Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 20
* 24 -------néliiiUr-------------- tðlvui tsekni og vísinda Farsímaframleiðendur baktryggja sig: ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 ■ Einkaleyfi á „geislavörnum" Umræðan um skaöleg áhrif GSM-síma hefur staöið yfir um nokkurt skeið þó ekki hafi enn tekist að sanna með vissu að slík áhrif séu fyrir hendi. Þrátt fyrir að halda því fram að notkun á farsím- um, s.s. GSM- símum, sé skað- laus hafa stærstu framleiðendur slíkra tóla, Nokia, Er- icsson og Motorola, hver um sig sótt um einkaleyfi í Bandaríkjunum á tækni sem koma á í veg fyrir skaðleg áhrif farsíma. í þónokkurn tima hafa staðið yfir deilur þess efnis hvort örbylgjur og hiti frá farsímum hafi áhrif á heila notandans. Farsímaframleiðendur hafa staðið fast á því að svo sé ekki. Vísindamenn hafa hins vegar skipst í tvo hópa. Niðurstöður rannsókna hafa verið beggja blands. Sumar sýna fram á skaðleysi farsíma á meðan aðrar hafa leitt í ljós hugsanleg áhrif á not- andann. Rannsókn sem gerð var af yf- irvöldum í Bretlandi sýndi t.d. fram á að siminn gæfi frá sér örbylgjur í not- andann. Magn þeirra var hins vegar langt undir þeim stöðlum sem settir höfðu verið þar í landi um leyfilegan skammt af örbylgjum sem sími má senda frá sér. Málsóknir hafnar Fréttirnar af því að símaframleið- endurnir virðast hafa meiri áhyggjur af áhrifum sima en þeir vilja láta uppi hafa hrint af stað nokkurri gagnrýni frá neytendasamtökum bæði í Banda- ríkjunum sem og í Bretlandi. Fram- leiðendumir eru sakaðir um tvískinn- ung. Fyrirtækin séu í raun að bak- tryggja sig ef það sannaðist einhvern tíma að notkun farsíma væri á ein- hvern hátt skaðleg. Einnig hafa frétt- imar hrint af stað bylgju lögsókna í Bandaríkjunum á hendur símafram- leiðendum og farsímafyrirtækjum. Eitt málið er höfðað á hendur Motorola af fyrrum starfsmanni fyrir- tækisins, Michael Murray. Hann vann við prófanir á farsimum fyrirtækisins og heldur því fram að það hafi orsak- að tvö heilaæxli sem hann hefur feng- ið. Lögfræðifyrirtæki eitt í Bretlandi, Thompsons, sem sækir skaðabótamál fyrir einstaklinga, segist hafa um 30 mál þar sem fólk segist hafa beðiö lík- amlegt tjón af notkun farsíma. Þeir ætla hins vegar að biða og sjá hver niðurstaðan verður í Bandaríkjunum áður en eitthvað verður gert í þeirra málum. Eðlileg rannsóknarstarfsemi Talsmenn farsímaframleiðenda þvertaka fyrir að einkaleyfaumsókn- irnar hafi nokkuð að gera með grun um skaðleg áhrif notkunar farsíma. Talsmaður frá Ericsson sagði að eng- in vísindaleg rök lægju fyrir um slíkt í dag. Einn aðstoðarforstjóra Nokia lét hafa eftir sér að hér væri ekki um tví- skinnung að ræða. Þriðjungur starfs- manna fyrirtækisins ynni við rann- sóknir og hönnun. Það væri aðeins eðlilegt að sækja um einkaleyfi ef nýj- ung kæmi upp á rannsóknarstofum fyrirtækjanna. / þónokkum tíma hafa staðíð yfír deilurþess efnis hvort örþylgjur og hltí frá farsfmum hafl áhríf á heíla notandans. Farsfmafram- leíðendur ha fa staðið fast á því að svo sé &kkl Vís~ indamenn hafa híns vegar skípst í tvo hópa. Niður- stöður rannsókna hafa ver- íð h&ggja blands. 3nilb .iklptl Game Boy Advance komin út - Nintendo vonast eftir góðri sölu Leikjatölvan Game Boy Advance frá jap- anska fyrirtæk- inu Nintendo er loks komin út í Evrópu. Tölvan kom í búðir í Japan i lok mars og biðu margir í röðum fyrir utan búðimar til þess að ná sér í eintak. Stjórnendur Nintendo segjast vissir um að selja yfir 24 milljónir eintaka á þessu ári einu saman. Ný hönnun Þrátt fyrir mikinn áhuga á nýju vélinni verður erfitt að slá út hina upprunalegu Game Boy sem selst -> hefur í meira en hundrað milljón eintökum um allan heim. Game Boy Advance (GBA) er jafnstór og Game Boy Color (GBC) en sökum láréttrar hönnunar nýtist plássið mun betur. Skjárinn er 40% stærri en á fyrri tölvum, tveimur tökkum hefur ver- ið bætt við á hlið og hún er talsvert léttari en forverinn. Skjár tölvunnar er 40,8 x 62 millí- metrar að stærð og hann getur sýnt 32.000 liti og 240x160 punkta. Þaö sem gerir þetta mögulegt er 16 Mhz, 32 bita örgjörvi með 32 kílóbæta RAM innan örgjörvans og 256 kíló- bæt utan hans. í samanburði var GBC-örgjörvinn 2,3 MHz. Hljóð leikja hefur verið bætt og í fyrsta sinn er auðveldlega hægt að skilja talað mál sem hljómar úr einum litl- um hátalara hægra megin á tölv- unni. GBA getur spilað bæði GBC og eldri leiki en tölvan mun þá sýna leikina innan ramma sem er jafn- stór og skjár gömlu tölvanna. Nóg af aukahlutum Töluvert af aukahlutum fylgir tölvunni, alls kyns kaplar og græjur til að auka þægindi spilara. Meðal annars er sérstakur kortalesari og ljós sem nota má til að spila án ut- anaðkomandi birtu, kapall sem tengja má í fjórar tölvur í einu og hleðslutæki/rafhlaöa. Kortalesarana verður hægt að nota í margvíslega leiki svipaða Pokémon. Spilendur geta rennt sérstökum Pokémon- spjöldum í gegn til þess að flytja dýr inn í leikinn. Hægt veröur að geyma reynslustig dýranna, hljóð, breyt- ingar og annað. Þrátt fyrir að GBA sé komin út er langt í það að vinsældir Game Boy Color séu búnar að vera. GBA og GBC munu líklega lifa i sátt og sam- lyndi í nokkur ár þar til hönnun leikja og fylgihluta flyst algjörlega yfir á betri tækni GBA. Game Boy Advance hefur nýtt útlit miðað við eldri útgáfur á leikjatölvunni en er sjálfsagt alveg jafn athyglisgleypandi. gmitmi I 4 Það virðist ekkert lát vera á þróun og framleiðslu vélmenna í öllum stærðum og gerðum. Sérstaklega viröast Japanir áhugasamir um slíka iöju. Hér gef- ur að líta eitt af nýjustu vélmennunum sem framleitt er af Tsukuda-leikfanga- framleiðandanum. Vélmennið heitir Pino sem er stytting á Pinocchio, upp- runalega nafni lygalaupsins Gosa. Nafniö kemur til vegna þess aö vélmenn- ið er búiö löngu og mjóu nefi sem illa sést á þessari mynd. Breskt fyrirtæki kynnir nýjar landvarnir: GSM-sendar notaðir sem ratsjár Svo lítur út fyrir að allir tugir ef ekki hundruð milljarða króna sem mörg lönd i heiminum hafa eytt í þróun og framleiðslu á svokölluðum Stealth- orrustuflugvélum séu nú farin fyrir bí. Stealth-vélar eru svokallaðar „ósýnilegar" vélar sem ekki koma fram á ratsjám óvinarins. Breska fyrirtækið Roke Manor Research (RMR) tilkynnti hins veg- ar fyrir stuttu að það sé komið fram með nýja tækni sem gerir Stealth- vélarnar sýnilegar á ný. Þetta hefur RMR tekist með því að nota senda fyrir GSM-síma og hátækninema sem fyrirtækið framleiöir. Að sögn Peter Lloyd, talsmanns RMR, yrði þetta svokallaður tvískiptur radar sem lítið kostar og er einnig ódýrt að setja upp. Ekkert þarf að eiga við GSM-sendana þar sem notast væri við þær stöðugu merkjasendingar sem frá þeim fara. Merkin endur- kastast af allri flugumferð yfir send- unum. Nemarnir, sem þegar eru til Þróun og framleiösla Stealth-orrustuvéla hefur kostað drjúgan skildinginn, peninga sem virðast nú farnir f vaskinn. Þess skal getið að vélin á myndinni er ekki Stealth geröar. eins og áður sagði, yrðu staðsettir á jörðinni og næmu allar frákasts- bylgjur vegna flugumferðar. Saman- burður á hefðbundnum ratsjár- merkjum og nýju tækninni sýndi ef ósýnileg vél væri i loftinu. Með nýja radarkerfinu væri siðan hægt að fylgjast nákvæmlega með ferðum hennar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.