Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 24
28 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 Tilvera DV lí f iö Fjöll og firnindi Öræfa Einar Rúnar Sigurðsson, fjallaleiðsögumaður í Öræfum, mun kynna útivistarperluna Öræfajökul á Jöklasýningunni á Höfn í kvöld. Verður það fyrst og fremst 1 myndum, bæði litskyggnum og hreyfimyndum. Einar Rúnar hefur farið á Hvannadalshnjúk vel á annað hundrað sinnum. í kvöld mun hann kynna ferðir sínar og upplifun fólks af fjöllum og firnindum Öræfa. Myndakvöldið hefst kl. 20 í Sindrabæ Leikhús ■ WAKE ME UP BEFORE YOU GO GO Verzlósýningin Wake me up before you go go eftir Hallgrím Helgason sló svo duglega í gegn að verzlingar halda áfram að sýna í Borgarlelkhúsinu í sumar. Sýningin er forsýnd í kvöld klukkan 20. Fundir ■ EINAR MAR HELDÚR FYRIR- LESTUR I NORRÆNA HUSINU Ein ar Már Guðmundsson rithöfundur heldur fýrirlestur í dag í Norræna húsinu um íslenskar bókmenntir. Fyrirlesturinn hefst klukkan 13.30 og lýkur klukkan 15 og fjallar um ís- lenskar nútímabókmenntir með sér- stakri áherslu á verk höfundar. Að loknum fyrirlestrinum svarar Einar Már spurningum viðstaddra. Fyrir- lesturinn verður fluttur á dönsku og er liður í fyrirlestraröðinni Menning, mál og samfélag. Aðgangseyrir er 300 íslenskar krónur. Tónleikar ■ EINSONGUR OG PIANO I SIGURJONSSAFNI Þær Þórunn Guðmundsdóttir sópransöngkona og Ingunn Hiidur Hauksdóttir píanóleikar koma fram á tónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld. Flutt verða lög eftir Gabriei Fauré, Richard Strauss og íslensk einsöngslög eftir Karl O. Runólfsson, Árna B. Gíslason, Gunnar Sigurgeirsson, Pál ísólfsson, Jórunni Viðar og Loft Guðmundsson. Þórunn og Ingunn hafa starfað mikiö saman á undanförnum árum, meðal annars haldiö fjölda tónleika og gert upptökur á íslenskum sönglögum. Tónleikar þeirra í Sigurjónssafni hefjast kl. 20.30. Krár ■ MODEST MOUSE A GAUKNUM Allir alvöru-áhugamenn um tónlist ættu að taka við sér núna þegar mætt er alvörusveit til tónleikahalds hér á klakann. Þetta er sveitin Modest Mouse sem ætlar aö skemmta gestum Gauks á Stöng í kvöld. Miöaverði er stillt í hóf, skit- inn 1500 kall og þú ert einfaldlega aumingi ef þú mætir ekki. Flana nú. ■ TRÍÓIÐ 3 Á OZIO Tríóið 3 ætlar aö halda stuötónleika á Café Ozio í kvöld kl. 21.30. Það eru þeir Stefán Orn Gunnlaugsson (söngur og þí- anó), Ragnar Orn Emiisson ( gítar og raddir), Jón Ingólfsson (kontra- þassi og raddir) sem mynda tríóiö 3. Sérstakur gestur þeirra er Lára Sól- ey Jóhannsdóttlr (fiðla og raddir). Á efnisskránni eru lög, samin/flutt af þekktustu einherjum rokk- og poþþ- sögunnar; Bowie, Tom Waits, Paul Slmon, Beck, James Taylor og fleiri. Sjá nánar: Lífið eftir vínnu á Vísi.is Jagúar - The Movie: Fönkið er kvikmyndatónlist - bílaeltingaleikur, góður frasi og kynlíf í byrjun áttunda áratugarins voru framleiddar í Hollywood kvik- myndir sem í dag ganga undir sam- heitinu bláxploitation. í myndunum stigu svartir Bandaríkjamenn sín fyrstu skref í kvikmyndagerð. Myndirnar voru framleiddar, leik- stýrðar og leiknar af svertingjum og ætlaðar svörtum áhorfendum. Oftar en ekki var stíllinn öfgakenndur og efnisþráðurinn einfaldur, bíll springur, góður frasi og kynlíf. í þá daga voru karlmenn herðabreið hörkutól með djúpa rödd í útvíðum buxum og rósóttri skyrtu með stór- um kraga og gullkeðju um hálsinn. Konur voru ósjálfbjarga kynbombur með þrýstin brjóst sem rétt pössuðu í dé-skálar og í þröngum mini-pils- um og háum leðurstígvélum. Tón- listin í myndunum var oft mjög frumleg og er hún það eina sem stendur eftir i dag. Föstudaginn 6. júlí verður frum- sýnd i Háskólabíó stuttmyndin Jagúar - The Movie. Myndin er samvinnuverkefni hljómsveitarinn- ar Jagúar og Nicolas Péturs Blim kvikmyndagerðarmanns. Saklausar og hlægilegar Að sögn Nicolasar tengist myndin því að Jagúarmenn voru aö gefa út plötu sem fer í rætumar á fónk-tón- listinni. „Fönkið er í raun kvik- myndatónlist sem var samin við biómyndir svartra í Hollywood. Þetta voru myndir eins og Sheba Baby, Superfly, Foxy Brown og Súperfly TNT. Flestar voru ægileg- ar klisjur og það voru framleiddar fleiri hundruö myndir fyrir botn- lausan markað. Sumar myndirnar þóttu mikið „rebel“ og menn þorðu í fyrsta skiptið að sýna rasisma og „funkí grúví“ heim svartra. Mynd- irnar voru líka rosalega „korní“ og það var gert út á það. Þetta var í fyrsta sinn sem menn þorðu að sýna brjóst og kynlíf." Nicolas segir að á sínum tíma hafi sumar blaxploitation-myndirn- ar verið bannaðar en í dag flokkist þær sem „kult“, saklausar og hlægi- legar. Leikin tilvísun Tónlistin í blaxploitation-mynd- James Bond í blaxploitation-stíl / þá daga voru karlmenn hörkutól meö djúpa rödd, í útvíðum buxum og gullkeöju um hálsinn. Konur voru kynbombur í þröngum mini-pilsum og háum leöurstígvélum. Nicolas Péturs Blim kvikmyndagerðamaður Jagúar - The Movie er leikin tilvísun í blaxploitation-myndirnar meö tónlist eft- ir Jagúar. Hún er á lélegri og frasakenndri bandarísku og aö sjálfsögöu „ döbbuö “ eins og gömlu myndirnar. um við mikið af þessum myndum og hlustuðum á fónk. Upprunalega átti myndin ekki að vera nema tíu mínútur til kortér en var tuttugu og sex mínútur þegar upp var staðið. Jagúar - The Movie er leikin tilvís- un í blaxploitation-myndirnar með tónlist eftir Jagúar. Hún er á lélegri og frasakenndri bandarísku og að sjálfsögðu „döbbuö" eins og gömlu myndirnar. Við fengum latasta þýð- andann sem við fundum til að þýða hana þannig að textinn er frekar „komí“, „O baby“ verður „sæl vin- an“ og þar fram eftir götunum." Erfið mynd „Ólavía Hrönn Jónsdóttir leikur vondu konuna en Tinna Manswell er kvenhetjan, Oleg Titov hand- boltakappi leikur risann og Árni Salomonsson dverginn, þannig að þetta eru allt stór nöfn. Myndin er bæði vel og illa leikin og á köflum bæði súrrealísk og einfóld - Ed Wood í blaxploitation-stíl.“ Nicolas viðurkennir að í raun- inni sé mjög erfitt að gera svona mynd. „Þetta er svona „on off‘ mynd, annaðhvort „filar“ fólk hana eða ekki.“ unum var fonkið og það lifði. Menn eins og James Brown og Maco Park- er eru mjög þekktir og sumt af því sem þeir sömdu fyrir myndirnar er klassík í dag. „Við gerð myndarinnar skoðuð- Bíógagnrýni Laugarásbíó/Bíóhöllin/Háskólabíó - Tomb Raider -jf Jolie bjargar málum Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Margar misheppnaðar tilraunir hafa verið gerðar til að koma vin- sælum tölvuleikjum á hvíta tjaldið og í langflestum tilfellum hefur það mistekist, aðallega vegna þess að í kvikmyndum þarf meiri dýpt í sög- una en í tölvunni. Síðast var það Dungeons and Dragons og þar áður Super Mario Brother og Wing Commander, svo einhverjar séu nefndar. Tomb Raider er liklegast dýrasta tilraunin í þessa áttina og enn sem fyrr er það skortur á góðri sögu sem gerir það að verkum að Tomb Raider fellur á eigin bragði, fer offari í sjónrænum tæknibrell- um á kostnað sögunnar. Tomb Raider hefur þó eitt fram yfir fyrr- nefndar kvikmyndir: Angelina Jolie. Það geislar af þessari glæsi- legu leikkonu i hlutverki Löru Croft og fer hún létt meö að bera myndina uppi. Sagan sem við fáum í Tomb Raider gæti verið endursögð b- mynd frá sjötta áratugnum. Fyrir fimm þúsund árum er töfrahlutur, Þríhymingur Ijóssins, brotinn í tvennt. Sá sem setur þessa tvo hluti saman á réttum timapunkti ræður tima og rúmi. Nú er komið að þess- um tímamótum og félagsskapur sem stefnir að heimsráðum er með alla anga úti í leit af brotunum tveimur. Þar á bæ er vitað hvar brotin eru niöurkomin, en lykilinn að lausn- inni hafa þeir ekki. Hann er á heim- ili lafði Löru Croft. Croft kemst að leyndarmálinu. Hún veit samt ekki ekki hvar brotin eru og þarf því á illmennunum að halda jafn mikið og þeir þurfa á henni að halda. Um stundarsakir sameinast hið vonda og hið góða í ferð sem tekur þau heimsálfanna á milli. Þegar á myndina er litið þá rekur hún rætur sínar til Indiana Jones og þá sérstaklega Raiders of the Lost Ark. Lara Croft, eins og hún birtist okkur, er þrátt fyrir að vera fornleifafræðingur eins og Jones, meira í ætt við James Bond og því fær Tomb Raider yfirbragð Bond- myndanna þegar Croft á í hlut. Indi- ana Jones var aldrei jafn nútímaleg- ur og Croft og Bond auk þess sem varla var hægt að segja að hann væri fullkominn. Croft mistekst aldrei neitt frekar en Bond. Það er í raun óþarfi aö minnast á aðra leikara en Jolie. Hún hefur það sterka útgeislun að allir aðrir verða eins og statistar við hlið hennar. Jolie hefur þjálfað sig vel og hefði sjálfsagt haft enn meiri áhrif á áhorfandann hefði hún fengið betri sögu. Það er til dæmis lítið varið í að sjá hana eyða kröftum sínum á vélmenni sem hún hefur heima hjá sér og notar sem æfingatæki. Þess skemmtilegra er að sjá hana í atrið- inu þegar hún svífur um loftið í teygju um leið og hún gengur frá um það bil tveimur tugum óvina. Sjálfsagt verður gerö framhalds- mynd og ég er viss um að það er hægt að gera góða og skemmtilega mynd um Löru Croft með Jolie í hlutverki hennar en þá verður húmorinn að vera betri og mótsagn- ir minni í sögunni. -HK Leikstjóri: Simon West. Handrit: Patrick Massett og John Zinman. Kvikmynda- taka: Peter Menzies jr. Tónlist: Graeme Revill. Aöalleikarar: Angelina Jolie, Jon Voight, lan Glen, Daniel Craig og Richard Johnson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.