Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2001, Side 22
26
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
.ara
90 ára______________________________
Geir Guðmundur Jónsson,
Aflagranda 40, Reykjavík.
85 ára______________________________
Bjami Þórlindsson,
Árskógum 26b, Egilsstööum.
Stefán T. Hjaltalín,
Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfiröi.
80 ára______________________________
Ágúst Guðbrandsson,
íragerði 10, Stokkseyri.
Benedikt Þ. Hjarðar,
Miögaröi 6, Egilsstööum.
Halldór M. Ólafsson,
Flatahrauni 16a, Hafnarfiröi.
Páll Lárusson Rist,
Litla-Hóli, Eyjaf.
75 ára______________________________
Jórunn Ferdinandsdóttir,
Ásgeröi 4, Reyðarfiröi.
Kjeld Olav M. Nielsen,
lönbúö 3, Garöabæ.
Stefán Þórarinsson,
Höföabrekku 15, Húsavík.
Sveinn Jósefsson,
Laugavegi 145, Reykjavík.
70 ára______________________________
Guðrún Danelíusdóttir,
Gullsmára 11, Kópavogi
Sigurður Gunnarsson,
Bjarnastöðum, Árnessýslu.
60 ára______________________________
Guðjón Jónasson,
Jóruseli 26, Reykjavík.
Hjördís Ólafsdóttir,
Skólabraut 5, Seltjarnarnesi.
Margrét Dóra Kristinsdóttir,
Snægili 5, Akureyri.
Oleg Ninni Mileris,
Skálagerði 5, Reykjavík.
50 ára______________________________
Baldur Baldursson,
Logafold 82, Reykjavík.
Daði Guðjónsson,
Vitabraut 3, Hólmavík.
Guðmundur Valtýsson,
Eiriksstööum, A.-Húnavatnss.
Jón Reynlr Svavarsson,
Goöatúni 5, Garöabæ.
Magnús Kjartansson,
Garðastræti 39, Reykjavík.
Ragnar Helgi Halldórsson,
Gónhóli 30, Njarðvík.
40 ára______________________________
Guðrún Ólöf Jónsdóttir,
Hlíðarvegi 52, Kópavogi.
Helga Gunnarsdóttir,
Langholtsvegi 208, Reykjavík.
Hrönn Bernharðsdóttir,
Neskinn 6, Stykkishólmi.
Luz Marina Aponte Aponte,
Laugavegi 84, Reykjavík.
Monthiya Hoshi,
Auöbrekku 2, Kópavogi.
Olga Gísladóttir,
Núpi, N.-Þing.
Ragnar Leó Kristinn Jusic,
Frakkastíg 26a, Reykjavík.
~S
IJrval
-960síðuráári-
fróðleikur og skemmtun
sem lifír mánuðum og
árumsaman
Guðmundur Karlsson frá Karlsskála,
Grindavík, Lautasmára 22, Kópavogi,
varö bráökvaddur laugard. 28.7.
Kári Elías Karlsson, Viöilundi 24,
Akureyri, lést á heimili sínu mánud.
30.7.
Lars Hans S. Blaasvær, Lindargötu 66,
Reykjavík, andaðist á Borgarspítalanum
þriöjud. 17.7. Jarðsett var í kyrrþey í
Fossvogskapellu þann 20.7. að ósk
hins látna.
Mlkael Jóhannesson, Vestursíðu 10C,
Akureyri, áöurtil heimilis á
Eyrarlandsvegi 20, lést á heimili sínu aö
“ morgni laugard. 28.7.
MIDVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001
x>v
Höskuldur Jónsson
forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins
Höskuldur Jónsson, forstjöri ÁTVR
Höskuldur hefur lengi veriö mikill áhugamaöur um feröalög, útivist og
náttúruminjar. Hann var m.a. forseti Ferðafélags Islands 1985-94.
Höskuldur Jónsson, forstjóri
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis-
ins, hefur verið í fréttum vegna fyr-
irhugaðs átaks fyrirtækisins í að
herða eftirlit með aldri viðskipta-
vina þess nú fyrir verslunarmanna-
helgina.
Starfsferill
Höskuldur fæddist á Mýri í Álfta-
firði við Djúp 9.8. 1937. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR 1957, við-
skiptafræðiprófl frá HÍ 1963 og
stundaði framhaldsnám í þjóðfé-
lagsfræðum viö Institute of Social
Studies í Haag í Hollandi 1963-65.
Höskuldur var starfsmaður Ríkis-
endurskoðunar 1958-61, aðstoðar-
maður á Hagstofu íslands, í efna-
hagsráðuneytinu og viðskiptaráðu-
neytinu 1961-62, viðskiptafræðingur
hjá Efnahagsstofnuninni 1963 og
1965, settur fulltrúi í fjármálaráðu-
neytinu frá 1965 og skipaður þar
1966, skipaður deildarstjóri launa-
máladeildar fjármálaráðuneytisins
1966, skipaður skrifstofustjóri ráðu-
neytisins 1973, settur ráðuneytis-
stjóri fjármálaráðuneytisins
1974-76, skipaður ráðuneytisstjóri
þar 1977-86 og hefur verið forstjóri
Áfengis- og tóbaksverslunar frá
1986.
Höskuldur sat í stjómarnefnd
Skipaútgerðar ríkisins 1966-69, i
stjórn Lífeyrissjóðs Sóknar 1970-95,
í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna
ríkisins og Lífeyrissjóðs barnakenn-
ara 1977-80, í stjórn Biðreiknings
lifeyrissjóðsiðgjalda, síðar Söfnun-
arsjóðs lífeyrisréttinda 1974-88, átti
sæti í ýmsum nefndum á vegum rík-
isins og var m.a. formaður samn-
inganefndar ríkisins í launamálum
í nokkur ár.
Höskuldur var forseti Ferðafélags
íslands 1985-94, hefur setið i stjóm
Minjaverndar frá 1985 og i Ferða-
málaráði frá 1989. Hann var sæmd-
ur gullmerki Ferðafélags íslands
1987 og riddarakrossi íslensku
fálkaorðunnar 1992.
Fjölskylda
Höskuldur kvæntist 23.7. 1964
Guðlaugu Sveinbjarnardóttur, f. 1.1.
1941, sjúkraþjálfara og fram-
kvæmdastjóra. Hún er dóttir Svein-
bjöms Erlingssonar, f. 28.3. 1913, d.
7.2. 1996, vélstjóra í Reykjavík, og
k.h., Guðnýjar Guðjónsdóttur, f.
27.2. 1916, húsmóður.
Synir Höskuldar og Guðlaugar
eru Þórður, f. 25.5.1966, iönrekstrar-
fræöingur og framkvæmdastjóri í
Reykjavík, en sambýliskona hans er
Guðlaug Gísladóttir og eiga þau
eina dóttur; Sveinbjörn, f. 23.11.
1968, ragmagnsverkfræðingur í
Reykjavík, kvæntur Kolbrúnu Ey-
dísi Ottósdóttur verkfræðingi og
eiga þau tvö börn; Jón Grétar, f.
15.1. 1976, nemi, búsettur i Reykja-
vík.
Systkini Höskuldar: Hallfríður
Kristín Jónsdóttir, f. 19.2. 1920, d.
25.4. 1985, húsmóðir í Bolungarvík;
Bjarney Guðrún Jónsdóttir, f. 14.7.
1921, fyrrv. húsfreyja á Vífilsstöð-
um, nú búsett á Egilsstöðum; Pálína
Jónsdóttir, f. 27.6. 1925, húsmóðir á
Seyöisfirði; Kristín Guðrún Jóns-
dóttir, f. 10.6.1928, ljósmóðir og hús-
móðir, búsett í Reykjavík; Halldóra
Margrét Jónsdóttir, f. 25.6. 1930, d.
19.10.1965, húsmóðir í Bolungarvík;
Kristinn Jón Jónsson, f. 25.12. 1934,
fyrrv. rekstrarstjóri Vegagerðar rík-
isins á Vestíjörðum, búsettur á ísa-
firði.
Foreldrar Höskuldar voru Jón
Guðjón Kristján Jónsson, f. 29.8.
1892, d. 30.9. 1943, bóndi á Mýri í
Álftafirði, og k.h., Halldóra María
Kristjánsdóttir, f. 19.3. 1892, d. 19.5.
1944, húsfreyja.
Ætt
Jón Guðjón var bróðir Helgu
Maríu er varð hundrað ára 1998.
Jón Guðjón var sonur Jóns, b. að
Skarði á Snæfjallaströnd, Egilsson-
ar, b. þar Þorgrímssonar, b. að
Hvammi í Borgarfirði, Guðmunds-
sonar.
Móðir Jóns Guðjóns var Kristín
Matthíasdóttir, b. á Sandeyri í
Ðjúpi, Jónssonar og Guðrúnar
Magnúsdóttur frá Kleifarkoti i ísa-
firði.
Halldóra María var dóttir Krist-
jáns, b. á Laugalandi, Halldórsson-
ar, b. á Bæjum, Hermannssonar, í
Hattardal, Halldórssonar. Móðir
Kristjáns var María Rebekka, systir
Margrétar, ömmu Páls Þorsteins-
sonar, auglýsingastjóra DV og
Steindórs Hjörleifssonar leikara,
fóður Ragnheiðar leikkonu. María
var dóttir Kristjáns, hreppstjóra á
Þúfum, Kristjánssonar, ættföður
Reykjarfjaröarættar Ebenezersson-
ar, af Amardalsætt. Móðir Halldóru
Maríu var Hallfríður Jensdóttir,
vinnumanns á Fremri-Bakka, Jóns-
sonar.
Fimmtugur_________
Valgeir Steinn Kárason
framhaldsskólakennari á Sauðárkróki
Valgeir Steinn Kárason, fram-
haldsskólakennari, Háuhlíð 1, Sauð-
árkróki, er fimmtugur i dag.
Starfsferill
Valgeir fæddist á Sauðárkróki,
ólst þar upp og hefur dvalið þar ut-
an námsára í Reykjavík og Noregi.
Hann stundaði nám við Bama- og
Gagnfræðaskóla Sauðárkróks, lauk
landsprófi 1967, nam rafvirkjun við
Iðnskólann á Sauðárkróki, fékk lög-
gildingu sem rafverktaki 1977 og
meistarabréf í rafvirkjun 1979,
brautskráðist sem rafiðnfræðingur
frá Tækniskóla íslands 1977 og raf-
magnstæknifræðingur frá Telemark
Ingeniörhögskole í Noregi 1978,
lauk uppeldis- og kennslufræði frá
KHÍ 1982 og framhaldsnámi í
kennslufræðum starfsmenntagreina
frá Háskólanum í Gautaborg 1992.
Han hefur sótt margvísleg námskeið
í kennslu- og tölvufræðum, svæðis-
leiðsögunám við Farskóla Norður-
lands vestra 1997 og aukin ökurétt-
indi 2001.
Valgeir stundaði almenn sveita-
störf, var í byggingarvinnu og brú-
argerð og var rafvirki og við hönn-
un raflagna.
Valgeir hefur verið kennari við
Fjölbrautaskóla Noröurlands vestra
á Sauðárkróki frá 1979 og verið
deildarstjóri rafmagnsdeildar og
síðar deildarstjóri og umsjónarmað-
ur tölvukerfis. Hann er nú í árs
námsorlofi.
Valgeir hefur þýtt og búið til
prentunar kennslubækur í eðlis-
fræði og rafmagnsfræði. Hann var
formaður kennarafélags FNV um
árabil, svæðisfulltrúi og stjórnar-
maður í HÍK og er nú varamaður i
stjórn KÍ. Þá var hann formaður
Norræna félagsins á Sauðárkróki og
er nú í stjóm Ferðafélags Skagfirð-
inga.
Fjölskylda
Valgeir kvæntist 30.12. 1972 Guð-
björgu Sigríði Pálmadóttur, f. 2.2.
1952, sjúkraliða. Foreldrar hennar
eru Pálmi Anton Sigurösson, fyrrv.
starfsmaður Mjólkursamlags KS, og
Guðrún Lovísa Snorradóttir, hús-
móðir á Sauðárkróki.
Börn Valgeirs og Guðbjargar eru
Guðrún Jóna f. 6.7. 1971, nemi við
KHÍ, gift Þórði Þórðarsyni málara-
meistara og eru börn þeirra íris
Lilja, f. 9.1. 1997, og Valgeir Ingi, f.
15.2.1998; Dagmar Hlín, f. 10.4.1973,
hjúkrunarfræðingur á Landspítala;
Árni Geir, f. 30.5. 1980, nemi í tölv-
unarfræði við HR; Pálmi Þór, f. 12.7.
1988, nemi.
Systkini Valgeirs eru Kristján
Már, f. 4.8.1952, framkvæmdastjóri í
Reykjavík; Steinn, f. 22.10. 1954,
rekstrarfræðingur BS í Danmörku,
kvæntur Kristínu Amardóttur; Soff-
ía f. 12.2. 1956, tannfræðingur í
Reykjavík, gift Hafsteini Guð-
mundssyni; Jóna Guðný, f. 14.8.
1963, markaðsstjóri í Reykjavík, en
sambýlismaður hennar er Gunnar
Á. Bjarnason.
Foreldrar Valgeirs eru Kári
Steinsson, f. 2.4. 1921, íþróttakenn-
ari og sundlaugarstarfsmaður á
Sauðárkróki, frá Neðra-Ási í Hjalta-
dal og Dagmar V. Kristjánsdóttir, f.
15.2. 1931, frá Róðhóli í Sléttuhlíð,
húsmóðir.
Ætt
Kári er sonur Steins Stefánssonar
og Soffiu Jónsdóttur frá Neðra-Ási,
en móðir Soffiu var Svanhildur
Bjömsdóttir, Jónssonar, b. í Syðra
Garðshomi í Svarfaðardal frá Botni
í Fjörðum langafa Gísla, b. Hofi í
Vatnsdal. Steinn faöir Kára var af
Stóru-Brekkuætt í Fljótum og voru
tvær langömmur hans, Guðrún og
Herdís, dætur Einars Grímssonar,
prests á Þönglabakka í Fjörðum og
Knappsstöðum i Fljótum. En Helga
móðir Steins var móðursystir Kol-
beins fræðimanns á Skriðulandi.
Móðir Dagmar var Jóna Guðný
frá Róðhóli, dóttir Franz Jónatans-
sonar, bónda í Málmey, af Krossa-
ætt. Faðir Dagmarar var Kristján
Sigfússon bróðir Jóns, afa Stefáns
Gíslasonar, söngstjóra frá Miðhús-
um.
Valgeir verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Merkir íslendingar
Bjarnl Ásgeirsson ráðherra fæddist í
Knarranesi á Mýrum 1. ágúst 1891.
Hann var sonur Ásgeirs Bjamasonar,
bónda þar, og Ragnheiðar Helgadóttur
húsfreyju. Afi hennar var Helgi Helga-
son, alþingismaður og hreppstjóri í
Vogi á Mýrum. Bjarni var afi Ástu
Ragnheiðar Jóhannesdóttur alþingis-
manns. Bróðir Bjama var Helgi, afi
Hjálmárs Árnasonar alþingismanns.
Systir Bjarna var Þórdís, móðir Gunn-
ars Bjamasonar ráðunautar.
Bjarni lauk prófl frá Verslunarskóla
íslands 1910, búfræðiprófi frá Hvanneyri
1913 og stundaði framhaldsnám í Dan-
mörku og Noregi.
Bjarni var bóndi í Knarranesi á árunum
Bjarni Ásgeirsson
1915-1921 og á Reykjum í Mosfellssveit
1921-1951. Hann var merkur brautryðjandi
á sviði ylræktar hér á landi en hann mun
hafa látið reisa fyrstu ylræktarhúsin á
íslandi 1923.
Bjarni var alþingismaður Mýrasýslu
fyrir Framsóknarflokkinn á árunum
1927-1951. Hann gegndi fjölda trúnað-
arstarfa, sat í stjórn Mjólkurfélags
Reykjavíkur, í bankaráði Landsbank-
ans, var gæslustjóri Söfnunarsjóðs og
formaður Búnaðarfélags íslands. Hann
var landbúnaðarráðherra í stjórn Stef-
áns Jóhanns Stefánssonar 1947-1949, var
síðan búnaðarmálastjóri skamma hríð en
gegndi sendiherrastarfi í Noregi frá 1951 og
til dauðadags 1956.
Jarðarfarir
Friörik S. Pálmason frá Svaðastööum,
Hólavegi 25, Sauöárkróki, sem andaöist
föstud. 27.7., veröur jarösunginn frá
Sauðárkrókskirkju föstud. 3.8. kl.
14.00.
Sigrún Hannesdóttir, hjúkrunarheimilinu
Garövangi, Garöi, veröur jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju fimmtud. 2.8. kl. 14.00.
Ottó Sigurösson bakarameistari frá
Neskaupstaö veröur jarösunginn frá
Bústaðakirkju miövikud. 1.8. kl. 13.30.
Guöríöur Björg Sörladóttir frá
Önundarfirði, síöasttil heimilis í Hátúni
lOb, Reykjavlk, veröur jarösungin frá
Háteigskirkju miðvikud. 1.8. kl. 15.00.