Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2001, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2001, Qupperneq 5
—- nfim SAmHLisA staafi Töluu- og reksíramám Áhugavert og raunhæft starfsnám sem hannað er með þarfir atvinnulífsins í huga. Markmið með náminu er að útskrifa nemendur með hagnýta þekkingu á bókhaldi, rekstri og tölvunotkun í fyrirtækjum. Námið hentar þeim vel sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum og auka sérþekkingu sína. Kennslustundir eru alls 280 og skiptast í bókhald og rekstur 120 stundir og tölvunotkun 160 stundir. Kennslugreinar: • Verslunarreikningur • Grunnatriði bókhalds • Virðisaukaskattur • Launabókhald • Úrvinnsla og afstemmingar • Tölvubókhald • Ársreikningur • Fingrasetning • Windows umhverfið • Word ritvinnslan • Excel töflureiknirinn • Internetið og tölvupóstur • Kynning á umbrotsforriti • Samsteypa: Word/Excel - Rekstrarnámið • Grundvallaratriði tvíhliða bókhalds. Gerð rekstrar- og efnahagsreiknings. • Helstu reglur um virðisaukaskatt, útreikning og útfyllingu skilagreina og hugtökin skattskylda, skattverð og skatthlutfall skilgreind. • Útreikningur á launum og launatengdum gjöldum. • Afstemming á eigna- og skuldareikningum og uppgjöri virðisaukaskatts. • Gerð ársuppgjörs samkvæmt skattalögum. Framsetning rekstrar- og efnahagsreiknings. • Fjallað um helstu kennitölur sem í notkun eru hvað varðar arðsemi, nýtingu fjármagns, greiðsluhæfi og fjárhagslegan styrkleika fyrirtækis. Tölvunámið • Æfingar í fingrasetningu. • Farið yfir helstu hluta á skjá Windows umhverfisins og nemendum kennt að vinna í gluggaumhverfi og aðlaga það eigin þörfum. • Helstu atriði ritvinnslu svo sem inndráttur, dálkar, töflur, myndir og prentun. • Reiknilíkön í töflureikni, útlitsmótun, prentun og gerð myndrita. Kennd er notkun algengra reiknifalla svo og helstu atriði gagnavinnslu. • Gerð eru raunhæf verkefni þar sem reynir á samvinnu ýmissa forrita. Afritun gagna og flutningur milli bókhaldsforrits og Excel töflureiknis. • Kennd notkun umbrotsforrits og gert raunhæft verkefni. • Vefskoðarar og tölvupóstur. Boðið er upp á morguntíma fjórum sinnum í viku eða kvöldtíma þrisvar í viku. Lengd námsins er ein önn. Nánari upplýsingar í síma 568 5010 Microsoft C E R T I F I E D Technical Education Center RAFIÐNAÐARSKÓLINN Skeifan 11 b ■ Sími 568 5010 • Fax 581 2420 skoli@raf.is • www.raf.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.