Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001 I>V Fréttir Árið 2000 sló íslenska þjóðin drykkjumet: Meira drukkið í góðæri - segir framkvæmdastjóri Áfengis- og vímuvarnaráðs „Þessi þróun kemur í sjálfu sér ekki á óvart. Það er almennt talað um aö áfengisneysla aukist þegar uppgangur er í efnahagslífinu. Neysla fólks verður meiri á þessu sviði sem öðrum,“ segir Þorgerð- ur Ragnarsdóttir, framkvæmda- stjóri Áfengis- og vímuvamaráðs, aðspurð um af hverju íslenska þjóöin hefur aukið áfengisneyslu sína eins og nýjar tölur í Hagtíð- indum sýna glöggt. Þar kemur fram að á siðasta árið sló þjóðin met í áfengisdrykkju; innbyrti um 16 milljónir lítra áfengis. Þorgerður segir umhverfi vin- menningar hafa verið að breytast í Norður-Evrópu á síðastliðnum áratug og það geti verið ein skýr- ingin á aukinni drykkju. „Aðgengi að áfengi hefur stór- aukist, áfengisútsölur eru fleiri og afgreiöslutíminn rýmri. Vínveit- ingastöðum hefur einnig fjölgað mjög hér á landi, einkum á lands- byggðinni. Allt hefur þetta sín áhrif,“ segir Þorgerður. Bjórinn er stærstur hluti áfeng- isneyslunnar hérlendis; um 13 milljón lítrar af 16 milljón lítrum í heildarneyslu. Þorgerður segir þó langt frá þvi að þjóðin sé alfar- ið búin að skipta yfir í léttara áfengi. „Það er oft talað um aö við séum að breyta um lífsstíl - bjórn- eysla hefur aukist á kostnað neyslu sterkra vína en mér sýnist neysla létt víns ekki breytast svo mikið,“ segir Þorgerður. Margir samspilandi þættir valda aukinni áfengisneyslu að mati Þorgerðar. Hún segir áfengis- auglýsingar geta haft ýmis áhrif. „Við höfum einkum haft áhyggjur af börnum og unglingum hvað þetta varðar. Fyrir fullorðna eru auglýsingarnar erfiöar fyrir þá sem eru veikir á svellinu; á meö- an kannski aðrir taka vart eftir þeim. Rannsóknir sýna að áfengis- auglýsingar hafa áhrif á þá sem eru veikir fyrir,“ segir Þorgerður Ragnarsdóttir. -aþ 76 lítrar á mann Lftrar ál»n*í» i hiem íbúl 15 ár* og atdri Bjór Uttrá Sterii »ín AHi 1995 40,48 6.79 4.98 52,25 1996 43.85 7.55 4.64 56.03 1997 47.63 8,34 4,45 60,42 1998 52,38 9,47 4,63 66,47 1999 57,48 10,63 4,59 #72,70 2000 60,51 11,67 4,54 76,72 Byggl íi tðlum Hagstofu felands Aöur sláturhús og kaupfélag, nú hótel og veitingahús Viö aöalgötuna í Neskaupstaö er komiö hótel á tveimur hæöum meö 10 herbergjum þar sem áöur hét Essoskáli - á árum áöur var kaupfélagiö hins vegar á neöri hæö en sláturhús á þeirri efri. Á veggjum, reyndar bæöi utan- og innanhúss, hanga málverk eftir Tryggva Óiafsson, vin Magna Kristjánssonar og fjöl- skyldu sem reka hóteliö. Staöurinn heitir Capitano og er talsvert í stíl aö hætti sjómanna. Einkennilegt er að hugsa til þess aö á efri hæöinni, þar sem nú eru mismunandi herbergi búin ýmsum þægindum, var áöur fláningssalur siáturhússins í Neskaupstað. Stálu bleikju: Fær fjögurra mánaða Sjómannafélag Eyjafjarðar kærir ekki vegna sjómannadags: Vélstjórafélagið enn með málið til skoðunar fangelsi Tvítugur Snæíellingur var í síð- ustu viku dæmdur í fjögurra mán- aða fangelsi í Héraðsdómi Vestur- lands fyrir að hafa stolið 64 kílóum af bleikju úr eldiskví í fiskeldisstöð- inni Hvurslax ehf. í Hraunsfirði. Tveir ungir menn voru með í för i Hraunsfjörðinn og fengu þeir tveggja mánaða skilorðsbundna dóma. Sá sem fangelsisdóminn hlaut er með langan sakaferil og rauf skilorð með bleikjuþjófnaðin- um. Ungi maðurinn hefur undanfar- in fjögur ár ítrekað brotið lög og verið dæmdur fyrir þjófnaði, um- ferðarlagabrot, eignaspjöll og brot á vopnalögum. Fýrr á árinu höfðu tveir piltanna stolið þremur uppsettum þorskanet- um að verðmæti 45 þúsund krónur af palli vörubifreiðar. Fjölveiðiskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA, verður ekki kært af hálfu Sjómannafélags Eyjafjarðar til Félagsdóms fyrir verkfallsbrot þó það hafi verið á síldveiðum við Noreg á sjómannadaginn, 10. júní sl. Konráð Alfreösson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar og varaformaður Sjó- mannasambands íslands, segir að Vil- helm Þorsteinsson sé að landa öllum aflanum erlendis á erlendan markað, ekkert komi hingað til vinnslu, svo ekki er grunnur fyrir kæru. Lög um sjómannadag taki þar af allan vafa. Á Neptúnusi, sem fór til móts við Vil- helm Þorsteinsson með umbúðir, var eingöngu yfirmannaáhöfn en ekki tókst að dæla hrati frá Vilhelm yfir í Neptúnus eins og til stóð. Grundvöll- ur kæru þar er því heldur ekki fyrir hendi. Verkfallsbrot skipa á rækju- veiðum á Flæmingjagrunni verða heldur ekki kærð af sömu ástæðu og hjá Vilhelm Þorsteinssyni. Alls voru 7 stærri íslensk veiðiskip á sjó á sjó- mannadaginn. „Það er alveg spurning hvort sjó- mannadagurinn er ekki á vitlausum tíma því í byrjun júní er flotinn á karfaveiðum á Reykjaneshrygg, á sild austur við Bjarnarey eða í Síld- arsmugunni og á rækju við Nýfundna- land. Karfamarkaðurinn hrynur þeg- ar skipin eru að koma öll inn kring- um sjómannadaginn og allt þetta karfamagn kemur á markaðinn. Mér dettur i hug að síðari hluti ágústmán- aðar sé kannski mun heppilegri," seg- ir Konráð Alfreðsson. Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafé- lags Islands, segir aö engar kærur vegna brota á sjómannadaginn hafi enn verið lagðar fyrir Félagsdóm en ef í ljós kemur afráttarlaust að menn hafi verið úti á sjómannadeginum og uppfylli ekki skilyrði laganna og eru t.d. að bjarga verðmætum eða fiska á erlendan markað þá verði lögð fram kæra. Eins gæti legið fyrir samkomu- lag við áhöfn um að vera úti á sjó- mannadaginn. En þessir þætti skýrast jafnvel ekki fyrr en málin verða lögð fyrir Félagsdóm. Helgi segist vona að málið liggi ljóst fyrir áður en réttar- hlé skellur á. Talað er um að brot hér við land geti numið tugum en mestu ágreiningsefnin munu vera við Snæ- fellsnesið. Viðurlög geta numið allt að 311 þúsund krónum. -GG Umsjón: Björn Þorláksson Plott Davíðs Gengishrunið undanfarið hefur ver- ið mál málanna um skeið, enda afleið- ingarnar miklar á íslenskt efnahags- iíf. Sitt sýnist, hverjum um skýr- ingar á þessu fyrir- brigði og er tekist á um hlut Davíðs ] Oddssonar forsæt- isráðherra. Egill I Helgason er að | gera skoðanakönn- un á því hvort þjóð- inni þyki skýringar forsætisráðherra á gengisfallinu vera trúverðugar. Svo er ekki samkvæmt könnuninni á Strikinu. Innan við 10% kaupa skýr- ingar Davíðs um klaufaskap í banka- kerfinu og fleira. Ný kenning hefur hins vegar litið dagsins ljós hjá dóm- stóli götunnar. Hún er í fáum orðum sú að Davíð hafi verið búinn að sjá að fella yrði gengið töluvert en í anda nýrra tíma hafi hann látið umhverfið sjálft um það í stað þess að handstýra gengisfellingum eins og íslendingar máttu svo oft láta yfir sig ganga, fyrir gósenskeið Davíðs... Láta ekki deigan síga Það kemur fæstum á óvart að Mý- vetningar kæri mál. Nú siðast hafa þrír bændur kært þá ákvörðun að leyfa Kísiliðjunni að fara í námagröft ! i Syðri-Flóa. Bænd- ! urnir vísa til fyrra samkomulags um að ekkert yrði farið í suðurhluta vatns- ins og er Kári í Garði einn þeirra sem kæra. í DV mátti lesa að Kári er bjartsýnn á að hafa sigur í þessu máli. Kári er líka fæddur á þjóðhátíðardaginn og maður með slíkan fæðingardag hlýtur að vera bjartsýnn íslendingur. Kærugleði Mývetninga hefur annars sennilega slegið landsmet undanfarið miðað við höfðatölu. Þannig hafa menn kært hver annan fyrir ýmsar og ólíkar sak- ir en ekki alltaf haft erindi sem erfiði. Dæmi um slík mál eru girðingamál, Hverfiallsmálið fræga, Kísiiiðjan og margt, margt fleira. Gárungarnir segja að þótt Mývetningar sigli nú inn í nýtt árþúsund hafi baráttugleðin frá víkingatímanum ekki enn runnið af hluta heimamanna og sennilega verð- ur það aldrei... Óhjákvæmilegur leki Eins og fram hefur komiö þykir mörgum alldularfullt af hverju gríðar- leg viðskipti áttu sér stað í deCODE rétt áður en millj-. arðasamningur var gerður við Roche. I Engar vísbendingar I um innherjaviðskipti I hafa komið fram en I hitt þykir líklegt að [ njósn hafi borist um samninginn góða. Mikilvægar viðskiptaupplýsingar lekið út. Þetta veltir upp gagnrýninni spurn- ingu um smæð okkar ágæta þjóðfélags. Sumir héldu því fram á sínum tíma að það myndi standa frjálsu verðbréfaum- hverfi fyrir þrifum að hér þekkja allir alla. Það sé hreinlega óhjákvæmilegt að svona upplýsingar fari á kreik. í þessu tilviki er ójóst hvort orsökin er þessi en hitt benda menn á að langt sé síðan nánast var gengiö frá samningn- um þótt fréttamenn hafi fyrst fengið upplýsingar um hann fyrir nokkrum dögum... Þrifalegri garöar Endanlega er nú búið að blása Hailó Akureyri af en Ein með öllu mun taka við. Akureyringar skiptast i tvör hom í afstöðu til málsins. Ekki er bæði hægt að eiga kökuna og éta hana en slæm ungengni var ekki síst í sviðs- ljósinu fyrir nokkrum árum. Þannig má rifia upp samtal tveggja unglingsdrengja sem vom að rabba saman um hvað þeir ættu að gera á sunnudagsnótt um verslunarmannahelgi á Akureyri árið 1996. „Ætli maður drulli ekki bara í nokkra húsagarða," sagði annar...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.