Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 DV 5 Fréttir Borgarfulltrúi Sjálfstæöisflokks: Alfreð slær eign sinni á Orkuveituna - og fyrirtækiö í útþenslu á samkeppnismarkaði Fréttir Alíreð Þoi-steinsson borgarfulltrúi í yfirheyrslu D-listinn á Landsvirkjun og Landssímann SJa-kkuA Ní-suitailitnrkjui! wm íerórVí MW i 90 MW teröar t»?kin i notkun i daf*. fiwudag. Hver er kostiuAunnR \ið franjk\.-wnd OK á hu JiMvpurn uma mun \írkjun in bon» upp? ,ifc'iidiriw«,'ö£ur ift smíit arösf TjfjQeartisfM wrifcmrai, mtWAto 1 4 fkrSíólía Srururm tæi'jæFaSn miCjw* m !»«*»• trttSO Jiífisr ws^® tíSa ?aí vaitr, B&kriöa og ausinsar cíktíiarfar Yfirheyrsla DV yfir Alfreð Þorsteinssyni. Sjálfstæðismenn eru ekki sáttir við allt sem þar kemur fram. „Sú fullyrðing Alfreðs að Sjálf- stæðisflokkurinn hafl slegið eign sinni á Landssímann er út í hött, því einmitt þessi misserin vinnur flokkurinn að því að koma fyrir- tækinu úr eigu ríkisins. Það skýt- ur hins vegar skökku við að á meðan ríkið vinnur að einkavæð- ingu á fjarskiptamarkaði leggi R- listinn út í mikla og áhættusama útþenslu á þessu sviði,“ segir Kjartan Magnússon, þorgarfulltrúi minnihluta Sjálfstæðisflokksins. í yfirheyrslu DV sl. föstudag segir Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi R-lista og stjórnarformaður Orku- veitu Reykjavíkur, að hörð gagn- rýni minnihlutans á eign borgar- innar á Línu.Neti og útþenslu þess fyrirtækis grundvallist á þvi að Sjálfstæðisflokkurinn hafi slegið eign sinni á Landssímann og starfi í hans þágu. Kjartan Magnússon telur þetta fráleitt. Ekki verksviö borgarfulltrúa „Það er miklu frekar hægt að segja að Alfreð hafi slegið eign sinni á Orkuveitu Reykjavíkur, því þeir Helgi Hjörvar fara með fé fyrirtæk- isins eins og þeir eigi það sjálfir. Þá á ég við hvernig þeir hika ekki við að leggja fé viðskiptavina Orkuveit- unnar í áhættusaman atvinnurekst- ur og útdeila störfum til vina og vandamanna," segir Kjartan, sem segir að R-listinn hafi sótt hundruð milljónir króna til viðskiptavina Orkuveitunnar og lagt þær í Alfreö Kjartan Þorsteinsson. Magnússon. áhættusama fjárfestingu á fjar- skiptamarkaði; samkeppnisrekstur sem óeðlilegt sé að opinberir aðilar taki þátt í. „Gengi hlutabréfa í Línu.Neti og Raflínu hf. er byggt á óljósum vænt- ingum og tækninýjungum. Alfreð og Helgi Hjörvar eru jafnt stjómendur fyrirtækisins og þátttakendur - auk þess sem þeir taka ákvarðanir á við- kvæmum saipkeppnismarkaöi. Svona lagað á ekki að vera á verk- sviði borgarfulltrúa," segir Kjartan. Stórir karlar í viöskiptalífinu í áðumefndrí yfirheyrslu DV segir Alfreð Þorsteinsson að hækk- un R-listans á gjaldskrá Strætó og leikskóla sé ekki meiri en hjá öðr- um sveitarfélögum „... en það er eins og þegar eitthvað er hækkað í Reykjavík verði allt vitlaust," eins og borgarfulltrúinn kemst að orði. „Gagnrýni okkar á þessar hækkan- ir hefur snúist um að þær eru langt umfram verðlagshækkanir," segir Kjartan Magnússon. „R-list- inn virðist líka telja að öryrkjar, ellilífeyrisþegar og bamafjölskyld- ur eigi að taka á sig meiri hækkan- ir, eins og til dæmis hækkun stræ- isvagnafargjalda sýnir. Þrátt fyrir allar þessar hækkanir hefur R-list- anum ekki tekist að standa við öll kosningaloforðin um að öllum biðlistum eftir leikskólarýmum verði eytt og um að bæta almenn- ingssamgöngur í borginni. Kannski eru borgarfulltrúar R-list- ans svo uppteknir af því að leika stóra karla í viðskiptalífinu að þeir hafa gleymt því til hvers þeir voru raunverulega kosnir.“ -sbs Stærri Hrafnista Magnús Gunnarsson bæjarstjóri, Guðmundur Hallvarðsson hjá Hrafn- istu og Jón Kristjánsson heilbrigðis- ráðherra við athöfnina. 64 nýjar íbúðir: Ráðherra tók fyrstu skóflu- stunguna DV, HAFNARFIRÐI:____________________ Hafnarfjarðarbær og Garðabær unnu sameiginlega að gerð deiliskipulags við Hrafnistu en inn- an bæjarmarka Hafnarfjarðar verða byggð tvö hús með samtals 64 íbúð- um. Heilbrigðisráðherra tók fyrstu skóflustunguna fyrir helgina. Alls er gert ráð fyrir 64 íbúðum í tveim- ur fjölbýlishúsum viö hlið Hrafn- istu. Húsin verða samtals um 7000 fer- metrar og eru íbúðirnar ætlaðar fólki 60 ára og eldra. Framkvæmdir taka um 18 mánuöi en á þessari stundu liggur ekki ljóst fyrir hvenær hafist verður handa, að því er Guðmundur Hallvarðsson, for- maður Sjómannadagsráðs, sagði við þetta tilefni. Guðmundur kynnti fyrirhugaðar framkvæmdir og sr. Þórhallur Heimisson, prestur í Hafnaríjarðarkirkju, fór með bænir og blessunarorð. Bæjarstjórarnir í Hafnarfirði og Garðabæ, Magnús Gunnarsson og Ásdís Halla Bragadóttir, voru við- staddir athöfnina og auk þess að taka fyrstu skóflustunguna flutti Jón Kristjánsson heilbrigðisráö- herra stutt ávarp. Að því loknu þágu gestir kaffiveitingar í Hrafn- istu. -DVÓ/JGR Vegkantur gaf sig Rútubifreið komst í hann krappan við Dyrhólaey um miðjan dag á sunnudag þegar vegkantur gaf sig. Bílstjórinn stöðvaði rútuna og beið eftir dráttarbílum. Vegkanturinn er meyr, enda er vegurinn nýtagður. 30 þýskir ferðamenn sem voru farþegar í rútunni kipptu sér lítið upp við vandræðin. Strætó á Skagann annað haust? Verður skoðað þeg- ar sérleyfi rennur út DV, AKRANESI:_____________________ I kjölfar nýstofnaðs almennings- samgöngufyrirtækis á höfuðborgar- svæðinu og sameiningu Akranes- veitu, Andárkílsvirkjunar og Orku- veitu Reykjavíkur velta menn því nú fyrir sér hvort næsta skrefið verði ekki að Akurnesingar gangi ekki inn i Strætó bs. sem myndi þá verða með samgöngur allt frá Kópa- vogi upp á Akranes. Bæjarstjórinn á Akranesi segir að það sé ekki á döfmni á þessu ári þar sem Sæmundur Sigmundsson hefur sérleyfið til haustsins 2002. „Við höfum fengiö upplýsingar um stofn- un fyrirtækisins en á meöan núgild- andi sérleyfi á leiðinni Akranes - Reykjavík heldur gildi sínu til haustsins 2002 þá verður núverandi fyrirkomulagi ekki breytt. Hvað gerist eftir að sérleyfin renna út verður að koma í ljós,“ sagði Gísli Gislason, bæjarstjóri á Akranesi við DV. TÍ/IYBO C q jy| p c T MHG söluaðilar á Islandi Dalvegur 16a • 201 Kópavogur • Pósthólf 564 • Sími: 544 4656 Fax: 544 4657 • Netfang: mhg@mhg.is 0PNUNARTILB0Ð 25% afsláttur af rafmagnssláttuvélum, -orfum og -hekkklippum. Erum einnig með bensínsláttuvélar á góðu verði frá kr. 19.900 Öflugu Flymo bensín-loftpúðavélarnar eru komnar. 3 stærðir MHG verslun Dalvegi 16a Kópavogi Flymo sími 544-4656 T RBO -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.