Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2001, Side 10
10
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001
1>V
Taliö er að Kim Jung-il ferðist með
lest vegna flughræðslu.
Heldur sig
í lestinni
Kim Jong-il, leiðtogi Norður-
Kóreu, kom ekki út úr lestinni til
þess að heilsa ekkju Yakov
Novichenko, manns sem sagður er
hafa bjargað lífl föður hans, Kim II
Sung. Hin áttatíu ára gamla ekkja,
Maria Novichenko, er sögð hafa
staðið á brautarpallinum i síberíska
þorpinu Novosibrisk ásamt fimm
börnum sínum.
í stað þess að koma út og hitta
hana sendi Kim fulltrúa sinn með
ferðatösku fulla af gjöfum með þeim
skilaboðum um að leiðtoginn myndi
hitta þau á leiðinni til baka.
Ljósmyndurum er ekki hleypt að
Kim nema úr fylgdarliði hans og
eru þær myndavélar sagðar vera
Nikon-vélar sem ættu heima á safni.
Volvo kveikir
losta margra
Samkvæmt skoðanakönnun sem
framkvæmd var af breska vefmiðl-
inum Yell.com er Volvo vinsælasti
bíllinn til að stunda kynlíf í.
Yell.com, nethliðstæða Gulu sið-
anna, hringdi í 1000 einstaklinga
sem svöruðu spurningum um kynlif
í bílum.
Niðurstaðan var sú að Volvo var
vinsælastur þar sem 6 af hverjum 10
höfðu stundað kynlíf í bílnum sin-
um. Lægsta tíðnin var hins vegar í
Fiat-bifreiðum þar sem aðeins 2 af 10
höfðu prófað bílinn í annað en sem
hefðbundna sjálfrennireið. Ekki
skemmir svartur litur fyrir lostan-
um á meðan hvítur gengur engan
veginn. Niðurstaðan er kannski að
öryggi Volvo gengur i fleira en akst-
Rauði ormurinn nýtti sérgalla í vef-
þjónahugbúnaði frá Microsoft.
Rauði ormurinn
ekki skæður
Svo virðist sem tölvuormurinn
Rauði ormurinn hafi ekki valdið
þeim vandræðum sem margir voru
búnir að búa sig undir. Talið var að
ormurinn, sem nýtir sér veikleika í
veíþjónahugbúnaði frá Microsoft,
myndi hægja verulega á netumferð
en valda litlu öðru tjóni.
Ormurinn átti að láta kræla á sér
í dag og hefði það komið fram á
stærstu netmiðlum heimsins eins
og t.d. Yahoo.com. Engin breyting á
umferðarhraða Netsins hefur hins
vegar mælst.
_ Eldflaugaárás
ísraela fordæmd
Bandarísk stjórnvöld fordæmdu í
gær eldflaugaárás ísraelshers á
byggingu Hamas-samtakanna á
Gaza-svæðinu í gær, þar sem átta
manns létu lífið. Árásin var einnig
fordæmd af sendimanni Sameinuðu
þjóðanna fyrir botni Miðjarðarhafs
sem og stjórnvöldum víða um heim.
í yflrlýsingu frá ráðuneyti Ariels
Sharons, forsætisráðherra ísrael,
var árásin réttlætt með því að með-
limir Hamas-samtakanna hefðu ver-
ið að skipuleggja frekari hermdar-
verk gegn ísrael.
Starfandi talsmaður bandaríska
utanríkisráðuneytisins, Charles
Hunter, sagði í yfirlýsingu að
Bandaríkjastjóm væri andsnúin
skipulögðum árásum á skotmörk.
Hunter sagði að árásin hefði verið
gróf og verulega ögrandi og væri
alls ekki til þess gerð að auka líkur
á friði fyrir botni Miðjarðarhafs.
Haft var eftir öðrum starfsmanni
utanríkisráðuneytisins að banda-
Fórnariamb sprengjuárásar
Palestínumaður flytur hér særða
konu eftir árásina í gær.
rísk stjórnvöld skildu enn ekki til-
ganginn með árásinni.
Meðal þeirra sem féllu í árásinni
voru tveir háttsettir leiðtogar innan
Hamas. Talsmaður Hamas sagði
hvorugan leiðtogan tengjast vopn-
aðri baráttu samtakanna heldur
hafi þeir starfað í stjómmálaarmi
þeirra. Tveir bræður, átta og flmm
ára, létust einnig í árásinni. Sam-
kvæmt vitnum léku þeir sér fyrir
utan byggingu Hamas á meðan þeir
biðu eftir föður sínum sem staddur
var inni í henni. Talsmaður Shar-
ons, Raanan Gissin, harmaði fall
saklausra borgara. Hann sagði hins
vegar möguleika á að drengirnir
hafl verið notaðir sem „mannlegir
skildir“.
í hefndarskyni fyrir eldflauga-
árásina var skotið á fimm ísraelska
landnema þar sem ein kona særðist
alvarlega. Þá féllu tveir Palestínu-
menn í skotbardaga við ísraelska
hermenn.
Dæmdir til dauða
Palestínumenn bíða dómsuppkvaðningar yfir sér í palestínskum rétti. Þrír menn voru fundnir sekir um landráð og
dæmdir til dauða stuttu síðar fyrir að hafa aðstoöað ísraelsmenn með upplýsingum þegar háttsettur maður innan
Fatah-hreyfíngar Yassers Arafats, leiðtoga Palestínuamanna, var myrtur.
Synir Saddams undir-
búa sig fyrir uppgjör
Margt bendir til þess að uppgjör
sé yfirvofandi í framtíðinni milli
Udays og Qusays, sona Saddams
Husseins íraksforseta. Fregnir
herma að Uday hafl snúist til shíta-
trúar. Það hefur mikla pólitíska
merkingu. 60 prósent íbúa íraks eru
shítatrúar en afgangurinn er
sunnitar. Shítar eru þó litnir hom-
auga af valdamönnum í írak, vegna
tengslanna við shítaríkið íran. Árið
1991 lét Saddam Hussein berja niður
uppreisn shítamúslima af mikilli
hörku. Skiptinginu milli shíta-
múslima og sunníta má rekja aftur
til upphafs íslamstrúar en megin-
hluti múhameðstrúarmanna eru
sunnítar.
Qusay er talinn vera næsti arf-
taki Saddams föðurs síns. Hann var
nýlega útnefndur næstráðandi yfir
Saddam Hussein
Uday, sonur hans, hefur skipt um
trú og ætlar sér stuðning fólksins.
hersveit Baath-flokksins, flokks
Saddams. Á sama tíma og Qusay
hafa verið veittar auknar vegtillur
hefur stjarna Udays dofnað. Hann
er sá maður sem írakar óttast hvað
mest. Stjórnarandstöðuhópar segja
hann fjöldamorðingja og nauðgara.
Talið er að ákvörðun Udays um
að skipta um trú sé liður í að
styrkja stöðu hans andspænis
Qusay. Þannig hafl hann á bak við
sig 60 prósent landsmanna ef til
uppgjörs kemur. Upp á síðkastið
hefur Uday gælt við shíta í dagblaði
sínu, Babil. Þar hefur hann birt út-
drætti úr bókmenntum shíta og
dregið taum þeirra í blaðagreinum
með því að gagnrýna trúaryfirvöld.
Óttast er að ef til uppgjörs komi
milli bræðranna geti það orðið til
þess að þjóðin klofni í tvennt.
Farrakhan til Bretlands
Louis Farrakhan,
leiðtogi Svörtu
múslimanna, hyggst
heimsækja Bretland
í haust. I vikunni
aflétti dómstóll 15
ára banni við ferða-
lögum hans til Bret-
lands. Ríkisstjórn
landsins og gyðingasamfélaginu líst
illa á úrskurðinn.
Fiskimenn sprengdu sig
Tveir kambódískir fiskimenn
sprengdu sig óvart upp með hand-
sprengju í gær. Slysið varð þegar
mennirnir ætluðu að varpa sprengj-
unni í stöðuvatn til að afla fiskjar.
Meira framboð er af vopnum en mat
á mörgum svæðum í Kambódíu.
Vægur dómur í Haag
Bosníuserbi fékk 10 ára fangelsis-
dóm frá Stríðsglæpadómstólnum í
Haag í gær. Hann var sekur um
morð, pyntingar og nauðganir á
múslimum. Það hjálpaði honum að
vera samvinnuþýður dómstólnum.
Flugnemi í villu
50 ára gamall flugnemi í Flórída
endaði æfingaflug með brotlendingu
á strönd Kúbu. Hann átti að fljúga
einn hring í kringum flugvöll og
lenda svo en þorði ekki að lenda vél-
inni.
Ristu staf á bringu konu
Tveir hvítir kynþáttahatarar í
Suður-Afríku réðust á konu og ristu
bókstaf á bringu hennar. Konan er
búðareigandi og eru flestir við-
skiptavinirnir svartir á hörund.
Bauð afsögn
Indverski
forsætisráðherrann
Atal Behari Vajpa-
yee bauð þingflokki
sínum afsögn í gær
vegna fjölda hneyksl-
ismála sem hafa rið-
ið yfir hann. Flokk-
urinn vísaði afsögn-
inni á bug.
SMS-barn í Noregi
Dagblaðið Verdens Gang greinir í
dag frá fyrsta SMS-barninu í Nor-
egi. 29 ára gamall maður sendi smá-
skilaboð á óþekkt símanúmer og
spurði: „Hver ert þú? Hvaðan ertu?“
Tvítug stúlka svaraði og afrakstur-
inn var barn.
samræður
Tony Blair, for-
sætisráðherra Bret-
lands, hittir á morg-
un Fernando de La
Rua, forseta Argent-
ínu. Þeir munu eiga
sögulegar viðræður.
Tæp 20 ár eru frá
stríði Argentínu-
manna og Breta um Falklandseyjar.
Löggur fá raflostsbyssur
Scotland Yard segir að breska lög-
reglan muni líklega fá raflostsbyss-
ur í stað alvöru byssna, jafnvel fyr-
ir lok þessa árs. Lögreglan hefur
undanfarið verið harðlega gagnrýnd
fyrir að skjóta menn til bana.
Sporðdrekakona úr búrinu
Malasisk kona sem hefur dvalist í
12 fermetra búri með 2700 sporð-
drekum í mánuð kom út úr búrinu
í gær. Hún sló malasískt met.
Sogulegar