Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2001, Síða 25
29
ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2001____________________________________________________________________________
3>V Tilvera
Kántrýhátíðin slær í gegn:
Kærleikur á
Kántrýhátíð
- aldrei fleiri á hátíðinni
Skaparinn með
Skagstrendingum
Þegar Hallbjöm er spurður hvað
valdi þessum miklu vinsældum Kán-
trýhátíðar segir hann margt koma til.
„Það er fjölbreytnin sem gerir það að
verkum að fólk kemur hingað. Við
stefnum að þessu sem fjölskylduhátíð
og leggjum okkur mikið fram mn að
vera með mikið fyrir bömin jafnt sem
fuilorðna," segir Halibjöm og bætir við
að þar fyrir utan sé Skagaströnd geysi-
lega fallegur staöur að sumri til. Það
sem mestu skiptir er þó að Skagstrend-
ingar standi ekki einir að hátiðinni.
„Það er skaparinn minn, freisarinn
minn, sem er með okkur i þessu og það
er alveg hundrað prósent ömggt að
hann gefur okkur mikinn styrk og það
er hann sem heldur þessu öllu saman.
unudans
Margir fremstu línudansarar íslands eru frá Skagaströnd og skyldi engan
undra. Nokkrir þeirra sýndu listir sínar á hátíðinni.
Þessi stemning sem hér myndast, hún
myndast öll af þeim kærleika sem fólk-
ið flnnur bæði út frá útvarpsstöðinni
og alls staðar í bænum. Það er kærleik-
ur sem ríkir hér hvar sem þú kemur og
það er þessi andi sem gefur þessari
skemmtun þann blæ sem hún hefur,“
segir Hallbjörn Hjartarson að lokum.
Degi er tekið aö halla þegar ég yfir-
gef Skagaströnd og held í vesturátt eins
og kúrekamir forðum. Útvarp Kántrý-
bær fylgir mér áleiðis með angurværri
sveitatónlist um einmana kúreka og
ástfangnar stúlkur. -EÖJ
Einstök stemning
Þetta voru greinilega
óþarfa áhyggjur því að
þegar ég kem inn í bæ-
inn bíður mín stæði rétt
við hliðina á Kántrýbæ.
Ég legg bílnum og geng
út í sólina. Stemningin
á Kántrýhátíð á Skaga-
strönd er engu lík. Fólk
á öllum aldri spókar sig
á götunum, annar hver
maður með kúrekahatt
á höfði og sumir líka í
köflóttri skyrtu og með
tóbaksklút. Islensk og
amerísk kántritónlist
hljómar í hverju tjaldi
og enginn asi er á nein-
um. Jafnvel þó að ein-
staka maður sjáist með
bjórdós í hendi eru eng-
in læti heldur njóta
menn þess að vera til.
Börnin una sér i leik-
tækjum á meðan hinir
eldri sleikja sólina.
Kraftakeppnin við íþróttahúsið laöar
að sér marga áhorfendur og það gera
línudansarnir á stóra sviðinu lika.
oii í stn
Ragnar Kjartansson, forsprakki hljóm-
sveitarinnar Kanada, lét sig ekki vanta á
Kántrýhátíð nú frekar en fyrri ár. Hér er
hann ásamt yngismeyjunum Elísabetu
Davíðsdóttur og Ólöfu Júlíusdóttur.
sitja við stjórnvölinn i Út-
varp Kántrýbæ þarf hann
að koma fram á tveimur
skemmtunum um kvöldið.
„Þetta hefur gengið alveg
frábærlega vel enn sem
komið er,“ segir Hallbjörn
og bætir við að það hafi
orðið'alger sprenging í að-
sókn frá hátíðinni í fyrra
og hafi hún þó slegið öll
met. „Það sem er alveg
sérstakt við Kántrýhátíð-
ina er sá andi sem hér rík-
ir og að það er stórkostlegt
að það skuli ekki verða
nein læti á öllum þessum
hóp og ekki neinar rysk-
ingar,“ segir Hallbjöm og
bætir við að þetta geti
hvergi átt sér stað nema á
Kántrýhátíð á Skaga-
strönd.
Hattarnir fljúga út
Þeir sem gleymdu hattinum heima þurftu ekki að
örvænta því aö Guðrún Guðmundsdóttir og Óli
Björn Finnsson voru með kúrekahatta af öllum
stærðum og gerðum til sölu.
Þrátt fyrir amerískt yfirbragð leynir
sér þó ekki að maður er staddur í ís-
lensku sjávarþorpi en ekki smábæ i
villta vestrinu. Fiskibátar liggja
bundnir við bryggju og á markaðnum
er hægt að kaupa harðfisk og hákarl.
Alger sprenging
Fyrir utan Kántrýbæ rekst ég
manninn sem á mesta heiðurinn að
því að hafa komið Kántrýhátíð á lagg-
h-nar og Skagaströnd á kortið. Hall-
björn Hjartarson gefur sér tíma í stutt
spjall þrátt fyrir annir en auk þess að
Upprennandi kúreki
Þessi iitli snáði klæddi sig upp að hætti villta vestursins í tilefni hátíðarinnar.
DV-MYNDIR EINAR J.
Kúreki kátur og hress
Hailbjörn Hjartarson, kúreki norðurs-
ins, hafði ástæðu til að brosa um
helgina enda sló Kántrýhátíðin á
Skagaströnd öll met.
Leitarinn á útvarpinu er búinn að
hringsóla í dágóða stund þegar Útvarp
Kántrýbær dettur skyndilega inn miðja
vegu milli Hvammstanga og Blönduóss.
„Ég er kúreki kátur og hress. Það er
kántrí i blóðinu í mér,“ syngur Hall-
bjöm Hjartarson, kúreki norðursins,
hástöfum. Fyrir framan mig ekur am-
erískur pallbíll á hægum hraða og ég sé
að bílstjórinn er með kúrekahatt á
höfði. „Ég er greinilega á réttri leið,“
hugsa ég með mér um leið og ég hækka
ögn í tækinu og dreg úr hraðanum.
Sveitatónlistin er svo róandi og lands-
lagið fallegt að mér er um megn að aka
hratt. Hin alræmda Blönduóslögregla
er annars hvergi sýnileg á þjóðvegin-
um, sjálfsagt upptekin á Kántrýhátíð-
inni eins og aðrir. Hallbjöm Hjartarson
aikynnir lagið og heilsar hátíðargest-
um sem hann segir vera um tíu þúsund
nú þegar og von sé á fleirum. „Tíu þús-
und,“ hrópa ég í huganum, „ég vona að
ég finni bílastæði."
Suzuki Baleno Wagon
4x4,skr. 7/98, ek. 50 þús.
þús.
Suzuki Wagon R+, 4wd., 5
d.,skr. 8/00, ek. 12 þús.
Verð kr. 1090 þús.
Suzuki Swift GLS, 3 d.,
bsk.,skr. 12/99, ek. 27 þús.
Verð kr. 830 þús.
Suzuki Swift GL, 4 d.,
ssk.,skr. 8/94, ek. 93 þús.
Verð kr. 460 þús.
Subaru Impreza Wag.
4x4,skr. 11/99, ek. 31 þús.
Verð kr. 1580 þús.
Fiat Punto Sport, bsk.,skr.
12/97, ek. 41 þús.
Verð kr. 780 þús.
Suzuki Jimny, 3 d., bsk.,
skr. 12/98, ek. 36 þús.
Verðkr. 11
$ SUZUKI
■///>■
SUZUKI
Skeifunni 17,simi 568-51 Uö
Suzuki Baleno Wagon,
ssk.,skr. 7/99, ek. 72 þús.
Verð kr. 175 þús.
Suzuki Baleno GL, 3 d.,
ssk.,skr. 3/98, ek. 53 þús.
Verð kr. 750