Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Qupperneq 28
ÍFRÉTTASKOTIÐ
MSÍMINNSEM ALDREI SEFUR
550 5555
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
! hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001
.. Flórída:
Islendingar
• áhyggjulitlir
„Við höfum ekki
miklar áhyggjur á
meðan tilfellin eru
ekki fleiri,“ segir
Hilmar Skagfield,
aðalræðismaður ís-
lands á Flórida,
vegna þeirra tilfella
af miltisbrandi sem
komið hafa upp í
Skagfield. Bandaríkjunum.
Einn maður er látinn af þessum völd-
um á Flórída en alls hafa 12 tilfelli
komið upp í Bandaríkjunum. Sýklun-
um er dreift í pósti og hafa dagblöð og
sjónvarpsstöðvar helst verið skot-
spónn þeirra sem smitinu dreifa.
-j Hilmar, sem býr í Tallahassee, seg-
ist ekkert hafa heyrt frá íslendingum
varðandi þessi mál. Hann segir fólk al-
mennt vera rólegt vegna þessa.
„Þetta er frekar einangrað og fólk
þarf að vera varkárt. Það hefur enginn
íslendingur hringt í mig vegna þessa.
Það er óþarflega mikið gert úr þessum
málum í fjölmiðlum," segir Hilmar.
Nánar á bls. 9 -rt
cm-
Riúpnaveiðin er hafin:
Engar skyttur
þjófstörtuðu
Lögreglumenn víða um land fylgdust
vei með þvi um helgina að rjúpnaveiði-
menn væru ekki að halda til veiða áður
en veiðitímabilið gekk í garð sem var á
miðnætti sl.
Lögreglumenn á Vopnafirði, Seyðis-
firði, Egilsstöðum, Húsavík og í Borg-
amesi sem DV ræddi við í gær, sögðu
að menn hefðu ekki verið staðnir að
verki við ólöglegar veiðar. Lögreglu-
menn á Húsavík og í Borgamesi létu
sér ekki nægja að fylgjast með á hefð-
bundinn hátt heldur fóm í eftirlitsferð-
ir í flugvélum en urðu lítils varir. -gk
Fimm fastar í
veitingaskipi
- fundu ekki dyrnar
Lögreglan í Reykjavík fékk upp-
hringingu i fyrrinótt frá konum sem
sögðust vera lokaðar inni um borð i
veitingaskipinu Þór, sem liggur við
Ingólfsbakka, og kæmust þær ekki í
land.
Lögreglunni tókst að hafa uppi á að-
ila sem gat farið og losað konurnar úr
prísundinni en þær voru fimm talsins.
Konurnar munu hafa verið í einka-
samkvæmi á „efri hæðinni" eins og
þjónn um borð í Þór orðaði það við DV
í gær. Hann sagði málið pinlegt en
ekki hefði átt að vera flókið mál fyrir
konurnar aö komast út úr skipinu og i
land, til þess hefðu þær aðeins þurft að
opna einar dyr og ganga síðan út. -gk
Biskupar heilsast í kirkjunni DVMYND Þ0K
Biskupinn, hr. Karl Sigurbjörnsson, og sr. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup heilsast við messu í Dómkirkjunni i gær-
kvöld en búast má við að hin umdeilda skipun i embætti Kaupmannahafnarklerks muni bera á góma á kirkjuþingi.
Ríkisútvarpið hætt útsendingum á stuttbylgju:
Sjómenn segjast sviptir
mikilvægu öryggistæki
- sparnaðarráðstöfun, segir útvarpsstjóri
Sjómenn án sambands
Ríkisútvarpið hefur ákveðið að loka fyrir stuttbylgjusendingar sínar.
Sjómenn í millilandasiglingum eru reiðir.
Megn óánægja er
meðal sjómanna eftir
að forráöamenn Ríkis-
útvarpsins tóku þá
ákvörðun að hætta út-
sendingú á stuttbylgju.
Sjómennimir telja að
verið sé að svipta þá
mikilvægu öryggis-
tæki. Útvarpsstjóri
segir að grípa hafi orð-
ið til þessa úrræðis í
sparnaðarskyni. For-
ráðamenn Eimskips
hafa ritað útvarps-
stjóra mótmælabréf vegna þessa en
hann segir að ákvörðuninni verði
ekki breytt í þeim niðurskurði sem
RÚV standi frammi fyrir.
„Við erum búnir að mótmæla
þessu,“ sagði Haukur Már Stefáns-
son, framkvæmdastjóri skiparekstr-
ardeildar Eimskips, við DV í gær.
„Forstjóri Eimskips skrifaði útvarps-
stjóra bréf þar sem hann var beðinn
um að hlutast til um að stuttbylgjan
yrði sett aftur af stað. Það er mikil óá-
nægja hjá okkar fólki og öllum sjó-
mönnum yfir höfuð. Þeir ná ekki út-
varpinu lengur."
Haukur Már sagði að sjómenn
fengju sendar veðurfregnir á telexi.
En þar væru engar langtímaspár sem
væri afar bagalegt fyrir alla sjómenn.
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóri sagði að stuttbylgjusendingun-
um hefði verið hætt í spamaðar-
skyni. RÚV hefði þurft að greiða til-
tekna upphæð til Landssímans vegna
þessara sendinga. Hins vegar hefði
RÚV verið að auka þjónustu sína á
Netinu sem kæmi t.d. íslendingum
búsettum erlendis að góðu gagni. Þá
hefðu langbylgjustöðvar verið reistar
og teknar í notkun. Það hefði verið
gert með það að mark-
miði að bæta þjónustu
við sjómenn á hafinu í
kringum ísland sem
ekki hefðu náð FM-
sendingum. Lang-
bylgjusendingar frá
Gufuskálum og Eiðum
næðu niður undir
strendur Kanada og
upp í Barentshaf. í ís-
lenskum skipum sem
væru á ferð annars
staðar á jarðarkringl-
unni væri búnaður
sem hefði gert þeim kleift að ná stutt-
bylgjusendingunum.
„En núna, þegar við erum að
spara, höfum við fellt þetta niður,“
sagði Markús Örn, sem kvað RÚV
spara á aðra milljón króna á ári með
því að fella stuttbylgjusendingamar
niður. Hann sagði enn fremur að hér-
lendis væri verið að auglýsa og selja
búnað fyrir skip til að taka á móti
netsendingum. Vonir stæðu til að
skipafélögin sem gerðu út farskip
myndu koma upp slíkum móttöku-
búnaði í þeim fyrir sína menn.
-JSS
Kirkjuþing hefst í dag:
Fríkirkjur fái
inni í þjóð-
kirkjunni
Kirkjuþing hefst í dag í safnað-
arheimili Grensáskirkju. Viö
setninguna flytja ávörp þau hr.
Karl Sigurbjörnsson biskup, Sól-
veig Pétursdóttir, dóms- og
kirkjumálaráðherra, og Jón
Helgason, forseti kirkjuþings. Að
því loknu verður opnaður form-
lega nýr kirkjuvefur.
Meðal þess sem rætt verður á
þinginu er stofnun nýrrar sóknar
f Kópavogi, Lindasóknar, og sam-
eining nokkurra prestakalla í
landinu, einnig lagafrumvarp frá
dóms- og kirkjumálaráðherra um
breytingu _ á lögum um kirkju-
garða, greftrun og líkbrennslu.
Nokkrar tillögur liggja líka fyrir
kirkjuþingi. Ein þeirra er um að
heimila fríkirkjum sem starfa á
játningargrundvelli þjóðkirkj-
unnar að starfa innan hennar og
önnur um að jafnréttisáætlun
kirkjunnar sé höfð í huga við
kosningar til kirkjuþings því þar
eru fáir fulltrúar kvenkyns.
-Gun
Slagsmál í Kópavogi:
Aukalið lög-
reglu kallað til
Til slagsmála kom á Sæbólsbraut í
Kópavogi í fyrrinótt. Þar voru tugir
unglinga samankomnir og þeir neituðu
að fara að tilmælum lögreglu og yfir-
gefa svæði við íbúðarhús þar.
Gleðskapur var í húsi við götuna og
var þar margt unglinga á aldrinum
17-19 ára. Húsráðanda sinnaðist við
einn gesta og tókust þeir á. Þá visaði
hann gestum sínum, sennilega um 30
talsins, á dyr og kallaði á lögreglu.
Þegar lögreglan kom á vettvang neit-
uðu unglingarnir, að sögn lögreglu, að
hlýða þeim fyrirmælum að fara og
sýndu mótþróa. Lögreglan í Kópavogi
hefur aðeins tvær bifreiðir og fjóra
menn á þeim að næturlagi svo kallað
var á aðstoö og kom ein bifreið lög-
reglu frá Hafnarfirði og tvær frá
Reykjavik með liðsauka.
Til nokkurra átaka kom og lögregla
handjárnaði nokkra aðfla. Þá fengu
nokkrir skrámur í átökunum. Ungling-
ar úr hópnum bera að lögregla hafi
beitt þá mikilli hörku og er rætt um að
kærur kunni að vera væntanlegar
vegna þess. Lögreglan segist hins vegar
einungis hafa beitt nauðsynlegu valdi
sem þurfti til að dreifa fjöldanum. -gk
„Flugdólgafjölskylda" látin laus
„Flugdólgafjölskylda“ sem var
með læti og hótanir í flugvél Flug-
leiða á leið til Minneapolis á föstu-
dagskvöld var látin laus af lög-
reglu þar í borg eftir stutta yfir-
heyrslu. Um var að ræða íslensk
hjón og son þeirra sem eru búsett
í Bandaríkjunum.
„Áhöfn vélarinnar taldi rétt að
gera lögreglu í Minneapolis við-
vart um komu vélarinnar til borg-
arinnar vegna framkomu fólksins
sem m.a. viðhaföi ummæli um
sprengingu," sagði Guðjón Arn-
grímsson, fréttafulltrúi Flugleiða,
um máliö í gær. Guðjón sagði að
uppákoma eins og þessi væri litin
mjög alvarlegum augum en Flug-
leiðir hygðust ekki aðhafast frekar
í þessu máli.
Hjónin og sonur þeirra voru
talsvert ölvuð og með ólæti í vél-
inni. Steininn mun þó hafa tekið
úr þegar þau höfðu í hótunum um
að sprengja vélina í loft upp og
þótti áhöfninni þá rétt að grípa til
aðgerða. Lögreglu var því gert við-
vart og þremenningarnir hand-
teknir strax við komuna en sleppt
aftur að lokinni yfirheyrslu sem
fyrr sagði. -gk
Útiljós
Rafkaup
Ármúla 24 • S. 585 2800
bíother P-touch 9200PC
Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport