Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2001, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2001, Síða 9
MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 2001 x>v 9 Fréttir *i itoWo'ji '&iS PrrfhTflrm Schengen kemur í veg fyrir að hægt sé að fylgjast með fjölda ferðamanna í landinu: Fjölgun ferðamanna talin nema 7-9 prósentum — vísbending um 16-21 þúsund fleiri ferðamenn fyrstu 8 mánuðina Fjölgun ferðafólks til íslands fyrstu átta mánuði ársins er talin nema 7-9 prósentum. Það þýðir að 16-21 þúsund fleiri ferðamenn sækja ísland heim frá byrjun árs til loka ágústmánaðar. Fyrir sama átta mán- aða timabil í fyrra var fjölgunin 18 prósent, eða 35 þúsund fleiri en fyrstu átta mánuði ársins 1999. Það ár fjölgaði ferðamönnum hins vegar um rúm 20 þúsund, eða um 11,4 pró- sent miðað við árið 1998. Árið 2000 komu 303 þúsund erlendir ferðamenn til íslands en 253 þúsund árið 1999. Samkvæmt þessu hefur erlendum ferðamönnum fjölgað en hægst hefur á aukingunni. Hér er þó í raun aðeins um bráða- birgðatölur að ræða þar sem útilok- að hefur verið að telja fjölda ferða- manna til landsins eins og áður eftir að svokallað Schengen-kerfl komst á í landinu. Það í raun útilokar ná- kvæmt eftirlit með að fylgjast með hverjir koma inn í landið. Framangreindar tölur eru byggðar á upplýsingum frá Seðlabanka ís- lands um gjaldeyrisviðskipti fyrstu mánuðina og síðan tilfinningu manna í ferðaþjónustu miðað við ýmsar forsendur. Magnús Oddsson ferðamálastjóri segir að einnig liggi fyrir nákvæm breyting á heildar- fjölda gesta til landsins. „Auk þess höfum við ýmsar upplýsingar frá söluaðilum erlendis," segir Magnús. Heildarfjölgun en bakslag í júní „Við vitum með vissu að júní- mánuður var alls ekki eins góður og Schengen tefur feröamannatalningu Erlendum ferðamönnum fjölgar en hægst hefur á aukningunni. Erfiöara er þó aö telja fjölda feröamanna eftir aö Schengen-kerfiö komst á í landinu. menn höfðu vonast til - þá kom bakslag,“ se'gir Magnús. „En júlí- mánuður var betri“. Aðspurður um tölur um fjölda ferðamanna það sem af er ágúst segir Magnús að ekkert sé hægt um það að fullyrða. Nákvæmar tölur um fjölda ferða- manna fyrir fyrstu átta mánuði árs- ins munu að líkindum ekki liggja fyrir fyrr en í byrjun nóvember. Þá mun Hagstofa íslands geta birt tölur yfir fjölda gistinátta erlendra gesta. Magnús segir að heildarfjöldi gesta um Keflavíkurflugvöll hafi aukist í ár. Hins vegar sé ekki, með hliðsjón af Schengen, hægt að sjá hve margir erlendir gestir fóru um völlinn miðað við íslendinga. Magnús segir á hinn bóginn að samdóma álit fulltrúa I ferðaþjón- ustu hér á landi sé að ferðum ís- lendinga um eigið land í sumar hafi vaxið fiskur um hrygg - tjaldvagn- ar, tjaldferðir og almennar bílferðir um landið hafl greinilega mjög átt upp á pallborðið - utanlandsferðum kunni að hafa fækkað vegna auk- innar verðbólgu og svo framvegis. „Ég hef stundum nefnt þetta á slæmri íslensku viðburðaferða- mennsku þar sem sveitarfélög og aðrir hafa efnt til óteljandi viðburða af öllum tegundum. Þetta hafa ís- lendingar sótt mjög vel,“ segir Magnús. -Ótt Bygging 17. aldar torfbæjar hafin - Guðjón, hleðslumeistari á Dröngum, reisir býli þar sem galdramaður gæti hafa búið DV, HÖLMAVÍK: Framkvæmdir við bygg- ingu torfbæjar i Bjarnarfirði eru í fullum gangi en undir- búningur þeirra hófst um leið og klaki fór úr jörðu í vor. Nokkur hópur fólks hefur unnið að því verki undir leið- sögn hleðslumeistarans Guð- jóns Kristinssonar frá Dröng- um. Guðjón er einn sá færasti í þeirri grein hér á landi og lærður skrúðgarðyrkjumeist- ari. Byggingarefnið er fortíðar- klumbra en hleðsluefnið ásamt torfi og grjóti er sótt í landið nærindis. Byggingin á að vera eftirlíking fornbæjar frá 17. öld. Hún er hvorki háreist eða neitt höfuðból heldur venjulegt alþýðuheimili i stærri kantinum eða býli eins og galdramaður gæti hafa búið i, að sögn Jóns Jónssonar, DV-MYNDIR GUÐFINNUR RNNBOGASON. Torfbær byggöur á Ströndum Guöjón Kristinsson, hleöslumeistari frá Dröngum, ásamt starfsliöi sínu við byggingu torfbæjarins í Bjarnarfirði á Ströndum. þjóðfræðings á Kirkjubóli, sem haft hefur veg og vanda af öllum undir- búningi. Aðalhönnuðurinn er Árni Páll Jóhannsson, sá er stjórnaði uppsetningu galdraminjasafnsins á Hólmavík á síðasta ári. Bygging torfbæjarins er á þeim slóðum þar sem hinn fjölkunnugi fornmaður, Svanur á Svanshóli, bjó og getið er um í fornum sögum. -GF Opið virka daga SUÐURNESJUM SÍMI 421 4888-421 5488 VW Passat 2,0 Comfortline, nýskráður 01/2001, ekinn 13 þús., sjálfskiptur, cd, 16" álfelgur, vetrardekk á stáifelgum. Verð 2.200 þús VW Golf 1,6 Comfortline, nýskráður 05/98, ekinn 70 þús., 5 gíra, álfelgur, vetrardekk á stálfelgum, 6 diska magasín, kassetta. Áhvílandi bílalán. Verð 1.190 þús., ath. skipti. Toyota Land Cruiser 100 4,2 turbo dísil, nýskráður 09/00, ekinn 27 þús., silfurgrár, sjálfskiptur, leður, sóllúga, tölvufjöðrun, 33" dekk. Verð 6.150 þús., ath. skipti. MMC Pajero 2,8 intercooler, turbo disil, nýskráður 10/96, ekinn 160 þús., dr-beis- li, ný 32" dekk, sjálfskiptur. Áhvílandi bílalán. Verð 1.950 þús., ath. skipti. Nissan Patrol SE+ 2,8 turbo dísil inter- cooler, nýskráður 06/00, ekinn 29 þús., 33" dekk, dráttarbeisli. Verð 3.800 þús., ath. skipti. Toyota Land Cruiser VX turbo dísil, nýskráður 06/97, ekinn 130 þús., vín- rauður, 8 manna, 33" og 16" breyting, sjálfskiptur. Áhvílandi bílalán. Verð 2.400 þús. Toyota Land Cruiser GX turbo dísil, nýskráður 11/96, ekinn 196 þús., 5 gíra, 33" og 16" breyting, grillgrind, kastarar, húddhlíf, toppgrindarbogar, cd, varahjólshlíf, dr-beisli. Verð 2.050 þús. Toyota Land Cruiser LX turbo dísil, nýskráður 03/01, sjálfskiptur, ekinn 10 þús., 38" breyting, VX-kantar, topp- grind, spoiler, kassi að aftan, loftdæla, aukatankur, krókur, spllbiti, kastara- grind o.fl. Verð 4.900 þús., ath. skipti.13. SP-FJÁRMÖCNUN HF www.sp.is MMC Pajero sport President, 2,5 turbo dísil, nýskráður 05/00, ekinn 30 þús., hvítur, 5 gíra, leður, lúga. Verð 2.960 þús. Lexus RX 300 Luxory, nýskráður 10/00, ekinn 8 þús. Verð 4.700 þús. Toyota Hilux 2,4 turbo dísil, nýskráður 03/00, ekinn 43 þús, 38” breyting, pall- hús, grillgrind, rekaro-stólar, cd, dráttar- beisli o.fl. Verð 3.250 þús. Opel Astra 1,6 GL, nýskráður 04/99, ekinn 44 þús., silfurgrár, 5 gíra, cd, álfelgur, spoilerakitt. Verð 1.390 þús., ath. skipti. Smáauglýsingar vantar þig félagsskap? 550 5000 s Vikuferöir I 28. sept fcng-iw ’' ni—miattsit 21 Og Verð Sérferðir fyrir EUROCARD korthafa Ferðaávísun EUROCARD gildir sem 8.000 kr. innborgun í þessar ferðir MrirJt‘rCird Sól býður nú tvær vikuferðir í þessa paradís golfara þar sem velja má um 15 velli og enn fleiri þegar farið er yfir landamæri Spánar. Dvalið er í sannkallaðri lúxusgistingu í Albufeira en golffararstjóri Sólar sér um bókanir rástíma og skemmtileg kvöld í góðum félagsskap. Hagstæð vallargjöld. Golffararstjóri er Haukur Þór Hannesson. kr. á mann í tvíbýti með sköttum ef notuð er EUROCARD ávísun. Ferðaskrifstofan SÓL hf. • Grensásvegi 22 • Sími 5450 900 • www.sot.is ' W '0~GX%S<ES$

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.