Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2001, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2001
Fréttir I>V
Náttúruverndarmenn efast um íslenska ákvæðið í Kyoto-bókuninni:
Útblástur fyrir milljarða
- íslenska ákvæðið talið 1,8 milljarða virði - fátt kemur í veg fyrir samþykkt
Þaö mun ráðast á fóstu- ——
dag hvort íslendingar
skrifa undir Kyotobókunina
og slást þar með í hóp ríkja
sem ákveðið hafa að takmarka
hjá sér losun gróðurhúsaloftteg-
unda eða hvort þeir gera það
ekki og standa utan hinnar
sögulegu samstöðu sem náðst
hefur ásamt Bandaríkjunum.
Það sem mun ráða úrslitum
er afgreiðsla hins svokallaða
„íslenska ákvæðis" en í stjóm-
arsáttmála ríkisstjómarinnar er
skýrt kveðið á um að þetta ákvæði
sé forsenda þess að íslendingar
geti gerst aðilar að Kyoto-bók-
uninni. Á 6. aðildarrikjaþingi *
Loftslagssamnings Samein-
uðu þjóðanna sem nú stendur
yfir i Bonn - þar sem búið er
að ná heildarsamkomulagi
um öll stóru málin - er verið
að ganga frá minni málum og
málum sem áður hafði verið
gengið frá í undimefndum.
Þar á meðal er hið margum-
rædda íslenska ákvæði sem
væntanlega mun fara í gegn
á fóstudag eins og áður segir.
En hvert er þetta íslenska
ákvæði sem náttúmvemdar-
menn hafa sagt að sé 1,8 millj-
arða króna virði?
íslenska ákvæðið
íslenska ákvæðið hefúr
tekið nokkrum breytingum
frá því það kom fyrst fram
og hafa fuiltrúar íslands í
viðræðum um það slipað
það til og þróað þannig að
auðveldara sé fyrir aðrar þjóð-
ir að samþykkja það. I því
formi sem ákvæðið liggur
nú fyrir aðildarríkjaþing-
inu i Bonn eru eftirfar-
andi atriði mikilvægust:
Koltvíoxíðlosun C02 frá
nýrri stóriðju, sem hefur
starfsemi eftir 1990 og leið-
ir til meira en 5% aukn-
ingar í losun á fyrsta
skuldbindingartímabili
Kyoto-bókunarinnar
2008-2012, verði undan-
þegin losunarskuldbind-
ingum bókunarinnar.
Ákvæðið gerir ráð fyrir
að þetta nái aðeins til
smáríkja, þ.e. ríkja sem
losuðu minna en 0,05%
af heildarlosun iðnríkj-
anna 1990. Jafnframt
em þama sett viðbótar-
skilyrði. M.a. er gerð
krafa um notkun end-
umýjanlegrar orku, að
notkun hennar leiði til
samdráttar í losun, að
besta fáanlega tækni
sé notuð og að bestu
umhverfisvenjur séu
viðhafðar í fram-
leiðslunni. Árlegt há-
mark er þó sett á þá
losun sem hægt er að
taka út fyrir sviga í
samkvæmt þessu
ákvæði og er það 1,6
milljónir tonna af
gróðurhúsaloftteg-
undum.
Verðmætur
útblástur
Heimildir til auk-
innar losunar
gróöurhúsaloftteg-
unda eru að
verða að mikl-
um verðmæt-
um.
For-
senda
samþykkt-
ar
Siv Friðleifs-
dóttir segir þetta
ákvæði algera for-
sendu fyrir því að við
íslendingar getum tekið
þátt í þessu samstarfi því
losun héðan hafi verið hlut-
fallslega lítil og ein stór fram-
kvæmd gæti sett allt bókhald á
annan endann. „Þannig gæti bygg-
ing eins álvers þýtt um 20% aukn-
ingu losunar miðað við 1990 vegna
þess að þetta vegur hlutfallslega svo
þungt hjá okkur. Á sama tíma gæti
þessi sama framkvæmd ekki þýtt aukn-
ingu upp á nema brot úr prósenti hjá
stærri ríkjum," segir Siv. Hún segir að
séu öll skilyrði ákvæðisins fyrir hendi,
sem þau muni verða hér á landi, gefist
kostur á að halda þessari tilteknu aukn-
ingu utan bókhalds sem sé mikið sann-
gimismál. Þá sé í raun verið að fram-
leiða vistvænan málm sem álið óneitan-
lega sé í ljósi þess að það er notað til að
létta samgöngutæki, og þar með minnka
bruna þeirra, með vistvænum orkugjöf-
um og með vistvænstu aðferðum sem
fyrir hendi séu. Hinn kosturinn væri að
stofnsetja slík álver í þróunarlöndun-
um, t.d., og framleiða ál á óvistvænan
hátt með margfóidum útblæstri. Is-
lenska ákvæðið styrkir því heildar-
markmið Kyoto-bókunarinnar, segir
ráðherra.
Afram
1 stóriðja
Aðspurð um
hvað þetta muni
1 þýða nákvæmlega
hér heima segir
Siv að þá þyrfti
ekki að hætta við
áform um að stækka
álver og að hægt yrði
að fara í uppbyggingu
nýrra álvera sem veriö
hafa til skoðunar, sam-
hliða því að taka þátt í
k Kyoto-bókuninni. Um-
3 hverfisráðherra segir
,: vaxandi skilning á sjón-
armiðum íslands á al-
þjóðavettvangi og mikið
verk hafi verið unnið við
undirbúning þess. Þannig
hafi stjórnvöld hér heima
t.d. fljótlega gert sér grein
fyrir því að bindingarmál
yrðu eitt af stóru málunum
og því hafi veriö fiárfest í
þekkingu og mannskap á þvi
sviði og ísland hafi getað miðl-
að málum þar vegna þess í is-
JSP lensku sendinefndinni hafi verið
sérfræðiþekking á heimsmæli-
kvarða á þessu sviði. Ráðherrann
er þar ekki síst að vísa til þekkingar
HaÚdórs Þorgeirssonar, formanns ís-
lensku sendinefndarinnar. Og allt hef-
ur þetta skilað árangri að mati ráðherr-
ans. „Nú spyrja menn úti sig að því
hvaða réttlæti sé í því að hafna þessu
ákvæði og þar með samstarfi við það
land sem notar mest af endumýjan-
legum orkugjöfúm í heiminum í dag,
eða 67%, land sem var búið að skipta að
mestu úr olíukyndingu árið 1990 og er
til fýrirmyndar í umhverfismálum mið-
að við flest önnur ríki. Hvaða réttlæti sé
í því að meina slíku ríki að nýta sína
endumýjanlegu orkugjafa til að byggja
Innlent fréttaljós
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmjmmmmmmmmmmmmmsaima.:-
Birgir Guömundsson
fréttastjóri
upp stóriðju sem myndi menga mun
minna en ef hún væri byggð annars
staðar? Menn sjá að slíkt væri hreinlega
órökrænt," segir Siv Friðleifsdóttir.
Mikil aukning
En það em ekki allir jafn hressir með
framvindu mála og Náttúruvemdarsam-
tök Islands og raunar hafa fleiri aðilar
iýst yfir andstöðu við íslenska ákvæðið
og talið að ísland þyrfti ekki á slíkri sér-
meðferð að halda. Stóriðjan verði að
taka ábyrgð á eigin losun vilji hún
koma hingað og Island eigi ekki að stilla
sér upp með þróunarlöndunum hvað
þetta varðar. „ísienska ákvæðið þýðir
að ísland mun trúlega geta aukið heild-
arlosun sína á gróðurhúsaloftegunum
um allt að 75% miðað við 1990,“ segir
Ámi Finnsson, formaður Náttúmvemd-
arsamtaka íslands.
Þá vísar hann til
þess að íslenska
ákvæðið þýði
aukningu upp á
55%. Kyoto-sam-
komulagið sjálft fel-
ur í sér heimild
upp á 10% og svo
hefur íslenska
sendinefndin
samið um mögu-
leika á aukinni los-
um vegna gagnað-
gerða með bind-
ingu með land-
græðslu upp á önn-
ur 10%. I túlkun
Árna og annarra
náttúrusamtaka-
manna er með
þessu ákvæði verið
að skapa svigrúm fyrir áliðnaðinn á Is-
landi, sérstaklega nýjar framleiðsluein-
ingar sem ekki em látnar taka neina
ábyrgð á sinni losun. Ákvæðið, eins og
það er núna, felur i sér heimild til 1,6
milljóna tonna aukningar i losun á C02
á ári eins og áður segir. Áma Finnssyni
þykir þetta hátt þak. „Þetta er vissulega
skárra en það var fyrst í Argentínu 1998
þegar ekkert þak var á þessari losun. En
í ljósi þess að mjög ólíklegt er að ís-
lenska ákvæðinu verði hafnað í heild
sinni úr þessu þá hefði maður vonað að
þetta þak yrði sett mun neðar þvi þegar
matsskýrsla fyrir álver á Reyðarfirði er
skoðuð er ekki gert ráð fyrir neinum
mótvægisaðgerðum vegna losunar gróð-
urhúsalofttegunda. Áliðnaðurinn í
heiminum getur fiárfest i þróunarlönd-
um og þarf þá ekki að fá undanþágu frá
Kyoto-bókuninni og það sem við íslend-
ingar erum í raun að biðja um er að vera
í sömu stöðu, að biðja um þessa undan-
þágu fyrir áliðnaðinn," segir Ámi.
18 milljónir dollara
Hann bendir á að nú þegar séu menn
famir að setja tölur á verðmæti útblást-
urskvóta enda fyrirsjáanlegt að losunin
eigi eftir að ganga kaupum og sölum á
markaði. Þau verðmæti sem hér sé þvi
verið að búa til handa álfyrirtækjum
geti verið veruleg. „Miðað við það verð
sem BP gerir ráð fyrir má áætla að und-
anþágan sem íslendingar em að fá
þama með íslenska ákvæðinu (1,6 milj-
ónir tonna) sé um 18 milljóna dollara
virði á ári (rúmlega 1,8 milljarðar kr.).
Reyðarál er að biðja um 710 þúsund
tonna losun sem gæti þá samkvæmt
þessu numið um 8 miljónum dollara.
Þetta em náttúrlega ölmusur sem við
eigum ekki að biðja um. Ég hefði haldið
að Reyðarál og Norsk Hydro, sem stær-
ir sig af mjög framsækinni umhverfis-
stefnu, ættu aö geta lagt eitthvað af
mörkum á móti þeirri losun sem frá
þeim kemur,“ segir Ámi. Hann varpar
því fram sem hugsanlegum möguleika
að framlag Reyðaráls gæti numið þeim
10% sem Islendingar geta fengið í gegn-
um bindinguna - en Ámi segir ljóst að
það verði gríðarlega dýrt og mikið mál
að Qármagna alla þá landgræðslu sem
þar um ræðir. „Hvers vegna ætti sá
kostnaður að koma eingöngu niður á
skattborgumnum?" spyr Ámi Finnsson.
Árni Finnsson
Landgræðsla
íslendingar hafa tryggt sér rétt til aukins útblásturs ef þeir ná ákveönum markmiöum í bindingu gróðurhúsaloftteg-
unda gegnum landgræðslu.
LL,
Umsjón: Birgir Guðmundsson
Hækkaður í tign
I heita pottinum hafa menn verið
að ræða um þá
breytingu sem
orðið hefur á
samfélaginu í
kjölfar Árnamál-
anna og eru flest-
ir sammála um
að stjómsýslan og
opinbert siðferði
muni batna mikið. En það er fleira
sem hefur breyst samkvæmt því
sem hvíslað er í pottinum. Nú mun
sölumaðurinn í BYKO, sem gerði
athugasemdirnar við viðskipti Árna
Johnsens á sínum tíma, heldur hafa
fengið uppreisn æru frá því sem var
um tíma að minnsta kosti. Fullyrt
er í pottinum að hann sé kominn
með sérstaka skrifstofu út af fyrir
sig, sem er nokkuð sem hann hafði
ekki fyrr, hann hafi sem sé hækkað
í tign við þetta ævintýri allt. Það
þykir pottverjum gleðileg tíðindi
enda maðurinn löngu orðinn þjóð-
hetja með margar tilnefningar til
orðunefndar um að honum verði
veitt fálkaorðan viö fyrsta tæki-
færi...
Menn Ingu Jónu plotta
Árnamálið hefur haft sín áhrif í
pólitíkinni þótt
það sé kannski
ekki með beinum
hætti. Þannig
munu nokkrir
stuðningsmenn
Ingu Jónu Þórð-
ardóttur tfi áfram-
haldandi forustu
fyrir sjálfstæðis-
mönnum í Reykjavík hafa viðrað þá
skoðun í góðum hópi að þó svo að
Björn Bjarnason hafi kannski ekki
borið ábyrgð á Áma Johnsen þá
standi ýmsir angar málsins upp á
menntamálaráðherrann. Það aftur
veiki pólitíska stöðu hans verulega
sem aftur er sagt mæla gegn því að
Björn spreyti sig á þvi að sækjast
eftir forustuhlutverki í borgarstjórn-
arflokki Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík. Segja þessir ágætu sjálf-
stæðismenn því ótækt að Björn fari
að rugga Reykjavíkurbátnum með
því að bjóða sig fram í prófkjöri
gegn sitjandi foringja, Ingu Jónu
Þórðardóttur...
Já, já, nei, nei
I pottinum skoða menn pólitísku
vefina af mikilli.
vandvirkni og
taka gjaman þátt |
í skoðanakönnun-
um sem þar birt-
ast. Pottverjar I
lentu þó i miklum
hrakningum í gær
þegar þeir hugðust ]
taka þátt i at-
kvæðagreiðslu á vef reykvískra
framsóknarmanna, Hriflu. Þar er aö
finna eftirfarandi spurningu: „Er
spillingarmál það sem tengt er Árna
Johnsen eingöngu bundið Árna sem
persónu eða á draga fram ábyrgð
Björns Bjarnasonar menntamála-
ráðherra og Sjálfstæðisflokksins í
málinu?“ Síðan eru gefnir tveir
svarmöguleikar, ,já“ og „nei“. I
pottinum þykja þetta ansi framsókn-
arlegir möguleikar en framsókn var
jú eitt sinn sögð opin í báða enda og
segja , já, já og nei, nei“ við öllum
spurningum. Ekki er ljóst hvort
menn eru að játa því að Ámi beri
ábyrgð eða Bjöm þegar klikkað er
við ,já“-valkostinn, en það virðist
ekki hafa komið í veg fyrir að menn
greiddu atkvæði - og til gamans má
geta þess að 60% hafa sagt já en
40% hafa sagt nei!! ...
Friðjón á förum
Frést hefur í heita pottinum að
einhver hreyfing
kunni að verða á
f sýslumönnum á
næstunni. Þannig
! er því haldið fram
að Friðjón Guð-
röðarson, hinn lit-
skrúðugi sýslumað-
ur Rangæinga, hafi
í hyggju að láta af
störfum um áramótin...