Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Síða 8
8
Viðskipti
Umsjón: Viftskig|a
blaftift
Islensk erfðagreining og
Roche semja um 30 milljarða
íslensk erföagreining
Greint var frá undirskrift viljayfirlýsingar um samstarfið í mars síöastliðnum.
íslensk erfðagreining hefur samið
við lyfjafyrirtækið F. Hoffmann-
LaRoche Ltd. AG. um fimm ára
samstarf við þróun og markaðssetn-
ingu nýrra DNA-greiningarprófa
sem beinast að algengum sjúkdóm-
um. Mögulegt verðmæti samnings-
ins fyrir Islenska erfðagreiningu er
30 milljarðar króna að því er fram
kemur i tilkynningu félagsins.
Greint var frá undirskrift viljayf-
irlýsingar um samstarfið í mars síð-
astliðnum.
í tilkynningu frá tslenskri erfða-
greiningu kemur fram að talið er að
markaðurinn fyrir erfðafræðileg
greiningarpróf muni vaxa í fjóra
milljarða Bandaríkjadala á næstu
tíu árum. Roche hyggst byggja á
leiðandi stöðu sinni á sviði grein-
ingarprófa og ná umtalsverðum
hluta af þessum nýja markaði. Sam-
starfið við íslenska erfðagreiningu
er mikilvægur þáttur í framtíðar-
áætlunum Roche. Fyrirtækin áætla
að heildarverðmæti samningsins
fyrir íslenska erfðagreiningu geti
orðið yfir 30 milljarðar króna.
Samstarfið er einnig mikilvægur
liður i þeirri stefnu íslenskrar
erfðagreiningar að markaðssetja af-
urðir sem byggja á rannsóknarað-
ferðum og niðurstöðum fyrirtækis-
ins. Bæði fyrirtækin leggja til sam-
starfsins verðmæta sérþekkingu á
sínu sviði, íslensk erfðagreining
einstæða aðferðafræði við rann-
sóknir í lýðerfðafræði og lífupplýs-
ingatækni og Roche leiðandi stöðu
sína í þróun og markaðssetningu
sameinda-greiningarprófa. Auk
samstarfs um þróun prófa til að
greina sjúkdóma og áhættuþætti
hyggjast fyrirtækin vinna saman
við þróun upplýsingatækni til aö
auðvelda læknum að meta niður-
stöður slíkra erfðafræðilegra grein-
ingarprófa.
„Það er mjög spennandi að fá
þetta tækifæri til að nota erfða-
fræðirannsóknir okkar og lífupplýs-
ingatækni í samstarfi við fyrirtæki
sem er leiðandi í þróun og markaðs-
setningu greiningarprófa í heimin-
um. Ég er fullviss um að slik próf og
hugbúnaður verða mikilvægir þætt-
ir i heilsugæslu framtíðarinnar og
að samningurinn mun skapa okkur
umtalsverð verðmæti á komandi
árum,“ sagði Kári Stefánsson, for-
stjóri íslenskrar erfðagreiningar.
Eimskip kaupir
Hvítanes
SlF og Eimskip hafa gengið frá
samningi um að Eimskip kaupi
tlutningaskip SÍF hf. m/s Hvítanes
en skipið hefur undanfarin ár verið
í eigu SÍF hf. og flutt saltfisk frá ís-
landi til Suður-Evrópu. Samhliða
eigendaskiptum á skipinu hafa fé-
lögin gert með sér samning til fimm
ára um flutning á saltfiskafuröum.
{ tilkynningu félaganna kemur
fram að Hvítanesið hefur 2000 tonna
burðargetu og hefur verið í eigu SÍF
hf. frá árinu 1997. Eimskip tekur við
rekstri Hvítanessins í september og
er gert ráð fyrir að rekstur verði
með svipuðum hætti, a.m.k. fyrst
um sinn. Skipið sinnir áfram kæli-
flutningum á saltfiskafurðum til
Suður-Evrópu.
Sala SÍF hf. á skipinu er liður i
nýrri stefnu félagsins um að skerpa
áherslur í rekstri samstæðunnar.
Bókfærður hagnaður SÍF hf. af söl-
unni verður um 120 milljónir króna.
Kaup Eimskips á Hvítanesinu er
liður í aö efla þjónustu og auka hag-
kvæmni í flutningum félagsins milli
Noregs, íslands, Norður-Spánar og
Portúgals. Kaupin eru gerð í fram-
haldi af ákvörðun Eimskips i apríl
sl. um að hefja reglubundnar sigl-
ingar til þessara landa með tveimur
frystiskipum.
Vöruskiptin í maí óhagstæð um 3,5 milljarða
í maímánuði voru íluttar út vörur
fyrir 14,3 milljarða króna og inn fyrir
17,9 milljarða króna fob. Vöruskiptin í
maí voru því óhagstæð um 3,5 millj-
arða en í maí í fyrra voru þau óhag-
stæð um 10,9 milljarða á fóstu gengi.
Samkvæmt upplýsingum frá Hag-
stofunni voru fyrstu fimm mánuði
ársins fluttar út vörur fyrir 75,5 milij-
arða króna en inn fyrir 84,1 milljarð
króna fob. Halli var því á vöruskipt-
unum við útlönd sem nam 8,6 millj-
örðum króna en á sama tíma árið
áður voru þau óhagstæð um 18 millj-
arða á fóstu gengi. Fyrstu fimm mán-
uði ársins var vöruskiptajöfnuðurinn
því 9,4 milljörðum króna skárri en á
sama tíma í fyrra.
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu
fimm mánuði ársins var 7,9 milljörð-
um eða 12% meira á fóstu gengi en á
sama tíma árið áður. Aukningin
stafar að stórum hluta af útflutningi á
áli og auknum skipaútflutningi. Sjáv-
arafurðir voru 61% alls útflutnings og
var verðmæti þeirra 2% meira en á
sama tíma árið áður. Aukningu sjáv-
arafurða má einna helst rekja til auk-
ins útflutnings á fiskimjöli.
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu
5 mánuði ársins var 1,5 milljörðum
eöa 2% minna á fóstu gengi en á sama
tíma árið áður. Af einstökum vöru-
flokkum hefur orðið mestur samdrátt-
ur í eldsneyti og flutningatækjum.
Landsbankinn og Kaupþing:
Spá 0,56-1% verðbólgu milli júnl og júlí
Landsbankinn og Kaupþing spá
0,56-1% verðbólgu milli júní og júlí.
Kaupþing spáir 1,0% hækkun á
vísitölu neysluverðs á milli mánaða
sem samsvarar 12,7% verðbólgu á árs-
grundvelli. Gangi spáin eftir hefur
vísitalan hækkað um 7,3% síðustu 12
mánuði.
Helstu forsendur spárinnar eru
þær að verð á bensini hefur lækkaö
um 5 krónur undanfarna viku. Hefur
lækkunin um 0,2% áhrif til lækkunar
á vísitölu neysluverðs. Ástæður lækk-
unarinnar er lækkun heimsmarkaðs-
verðs og lækkun á gengi dollars.
Verð á rafmagni og hita hækkaði
um 4,9% og önnur opinber þjónusta
hefur hækkað eins og strætisvagna-
fargjöld, dagvistun barna og hækkun
á heilsugæslu. Hver liður vegur lítið í
vísitölunni en safnast þegar saman
kemur.
Greiningardeild gerir ráð fyrir um-
talsverðri hækkun á innfluttum
neysluvörum og telur hækkanir
vegna lækkunar krónunnar ekki að
fullu komnar inn í verðlagið. Gert er
ráð fyrir hækkun á matvöru, heimilis-
tækjum og öðrum innfluttum neyslu-
vörum. Þá má búast við að einhverjar
hækkanir verði á innlendri vöru og
þjónustu sem orsakast með beinum og
óbeinum hætti af lækkun gengisvís-
tölunnar.
Landsbankinn spáir 0,56% hækkun
á vísitölu neysluverðs mihi júní og
júlí. Gangi spáin eftir verður vísitala
neysluverðs miðuð við verðlag í júní-
byrjun 213,8 og mun vísitalan hafa
hækkað um 6,8% síðustu 12 mánuði.
í spá Landsbankans sem kom á
föstudaginn spáði bankinn 0,66%
verðbólgu með þeim fyrirvara að
bensínverð héldist óbreytt. Bensín-
verð var hins vegar lækkað um helg-
ina og þvi birti bankinn aðra endur-
skoðaða spá. í spá bankans kemur
fram að þeir þættir sem helst hafa
áhrif á spá vísitölunnar í júní eru að
áfram er gert ráð fyrir nokkrum
hækkunum vegna lækkunar á gengi
krónu. Gert er ráð fyrir að enn séu
hækkanir að koma fram á innfluttri
vöru svo og að einhverjar hækkanir
vegna gengis séu að koma fram í inn-
lendri vöru. Opinber þjónusta, s.s.
dagvistun, er að hækka um og yfir
10%, rafmagn og hiti eru að hækka
um 4,9% en áhrif af nýkynntum
hækkunum vegna heilsugæslu eru
óveruleg. Til lækkunar kemur bensín-
liður og gert er ráð fyrir um 1% lækk-
un á húsnæðislið milli mánaða.
Kaupþing
Samkvæmt viljayfirlýsingu á milli Kaupþings, Sofi og hluthafa Sofi ergert ráð
fyrir að hluthafar Sofi fái hlutabréf útgefin af Kaupþingi í skiptum fyrir hiuta-
bréf í Sofi.
Kaupþing samein-
ast finnsku
verðbréfafyrirtæki
- stefnt aö undirritun samnings fyrir septemberlok
Kaupþing hf. hefur undirritað
viljayfirlýsingu um sameingu viö
Sofi Financial Services Group,
finnskt verðbréfafyrirtæki sem hef-
ur sérhæft sig í eignastýringu og
verðbréfamiðlun fyrir fyrirtæki,
stofnanafjárfesta og efnaða einstak-
linga. Félagið er staðsett í Helsinki
og eru starfsmenn þess samtals 35.
Sofi er aðili að kauphöllinni í
Helsinki og á í nánu samstarfi við
heimsþekktar fjármálastofnanir.
Sameiningin er liður í þeirri stefnu
Kaupþings að sækja inn á Norður-
landamarkað þar sem félagið hyggst
staðsetja sig sem öflugan norrænan
banka og fellur fyrirhuguð samein-
ing við Sofi vel að þeirri fyrirætlan
Kaupþings.
Samkvæmt viljayfirlýsingu á
milli Kaupþings, Sofi og hluthafa
Sofi er gert ráð fyrir að hluthafar
Sofi fái hlutabréf útgefin af Kaup-
þingi í skiptum fyrir hlutabréf í
Sofi. Viljayfirlýsingin er undirrituð
með fyrirvara um niðurstöðu áreiö-
anleikakönnunar sem og samþykki
stjómar og hluthafafundar Kaup-
þings. Stefnt er aö því að ljúka
áreiðanleikakönnun og undirrita
samninga fyrir lok septembermán-
aðar 2001.
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001
r>v
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 4900 m.kr.
Hlutabréf 1600 m.kr.
Húsbréf 1500 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
Q Tryggingamiöstööin 1265 m.kr.
Kaupþing 143 m.kr.
Baugur 63 m.kr.
MESTA HÆKKUN
Q Marel 6,4%
Q Delta 1,7%
QÍslandsbanki 0,5%
MESTA LÆKKUN
QÍslandssími 2,9%
Q Samheiji 2,0%
Q Sjóvá-Almennar 2,0%
ÚRVALSVÍSITALAN 1075 stig
- Breyting Q 0,63%
Afkomuviðvörun
frá íslenskum
aðalverktökum
Ljóst er að afkoma íslenskra aðal-
verktaka hf. verður umtalsvert lak-
ari á fyrstu sex mánuðum yfirstand-
andi árs en á sama tíma í fyrra, seg-
ir i afkomuviðvörun sem félagið
hefur sent frá sér.
„Skýrist það fyrst og fremst af
verulegu gengistapi, sem félagið hef-
ur orðið fyrir, en stærstur hluti
skulda félagsins er bundinn erlend-
um gjaldmiðlum og vegur það vera-
lega þyngra á tímabilinu en sá hluti
tekna félagsins sem er í erlendum
gjaldmiðlum. Gengistap félagsins
nam þannig rúmum 300 milljónum
króna fyrstu fjóra mánuði ársins.
Rekstur félagsins á fyrri helmingi
ársins hefur að ööru leyti að mestu
gengið með svipuðum hætti og ráð
var fyrir gert og verkefni verið næg.
Þó útlit sé fyrir, miðað við núver-
andi verkefnastöðu félagsins, að
umsvif þess kunni að dragast nokk-
uð saman á síðari hluta ársins er
ljóst að eins og nú horflr vegur
þyngst um endanlega niðurstöðu
rekstrarins á árinu hver verður þró-
un og aðstæður á fjármagnsmarkaði
síðari hluta ársins,“ segir í afkomu-
viövörun frá íslenskum aðalverk-
tökum.
Toyota og
Peugeot hefja
samstarf
Toyota Motor, þriðji stærsti bila-
framleiðandi í heiminum, hyggst
leggja franska bílaframleiðandanum
Peugeot-Citroén lið við að framleiða
nýjan bil inn á Evrópumarkað. Bú-
ist er við að þessi samvinna muni
hefjast árið 2004. Áætlað er að hún
muni skila 300.000 bílum með eins
lítra vél sem enn á eftir að þróa.
Ekkert bendir til þess aö sam-
vinnan þýði frekara samstarf fyrir-
tækjanna í framtíðinni þó að þetta
gefi til kynna samstarfsvilja Toyota
við önnur fyrirtæki en Toyota hefur
alltaf verið mjög á móti því að
ganga í samstarf við önnur bílafyr-
irtæki.
03.07.2001 kl. 9.15
KAUP SALA
Dollar 103,440 103,970
KöPund 146,170 146,920
1*11 Kan. dollar 68,310 68,730
j Dönsk kr. 11,7700 11,8340
HpjNorskkr 11,0200 11,0810
IjÍ Sænsk kr. 9,4920 9,5450
ij+HR- mark 14,7422 14,8307
Fra. franki 13,3626 13,4429
6 |j Belg. franki 2,1729 2,1859
) Sviss. franki 57,6000 57,9200
C^Holl. gyllini 39,7752 40,0142
n Þýskt mark 44,8162 45,0855
| |J ít. líra 0,045270 0,045540
□QAust. sch. 6,3700 6,4083
H P°rt. escudo 0,4372 0,4398
LLJSpá. peseti 0,5268 0,5300
1 • |Jap. yen 0,834400 0,839400
| írskt pund 111,296 111,965
SDR 129,070000 129,840000
@ECU 87,6529 88,1796