Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 28
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 Bensínverö '*t Að mati FÍB er frekari lækkun á næstunni eölileg. Heimsmarkaður: Jákvæðar horfur „Bensín lækkaði um tvær krónur á sunnudag og að öllu óbreyttu eru horfumar jákvæðar. Þetta eru góð- ar fréttir fyrir bíleigendur og við ættum að sjá meiri lækkun á næst- unni,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Olíufélögin lækkuðu öll sem eitt litraverðið á bensíni um tvær krón- ur síðastliðinn sunnudag. Olíufélög- > in lækkuðu einnig lítraverðið um þrjár krónur þann 25. júní og er bensín því um fimm krónum ódýr- ara nú en það var lengstum í síðasta mánuði. Eftir lækkunina á sunnudag kost- ar lítri af 95 oktana bensíni með fullri þjónustu kr. 102,90. í maí fór heimsmarkaðsverðið á 95 oktana bensíni upp í um 370 dollara tonnið. Upp úr miðjum maí tók það að lækka. Um síðustu helgi var verðið á Rotterdammarkaði komið niður í 242 dollara tonnið. -aþ Kógavogur: Staðmr að verki Lögreglan í Kópavogi handtók þrjá unglinga í Salahverfi í nótt. Unglingarnir höfðu brotið bílrúðu og látið greipar sópa í bílnum. Þau voru skammt frá bílnum þegar lög- regla kom auga á þau og færði í fangageymslur þar sem þau gistu í nótt. Að sögn lögreglu verða ung- lingarnir yfirheyrðir í dag. -aþ Þroskaþjálfar: Beint í ráðherra - ef ekki semst í dag „Okkur hefur ekki verið sýnd nein linkind en fundur okkar og viðsemjenda í gær lofar góðu. Það verður annar fundur í dag og við höfum ástæðu til að vera bjartsýn," sagði Sólveig Steinsson, formaður Þroskaþjálfafélagsins, í morgun. „Ef þetta bregst í dag þá sé ég ekki ann- að ráð en að fara beint i fjármála- ráðherra." Þroskaþjálfar hafa þegar samið við Reykjavikurborg og sveitarfé- lögin en eftir er að semja við ríkis- valdið. Fyrir bragðið eru um 130 þroskaþjálfar í verkfalli en aðeins 35 að störfum. -EIR DV-MYND E.OL. Arekstur og bílvelta Haröur árekstur jeppa og fólksbíls varö á gatnamótum Reykjanesbrautar og Lækjargötu í Hafnarfirði á sjöunda tímanum í gær. Viö áreksturinn valt annar bíll- inn. Aö sögn lögreglu voru tveir fluttir á slysadeild Landspítalans en þeir voru ekki taldir alvarlega slasaðir. Taliö er aö önnur bifreiöin hafi fariö yfir gatnamótin á „rauögulu“ Ijósi. Báöar bifreiöar eru mikiö skemmdar eftir áreksturinn. Umferö um Reykjanesbraut taföist nokkuö sökum slyssins. Ástæða mikilla viðskipta með deCODE-bréf rétt fyrir stórsamning: Hugsanlegt er að eitthvað hafi lekið út - svolítið skítugt eða óvanalegt, að mati Kaupþings Aðilar i verðbréfaheiminum segja hugsanlegt að mikilvægar viðskipta- upplýsingar hafi lekið út og haft áhrif á viðskipti deCODE skömmu áður en uppiýst var í gær að íslensk erfða- greining og Roche hefðu undirritað stórsamning sem metinn er á 30 millj- arða króna. Það vekur furðu þeirra að bréfin hækkuðu um 42,3% eftir mikil viðskipti á Nasdaq-markaðinum i Bandaríkjunum á fóstudag. Á mánu- dagsmorgun var hins vegar fyrst upp- lýst um samninginn. Nærri má geta að hægt er að ávaxta um tugi eða jafnvel hundruð milljóna ef bréf eru keypt með vitneskju um að stórtíðindi séu í vændum. Bréfln hækkuðu um 3,66 dali á hlut og var lokagengið 12,31 dalur á fóstudag. í gær var lokagengið 9,9 dalir á hlut. Kári Stefánsson. Páll Gunnar Pálsson. Rósa Guðmundsdóttir hjá greining- ardeild Kaupþings segir tímasetningu hækkunarinnar skrýtna. „Við ætlum ekki að ásaka neinn að svo stöddu en við höfum bent á þetta. Þetta er mjög óvenjulegt," segir Rósa. Hún bendir á að Fjármálaeftirlitið hafl hugsanlegt forræði í rannsókn á þessu en málið heyri ekki undir Verðbréfaþing eins og þegar fyrir- tæki á íslenskum markaði eigi í hlut. „Það væri e.t.v. hægt að sjá hvað bankar eða fjármálastofnanir hafa verið að gera en þau eru yfirleitt ekki að þessu í eigin nafni. Einstaklingar tala yfirleitt við miðlarana sem sjá um viðskiptin fyrir þeirra hönd og við getum ekki séð þetta nema til- kynnt sé um flokkun á mörkuðunum úti. Manni finnst þetta svolítið skítugt, eða óvanalegt a.m.k. Það lítur út fyrir að eitthvað hafi lekið út,“ seg- ir Rósa. Annar sérfræðingur i verðbréfum tók enn dýpra í árinni en vildi ekki koma fram undir nafni. Á hinn bóg- inn finnast þeir líka sem segja að stemning hafi verið að myndast á síð- ustu dögum fyrir viðskiptum í félag- inu, enda mál margra að bjartari tim- ar séu fram undan. Því geti vel verið að ekkert sé athugavert við gang mála. Stefna íslenskrar erfðagreiningar er að tjá sig ekki um gengismál fé- lagsins en Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erfðagreiningar, sagði í Sjónvarpinu í gærkvöld að hann teldi ólíklegt að upplýsingar hefðu lekið út án þess að hann treysti sér þó til að kveða fastar að orði. Litlar upplýsingar fengust hjá Fjár- málaeftirlitinu um málið. Starfsmað- ur sagði að vegna utanlandsferða og sumarfría yrði ekki hægt að ná í Pál Gunnar Pálsson, framkvæmdastjóra stofnunarinnar, eða aðra talsmenn fyrr en á fimmtudag. -BÞ ## Tveimur stúlkum vísað frá borði í Frankfurt: Oskur og grátur í Flugleiðavél Tveimur tvítugum stúlkum var vís- að frá borði Flugleiðavélar í Frank- furt í fyrrinótt vegna drykkjuláta. Stúlkurnar voru að sögn sjónarvotta vel við skál og höfðu í frammi hávaða og læti í flugvélinni. Áður en að flugferöinni kom höfðu öryggisverðir flugvallarins haft af- skipti af stúlkunum og reynt að róa þær niður. Meðal annars var gripið til þess ráðs að taka þær afsíðis og láta þær bíða meðan aðrir farþegar væru komnir inn í vélina. „Biðin hefur sennilega reynst þeim erfið því þær létu mjög illa þegar þær komu i farþegarýmið. Þær neituðu að sitja kyrrar þrátt fyrir ítrekuð tilmæli Drykkjulæti ekkl liöin Tvær stúlkur sátu eftir i Frankfurt vegna þess áhöfn treysti sér ekki til aö hafa hemil á þeim. flugþjónanna. Öskur og grátur ómuðu á víxl um vélina þannig að farþegum stóð ekki lengur á sama,“ sagði far- þegi í vélinni í samtali við DV. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Flugleiða, sagði að félaginu hefði ekki verið stætt á flytja stúlk- umar í því ástandi sem þær voru. „Það var mat áhafnarinnar að þær væru ekki ferðafærar og þeim því vís- að frá borði. Þetta er í takt við okkar vinnureglur - éf fólk er þannig stemmt að það er líklegt til að valda farþegum og starfsfólki óþægindum, að ekki sé talað um ef málið snýr að öryggi vélarinnar, þá er ekkert annað að gera en skilja fóik eftir,“ segir Guð- jón Arngrímsson. Lítils háttar seink- un varð á brottfor vélarinnar vegna atviksins. -aþ Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36 • sími 588 1560

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.