Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2001, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2001, Qupperneq 22
26 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson .ara 90 ára______________________________ Geir Guðmundur Jónsson, Aflagranda 40, Reykjavík. 85 ára______________________________ Bjami Þórlindsson, Árskógum 26b, Egilsstööum. Stefán T. Hjaltalín, Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfiröi. 80 ára______________________________ Ágúst Guðbrandsson, íragerði 10, Stokkseyri. Benedikt Þ. Hjarðar, Miögaröi 6, Egilsstööum. Halldór M. Ólafsson, Flatahrauni 16a, Hafnarfiröi. Páll Lárusson Rist, Litla-Hóli, Eyjaf. 75 ára______________________________ Jórunn Ferdinandsdóttir, Ásgeröi 4, Reyðarfiröi. Kjeld Olav M. Nielsen, lönbúö 3, Garöabæ. Stefán Þórarinsson, Höföabrekku 15, Húsavík. Sveinn Jósefsson, Laugavegi 145, Reykjavík. 70 ára______________________________ Guðrún Danelíusdóttir, Gullsmára 11, Kópavogi Sigurður Gunnarsson, Bjarnastöðum, Árnessýslu. 60 ára______________________________ Guðjón Jónasson, Jóruseli 26, Reykjavík. Hjördís Ólafsdóttir, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi. Margrét Dóra Kristinsdóttir, Snægili 5, Akureyri. Oleg Ninni Mileris, Skálagerði 5, Reykjavík. 50 ára______________________________ Baldur Baldursson, Logafold 82, Reykjavík. Daði Guðjónsson, Vitabraut 3, Hólmavík. Guðmundur Valtýsson, Eiriksstööum, A.-Húnavatnss. Jón Reynlr Svavarsson, Goöatúni 5, Garöabæ. Magnús Kjartansson, Garðastræti 39, Reykjavík. Ragnar Helgi Halldórsson, Gónhóli 30, Njarðvík. 40 ára______________________________ Guðrún Ólöf Jónsdóttir, Hlíðarvegi 52, Kópavogi. Helga Gunnarsdóttir, Langholtsvegi 208, Reykjavík. Hrönn Bernharðsdóttir, Neskinn 6, Stykkishólmi. Luz Marina Aponte Aponte, Laugavegi 84, Reykjavík. Monthiya Hoshi, Auöbrekku 2, Kópavogi. Olga Gísladóttir, Núpi, N.-Þing. Ragnar Leó Kristinn Jusic, Frakkastíg 26a, Reykjavík. ~S IJrval -960síðuráári- fróðleikur og skemmtun sem lifír mánuðum og árumsaman Guðmundur Karlsson frá Karlsskála, Grindavík, Lautasmára 22, Kópavogi, varö bráökvaddur laugard. 28.7. Kári Elías Karlsson, Viöilundi 24, Akureyri, lést á heimili sínu mánud. 30.7. Lars Hans S. Blaasvær, Lindargötu 66, Reykjavík, andaðist á Borgarspítalanum þriöjud. 17.7. Jarðsett var í kyrrþey í Fossvogskapellu þann 20.7. að ósk hins látna. Mlkael Jóhannesson, Vestursíðu 10C, Akureyri, áöurtil heimilis á Eyrarlandsvegi 20, lést á heimili sínu aö “ morgni laugard. 28.7. MIDVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 x>v Höskuldur Jónsson forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins Höskuldur Jónsson, forstjöri ÁTVR Höskuldur hefur lengi veriö mikill áhugamaöur um feröalög, útivist og náttúruminjar. Hann var m.a. forseti Ferðafélags Islands 1985-94. Höskuldur Jónsson, forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkis- ins, hefur verið í fréttum vegna fyr- irhugaðs átaks fyrirtækisins í að herða eftirlit með aldri viðskipta- vina þess nú fyrir verslunarmanna- helgina. Starfsferill Höskuldur fæddist á Mýri í Álfta- firði við Djúp 9.8. 1937. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1957, við- skiptafræðiprófl frá HÍ 1963 og stundaði framhaldsnám í þjóðfé- lagsfræðum viö Institute of Social Studies í Haag í Hollandi 1963-65. Höskuldur var starfsmaður Ríkis- endurskoðunar 1958-61, aðstoðar- maður á Hagstofu íslands, í efna- hagsráðuneytinu og viðskiptaráðu- neytinu 1961-62, viðskiptafræðingur hjá Efnahagsstofnuninni 1963 og 1965, settur fulltrúi í fjármálaráðu- neytinu frá 1965 og skipaður þar 1966, skipaður deildarstjóri launa- máladeildar fjármálaráðuneytisins 1966, skipaður skrifstofustjóri ráðu- neytisins 1973, settur ráðuneytis- stjóri fjármálaráðuneytisins 1974-76, skipaður ráðuneytisstjóri þar 1977-86 og hefur verið forstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar frá 1986. Höskuldur sat í stjómarnefnd Skipaútgerðar ríkisins 1966-69, i stjórn Lífeyrissjóðs Sóknar 1970-95, í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs barnakenn- ara 1977-80, í stjórn Biðreiknings lifeyrissjóðsiðgjalda, síðar Söfnun- arsjóðs lífeyrisréttinda 1974-88, átti sæti í ýmsum nefndum á vegum rík- isins og var m.a. formaður samn- inganefndar ríkisins í launamálum í nokkur ár. Höskuldur var forseti Ferðafélags íslands 1985-94, hefur setið i stjóm Minjaverndar frá 1985 og i Ferða- málaráði frá 1989. Hann var sæmd- ur gullmerki Ferðafélags íslands 1987 og riddarakrossi íslensku fálkaorðunnar 1992. Fjölskylda Höskuldur kvæntist 23.7. 1964 Guðlaugu Sveinbjarnardóttur, f. 1.1. 1941, sjúkraþjálfara og fram- kvæmdastjóra. Hún er dóttir Svein- bjöms Erlingssonar, f. 28.3. 1913, d. 7.2. 1996, vélstjóra í Reykjavík, og k.h., Guðnýjar Guðjónsdóttur, f. 27.2. 1916, húsmóður. Synir Höskuldar og Guðlaugar eru Þórður, f. 25.5.1966, iönrekstrar- fræöingur og framkvæmdastjóri í Reykjavík, en sambýliskona hans er Guðlaug Gísladóttir og eiga þau eina dóttur; Sveinbjörn, f. 23.11. 1968, ragmagnsverkfræðingur í Reykjavík, kvæntur Kolbrúnu Ey- dísi Ottósdóttur verkfræðingi og eiga þau tvö börn; Jón Grétar, f. 15.1. 1976, nemi, búsettur i Reykja- vík. Systkini Höskuldar: Hallfríður Kristín Jónsdóttir, f. 19.2. 1920, d. 25.4. 1985, húsmóðir í Bolungarvík; Bjarney Guðrún Jónsdóttir, f. 14.7. 1921, fyrrv. húsfreyja á Vífilsstöð- um, nú búsett á Egilsstöðum; Pálína Jónsdóttir, f. 27.6. 1925, húsmóðir á Seyöisfirði; Kristín Guðrún Jóns- dóttir, f. 10.6.1928, ljósmóðir og hús- móðir, búsett í Reykjavík; Halldóra Margrét Jónsdóttir, f. 25.6. 1930, d. 19.10.1965, húsmóðir í Bolungarvík; Kristinn Jón Jónsson, f. 25.12. 1934, fyrrv. rekstrarstjóri Vegagerðar rík- isins á Vestíjörðum, búsettur á ísa- firði. Foreldrar Höskuldar voru Jón Guðjón Kristján Jónsson, f. 29.8. 1892, d. 30.9. 1943, bóndi á Mýri í Álftafirði, og k.h., Halldóra María Kristjánsdóttir, f. 19.3. 1892, d. 19.5. 1944, húsfreyja. Ætt Jón Guðjón var bróðir Helgu Maríu er varð hundrað ára 1998. Jón Guðjón var sonur Jóns, b. að Skarði á Snæfjallaströnd, Egilsson- ar, b. þar Þorgrímssonar, b. að Hvammi í Borgarfirði, Guðmunds- sonar. Móðir Jóns Guðjóns var Kristín Matthíasdóttir, b. á Sandeyri í Ðjúpi, Jónssonar og Guðrúnar Magnúsdóttur frá Kleifarkoti i ísa- firði. Halldóra María var dóttir Krist- jáns, b. á Laugalandi, Halldórsson- ar, b. á Bæjum, Hermannssonar, í Hattardal, Halldórssonar. Móðir Kristjáns var María Rebekka, systir Margrétar, ömmu Páls Þorsteins- sonar, auglýsingastjóra DV og Steindórs Hjörleifssonar leikara, fóður Ragnheiðar leikkonu. María var dóttir Kristjáns, hreppstjóra á Þúfum, Kristjánssonar, ættföður Reykjarfjaröarættar Ebenezersson- ar, af Amardalsætt. Móðir Halldóru Maríu var Hallfríður Jensdóttir, vinnumanns á Fremri-Bakka, Jóns- sonar. Fimmtugur_________ Valgeir Steinn Kárason framhaldsskólakennari á Sauðárkróki Valgeir Steinn Kárason, fram- haldsskólakennari, Háuhlíð 1, Sauð- árkróki, er fimmtugur i dag. Starfsferill Valgeir fæddist á Sauðárkróki, ólst þar upp og hefur dvalið þar ut- an námsára í Reykjavík og Noregi. Hann stundaði nám við Bama- og Gagnfræðaskóla Sauðárkróks, lauk landsprófi 1967, nam rafvirkjun við Iðnskólann á Sauðárkróki, fékk lög- gildingu sem rafverktaki 1977 og meistarabréf í rafvirkjun 1979, brautskráðist sem rafiðnfræðingur frá Tækniskóla íslands 1977 og raf- magnstæknifræðingur frá Telemark Ingeniörhögskole í Noregi 1978, lauk uppeldis- og kennslufræði frá KHÍ 1982 og framhaldsnámi í kennslufræðum starfsmenntagreina frá Háskólanum í Gautaborg 1992. Han hefur sótt margvísleg námskeið í kennslu- og tölvufræðum, svæðis- leiðsögunám við Farskóla Norður- lands vestra 1997 og aukin ökurétt- indi 2001. Valgeir stundaði almenn sveita- störf, var í byggingarvinnu og brú- argerð og var rafvirki og við hönn- un raflagna. Valgeir hefur verið kennari við Fjölbrautaskóla Noröurlands vestra á Sauðárkróki frá 1979 og verið deildarstjóri rafmagnsdeildar og síðar deildarstjóri og umsjónarmað- ur tölvukerfis. Hann er nú í árs námsorlofi. Valgeir hefur þýtt og búið til prentunar kennslubækur í eðlis- fræði og rafmagnsfræði. Hann var formaður kennarafélags FNV um árabil, svæðisfulltrúi og stjórnar- maður í HÍK og er nú varamaður i stjórn KÍ. Þá var hann formaður Norræna félagsins á Sauðárkróki og er nú í stjóm Ferðafélags Skagfirð- inga. Fjölskylda Valgeir kvæntist 30.12. 1972 Guð- björgu Sigríði Pálmadóttur, f. 2.2. 1952, sjúkraliða. Foreldrar hennar eru Pálmi Anton Sigurösson, fyrrv. starfsmaður Mjólkursamlags KS, og Guðrún Lovísa Snorradóttir, hús- móðir á Sauðárkróki. Börn Valgeirs og Guðbjargar eru Guðrún Jóna f. 6.7. 1971, nemi við KHÍ, gift Þórði Þórðarsyni málara- meistara og eru börn þeirra íris Lilja, f. 9.1. 1997, og Valgeir Ingi, f. 15.2.1998; Dagmar Hlín, f. 10.4.1973, hjúkrunarfræðingur á Landspítala; Árni Geir, f. 30.5. 1980, nemi í tölv- unarfræði við HR; Pálmi Þór, f. 12.7. 1988, nemi. Systkini Valgeirs eru Kristján Már, f. 4.8.1952, framkvæmdastjóri í Reykjavík; Steinn, f. 22.10. 1954, rekstrarfræðingur BS í Danmörku, kvæntur Kristínu Amardóttur; Soff- ía f. 12.2. 1956, tannfræðingur í Reykjavík, gift Hafsteini Guð- mundssyni; Jóna Guðný, f. 14.8. 1963, markaðsstjóri í Reykjavík, en sambýlismaður hennar er Gunnar Á. Bjarnason. Foreldrar Valgeirs eru Kári Steinsson, f. 2.4. 1921, íþróttakenn- ari og sundlaugarstarfsmaður á Sauðárkróki, frá Neðra-Ási í Hjalta- dal og Dagmar V. Kristjánsdóttir, f. 15.2. 1931, frá Róðhóli í Sléttuhlíð, húsmóðir. Ætt Kári er sonur Steins Stefánssonar og Soffiu Jónsdóttur frá Neðra-Ási, en móðir Soffiu var Svanhildur Bjömsdóttir, Jónssonar, b. í Syðra Garðshomi í Svarfaðardal frá Botni í Fjörðum langafa Gísla, b. Hofi í Vatnsdal. Steinn faöir Kára var af Stóru-Brekkuætt í Fljótum og voru tvær langömmur hans, Guðrún og Herdís, dætur Einars Grímssonar, prests á Þönglabakka í Fjörðum og Knappsstöðum i Fljótum. En Helga móðir Steins var móðursystir Kol- beins fræðimanns á Skriðulandi. Móðir Dagmar var Jóna Guðný frá Róðhóli, dóttir Franz Jónatans- sonar, bónda í Málmey, af Krossa- ætt. Faðir Dagmarar var Kristján Sigfússon bróðir Jóns, afa Stefáns Gíslasonar, söngstjóra frá Miðhús- um. Valgeir verður að heiman á af- mælisdaginn. Merkir íslendingar Bjarnl Ásgeirsson ráðherra fæddist í Knarranesi á Mýrum 1. ágúst 1891. Hann var sonur Ásgeirs Bjamasonar, bónda þar, og Ragnheiðar Helgadóttur húsfreyju. Afi hennar var Helgi Helga- son, alþingismaður og hreppstjóri í Vogi á Mýrum. Bjarni var afi Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur alþingis- manns. Bróðir Bjama var Helgi, afi Hjálmárs Árnasonar alþingismanns. Systir Bjarna var Þórdís, móðir Gunn- ars Bjamasonar ráðunautar. Bjarni lauk prófl frá Verslunarskóla íslands 1910, búfræðiprófi frá Hvanneyri 1913 og stundaði framhaldsnám í Dan- mörku og Noregi. Bjarni var bóndi í Knarranesi á árunum Bjarni Ásgeirsson 1915-1921 og á Reykjum í Mosfellssveit 1921-1951. Hann var merkur brautryðjandi á sviði ylræktar hér á landi en hann mun hafa látið reisa fyrstu ylræktarhúsin á íslandi 1923. Bjarni var alþingismaður Mýrasýslu fyrir Framsóknarflokkinn á árunum 1927-1951. Hann gegndi fjölda trúnað- arstarfa, sat í stjórn Mjólkurfélags Reykjavíkur, í bankaráði Landsbank- ans, var gæslustjóri Söfnunarsjóðs og formaður Búnaðarfélags íslands. Hann var landbúnaðarráðherra í stjórn Stef- áns Jóhanns Stefánssonar 1947-1949, var síðan búnaðarmálastjóri skamma hríð en gegndi sendiherrastarfi í Noregi frá 1951 og til dauðadags 1956. Jarðarfarir Friörik S. Pálmason frá Svaðastööum, Hólavegi 25, Sauöárkróki, sem andaöist föstud. 27.7., veröur jarösunginn frá Sauðárkrókskirkju föstud. 3.8. kl. 14.00. Sigrún Hannesdóttir, hjúkrunarheimilinu Garövangi, Garöi, veröur jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju fimmtud. 2.8. kl. 14.00. Ottó Sigurösson bakarameistari frá Neskaupstaö veröur jarösunginn frá Bústaðakirkju miövikud. 1.8. kl. 13.30. Guöríöur Björg Sörladóttir frá Önundarfirði, síöasttil heimilis í Hátúni lOb, Reykjavlk, veröur jarösungin frá Háteigskirkju miðvikud. 1.8. kl. 15.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.