Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Blaðsíða 8
8
Útlönd
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001
DV
Oleksandr Kuzmuk
Oleksandr Kuzmuk, varnarmálaráðherra
Úkraínu, hefur viðurkennt ábyrgð hersins
á flugsiysinu við strendur Svartahafs.
Úkraínski herinn
viðurkennir að
bera ábyrgðina
Oleksandr Kuzmuk, varnarmála-
ráðherra Úkraínu, viðurkenndi um
helgina þátt úkraínska hersins í
flugslysinu sem varð við strendur
Svartahafs fyrr í mánuðinum en i
kjölfarið hefur Volodymyr Tkachov,
yfirmaður loftvarna úkraínska
hersins og helsti aðstoðarmaður
hans, boðist til að segja af sér. Kuz-
muks sagði í yfirlýsingu á laugar-
daginn, daginn eftir að rússnesk
rannsóknarnefnd upplýsti að flug-
skeyti hefði grandað vélinni, að
ekki væri enn vitað hvað hefði or-
sakað þetta hræðilega slys en viður-
kenndi þátt hersins í harmleiknum.
Kuzmuk notaði tækifærið til. að
biðja ísraelsku þjóðina, aðstand-
endur fórnarlambanna og forseta
Úkraínu afsökunar, en meirihluti
þeirra 78 sem fórust með vélinni
voru ísraelskir borgarar.
Talibanar hvetja
andstæðingana
til sameiningar
Qari Ahmadullah, yfirmaður
leyniþjónustu talibana í Afganistan,
hvatti í gær foringja hersveita Norð-
urbandalagsins til að sameinast rót-
tækum múslímum í landinu í
heilögu stríði þeirra gegn innrásar-
liði Bandaríkjamanna.
Ahmadullah sagði þetta í viðtali
við pakistönsku útvarpsstöðina AIP
og bætti við að Mullah Mohammad
Omar, leiðtogi talibana, hefði bann-
að hermönnum sínum að afvopna
þá sem gengju til liðs við mál-
staðinn. „Við erum tilbúnir til að
gleyma því sem liðið er ef þið
gangið til liðs við okkur,“ sagði
Ahmadullah í ákalli til hermanna
Norðurbandalagsins, „því nú snýst
stríðið um að verja trú okkar og
fósturjörð," sagði Ahmadullah, en
hersveitir hans, sem eiga nú undir
högg að sækja, ráða enn yfir um það
bil 90 prósent landsins.
Friður fyrir botni Miðjarðarhafs forendan fyrir árangri gegn hryðjuverkum:
Arafat hittir Tony Blair á
mikilvægum fundi í dag
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, er kominn til London, þar
sem hann mun hitta Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands og Jack
Straw utanríkisráðherra, á fundi sem
hann sjálfur segir „mjög mikilvæg-
an“, til að tilætlaður árangur náist í
sameiginlegum aðgerðum þjóða heims
gegn hryðjuverkum. „Við munum
auðvitað fyrst og framst ræða ástand-
ið fyrir botni Miðjarðarhafs og einnig
ástandið í heimsmálunum eftir síð-
ustu atburði," sagði Arafat við kom-
una til Heathrow flugvallar, en þang-
að kemur hann í kjölfar þriggja daga
heimsóknar Tony Blairs til Miðaaust-
urlanda í síðustu viku.
Tony Blair, sem hitti Hosni
Mubarak, forseta Egyptalnds á fundi á
fóstudaginn, þar sem Mubarak lagði á
það mikla áherslu að friður í Paestínu
væri forsendan fyrir árangri gegn
hryðjuverkum, mun því örugglega
leggja hart að Arafat að tryggja
vopnahlé milli stríðandi fylkinga, sem
Arafat í London
Yasser Arafat kom til London í gær
þar sem hann mun hitta þá Tony
Blair og Jack Straw á fundi í dag.
að kröfu ísraelsmanna er forsendan
fyrir því að friðarviðræður geti hafíst.
Bæði Bush og Blair gera sér báðir
grein fyrir mikilvægi málsins, enda
þrýstingur arabaríkja á að friður
komist á í Palestínu mikill og í mörg-
um tilfellum algjört skilyrði, auk þess
sem arabaríkin leggja á það ríka
áherslu að ekki verði ráðist á önnur
ríki sem gætu verið grunuð um aðild
að hryðjuverkum. Reyndar hefur
Bush þegar lýst því yfir að sjálfstætt
ríki Palestínumann sé hluti af friðar-
ferlinu sem Bandaríkjamenn hafa lagt
til og varð það til þess að Ariel Shar-
on sendi frá harðorð mótmæli, en
Palestínumenn hafa aftur á móti
skorað á Bush að standa við orð sín.
Heimafyrir hefur Blair einnig orðið
fyrir gangnrýni vegna ummæla um
hugsanlegar árásir á önnur arabaríki,
en þar fer fremstur í flokki Robin
Cook, fyrrum utanríkisráðherra, sem
segir að engar sannanir liggi fyrir um
sekt annara ríkja, sem réttlæti innrás.
1 i
1
Afgönsk móöir viö hlóðir
Ftóttamannastraumurinn að landamærum nágrannaríkja Afganistans færist sífellt í aukana með áframhaldandi
loftárásum Bandaríkjamanna og Breta á landið og er ástandið hvaö verst við landamæri Pakistans, þangað sem
meginstraumurinn liggur. Hér á myndinni sjáum við afganska móður í Toza-Lokai-búðunum við landamæri
Tadsjikistans, en þar er ástandið skelfilegt meðal sveltandi flóttafólksins.
Breska fréttakonan Yvonne Ridley gefur talibönum góð meðmæli:
Colin Powell til Pakistan
og Indlands
Colin Powell, ut-
anríkisráðherra
Badaríkjanna mun
á leiðinni til Pakist-
an og Indalands,
þar sem hann ráð-
gerir að hitta ráða-
menn kjarnorkju-
þjóðanna beggja
vegna vaxandi óróa eftir að Banda-
ríkjamenn og Bretar hófu loftárasir
á nágrannalandið Afganistan. Heim-
sókninni hefur af öryggisástæðum
verið haldið leyndri til þessa, en
Powell mun vera væntanlegur til
Islamabad, höfuðborgar Pakistan í
dag en síðan halda til Nyju-Delí á
morgun, áður en hann heldur til
Sjanghæ í Kína þar sem hann mun
sitja efnahagsráðstefnu 20 Asíu- og
Kyrrahafsríkja 17. og 18. október.
Einn lést og tólf slösuð-
ust í Pakistan
Einn maður lét lífið og að
minnsta kosti tólf slösuðust, þar af
tveir mjög alvarlega, í alvarlegum
óeirðum sem blossuðu upp í Jac-
obabad í Pakistan á laugardaginn.
Upp úr sauð þegar mannQöldinn hóf
að grýta lögregluna sem á móti hóf
skothríð á mannfjöldann með áður-
nefndum afleiðingum.
Bush afneitar talibönum
George W. Bush,
forseti Bandaríkj-
anna, hafnaði í gær
enn einu tilboði
talibanastjórnar-
innar í Afganistan
um að afhenda
hry ðj uverkamann-
inn Osama bin
Laden til hlutlauss ríkis. Aukinn
þrýstingur á talibanastjórnina
heima fyrir vegna framhalds loft-
árásanha er talinn hafa þvingað þá
til að ehdurtaka tilboðið, en þeir
eru þó við sama heygarðshornið og
gera kröfu um að Bandaríkjamenn
leggi fram haldbærar sannanir fyrir
sekt bin Ladens og hætti jafnframt
strax öllum aðgerðum.
Mullah Omar í sigtinu
Bandaríska tímaritið „The New
Yorker" segir frá því í síðasta tölu-
blaði að ómönnuð njósnaflugvél á veg-
un CIA, vopnuð flugskeytum, hafi
komist í dauðafæri við Mullah
Muhammed Omar þar sem hann ferð-
aðist með bílalest á leið frá Kabul á
fyrsta degi loftárásanna á Afganistan.
Fulltrúar CIA hafi hins vegar ekki
haft leyfi til að taka í gikkinn og hafi
reyndar verið synjað um það af þeim
sem völdin hafa vegna tilmæla lög-
fræðinga hersins.
„Talibanar eru heiðvirt fólk“
Breska fréttakonan Yvonne
R idley, sem handtekin var af talibön-
um í Afganistan eftir að hún hafði
farið inn í landið án leyfis, sagði í
sjónvarpsviðtali á BBC í gær að
komið hefði verið fram við sig af
mikilli virðingu þá tíu daga sem hún
var í haldi í landinu. „Þeir sýndu
engan fjandskap en reyndu þó hvað
þeir gátu til að veiða upp úr mér
upplýsingar," sagði Ridley sem var
látin laus úr haldi fyrir viku.
„Ég sannfærðist um það að tali-
banar eru mjög heiövirt fólk sem
stendur við gefin loforð. Ég varð þó
virkilega hrædd þegar einn af prest-
unum þeirra spurði mig hvort ég
vildi snúa til islamskrar trúar. Þá
fyrst grunaði ég þá um græsku og að
þeir væru að leiða mig í gildru en
það reyndust svo óþarfar áhyggjur,
þó ég hefði leyff mér að- gagnrýna
meðferð á konum
í löndum Suður-
Asíu.
Ridley, sem var
handtekin í ná-
grenni borgarinn-
ar Jalalabad í
norðausturhluta
landsins, sagðist
hafa farið inn í
landið af því sig
langaði til að
kynnast fólkinu.
„Eftir stutt kynni
finnst mér Afgan-
ar vera stórkost-
legt fólk, mjög
vingjarnlegt og
konurnar ótrúlega
sterkar þrátt fyrir
þá kúgun sem þær
þnrfa að' búa við.
Yvonne Ridley
Breska fréttakonan Yvonne Ridley ræöir við fréttamann í
Pakistan eftir að hún var látin laus úr haldi talibana. Hún
lýsir Afgönum sem stórkostlegu fólki en harmar slæma
..............meðferð talibana á konum.
Þeim er til dæmis bannaö að kaupa
sér fot, mega helst ekki snyrta sig og
er bannað að syngja. Þetta er sú
staða sem ofstækistrú talibana hefur
skapað þeim, sem er auðvitað skelfi-
legt. Það var einmitt þessi neikvæða
afstaða talibana til kvenna sem varð
til þess að ég var handtekin, en það
gerðist þannig að asninn minn tók
allt í einu á rás þegar ég var stödd
nálægt landamærum Pakistans og
við það brást einn hermanna tali-
bana ókvæða við og dró mig niður af
asnanum. Við það uppgötvaði hann
myndavélina mina og handtók mig.“
Þegar Ridley var spurð um fang-
elsisvistina sagðist hún ekki hafa yf-
ir neinu að kvarta. „Það versta var
að mér var bannaður aðgangur að
síma þannig að ég gat ekki látið
neitt frá mér heyra,“ sagði Ridley.
Tólf féllu í Kasmír
Indverska lögreglan sagði i gær að
sjö Pakistanar hefðu verið meðal
þeirra tólf sem féllu í óeirðum í borg-
inni Jammu í Poonch-héraði í Kasmír
þegar aðskilnaðarsinnar efndu þar til
mótmæla á laugardaginn. Vaxandi
ófriður hefur verið í Kasmir á milli
pakistanskra íbúa héraðsins og ind-
verskra stjórnvalda síðan í sjálfs-
morðssprengingunni sem múslímar
stóðu fyrir í stjórnsýslubyggingunni í
Jammu fyrr í mánuðinum, en þar létu
að minnsta kosti 38 manns lífið, flest-
ir indverskir. Ófriðurinn i Kasmír
hefur nú staðið í nær tólf ár og hefur
hann kostaþ um 30 þúsund manns líf-
ið.