Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2001, Side 23
27
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2001
DV Tilvera
Matt Le Blanc 34 ára
„Ungu“ vinirnir í
samnefndri sjón-
varpsseríu eldast
eins og aðrir og í
dag verður Matt le
Blanc, sem leikur
hinn treggáfaða og
atvinnulausa leik-
ara, Joey, 34 ára. Le
Blanc fæddist í
Massachusetts og er lærður smiður.
Hann komst í sjónvarpið út á útlitið
en hann var og er enn vinsæl ljcs-
myndafyrirsæta. Sambýliskona hans
heitir Melissa McKnight og hann hef-
ur áhuga á fallhlífarstökki,
kappakstri og ljósmyndun.
Stjörnuspá
&
Happatölur
Tvíburarnlr (2
:
Gildir fyrir fimmtudaginn 26. júlí
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.>:
I Þú ert ekki vel upp-
lagður í dag og ættir ef
hægt er að láta öll erf-
ið verkefiii bíða. Þess í
stað ættir þú að gera eitthvað
uppbyggjandi.
Fiskarnlr (19. febr.-20, marsl:
Gamli draumurinn
Iþinn virðist um það bil
að rætast. Þetta verður
á margvíslegan hátt
sérstakur gleðidagur hjá þér.
Happatölur þínar eru 9,13 og 28.
Hrúturlnn (21. mars-19. april):
Upplýsingar sem þú
færð reynast þér
gagnslitlar. Þú verður
að fara á stúfana sjálf-
ur og kynna þér málin ítarlega.
Happatölur þínar eru 14, 18 og 26.
Nautlð (20. apríl-20. maíl:
Þú kemst að því hve
mikilvægt það er að
halda góðu sambandi
við þína nánustu. Fé-
lagslifið er með liflegra móti.
Happatölur þínar eru 3, 12 og 28.
Tvíburarnir (21. maí-2i, iúni):
Þú færð einkennilegar
"fréttir af fjarlægum
vini þínum og þær
gætu valdið þér
áhyggTum sem reynast þó alveg
ástæðulausar.
Krabblnn (22. iúní-22. iúií):
Velgengni þinni virð-
I ast engin takmörk sett.
Allt sem þú tekur þér
fyrir hendur heppnast.
■ ekki laust við að ýmsum
þykir nóg um.
Llónlð (23. iúli- 22. áeúst):
Sérviska þín getur
gengið of langt stund-
um og gert þér erfitt
fyrir á ýmsum sviðum.
Þú þarft að taka ákvörðun án
þess að hugsa þig um.
Mevlan (23. áeúst-22. sept.i:
/w Þú ættir ekki að vera
of langrækinn við vini
j*þína. Það leiðir ekkert
' I af sér nema leiðindi
fyrir alla aðila. Þetta er nokkuð
sem þú ræður vel við.
Vogln (23. sept.-23. okt.l:
S Þú nýtur þess að eiga
Oy stund í ró og næði með
\f fjölskyldunni og sinna
r f eigin hugarefnum.
Vinir þínir koma þér rækilega á
óvart.
Sporðdrekl (24. okt.-21. nóv.l:
Ef þú þarft að skila af
þér ákveðnu verki er
jfyrri hluti dagsins
bestur til þess að Ijúka
þeim málum. Kvöldið ættir þú að
nota í eigin þágu.
Bogamaður (22. nóv.-21, des.l:
.Greinilegt er að þú ert
rá réttri leið varðandi
w stefhu sem þú tókst
i' fyrir nokkru. Von
bráðar ferðu að sjá árangur erfið-
is þins.
Stelngeitln (22. des-19. ian,):
^ * Þú kynnist áhuga-
\æÍ verðri persónu sem á
* JT\ eftir að hafa mikil
áhrif á líf þitt. Bjartari
tímar eru fraundan. Happatölur
eru 6, 9 og 34.
Ætla að vera áberandi
Krakkarnir í Götuleikhúsinu í óöaönn aö æfa fyrir uppákomuna á morgun.
Borgarlífið:
Var úr tísku en
vissi það ekki
Leikarinn John Travolta, sem reis
upp frá dauðum í skemmtibransanum
með kvikmyndinni Pulp Fiction, við-
urkennir að hann hafi ekki gert sér
grein fyrir því hversu „ókúl“ hann
var orðinn. Travolta varð ein af skær-
ustu stjörnum heimsins þegar hann
lék í vinsælum dansmyndum í lok 8.
áratugarins og byrjun þess 9. í viðtali
við breska blaðið Sunday Times segist
hann ekki hafa vitað hversu lágt
stjama hans hafi verið á lofti þegar
hann talaði fyrir lítinn dreng í Look
Who’s Talking. Mótleikkona hans,
Kirstie Alley, lét hafa eftir sér að
hann hefði verið algerlega blindur á
þessa staðreynd. Nú er Travolta hins
vegar kominn á loft á ný og finnst
ekkert skemmtilegra en að leika.
Toyota Rav 4, 4/99,
43.000 km, 5 dyra, ssk.
samlæsingar, rafdr.
rúður., rafdr. speglar,
líknarbelgir og krókur.
Verð 1.890.000.
Bíldshöfða 5 • S. 567-4949
bilahollin.is
Götuleikhúsið með læti
Krakkarnir í götuleikhúsinu
verða með síðustu uppákomu sína í
sumar á Laugavegi í dag. Agnar Pét-
ursson „altmúligmann“ segir að
Götuleikhúsiö sé hópur ungs fólks á
aldrinum sautján til tuttugu og
fimm ára sem vinnur að því tvo
mánuði á ári að skemmta fólki.
„Götuleikhúsiö starfar á vegum
Hins hússins og ÍTR. í sumar störf-
uðu níu manns hjá leikhúsinu auk
leikstjóra. Við vorum t.d. með atriði
17. júní og um daginn klæddum við
okkur upp eins og svartir englar og
ötuðumst i fólk niðri á Laugavegi.“
Agnar segir að í dag ætli Götu-
leikhúsið að vera með allsherjar
húllumhæ á Laugaveginum og alla
leiö niður á Lækjartorg. „Dagskráin
byrjar upp úr tvö og við ætlum að
vera frekar áberandi í búningum og
með læti.“
-Klp
Lunga - listahátíð ungs fólks á Austurlandi
Markmiðið að kveikja neistann
Lunga - listahátíð ungs fólks á Aust-
urlandi, var haldin í annað sinn um síð-
ustu helgi á Seyðisfirði. Að sögn þeirra
sem þátt tóku í hátíðinni heppnaðist
hún fullkomlega þó veðrið hefði mátt
vera betra. Áhugi var mikill og ekki
vantaði fjölbreytnina hjá þátttakendum
sem voru um tvö hundruð talsins. Há-
tíðin, sem er liður í listahátíðinni Á
seyði, hefur að markmiði að kveikja
neistann. Unnið var í hinum ýmsu lista-
smiðjum undir stjórn landskunnra
listamanna. Þátttakendur komu alls
staðar að af landinu og voru nokkru
fleiri en í fyrra. Auk menningarinnar Suörænn dans
voru skemmtamr og yoru hljómsveit- Suðræn/f tónar hljómu0u á
írnar Soldogg og Botnleðja aberandi á _ ___. . , .
beim vettvansi Seyöisfiröi og islenskur dansan
peim vettvangi sýn/r hvaö í honum býr.
Kominn í
afvötnun
Ellirokkbelgirnir í Metallica hafa
þurft að setja upptökur á nýrri plötu á
ís. Ástæðan er skyndileg ákvörðun
hins 38 ára söngvara, James Hetfield,
að leggjast inn á ónefnda afvötnunar-
stöð.
í fréttatilkynningu frá plötufyrir-
tæki sveitarinnar segir að Hetfield
hafi ákveðið að leggjast inn, m.a. til
að losa sig undan áfengisflkn. Lengd
dvalarinnar er ekki ákveðin en er
sögð verða jafn löng og þörf þykir. Á
heimasíðu hljómsveitarinnar er sagt
að öllum skyldum hljómsveitarinnar
hafi verið frestað.
NY NAM
www.ttsi.is
TÖLVUTÆKNISKÓLI
ÍSLANDS
DV-MYNDIR KARÖLÍNA
Veggjakrot
Ungir listamenn fengu tækifæri til aö sýna hæfileika sína.