Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2001, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 2001
DV
29
EI X.
ciisdv.ii - á i .kudegi
Ölfusárbrúin
Verður bráðum innanbæjarbrú.
Ný brú yfir Ölfusá
Tekið hefur verið frá nýtt vega-
stæði rétt ofan við Selfoss sem
mundi beina umferðinni á þjóð-
vegi eitt fram hjá bænum og yfir
nýja brú á Ölfusá gegnt Laugar-
dælum.
„Það eru skiptar skoðanir um
þetta hér í bænum. Þjónustuaðilar
vilja endilega hafa gömlu brúna
áfram enda myndum við missa
stóran hluta af umferðinni úr
bænum ef nýja brúin yrði byggð,“
segir Jón Guðbjörnsson, bæjar-
tæknifræðingur í Árborg. „Þetta
er aðeins liður í þeirri viðleitni að
færa umferð úr þéttbýli en ég er
jafnviss um að þjónustan sem er
hér til staðar myndi elta veginn."
Gamla brúin kæmi þó til með
að standa áfram sem innanbæjar-
brú en sú nýja byggð yfir Ölfusá á
efri eyjunni sem margir kannast
við í ánni.
Kvenlíkami
í San Diego
Súsanna Svavarsdóttir hefur
verið búsett í San Diego í Kali-
fomíu frá því í upphafi árs og
vinnur þar við þýðingar á stór-
virkinu Líffræði kvenllkamans.
Um er að ræða 500 síðna doðr-
ant sem farið hefur sigurför um
heiminn og er nokkurs konar al-
fræðibók um leyndustu kima
kvenlíkamans. Bókin kemur út
um næstu jól á vegum Iðunnar.
Súsanna
Þýðir líkamann.
Óvænt tíska
Selfoss er að
komast í tísku.
Ásókn í lóðir og
kaup á húsnæði á
staðnum er því-
líkt að elstu
menn muna ekki
annað eins:
„Við erum að
komast í tisku,“
sagði aldinn Sel-
fyssingur sem
hálft lífið hefur
reynt að komast
úr bænum og til Reykjavíkur -
án árangurs.
Á fyrstu sex mánuðum þessa
árs fjölgaði Selfyssingum um 61
og er það miklum mun meiri
fjölgim en á sama tíma í fyrra.
Alls bjuggu 4640 fbúar á Selfossi
við síðasta manntal. Þeir eru
fleiri nú og fjölgar.
Selfyssingur
Einn af
mörgum.
Leiðrétting
Ekki er rétt að nakta veðurfrétta-
konan hér til hliðar komi störfum
Alþingis á nokkurn hátt við. Allar
tilraunir til að bendla þetta tvennt
saman ber aö harma.
-EIR A MIÐVIKUDEGI
Mæðrastyrksnefnd og Hjálparstarf kirkjunnar í sumarfríi:
Neyðaróp að sumri
- skjólstæðingar lepja hjálparlaust dauðann úr skel
Helstu stoðir og styttur þeirra
sem minna mega sín í samfélaginu
eru í sumarfríi samtímis þannig að
skjólstæöingar þeirra lepja hjálpar-
laust dauðann úr skel á meðan. Eða
svo segja þeir sjálfir og kvarta sár-
an yfir þvl að Mæðrastyrksnefnd og
Mæðrastyrksnefnd
- að vetri.
félaginu sé svo slæmt sem raun ber
vitni. Við reynum þó að sinna neyðar-
tilvikum og erum alltaf að því,“ segir
Ásgerður og gefur upp farsíma sinn
sem er 897 1016. Þar svarar Ásgerður
þegar allt um þrýtur hjá öðrum.
Mæðrastyrksnefnd
- að sumri.
Hjálparstarf kirkjunnar skuli loka
dyrum sínum samtímis yfir sumar-
tímann.
Sumarið sem helvíti
„Ég er með 90 þúsund krónur á mán-
uði og þarf að greiða 70 þúsund í húsa-
leigu. Þá á ég eftir að borga barnapöss-
un og lifa fyrir afganginn. Ég get þetta
ekki hjálparlaust," segir tveggja barna
einstæð móðir sem reitt hefur sig á
Mæðrastyrksnefnd og Hjálparstarf
kirkjunnar. Sumarið er henni sem hel-
víti:
„Sá tími sem veitir flestum gleði
nema mér og öðrum sem eru i mínum
sporum," segir móðirin sem ein fárra
hlakkar til vetrarins. Þá getur hún
fengið vetrarhjálp. Sumarhjálpin liggur
hins vegar ekki á lausu.
Hjálparstarf kirkjunnar verður opn-
að aftur 7. ágúst en MæðrastyrksneM
lokaði í byrjun júlí og hefur ekki starf
að nýju fyrr en 12. september. Ásgerð-
ur Flosadóttir, formaður nefndarinnar,
stendur þó neyðarvaktina:
„Starf okkar er unniö í sjálfboða-
vinnu sem frægt er og við verðum að fá
okkar frí eins og aðrir. En það er að
sjálfsögðu mjög leitt að ástandið í sam-
Brauðbiti á atómöid
Þó svo að Mæðrastyrksnefnd sé í
raun orðin hluti af þeim úrræðum sem
opinberir aðilar beita í samfélagshjálp
hefur konunum 1 Mæðrastyrksnefnd
ekki tekist að fá framlög ríkisins til
nefndarinnar hækkuð. Mæðrastyrks-
nefnd fær nú 400 þúsund krónur á ári f
opinberan styrk og fátt bendir til þess
að það framlag verði aukið á næstunni.
Nefndinni hefur þó tekist að ná samn-
ingum við Mjólkursamsöluna, Myllu-
brauð og Ömmubakstur sem láta brot
af framleiðsluvörum sínum renna til
þeirra sem eru í neyð. Við hveija út-
hlutun er biðröð langt út úr dyrum hjá
Mæðrastyrksnefnd þar sem fólk stend-
ur i von um að fá í það minnsta jógúrt,
mjólk og brauðbita í Reykjavík i upp-
hafi 21. aldar.
Stefán Axel dv^ynd e.ól.
Skálar í ódýrasta bjór á íslandi í hjarta Reykjavíkur.
Áfengi á
„Við seldum hundrað þúsund
lítra af bjór í fyrra og það gerir okk-
ur kleift að hafa verðið svona lágt,“
segir Stefán Axel Stefánsson, veit-
ingamaður í Nelly’s á horni Banka-
strætis og Þingholtsstrætis sem sel-
ur hálfpott af bjór á 250 krónur.
Samkeppnisaðilar hans bjóða sama
magn af bjór á 500 krónur. „Við
erum stórir í innkaupum, seljum
meira magn og lækkum eigin álagn-
ingu. Þetta er hægt ef menn vilja og
geta.“
Auk Nelly’s rekur Stefán Axel
Þjóðleikhúskjallarann, Jóa risa í
hálfvirði
Breiðholtinu og Rauða ljónið á Sel-
tjarnarnesi. Han kaupir inn fyrir
alla staðina samtímis og keyrir
verðið svo niður á Nelly’s, viö-
skiptavinum til mikillar ánægju.
Erlendir farandverkamenn eru
áberandi í gestahópnum á Nelly’s
enda eini staðurinn á íslandi sem
býður þann daglega mjöð sem þeir
eru vanir að innbyrða á verði sem
þeir kannast við úr heimahögum
sínum. Á Nelly’s tala menn pólsku
og júgóslavnesku í bland við ís-
lensku og andrúmsloftið alþjóðlegt.
Verðið líka.
Háttar í hita
Sjónvarpssstöðin
PoppTíví hefur kom-
ið sér upp veður-
stofu og fengið
ljósku úr Hafnar-
firði til að flytja
fréttimar. Veður-
fréttirnar eru í þætt-
inum 70 mínútur og
eru í boði Tuborg-
bjórfyrirtækisins.
Það er Margrét Hild-
ur Guðmundsdóttir
sem flytur áhorfend-
um veðurfréttirnar
og klæðir sig eftir .........
veðri. Er stefnt af því að ef verði
mjög heitt í veðri þá fari Margrét
Hildur úr að ofan. Ef verður ofsa-
Veöurfréttakonan
Margrét Hildur hélt sig í hlýra-
bolnum í fyrsta þætti enda veð-
ur aðeins skaplegt.
heitt fer hún úr öllu.
Eða þaö er stefna
sjónvarpsstöðvar-
innar sem vonast
eftir auknu áhorfi
fyrir bragðið. í
fyrsta veðurfrétta-
tíma Margrétar
Hildar var hitastigið
10-15 stig þannig að
hún hélt sig í hlýra-
bol og háttaði
hvergi.
Margrét Hildur er
dóttir Guðmundar
Árna Stefánssonar,
fyrrum heilbrigðisráðherra, bæjar-
stjóra og núverandi varaforseta Al-
þingis.
Kom, sá og sigraði á Landsmóti ungmennafélaganna: t
Stafsetningarkóngurinn
- klikkaði á sjöundadagsaðventistum
Stefán Jónsson gerði
sér lítið fyrir og skundaði
á Landsmót ungmennafé-
laganna á Egilsstöðum og
sigraði í stafsetningar-
keppninni sem var geysi-
hörð. Stefán, sem er á þrí-
tugsaldri, hefur ekki
áður tekið virkan þátt í
starfi ungmennafélag-
anna en stóðst ekki mátið
þegar hann frétti af staf-
setningarkeppninni enda
þaulvanur prófarkalesari þó hann
starfi sem forritari núna.
„Þama voru um 30 keppendur og
sýndist mér kynjaskiptingin vera jöfn.
Prófið var býsna strembið en ég sigraði
þó með 46 stigum af 50 mögulegum,”
sagði Stefán þegar hann sneri aftur til
höfuðborgarinnar með gullmedaliu um
hálsinn.
- Á hveiju klikkaðir
„Ég fékk ekki að sjá
úrlausnina en ég veit að
mér brást bogalistin
þegar skrifa átti sjö-
undadagsaðventistar.
Ég skrifaði það í þremur
oröum en það á að vera
í einu.“
- En á ekki að vera
stórt ess í upphafinu?
„Nei, ekki frekar en í gyðingur eða ^
indíáni.”
Stafsetningarkeppnin á Landsmóti
ungmennafélaganna tók klukkustund
en það var hópur húsmæðra af Suður-
landi sem veitti Stefáni harðasta
keppni. En tókst ekki að leggja hann.
Stefán stafsetningarkóngur
46 stig af 50 mögulegum.
Útsalan öll dv-myno e.ól .
Útsölunni er lokiö og eftir standa ginurnar naktar. Heima situr fólkið í
fötunum.