Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2001, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2001, Page 7
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2001 DV 7 Fréttir ' 0^m %• Leyfi111 /<*# lyfjaskömmtunar -«v DV-MYND EINAR J. Upprennandi fiskimenn Veiðimennirnir Bjarni Þór og Marteinn voru nýbúnir að landa vænum mar- hnúti í Grindavikurhöfn þegar Ijósmyndari DV átti þar leið um á dögunum. Karfinn flytur um set Úthafskarfinn fannst allt vestur að lögsögu Kanada. Fjölþjóðlegur rannsóknarleiðangur á úthafskarfa Karfinn sunnar og vestar en áður Nýlokið er mánaðarlöngum sam- eiginlegum leiðangri Islendinga, Norðmanna, Þjóðverja og Rússa þar sem tilgangurinn var að meta stofn- stærðir karfa í úthafinu. Auk ís- lensku rannsóknarskipanna Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæmunds- sonar voru það þýska rannsóknar- skipið Walther Herwig III og rúss- neska skipiö Atlantniro ásamt norska skipinu G.O. Sars sem þátt tóku í þessum leiðangri. Aðstæður til mælinga voru að mörgu leyti góðar, t.d. var veður yf- irleitt skaplegt og hindranir vegna íss voru hverfandi. Fyrstu vísbend- ingar sýna að úthafskarfinn var nú mun sunnar og vestar en hin fyrri ár og lítið mældist af úthafskarfa þar sem yflrleitt var mest af honum á fyrri hluta síðasta áratugar, en það er svæðið norðan og austan við Hvarf, syðsta odda Grænlands. Út- hafskarfinn fannst allt vestur að lögsögu Kanada og talið er að náðst hafi að mestu að fara yfir út- breiðslusvæði hans. Likt og árin 1996 og 1999 var karfinn á meira dýpi nú en árin 1992-1994. Nokkuð bar á blöndun karfans við laxsíld og aðrar smærri lifverur. Reyndist á stundum erfitt að greina karfann frá öðrum lífverum. Auk þess að mæla með bergmáls- aðferð magn úthafskarfa var reynt að meta magn djúpkarfa sem heldur sig dýpra en úthafskarfinn og hefur m.a. verið uppistaðan í úthafskarfa- veiðum íslendinga undanfarin ár. Djúpkarfinn fannst á öllu athugun- arsvæðinu, en yfirleitt í litlu magni. Það var áberandi að karfi fannst mjög víða neðan þess dýpis sem bergmálstæki náðu að mæla, eða frá um 400 og allt niður á um 900 metra dýpi. Sjávarhiti í leiðangrinum mæld- ist nokkru hærri nú en á fyrri hluta síðasta áratugar, þó svipaður og hann var árið 1999. Hugsanlega má rekja breytta dýpisdreifingu út- hafskarfa nú, samanborið við 1992-1994, til hærri sjávarhita. í leiðangrinum fékkst úthafskarfi allt niður á um 700-900 metra dýpi, en það er mun dýpra en hægt hefur verið að mæla með bergmálsaðferð á þessu svæði. -GG 'Pr * UNI FálfAWER TÖLVUSTYRÐ LYFJASKOMMTUN Markar tímamót • Handhæg • Orugg • Hagkvæm Tölvustýrð lyfjaskömmtun Lyfjavers fæst í Lyf & heilsu um land allt JkSTPb priii wMi. irnBBi'4B.L* Jk hI l \'WJ 'usJkn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.