Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2001, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2001, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 DV 9 Fréttir Sunnlenskir bændur uggandi um framtíð á sölu afurða sinna: Lengja þarf sláturtíðina segir Elvar Eyvindsson á Skíðbakka „Bændur á Suðurlandi og víðar eru í óvissu íyrir haustið með innlegg á sláturfé eftir að ákveðið var að hætta að slátra í sláturhúsum Goða í Þykkva- bæ og víðar. Enn er ekki vitað hvort Sláturfélag Suðurlands getur tekið við þessari aukningu á sláturfé á Suður- landi. Að vísu hefur Sláturfélagið oft vantað kjöt þegar kemur fram á sum- arið og hefúr þá keypt kjöt af öðrum framleiðendum. Goði rak sauðfjárslát- urhús í Þykkvabæ þar sem slátrað var á milli 20 og 30 þúsund dilkum í haust- slátrun. Á Hellu rak Goði sláturhús fyrir stórgripi. Elvar Eyvindsson á Skíðbakka í Landeyjum telur að bænd- ur verði að bregðast við þessum breyttu aðstæðum, meðal annars með því að lengja sláturtíðina. „Ég held að menn hafi verið óþarf- lega tregir til að lengja sláturtíðina, það á að vera hægt að lengja hana um allt að tvo mánuði en það kostar auð- vitað ákveðnar tilfæringar og breyting- ar á sauðburðartíma," sagði Elvar. Varðandi sláturtíð á komandi hausti er hann uggandi, telur að erfitt sé að koma öllu fé til slátrunar hjá Sláturfé- laginu þar sem svo langt er liðið á sumarið og menn voru ekki undir Allt lokaö. Slðturhúsið á Hellu er nú aðeins spegilmynd í Rangánni. breytingamar búnir. En hvað er til ráða, fara menn út í að slátra sínu fé heima? „Nei, ég held ekki en eitthvað verða menn að gera. Ég er ekki viss um að bændur verði tilbúnir að leggja inn hjá Goða eins og staðan er. Ég veit ekki hverjir eru tilbúnir til að taká allt það fé sem bændur sitja nú uppi með, enda er ekki um aðra að ræða en Slát- urfélag Suðurlands hér á svæðinu. Lík- lega verður slátrað á Höfn en síðan er ekki um aðra sláturleyfishafa að ræða fyrr en norður í landi. Mér flnnst að sauðfjárbændur ættu að reyna að ná húsinu í Þykkvabæ og slátra sínu fé þar sjálflr," sagði Elvar. Vantar fjárfesta fáist húsið keypt Elvar segir að með lokun stórgripa- sláturhússins á Hellu hafi menn lent í biðstöðu með innlegg á nautum. Slát- urfélag Suðurlands hafl hingað tO ekki getað tekið á móti nautgripum frá bændum umfram það sem nú er. Hann hefur ásamt fleiri bændum hreyft þeirri hugmynd að reyna að fá slátur- húsið keypt. „Ef húsið fæst á skikkan- legu verði, svo að verði hægt að reka það, og ef hægt verður að byrja fljót- lega áður en allt starfsfólk- ið er farið út og suður á það að geta gengið," sagði Elvar. Hann vonast til að bændur komi til með að vilja taka þátt i kaup- unum en neitar því ekki að horft sé til stærri fjárfesta. Bún- Nýjr slökkvibíl: Yfirbyggður á Ólafsfirði Nýr slökkviliðsbíll var afhentur við formlega athöfn í Gmndarflrði á dög- unum. Upphaflega stóð til að bíllinn kæmi í nóvember árið 2000 en fljótt varð ljóst að Brimborg gat ekki afhent bílinn á tilskildum tima til fyrirtækis Sigurjóns Magnússonar á Ólafsfirði, sem byggði yflr bílinn og gekk endan- lega frá honum fyrir afhendingu. Síðar varð ljóst að ekki var hægt að afhenda bílinn fyrr en vorið 2001 í fyrsta lagi. Að sögn Bjargar Ágústs- dóttur, sveitarstjóra Eyrarsveitar, hef- ur svo afhendingin tafist enn frekar vegna ýmissa hluta sem óskað hefur verið eftir að fá aukalega á bílinn. -GG Sólarfilma á glugga - þegar sólin angrar Helgi Snorrason s: 863 5757 helgisn@binet.is DV-MYNDIR NJORÐUR HELGASON. Elvar Eyvindsson, bóndi á Skíöbakka. aðarbankinn hefur nýlega eignast stæsta hlutann í Reykjagarði á Hellu og Elvar telur ekki óeðlilegt að fjárfest- ar fáist til að taka þátt í kaupum á slát- urhúsinu á Heliu. „Ég trúi ekki öðra en hægt sé að reka sláturhús hér á þessu svæði, þar sem em 40% af kún- um í landinu, og flest stæstu búin,“ sagði Elvar Eyvindsson. -NH Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands: Getum tekið á móti öllu sauðfé af svæðinu Steinþór Skúlason. „Það verður ekkert vandamál fyrir Sláturfé- lag Suðurlands að taka á móti því fé sem hefur ver- ið slátrað 1 Þykkvabæ ef við lengjum sláturtímann. Það má þó segja að um miöbik venjulegrar slátur- tíðar hefur húsið á Sel- fossi verið fullnýtt," sagði Steinþór Skúlason, for- stjóri SS. Fyrirtækið hef- ur nýlega kynnt bændum um 7% hækkum á innleggsverði í haust á meðan Goði boðaði lækkun. Að sögn Steinþórs hefur verið sent út frétta- bréf til innleggjenda á svæði SS þar sem kynntar em yfirborganir og greiðslufyrirkomulag fyrirtækisins til bænda í komandi sláturtið. „Það er ekkert vandamál fyrir okk- ur að slátra allt að 50% meira en við gerðum í fyrra, það á eftir að koma í ljós hvort bændur taka við sér og panta nógu tímanlega fyrir slátrun- ina, það koma fljótt til með að fyllast margar sláturvikur yfir megintímann. En það er mikið hringt til okkar og spurt um okkar kjör,“ sagði Steinþór. Steinþór Skúlason segir að ef bændur nýti sér lengri slátur- tíma eigi SS að geta tekið á móti allt að 50 þúsundum dilk- um til viðbótar því sem slátrað var síðastliðið ár, þegar slátrað var rúmlega 60 þúsund fjár. Steinþór segir að ekki komi til greina fyrir SS að fara að byggja upp fleiri sláturstöðvar. „Vandamálið í sauð- fjárslátruninni er að einingamar hafa verið nýttar í allt of stuttan tíma, við höfum sagt að það sé ekki rekstrargrundvöllur nema verið sé að slátra í að minnsta kosti þrjá mán- uði í þessum húsum, þannig að þetta fer nánast í það far hjá okkur með þeim breytingum sem nú verða. Hvorki viö né aðrir láta sér detta í hug að byggja ný sláturhús, afkoman í þessu leyfir það nú ekki,“ sagði Steinþór. NautaKjötsmarkaður fullnýttur Varðandi aðra slátrun á Selfossi en sauðfjárslátrun segir Steinþór að hægt sé að taka við fleiri svínum til slátmn- ar, eftirspum eftir hrossakjöti sé þokkaleg til útflutnings. „Vandinn er fyrst og fremst í ungneytum, þar er það frekar spuming um söluleiðir en sláturgetu. Við getum slátrað töluvert meira. I dag erum við að slátra um 100 nautgripum á viku. Framboðið hefur vaxið mikið á síðastliðnum árum. Þannig að það hefur verið bið eftir ungnautaslátrun hjá okkur en annars staðar er lítil bið í þeim geira slátrun- arinnar svo þetta er að færast til betri vegar og jafnar sig á einhveijum tíma. En eins og staðan er í dag komum við ekki til með að geta tekið á móti fleirri nautum til slátrunar umfram það sem nú er,“ sagði Steinþór Skúlason, for- stjóri Sláturfélags Suðurlands. -NH tilboð tilboð á notuöum vélum og tækjum Mikill afsláttur Gjalddagi 10. mars 2002 Ingvar Helgason hf. Sævarshöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is M. BENZ E 220, ARG. 1993, ek. 100 þús., ssk., ABS, topplúga, þjófavörn, álfelgur, dráttarkrókur og fl. Ásett verð 1.490.000. Bíldshöfða 5 • S. 567-4949 bilahollin.is ■ íSMIffi líO - alls staðarl! ■ wMWW&Wf'WW 'W SLYSflVfiRNflFÉLflGIÐ LflNDSBJÖRG I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.