfja Smáratorgi • Lyfja Laugavegi • Lyfja Garðatorgi * útibú Grindavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.