Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2001, Qupperneq 8
8
Viðskipti__________
Umsjón: Viöskiptablaöiö
Eftirspurn eftir vinnu-
afli dregst saman
Atvinnukönnun Þjóðhagsstofnun-
ar sýnir að eftirspurn eftir vinnu-
afli fer minnkandi. Þetta er önnur
könnunin á þessu ári sem sýnir að
vinnuveitendur vilja fækka við sig
starfsfólki.
Samtals vildu atvinnurekendur
fækka við sig um 230 manns á land-
inu öllu, eða um 0,3% af vinnuafl-
inu. í samanburði við atvinnukönn-
unina á sama tíma í fyrra er breyt-
ingin veruleg, að því er segir i frétt
frá Þjóðhagsstofnun, en þá vildu at-
vinnurekendur fjölga um tæplega
700 manns á landinu öllu.
Þegar litið er á landið í heild er
enn skortur á fólki í byggingariðn-
aði sem nemur 0,5% af mannafla að
meðaltali. I verslun, iðnaði og sam-
göngum vildu atvinnurekendur
fækka við sig. Atvinnukönnunin
sýnir að fram á mitt næsta ár mun
draga enn frekar úr eftirspurn á
vinnumarkaði, eða um rúmlega
3,0%.
Á höfuðborgarsvæðinu vildu at-
vinnurekendur fækka fólki um 200
manns, eða um 0,5% af vinnuaflinu.
Þetta er mikil breyting frá sama
tíma í fyrra en þá vildu atvinnurek-
endur bæta við sig rúmlega 1.000
Íslandssími
gefur símtöl
til áramóta
Íslandssími hefur nýja þjónustu á
morgun, svonefnda kjarnaáskrift,
þar sem viðskiptavinum með far-
síma hjá Íslandssíma býðst að
hringja frítt úr símanum sínum í 15
þúsund minútur til áramóta, eða að
jafnaði 2,8 klst. á dag.
Kjarnaáskriftin nær til hringinga
í fjögur símanúmer innan kerfis og
á þjónustusvæði Íslandssíma. Eftir
að tilboðinu lýkur 31. desember nk.
hringja kjamaviðskiptavinir áfram
á lægsta verði, eða á 7,50 kr. á mín-
útu á daginn og 5,50 kr. á mínútu á
kvöldin.
Með þessu vill Íslandssími koma
til móts við viðskiptavini sina og
vekja athygli á áherslum í gjaldskrá
félagsins. í henni er boðið upp á
símtöl í allt að fjögur númer á afar
hagstæðu verði þannig að viðskipta-
vinir geta hringt á hagkvæman hátt
í fjölskyldu eða vinahóp sinn.
Islandssími rekur eigið farsíma-
kerfi sem nær frá Reykjanesi í suðri
til Akraness í norðri. Það nær
einnig til Eyjafjarðarsvæðisins. Þá
veitir félagið viðskiptavinum sínum
þjónustu á öðrum svæðum um
reikisamning þannig að þjónustu-
svæöið nær til 97% þéttbýlis á land-
inu. Islandssími býður einnig upp á
þjónustu á farsímanetum nærri 300
farsímafyrirtækja í 130 löndum.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
_______um sem hér segir:______
Ásbraut 9, 0101, þingl. eig. Garðar
Guðjónsson, gerðarbeiðandi íbúða-
lánasjóður, föstudaginn 19. október
2001, kl. 10.30.
Borgarholtsbraut 69, 0202, þingl. eig.
Sigrún Björg Sæmundsdóttir, gerðar-
beiðandi fbúðalánasjóður, föstudag-
inn 19. október 2001, kl. 15.00.
Helgubraut 6, þingl. eig. Valgerður
Samsonardóttir og Haukur Viíberts-
son, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóðurinn
Framsýn, föstudaginn 19. október
2001, kl. 10.00.
Holtagerði 50, 1. hæð, ehl. gþ., þingl.
eig. Guðmundur B. Kristjánsson, gerð-
arbeiðendur AM PRAXIS sf. og fs-
landsbanki-FBA hf. föstudaginn 19.
október 2001, kl. 13.00.
manns, eða um 1,7% af vinnuaflinu.
Atvinnukannanir Þjóðhagsstofnun-
ar hafa sýnt að sveiflur í eftirspurn
eftir vinnuafli eru meiri á höfuð-
borgarsvæðinu og breytingar þar
því meiri. Atvinnurekendur vildu
fækka við sig fólki í verslun og veit-
ingarekstri, samgöngum, iðnaði og í
ýmiss konar þjónustu við atvinnu-
rekstur, eða frá 0,8-2,5% af vinnu-
afli. Eingöngu vantar fólk í bygging-
arstarfsemi, eða um 3,2%. Sam-
kvæmt könnuninni mun eftirspurn-
in minnka á næstu mánuðum á höf-
uðborgarsvæðinu og á þetta við um
flestar starfsgreinar.
Hægfara minnkun á
landsbyggðinni
Á landsbyggðinni vildu atvinnu-
rekendur fækka starfsfólki um 20
manns, eða um 0,1% af vinnuafli.
Þetta er mun betra ástand en á
sama tíma í fyrra, en þá vildu at-
vinnurekendur fækka um 390
manns. Hin breytta staða atvinnu-
mála á landsbyggðinni skýrist eink-
um af lítils háttar aukningu eftir-
spurnar eftir vinnuafli í fiskiðnaði,
verslun og í annarri þjónustu, eða á
bilinu 0,2-0,8%. Eftirspurnin
minnkar hins vegar mikið í bygg-
ingariðnaði, eða um 5,4%. Sam-
kvæmt könnuninni mun eftirspurn-
in á landsbyggðinni minnka lítil-
lega fram á vetur. Þetta á almennt
við um landsbyggðina þótt áhrif-
anna komi til með að gæta mismik-
ið eftir landshlutum.
Þjóðhagsstofnun bendir sérstak-
lega á að allt frá atvinnukönnuninni
í apríl 1996 hafa atvinnurekendur á
landinu öllu viljað fjölga starfs-
mönnum (undantekning er janúar-
könnunin 1997). Þessi vilji hefur
komið skýrast fram í april- og sept-
emberkönnunum ár hvert. Óskir at-
vinnurekenda um að fjölga starfs-
mönnum hafa vaxið á síðustu árum
og náðu sögulegu hámarki á siðast-
liðnu ári. Aukningin frá árinu 1997
hefur einkum veriö á höfuðborgar-
svæðinu. Samkvæmt aprílkönnun
Þjóðhagsstofnunar virtist sem eftir-
spum eftir vinnuafli hefði náð há-
marki í bili. Þessi niðurstaða styrk-
ist nú, en þetta er í fyrsta sinn síð-
an 1996 að eftirspurnin fer minnk-
andi fyrir landið í heild. Svo virðist
sem sú megintilhneiging sem ríkt
hefur frá upphafi árs 1999, að eftir-
spum eftir vinnuafli sé vaxandi á
höfuðborgarsvæðinu en minnkandi
á landsbyggðinni, sé ekki lengur til
staðar. Atvinnukönnunin sýnir
einnig að fram á mitt næsta ár mun
draga enn frekar úr eftirspurn á
vinnumarkaði, eða um rúmlega
3,0% af vinnuafli.
HYDRO kaupir íslenskan tækni-
búnað fýrir 100 milljónir
Norsk Hydro hefur gengið frá samn-
ingi við íslenska fyrirtækið Aitech
JHM hf. um kaup á tveimur vélum,
kragaróbótakerfi og gaffalréttivél, svo
og gæðaeftirlitskerfi fyrir Sunndal-ál-
verið sitt í Noregi. Verið er að endur-
nýja og stækka þetta álver sem verður
það stærsta í Vestur-Evrópu árið 2004.
1 frétt frá Altech kemur fram að
kragaróbótinn er til að setja á sjálf-
virkan hátt kraga utan um tinda
skautgaffla sem hingað til hafa verið
settir á tindana á handvirkan hátt i
þessu álveri. Þetta er áttundi kragaró-
bótinn sem Altech selur til álvera.
Gaffalréttivélin er til að rétta skaut-
gaffla með nýrri tækni, sem Altech hef-
ur þróað, og sem ekki hefur verið not-
uð áður í álverum. Gæðaeftirlitskerfið
er það fyrsta sinnar tegundar í álver-
um. Það tryggir eftirlit með fram-
leiðslu rafskauta fyrir kerskálana.
Kerfið byggist á merkingu allra raf-
skauta og skautgafda og myndgrein-
ingu á rafskautum og skautgöfflum
með tilheyrandi hugbúnaði. Samstarfs-
aðilar Altech í þróun gæðaeftirlitskerf-
Hraunbraut 12, 0001, þingl. eig. Guð-
rún Guðjónsdóttir, gerðarbeiðandi
AM PRAXIS sf., föstudaginn 19. októ-
ber 2001, kl. 11.30.
Hraunbraut 4, 0201, þingl. eig. Ingi-
björg Sólveig Sveinsdóttir, gerðarbeið-
endur Byko hf. og íbúðalánasjóður,
föstudaginn 19. október 2001, kl.
11.00.
Vesturvör 27, 01.03.06, þingl. eig. Ás-
geir Andri Guðmundsson, gerðarbeið-
andi Lífeyrissjóðurinn Framsýn, föstu-
daginn 19. október 2001, kl. 13.30.
Þinghólsbraut 19-21, 0203, þingl. eig.
Stefán Pétur Viðarsson, gerðarbeið-
endur Alþjóðlegar bifrtrygg. á ísl. sf.,
Kópavogsbær og Tryggingamiðstöðin
hf., föstudaginn 19. október 2001, kl.
16.00.
SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI
isins eru íslensku fyrirtækin Skyn ehf.
í Mosfellsbæ, sem hefur sérhæft sig í
tölvuvæddri myndgreiningu, og DMM
hf. í Keflavík, sem hefur sérhæft sig í
tölvuvæddum viðhaldskerfum fyrir
orkuver og stóriðju. Altech þakkar
Rannsóknarráði Islands verulegan
stuðning við þróun þessa gæðaeftirlits-
kerfis sem getur valdið byltingu í ál-
iðnaði i sambandi við bætta fram-
leiðslu, umhverfismál og öryggi starfs-
Mikil fjölgun umsókna um húsbréf
hefur verið undartfama mánuði miðað
við sama tima árið 2000. Alls vom um-
sóknimar 808 nú i september en vom
757 á sama tíma í fyrra. Alls vora um-
sóknimar 9.347 í fyrra sem er tæpum
5% minna en metárið 1999.
I mánaðarskýrslu íbúðalánasjóðs
segir að fasteignamarkaður færist frá
þvi aö vera seljendamarkaður yfir í að
vera kaupendamarkaður, en slík sam-
dráttareinkenni séu augljóslega lengur
að koma fram á þessum markaði en
flestum öðrum. Þess ber hins vegar að
geta að vegna breytinga á viðmiði við
brunabótamat, sem tók gildi 1. septem-
ber, og vegna nýs brunabótamats, sem
tók gildi 15. september, eru afgreiðslur
á vegum sjóðsins ekki í sambærilegu
ferli og áður. Áður fyrirsjáanlegur
samdráttur virðist að öllu leyti veginn
upp vegna hækkunar hámarkslána,
em mjög mikilvæg fyrir Altech, sem
núna er að ryðja sér braut á sviði upp-
lýsingatækni fyrir áiver. Um 30 álver
hafa sýnt áhuga á þessu gæðaeftirlits-
kerfi og þessi fyrsta sala er því mjög
mikilvæg vegna áframhaldandi kynn-
ingar og sölu kerfisins.
Með þessari sölu hefur Altech þegar
gengið frá sölusamningum fyrir 1,3
milljarða það sem af er árinu og era
áframhaldandi söluhorfur verulega
góðar, að sögn framkvæmdastjóra fyr-
irtækisins.
vegna nýs brunabótamats og vegna
þess að fjöldi viðskipta hefur enn ekki
dregist saman, sem er þvert ofan í all-
ar spár.
Hlutfall lána til kaupa á notuðu hús-
næði og til endurbóta fór upp í 76% á
mesta þenslutímanum á fasteigna-
markaði, en það hefur fallið niður í
67% á þessu ári sem er nálægt sögu-
legu lágmarki. Fjármögnun er sam-
kvæmt skýrslunni í auknum mæli að
færast til byggingaraðila/seljenda og
undirliggjandi þróun er i átt til sam-
dráttar og verðlækkunar á húsnæði.
Alls nemur fjölgun viðbótarlána um
25% sem hefúr í fór með sér aukningu
í húsbréfakerfinu. Þykir augljóst að lít-
il eiginfjárstaða fyrstu kaupa við-
skiptavina sjóðsins hafi áhrif til út-
lánaþenslu. Gríðarleg aukning er i lán-
veitingum til leiguíbúða og svo verður
næstu misseri
manna.
Kaup Hydro á gæðaeftirlitskerfmu
Mikil eftirspurn
eftir húsbréfum
- þvert ofan í allar spár
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001
I>V
mamsm-
HEILDARVIÐSKIPTI 1500 m.kr.
Hlutabréf 300 m.kr.
Ríkisbréf 400 m.kr.
MESTU VIÐSKIPTI
Q Kaupþing 129 m.kr.
Q SH 29 m.kr.
Q Islandsbanki 15 m.kr.
MESTA HÆKKUN
0 íslenskir aðalverktakar 28,3%
Q Nýheiji 9,1%
0SH 7,5%
MESTA LÆKKUN
Q Kaupþing 8,1%
Q Húsasmiöjan 3,3%
O Skýrr 2,5%
ÚRVALSVÍSITALAN 1104 stig
- Breyting O -0,27%
Horfurnar versna
enn í Japan
Seðlabanki Japans hefur lækkað
mat sitt á efnahagshorfum i landinu
fimmta mánuðinn í röð. Sökudólg-
inn segir bankinn vera versnandi
hagvaxtarhorfur í Bandaríkjunum
vegna hryðjuverkaárásarinnar 11.
september.
Seðlabankinn sagði að samdrátt-
ur í neyslu gæti heft frekar útflutn-
ing Japans en samdráttur í iðnaðar-
framleiðslu hefur nú þegar haft
mikil áhrif á atvinnustig og laun.
„Þessi mikli samdráttur í fram-
leiðslu hefur neikvæð áhrif á at-
vinnustig og tekjur,“ segir bankinn
í mánaöarskýrslu sinni. „Til viðbót-
ar því hefur hryðjuverkaárásin í
Bandaríkjunum aukið á óvissuna í
japanska efnahagslífinu."
Ríkisstjórn Japans hefur einnig
varaö við þvi að horfur í japanska
efnahagslífinu hafa versnað og til-
trú markaðsaðila hefur versnað
„talsvert" síðan 11. september, en
Bandaríkin kaupa um 40% af út-
flutningi Japans.
Óskar Jósefsson
ráðinn
forstjóri Símans
Á fundi stjómar Landssíma ís-
lands hf. í dag var gengið frá ráðn-
ingu Óskars Jósefssonar í starf for-
stjóra en forstjóri félagsins, Þórar-
inn V. Þórarinsson, vék tímabundið
úr starfi tO að tryggja hlutlægni í
vali á kjölfestufjárfesti í félaginu.
Óskar Jósefsson er sviðsstjóri
rekstrarráðgjafar Pricewaterhouse-
Coopers á íslandi og hefur stýrt
vinnu félagsins við mat og sölu á
Landssíma íslands hf. undanfarna
mánuði. I þeirri vinnu hefur hann
kynnst megininnviðum starfsemi
Símans. Óskar mun vinna náið með
stjórnarformanni og stjórn, svo og
helstu stjórnendum félagsins í dag-
legum rekstri.
Óskar mun gegna stöðunni tíma-
bundið, eða þar til kynnt hefur ver-
ið við hvern einkavæðingarnefnd
hefur ákveðið að semja á grundvelli
bindandi kauptilboðs. Ráðning Ósk-
ars Jósefssonar var samþykkt sam-
hljóða í stjórn Landssíma Islands hf.
GENGfÐ ItílSS 16.10.2001 M. 9.15
KAUP SALA
IfisjDoHar 100,540 101,050
ScPlJnd 145,500 146,250
l*Ílkan. dollar 64,450 64,850
[ Donsk kr. 12,2380 12,3050
SBiNorskkr 11,4470 11,5100
ÖSænsk kr. 9,5950 9,6480
tf*—ÍFi. mark 15,3063 15,3983
1 |Fra. franki 13,8739 ' 13,9573
1 IjBelg. franki 2,2560 2,2696
Q Sviss. franki 61,5100 61,8500
OhoII. gyllini 41,2972 41,5454
^Þýskt mark 46,5312 46,8108
Oít-|,ra 0,04700 0,04728
QAust. sch. 6,6137 6,6535
jy |Port. escudo 0,4539 0,4567
GDspá. peseti 0,5470 0,5503
| > |jap. yen 0,82890 0,83390
|írskt pund 115,555 116,249
SDR 128,4700 129,2400
gECU 91,0071 91,5540