Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Page 7
7
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001_________________________________________________________
X>V Norðurland
Dettifoss.
Ágreiningur um Dettifossveg:
Náttúruvernd
allt heilagt
Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga
samþykkti á aðalfundi félagsins á
Kópaskeri nýverið að skipa starfs-
hóp um framtíðarstaðsetningu
Dettifossvegar. Fagnað var ákvörð-
un þingmanna kjördæmisins sem
hnígur í sömu átt. Jafnframt lagði
fundurinn áherslu á að lagningu
vegarins yrði hraðað og hann tilbú-
inn eigi síðar en árið 2005.
Tryggvi Finnsson, framkvæmda-
sjóri Atvinnuþróunarfélags Þingey-
inga, segir að frumkvæðið eigi að
koma frá Vegagerðinni en mikill
ágreiningur sé um málið, þ.e. hvor-
um megin Jökulsár á Fjöllum eigi
að leggja veginn. Ferðaþjónustuaðil-
ar hafa lagt mikla áherslu á það að
vegurinn verði vestan megin árinn-
ar til þess að í sömu ferð sé hægt
t.d. að komast í Hólmatungur og
önnur náttúruundur á þessu svæði,
enda miklu skemmtilegri leið.
„Vegagerð austan árinnar er mun
einfaldari en vegalagning niður að
vestan er mun flóknari þar sem þá
er komið niður í þjóðgarðinn og þá
gýs upp ágreiningur um hvemig eigi
að nota þjóðgarð. Heimamenn hafa
lagt meiri áherslu á að fá veginn að
austan en fyrir þá skiptir málið sára-
litlu máli. Það er mikilverö sam-
göngubót að fá góða tengingu úr
Kelduhverfi upp á Austurlandsveg
en fyrir ferðamenn sem aka hring-
inn frá Mývatnssveit niður i Keldu-
hverfi um Tjörnes til Húsavíkur
verður það um 20 km styttri hringur.
Svo kemur Náttúruvernd ríkisins að
þessu en mér sýnist að henni sé allt
heilagt eins og það hvemig megi
leggja vegi um fallega náttúru til að
leyfa fleirum að njóta,“ segir Tryggvi
Finnsson. -GG
Sumartónleikar í
Akureyrarkirkju
Næstkomandi sunnudag hefst
fimmtánda starfsár Sumartónleika í
Akureyrarkirkju og verða tónleik-
arnir haldnir fimm sunnudaga í röð
í júlímánuði og ágúst og byrja kl. 17.
Flytjendur verða um 30 talsins frá
Svíþjóð, Danmörku, Austurríki auk
íslendinga. Tónlistarfólkið mun
leika. og syngja fyrir heimamenn og
ferðalanga í klukkustund, tónlist frá
ýmsum tímum tónlistarsögunnar og
er aögangur ókeypis.
Dagskráin er eftirfarandi:
Sunnudagur 8. júli kl. 17, Erik
Westberg, Vokal Ensemble, Svíþjóð.
Sunnudagur 15. júlí kl. 17, Niels
Henrik Jessen, orgel, Danmörk.
Sunnudagur 22. júlí kl. 17, Hulda
Björk Garðarsdóttir, sópran, Sigrún
Arngrímsdóttir, mezzósópran og
Bjöm Steinar Sólbergsson, orgel.
Sunnudagur 29. júlí kl. 17, Gary
Verkade, orgel, Svíþjóð.
Sunnudagur 5. ágúst kl. 17, Manu-
ela Wiesler, flauta, Austurríki.
Sumartónleikar í Akureyrar-
kirkju hafa heimasíðu á Netinu:
http://www.akirkja.is/sumarton-
leikar. -BÞ
Mývatnssafn opnað
Safn um sögu mannlífs við Mý-
vatn hefur tekið til starfa og verður
opið frá kl. 14-16 og 20-21.30 alla
daga í sumar. Meðal muna eru göm-
ul net, myndir, vefstóll, spunavél og
gögn um ullarvinnslu og skógerð
Mývetninga. Einnig bregður fyrir
skíðum Fjalla Bensa sem og margt
fleira. -BÞ
Sérfræðingur um silungsveiði í Mývatni:
Ekki minna um
bleikju í 100 ár
- hörmungarástand þrátt fyrir að ástand lífríkisins sé að öðru leyti gott
Menn greinir á um skýringar lítillar silungsveiði í Mývatni.
„Það er engin bleikjuveiði í Mý-
vatni núna sem þarf ekki að koma á
óvart því það var búið að segja fyr-
ir um að það vantaði alveg nokkra
árganga af smásilungi í vatnið. I
fyrra vorum við að veiða ofan af
eldri árgöngum en nýliöunin brást
og þaö er þriðja árið í röð sem það
gerist,“ segir Gylfi Yngvason á
Skútustöðum við Mývatn en sil-
ungsveiðin í vatninu og þá sérstak-
lega bleikjuveiðin er að bregðast al-
gjörlega það sem af er sumri.
Gylfi segir að hér sé um rökrétt
framhald að ræða af þeim djúpu
sveiflum sem verið hafa í lífríkinu í
Mývatni í langan tíma. „Þessar
sveiflur verða alltaf dýpri og dýpri
og dýpsta sveiflan var síðast árið
1997. Þá virðast hafa drepist algjör-
lega þrír árgangar af seiðum, trú-
lega úr hungri, því á þessum árum
drápust hér einnig andarungar í
stórum stíl. Hins vegar er nú mjög
gott mý og átan í vatninu virðist
vera fin. Þeir fáu flskar sem veiðast
virðast líka vera vel á sig komnir.
Þetta er sérstaklega alvarlegt fyr-
ir okkur veiðibændur því sveiflurn-
ar í veiðinni verða alltaf dýpri og
dýpri og nú gerist það í fyrsta skipti
að seiðin vantar. Þegar það gerist
nýtast okkur ekki heldur þessi góðu
ár í sveiflunni. Þessar sveiflur
standa i sjö ár og eins og nú gerist
koma þrjú silungslaus ár vegna þess
að seiðin vantar. Síðan kemur von-
andi eitt gott ár þar sem eru seiði og
fæða og siðan þrjú hallærisár þar
sem er til fullt af silungi en hann
svo lélegur að það er ekkert hægt aö
gera við hann og hann gerir ekkert
annað en skemma fyrir okkur
markaðinn," segir Gylfi.
Hann segir að viö Mývatn séu 36
veiðirétthafar en þeir sem eru virk-
ir í veiðinni eru 20-25 talsins. „Það
hefur ekki veriö hægt að svara því
hvað veldur en mér finnst það hins
vegar engin spurning að árið 1970,
um leið og námavinnsla hefst í Mý-
vatni, varð mikið fall í lífrikinu, sil-
ungsveiðinni og í fuglalifinu. Frá
þeim tíma hafa þessar lífríkissveifl-
ur farið í skálínu niður á við og
verða alltaf dýpri og dýpri. Því verð-
ur ekki á móti mælt að námagröftur
upp af botni Mývatns er langstærsta
inngripið í lífríkið hér. Ég geri mér
hins vegar engar vonir um að hægt
verði að sanna það að einhver einn
þáttur beri ábyrgð á þessu ástandi.
Þetta er hörmungarástand og næsta
Akureyri:
Reyndi innbrot í 50 bíla
- sjö mánaða fangelsi fyrir margvíslegar gripdeildir
Akureyringur á þritugsaldri hefur
verið dæmdur í 7 mánaða fangelsi fyr-
ir þjófnað. Fullnustu 6 mánaða af
þeirri refsingu skal þó frestað og hún
niður falla að liðnum 3 árum frá birt-
ingu dómsins að telja, haldi hann al-
mennt skilorð. Þá er frestun á fulln-
ustu hluta refsivistar jafnframt bund-
in því skilyrði að ákæröi sæti á skil-
orðstímanum sérstakri umsjón.
Brot mannsins fóru fram í vor og
var hann ákærður fyrir að hafa að-
faranótt 26. mars í þjófnaöarskyni
reynt að komast inn í um það bil 50
bifreiðar sem lagt haföi verið í götun-
um Áshlíð, Bakkahlíð, Bröttuhlíð,
Tröllagili, Huldugili og Dvergagili á
Akureyri. Hann var einnig ákærður
fyrir að hafa aðfaranótt 6. april sl. far-
ið inn í þrjár bifreiðar sem lagt hafði
verið i Lyngholti á Akureyri og stolið
úr einni bifreiðinni 15.000 krónum í
peningum.
Ákærði játaði fyrir Héraðsdómi
Norðurlands eystra skýlaust þá hátt-
semi sem hann var saksóttur fyrir.
Að framangreindu virtu og þar sem
játning ákærða er í samræmi við yfir-
heyrsluskýrslu hjá lögreglu og önnur
skjöl málsins þykir sök hans nægilega
sönnuð.
Maðurinn hefur samkvæmt vott-
orði sakaskrár ríkisins þrívegis verið
dæmdur fyrir þjófnaðarbrot. I ágúst-
mánuði 1999 var hann dæmdur í 60
daga skilorðsbundið fangelsi vegna
sex þjófnaðarbrota sem hann framdi í
maí og júlí það ár. í júlímánuði 2000
var hann dæmdur í fjögurra mánaða
skilorðsbundið fangelsi vegna átta
þjófnaðarbrota sem hann framdi á
tímabilinu frá maí 1999 til febrúar
2000. Loks var ákærði dæmdur í nóv-
embermánuði 2000 vegna níu þjófnað-
arbrota er hann framdi á tímabilinu
frá júlí til nóvember 2000 og var refs-
ing hans þá ákveðin 7 mánaða fang-
elsi en þar af voru 6 mánuðir skilorðs-
bundnir. Fyrir liggur að ákærði hefur
um nokkra hríð notið stuðnings fé-
lagsmálayfirvalda á Akureyri. -BÞ
Ekki lengur Halló Akureyri:
„Ein með öllu“
- áhersla lögö á fjölskylduna. Unglingar undir 18 ára aldri geta ekki komið einir
„Við erum að leggja loka-
hönd á undirbúning hátið-
arinnar og munum kynna
dagskrá hennar áður en
langt um líður,“ segir Bragi
Bergmann hjá Kynningar-
þjónustunni Fremri á Akur-
eyri en þar á bæ vinna
menn nú hörðum höndum
að undirbúningi fyrir fjöl-
skylduhátíðina „Ein með öllu“ sem
haldin verður á Akureyri um verslun-
armannahelgina. Hátíð undir nafninu
„Halló Akureyri" er því ekki lengur á
dagskrá.
Á síðasta ári varð mikil breytmg á
útihátíðarhaldinu um verslunar-
mannahelgi á Akureyri enda þótti
„Halló Akureyri" vera oröin ansi mik-
il sukkhátíð unglinga sem þótti setja
svartan blett á bæinn. í fyrra var
Frá Akureyri.
breytt til í kjölfar ákvörðunar sýslu-
manns og bæjaryfirvalda um að
banna unglingum undir 18 ára aldri
aðgang að tjaldstöðum bæjarins án
þess að fullorðnir væru með i för og
fór hátíðin þá mjög vel fram. Mun
færri sóttu þó Ákureyri heim um
verslunarmannahelgina í fyrra en
árin þar á undan og munaði þar ef-
laust mestu aö unglingunum voru
settar skorður fyrir komu sína til bæj-
arms.
„Það er stefnt að því að
hér verði mikil og vonandi
fjölmenn fjölskylduhátíð.
Það verður lögð mikil
áhersla á mikla og fjöl-
breytta aldurshópa og auð-
vitað þar með talda ung-
linga. Það veröa mjög góðar
og vinsælar hljómsveitir á
skemmtistöðum bæjarins, unglinga-
dansleikir verða væntanlega í KA-
heimilinu og á hverjum degi verður
skemmtidagskrá á Ráðhústorgi svo
eitthvað sé nefnt. Dagskráin er því að
mörgu leyti byggð upp á líkan hátt og
var þegar „Halló Akureyri" var og hét
og það eru allir velkomnir til bæjar-
ins en þó með því fororði að ungling-
ar, 18 ára og yngri, verða að vera í
fylgd forráðamanna," segir Bragi. -gk
sveifla verður væntanlega enn
dýpri,“ segir Gylfi.
Stofninn ekki að deyja út
„Það vantar silung í vatnið en líf-
ríkið er í ágætu ástandi og mikil
áta. Bleikjustofninn hefur hins veg-
ar ekki náð sér upp,“ segir Ámi
Einarsson hjá Náttúrurannsóknar-
stöðinni við Mývatn. Árni segir líf-
ríkissveiflur í Mývatni þekktar
a.m.k. frá árinu 1970. „Það koma
þessar djúpu niðursveiflur meö
ákveðnu millibili og þær virðast
með þeirri tíðni að bleikjustofninn
nær sér ekki upp á milli þótt
ástandið í vatninu sé ágætt í upp-
sveiflunum.
Skýringin á því er líklegust sú að
tíðnin á sveiflunum sé svo hröð að
þegar góðu árin koma þá eru þau
ekki nógu mörg til að bleikjustofn-
inn nái að byggja sig upp. Skýring-
in á því hvað veldur því liggur hins
vegar ekki fyrir.
Ég myndi ekki nota þau orð að
bleikjustofninn sé í mikilli hættu,
Það er hins vegar mjög lítiö um sil-
ung í vatninu og sennilega með því
minnsta sem þekkst hefur í hund-
rað ár. Ég held hins vegar ekki að
stofninn sé að deyja út en það er
spurning hvort hann sé ekki orðinn
svo lítill að það borgi sig ekki að
veiða úr honum," segir Árni. -gk
Aöalheiður S. Eysteinsdóttir.
Forvitnileg erindi í Listagilinu:
„Á slag-
inu sex"
Fyrir skömmu opnuðu Aöalheið-
ur S. Eysteinsdóttir og Jón Laxdal
Halldórsson „Listsýningar í vinnu-
stofum" að Kaupvangsstæti 24, Ak-
ureyri. Einnig hófst dagskrá sem
fram fer daglega á vinnustofum Að-
alheiðar og stendur yfir til 19. júlí
nk. Þessir viðburðir bera nafnið „Á
slaginu sex“ og verður af mörgu að
taka, að sögn Aðalheiðar.
Hulda Hafsteinsdóttir mun flytja
erindi í dag, Þórarinn Guðmunds-
son á morgun, unglingar hafa orðið
á hinn daginn en á fóstudag verður
eitthvað óvænt. Magnús Logi Krist-
insson mun tala á laugardag, Joris
Rademaker 8. júlf. Bamadagur verð-
ur 9. júlí og daginn eftir talar Guð-
rún Pálína Guðmundsdóttir. -BÞ
Jón Laxdal Halldórsson.