Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2001, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001
DV
9
Fréttir
Sunnlenskir bændur uggandi um framtíð á sölu afurða sinna:
Lengja þarf sláturtíðina
segir Elvar Eyvindsson á Skíðbakka
„Bændur á Suðurlandi og víðar eru
í óvissu íyrir haustið með innlegg á
sláturfé eftir að ákveðið var að hætta
að slátra í sláturhúsum Goða í Þykkva-
bæ og víðar. Enn er ekki vitað hvort
Sláturfélag Suðurlands getur tekið við
þessari aukningu á sláturfé á Suður-
landi. Að vísu hefur Sláturfélagið oft
vantað kjöt þegar kemur fram á sum-
arið og hefúr þá keypt kjöt af öðrum
framleiðendum. Goði rak sauðfjárslát-
urhús í Þykkvabæ þar sem slátrað var
á milli 20 og 30 þúsund dilkum í haust-
slátrun. Á Hellu rak Goði sláturhús
fyrir stórgripi. Elvar Eyvindsson á
Skíðbakka í Landeyjum telur að bænd-
ur verði að bregðast við þessum
breyttu aðstæðum, meðal annars með
því að lengja sláturtíðina.
„Ég held að menn hafi verið óþarf-
lega tregir til að lengja sláturtíðina,
það á að vera hægt að lengja hana um
allt að tvo mánuði en það kostar auð-
vitað ákveðnar tilfæringar og breyting-
ar á sauðburðartíma," sagði Elvar.
Varðandi sláturtíð á komandi hausti
er hann uggandi, telur að erfitt sé að
koma öllu fé til slátrunar hjá Sláturfé-
laginu þar sem svo langt er liðið á
sumarið og menn voru ekki undir
Allt lokaö.
Slðturhúsið á Hellu er nú aðeins spegilmynd í Rangánni.
breytingamar búnir. En hvað er til
ráða, fara menn út í að slátra sínu fé
heima? „Nei, ég held ekki en eitthvað
verða menn að gera. Ég er ekki viss
um að bændur verði tilbúnir að leggja
inn hjá Goða eins og staðan er. Ég veit
ekki hverjir eru tilbúnir til að taká allt
það fé sem bændur sitja nú uppi með,
enda er ekki um aðra að ræða en Slát-
urfélag Suðurlands hér á svæðinu. Lík-
lega verður slátrað á Höfn en síðan er
ekki um aðra sláturleyfishafa að ræða
fyrr en norður í landi. Mér flnnst að
sauðfjárbændur ættu að reyna að ná
húsinu í Þykkvabæ og slátra sínu fé
þar sjálflr," sagði Elvar.
Vantar fjárfesta fáist
húsið keypt
Elvar segir að með lokun stórgripa-
sláturhússins á Hellu hafi menn lent í
biðstöðu með innlegg á nautum. Slát-
urfélag Suðurlands hafl hingað tO ekki
getað tekið á móti nautgripum frá
bændum umfram það sem nú er. Hann
hefur ásamt fleiri bændum hreyft
þeirri hugmynd að reyna að fá slátur-
húsið keypt. „Ef húsið fæst á skikkan-
legu verði, svo að verði hægt að reka
það, og ef hægt verður að byrja fljót-
lega áður en
allt starfsfólk-
ið er farið út
og suður á
það að geta
gengið,"
sagði Elvar.
Hann vonast
til að bændur
komi til með
að vilja taka
þátt i kaup-
unum en
neitar því
ekki að horft
sé til stærri
fjárfesta. Bún-
Nýjr slökkvibíl:
Yfirbyggður
á Ólafsfirði
Nýr slökkviliðsbíll var afhentur við
formlega athöfn í Gmndarflrði á dög-
unum. Upphaflega stóð til að bíllinn
kæmi í nóvember árið 2000 en fljótt
varð ljóst að Brimborg gat ekki afhent
bílinn á tilskildum tima til fyrirtækis
Sigurjóns Magnússonar á Ólafsfirði,
sem byggði yflr bílinn og gekk endan-
lega frá honum fyrir afhendingu.
Síðar varð ljóst að ekki var hægt að
afhenda bílinn fyrr en vorið 2001 í
fyrsta lagi. Að sögn Bjargar Ágústs-
dóttur, sveitarstjóra Eyrarsveitar, hef-
ur svo afhendingin tafist enn frekar
vegna ýmissa hluta sem óskað hefur
verið eftir að fá aukalega á bílinn. -GG
Sólarfilma á glugga
- þegar sólin angrar
Helgi Snorrason
s: 863 5757 helgisn@binet.is
DV-MYNDIR NJORÐUR HELGASON.
Elvar Eyvindsson, bóndi á Skíöbakka.
aðarbankinn hefur nýlega eignast
stæsta hlutann í Reykjagarði á Hellu
og Elvar telur ekki óeðlilegt að fjárfest-
ar fáist til að taka þátt í kaupum á slát-
urhúsinu á Heliu. „Ég trúi ekki öðra
en hægt sé að reka sláturhús hér á
þessu svæði, þar sem em 40% af kún-
um í landinu, og flest stæstu búin,“
sagði Elvar Eyvindsson. -NH
Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands:
Getum tekið á móti
öllu sauðfé af svæðinu
Steinþór
Skúlason.
„Það verður ekkert
vandamál fyrir Sláturfé-
lag Suðurlands að taka á
móti því fé sem hefur ver-
ið slátrað 1 Þykkvabæ ef
við lengjum sláturtímann.
Það má þó segja að um
miöbik venjulegrar slátur-
tíðar hefur húsið á Sel-
fossi verið fullnýtt," sagði
Steinþór Skúlason, for-
stjóri SS. Fyrirtækið hef-
ur nýlega kynnt bændum um 7%
hækkum á innleggsverði í haust á
meðan Goði boðaði lækkun. Að sögn
Steinþórs hefur verið sent út frétta-
bréf til innleggjenda á svæði SS þar
sem kynntar em yfirborganir og
greiðslufyrirkomulag fyrirtækisins
til bænda í komandi sláturtið.
„Það er ekkert vandamál fyrir okk-
ur að slátra allt að 50% meira en við
gerðum í fyrra, það á eftir að koma í
ljós hvort bændur taka við sér og
panta nógu tímanlega fyrir slátrun-
ina, það koma fljótt til með að
fyllast margar sláturvikur yfir
megintímann. En það er mikið
hringt til okkar og spurt um
okkar kjör,“ sagði Steinþór.
Steinþór Skúlason segir að ef
bændur nýti sér lengri slátur-
tíma eigi SS að geta tekið á
móti allt að 50 þúsundum dilk-
um til viðbótar því sem slátrað
var síðastliðið ár, þegar slátrað
var rúmlega 60 þúsund fjár.
Steinþór segir að ekki komi til greina
fyrir SS að fara að byggja upp fleiri
sláturstöðvar. „Vandamálið í sauð-
fjárslátruninni er að einingamar
hafa verið nýttar í allt of stuttan
tíma, við höfum sagt að það sé ekki
rekstrargrundvöllur nema verið sé
að slátra í að minnsta kosti þrjá mán-
uði í þessum húsum, þannig að þetta
fer nánast í það far hjá okkur með
þeim breytingum sem nú verða.
Hvorki viö né aðrir láta sér detta í
hug að byggja ný sláturhús, afkoman
í þessu leyfir það nú ekki,“ sagði
Steinþór.
NautaKjötsmarkaður fullnýttur
Varðandi aðra slátrun á Selfossi en
sauðfjárslátrun segir Steinþór að hægt
sé að taka við fleiri svínum til slátmn-
ar, eftirspum eftir hrossakjöti sé
þokkaleg til útflutnings. „Vandinn er
fyrst og fremst í ungneytum, þar er
það frekar spuming um söluleiðir en
sláturgetu. Við getum slátrað töluvert
meira. I dag erum við að slátra um 100
nautgripum á viku. Framboðið hefur
vaxið mikið á síðastliðnum árum.
Þannig að það hefur verið bið eftir
ungnautaslátrun hjá okkur en annars
staðar er lítil bið í þeim geira slátrun-
arinnar svo þetta er að færast til betri
vegar og jafnar sig á einhveijum tíma.
En eins og staðan er í dag komum við
ekki til með að geta tekið á móti fleirri
nautum til slátrunar umfram það sem
nú er,“ sagði Steinþór Skúlason, for-
stjóri Sláturfélags Suðurlands. -NH
tilboð tilboð
á notuöum vélum og tækjum
Mikill afsláttur
Gjalddagi
10. mars 2002
Ingvar
Helgason hf.
Sævarshöfða 2
Sími 525 8000
www.ih.is
M. BENZ E 220, ARG.
1993, ek. 100 þús.,
ssk., ABS, topplúga,
þjófavörn, álfelgur,
dráttarkrókur og fl.
Ásett verð
1.490.000.
Bíldshöfða 5 • S. 567-4949
bilahollin.is
■
íSMIffi líO
- alls staðarl!
■
wMWW&Wf'WW 'W
SLYSflVfiRNflFÉLflGIÐ
LflNDSBJÖRG
I