Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2001, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2001
Skoðun E»V
Borgarstjórnarmeirihlutinn á fundi
Heildarskuldir borgarinnar 27 miitjaröar?
Lögreglumaður
Hvað finnst þér skemmti-
legast að gera?
Jón Kristinn Einarsson, 8 ára:
Mér finnst skemmtitegast aö leika
mér í körfubolta.
Þorgeir Auðunn Karlsson, 9 ára:
Þaö er skemmtilegast aö vera Qti aö
leika viö vini mina.
Fríða Björk Gunnarsdóttir, 10 ára:
Vera úti aö leika í góöu veöri.
Kristín Heigadóttir, 7 ára:
Aö vera úti í fótbolta.
Milan, 6 ára:
Aö spila Pokémonspil.
Guðrún Adda Björnsdóttlr, 8 ára:
Leika mér úti.
Hulda Pétursdóttir
skrifar:
Ég tók upp á því nýverið þegar
bíllinn minn fór á verkstæði að nota
strætó. Fargjaldið var 150 kr. Vagn-
inn var nýlegur og hreinn og mér
leið eins og í gamla daga á leið í
MR. Nú er R-listinn búinn að
hækka fargjaldiö i 200 kr. og enn
meira fyrir öryrkja, eldri borgara
og unglinga. Einnig skilst mér að
einkavæða eigi strætó í samstarfi
við nágrannasveitafélögin.
Fyrir nokkrum árum þegar sjálf-
stæðismenn stjórnuðu borginni fór
allt af hjörunum við svipaðar að-
stæður og borgin féll. En nú segir
enginn neitt og fjölmiðlar hafa lítið
farið ofan í rekstur borgarinnar
sem ekki væri vanþörf á, einmitt
núna.
Það virðist vera alveg sama
hverju stjórnendur borgarinnar
taka upp á í formi nýrra skatta,
gjalda eða skuldasöfnunar það
verða lítil sem engin viðbrögð.
Ég las þó í blaðaumfjöllun einni
Aðförin
Steinunn
skrifar:
Það var fróðlegt að hlusta á viðtal
við borgarstjórann þar sem verið var
að biðja hana um að útskýra hvers
vegna brunabótamat húseigna hefði
verið lækkað og fasteignamatið
hækkað á íbúðareigendum í Reykja-
vík. Ég er eldri borgari og fann dálít-
ið fyrir svari borgarstjóra.
Borgarstjóra finnst jafnræðis
ekki gæta í húseigendamálum borg-
arinnar. Hún sagði að gamlar hús-
eignir eða íbúðir á vissum stöðum
væru seldar á hærra verði en nýjar
eða nýrri eignir, þar af leiðandi
væri eðlilegt að fasteignamat eldri
eigna væri hækkað en vegna aldurs
eignanna væri eðlilegt að bruna-
bótamat yrði lækkað. Svo mörg
voru þau orð.
„Það virðist vera alveg
sama hverju stjórnendur
borgarinnar taka upp á í
formi nýrra skatta, gjalda
eða skuldasöfnunar, það
verða lítil sem engin
viðbrögð. “
að óumdeilt er að skuldir borgarin-
ar hafi verið um fjögur þúsund
milljónir króna þegar R-listafólkið
tók við stjórninni en séu nú komn-
ar í tuttugu og sjö þúsund milljónir!
Það er eins og þetta skipti fólk, eða
fjölmiðlana fyrir þeirra hönd, ekki
nokkru máli.
Svo er það miðbærinn okkar. -
Ég tók niður nokkrar fyrirsagnir úr
DV nýverið og með stuttu millibili
og þaðan tek ég nokkur sýnishorn:
„Lögreglumaður rotaður og 31 of-
beldis- og ólátamál í miðborginni
um helgina" segir í forsíðufrétt einn
daginn. „Miðborginni haldið í her-
„í gamla bœnum búa
margir aldraðir sem eru að
burðast við að halda eign-
um sínum í viðunandi
ástandi og gefa ekkert eftir
unga fólkinu sem er að
kaupa sér eignir á þessum
svœðum. “
Ég er eigandi íbúðar á gömlu
svæði Reykjavíkur og hef undanfar-
in 45 ár greitt skatta og skyldur af
eigninni. Ég er eftirlaunaþegi og vil
halda eign minni vel við, allir veð-
réttir eru lausir svo ég má búast við
hækkun á fasteignaskatti og eigna-
skatti vegna ofannefndrar aðfarar.
rotaður
kví,“ segir Jón Birgir Pétursson
blaöamaður i einni grein sinni. „Of-
beldi í Reykjavík" er fyrirsögn leið-
ara Óla Björns Kárasonar. „Skugg-
inn er yfir bænum,“ er yfirskrift
greinar eftir Valdimar Jóhannesson
hjá Foreldrahúsinu. „Reykjavik -
Bankok norðursins," segir Kristján
Ólafsson í lesendabréfi DV. - Og:
„Ófögur mynd af íslenskum ung-
dómi í sjónvarpsumfjöllun í Band-
rikjunum," segir sendiherra okkar í
Ameríku og segir þáttinn „ókræsi-
lega landkynningu".
Loks segir einn borgarfulltrúi
Reykjavíkur, Ólafur F. Magnússon
læknir: „Það er alveg dagljóst að ef
sjálfstæðismenn væru nú við stjórn-
völinn og búnir að missa tökin jafn
kyrfilega og nú virðist raunin með
R-listann þá væru þeir væntanlega
búnir að segja af sér. Það er mitt
mat að stjórn borgarinnar verður
aldrei í lagi með margra flokka sam-
krullsstjóm. Ekki frekar en margir
skipstjórar á sama skipi. Ég fullyrði
það hér og nú.“
Ekki vænti ég þess að skyldutrygg-
ingin sem greidd er samkv. bruna-
bótamati verði aflögð eða lækkuð.
I gamla bænum búa margir aldr-
aðir sem eru að burðast við að
halda eignum sínum í viðunandi
ástandi og gefa ekkert eftir unga
fólkinu sem er að kaupa sér eignir á
þessum svæðum. Margar þessara
eigna eru eðlilega dýrar, bæði
vegna staðsetningarinnar og svo
hafa húseigendur þurft að reiða
fram mikla peninga til þess að
halda eignunum í því ástandi að
seljanlegar séu.
Hins vegar mætti benda borgar-
stjóra á aö ganga um götur gamla
bæjarins og sjá vinnubrögðin á við-
haldi. Þar má sjá Ijóta og lélega um-
hirðu sem ber stjómendum ekki
fagurt vitni.
að húseigendum
J';'- :
illlillb
Aular í bílaleik
Garri hefur lengi haft pata af framhaldsþætti í
ríkissjónvarpinu, helstu menningarstofnun þjóð-
arinnar, sem fjallar einkum um pilta í bílaleik.
Af einhverjum ástæðum hefur Garri ekki lagt
sig eftir að horfa á þennan þátt, enda missti
hann áhuga á bílaleikjum i kringum 12 ára ald-
urinn. En sl. sunnudag brá hann út af vananum
og settist við skjáinn með sonum sínum sem eru
miklir áhugamenn um burrið enda auðvitað enn
þá böm. Og það verður bara að segjast eins og
er, og kom Garra mjög á óvart, að hann hafði
mjög gaman af þessum þætti, enda vissi hann
ekki fyrir að serían „Aulabárðar í bílaleik", eða
„Formúla í fyndni", sem hann kallast víst líka,
er með ólíkindum grínaktug og jafnvel farsa-
kennd á köflum.
Ófleygl Finninn
Þáttaröðin fjallar sem sé um hóp af útlenskum
piltum í bílaleik. (Furðulegt að Islendingar eigi
ekki þarna fulltrúa, því fjölmargir íslenskir
strákar eru í sams konar bílaleik flesta daga á
vegum úti.) Nú, nú, piltamir keyra þama hring
eftir hring eftir hring og væri auðvitað ekki
mjög fyndið og jafnvel tilbreytingarlaust, ef ekki
væri fyrir það að þessir strákar em þvílíkir aul-
ar í akstri, að ótrúlegt er að þeir hafi fullgild
ökuréttindi, enda flestir spólandi eins og vitleys-
ingar og síkeyrandi út af. Og síðan bætist við að
ökutæki snáðanna eru svoddan hrákasmíð að
það þykir gott ef druslumar komast 300 kíló-
metra án þess að bila.
Þátturinn sem Garri horfði á sl. sunnudag
hófst á meinfyndnu atriði. Allir áttu sem sé að
leggja jafnt af stað í bílaleikinn og gerðu það,
nema einn finnskur piltur, Hokkinen að nafni
eða eitthvað slíkt. Hann greyið litla kunni ekki
að starta bílnum og sat því eftir með sárt ennið
og gat ekki burrað einn einasta sentímetra þann
daginn. Þetta var náttúrlega sprenghlægilegt en
vesalings finnski pilturinn auðvitað um leið dá-
lítið brjóstumkennanlegur að missa svona af
lestinni. En það gengur vonandi bara betur næst
og kannski verður einhver góðhjartaður öku-
kennari búinn að kenna snáða að starta fyrir
næsta bílaleik.
Dratthalar
Reyndar sögöu sérfræðingar sjónvarpsins að
ekki væri alveg víst að Finninn ófljúgandi væri
svona mikill klaufi, heldur væri verkstæðis-
mönnum hans hugsanlega um að kenna að
svona fór.
En það skiptir ekki meginmáli. Garri er ekki
mikill ökumaður, en i hvert skipti sem hann
startar sinni 14 ára gömlu drossíu þá fer hún í
gang hikstalaust. Þetta hlýtur finnski pilturinn
líka að geta lært. Og ef um er að ræða hand-
vömm útlendra viðgerðarmanna, þá á að reka
þessa menn. Garri hefur víða farið með sinn
gamla sorrí grána í verkstæði á íslandi og jafnan
fengið fínustu viðgerðir, bæði á störturum og
öðrum fjölmúlavílum bílsins.
Þannig að auðvitað er handritið að bílaleikja-
þáttum sjónvarpsins ansi fjarri raunveruleikan-
um, því engir ökumenn eru svona miklir klaufar
og engir bílar svona lélegir árið 2001. Og a.m.k.
er fáránlegt að reyna að ljúga því að manni að
þessir bílar, sem margir dratthalast ekki skitna
300 kílómetra án þess að bila, séu dýrari en
gamli Garrabíllinn sem metinn er á 35.000 krón-
ur. Fyrr má nú rota en _
handrota. GaiTÍ
Flugturninn og þyrlan
Ásgeir Ásgeirsson skrifar:
Enn og aftur
eru að koma upp
atvik og frásagnir
frá því hið
hörmulega flug-
slys varð í Skerja-
firði fyrir tæpu
ári. Nú síðast var
í útvarpsféttum
sl. föstudag, að
flugmenn þyrlu
Gæslunnar undr-
ast að ekki var
óskað aðstoðar
hennar strax eftir slysið en beðið
þar til allt var um seinan og þyrlan
einungis látin svipast eftir braki á
sjónum. Þetta er að koma í umræð-
una fyrst núna! En hvað þá með
flugturninn, þátt stjórnenda þar og
það furðulega atvik að snúa um-
ræddri flugvél. TF-GTI tvisvar sinn-
um frá með fárra mínútna millibili?
Spyrja má: Er ekki ástæða til að
þrengja nú hringinn í rannsókninni
enn frekar?
Laufey er Guðjónsdóttir
Diddi skrifar:
Ég vil taka undir orð Dísu sem
skrifaði hér í dálkinn á föstudaginn.
Sjónvarpið er þarna að fara inn á al-
veg nýjar brautir með því að endur-
sýna vinsæla þætti eins og Fraiser
og mér finnst það alveg frábær hug-
mynd. Sú manneskja sem kemur
með þessa nýju strauma inn í Sjón-
varpið heitir hins vegar Laufey
Guðjónsdóttir, en ekki Laufey Jó-
hannsdóttir eins og Dísa hélt. Lauf-
ey er dagskrárstjóri erlends efnis
hjá RÚV. - Rétt skal vera rétt!
Hvað verður um malbikið?
Ökumaður hringdi:
Nú er há-
annatími verk-
taka fyrir
Reykjavíkur-
borg. Göturnar
eru fræstar
upp, hvort sem
þær þarfnast
eða ekki. Mal-
bikinu er ekið
burt, hvert veit
ég ekki. Það
væri gaman að
vita hvort þetta
malbik er endurunnið og sett á göt-
urnar aftur. Þá skal mann ekki
undra þótt fræsa þurfi göturnar ár
eftir ár. Malbikið sem sett er á göt-
urnar er ekki þétt heldur gróft; lík-
ist mest olíumöl og getur verið það,
án þess að ég þori að fullyrða það.
Fræsingarnar eru hins vegar óþarf-
ar i slíkum mæli sem raun ber
vitni. Og einkennilegt er hve það
endist stutt. En hitt er víst, að verk-
takar hverju nafni sem nefnast
græða drjúgt á borginni þessa dag-
ana. Og eftirlitið sýnist ekki mikið,
Maður ekur sí og æ yfir hvassar
malbiksbrúnir og eyðileggur dekkin
á bílunum. Ég krefst betra eftirlits
með gatna- og gangstéttaviðgerðum.
Tveir frá Vesturlandi
Bjarni Þorsteinsson hringdi:
í lesendabréfl í DV sl. fostudag
veltir Þorvaldur þvi fyrir sér hvers
vegna Reykjavíkurborg sé að ólmast
með Orkuveitu Reykjavíkur alla
leið upp á Skaga og sem leiðir til
37% lækkunar orku þar á meðan
við Reykvíkingar fáum 5% hækkun
frá 1. júlí nk. Ýjar Þorvaldur að því
að hér séu einhver brögð í tafli og
minnist á að í borgarstjórn sé Akur-
nesingur og kunni að eiga hlut að
máli. En hitt er rétt að Akurnesing-
ar eiga fulltrúa i borgarstjórn
Reykjavíkur, raunar tvo ágæta frá
Vesturlandi. En vart trúi ég svo
djúphugsaðri Kremlarlógíu að þeir
hafi átt þátt í að „smúla“ orkuveitu
borgarinnar alla leið til Akraness.
Enda ótrúleg hugdetta yfirleitt.
Fræst og malbik-
að á Miklubraut
Aftur sama
malbikiö?
A Reykjavíkur-
flugvelli
Flugturninn und-
anskilinn?
Bv Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11,105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum S
sama póstfang.