Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2001, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2001, Side 10
10 Útlönd sÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001 I>V REUTER-MYND Condoleezza Rice Þjóðaröryggisráögjafi Bush segir að BNA séu ekki í stríöi gegn íslamstrú. Bandaríkin verða að herða sig í áróðursstríðinu Bandaríkjamönnum kann að hafa orðið eitthvað ágengt í hernaðarað- gerðum sinum gegn Afganistan und- anfarna rúma viku. Þeir eiga þó enn langt í land ef þeir ætla sér að vinna áróðursstríðið, að sögn sérfræðinga i fjölmiðlun og utanríkisstefnu. „Baráttan um upplýsingamar er lykilatriði fyrir okkur ef okkur á að miða eitthvað í baráttunni gegn hryðjuverkum þegar til lengri tíma er litið,“ segir Jamie Metzl, fyrrv. starfsmaður þjóðaröryggisráðs BNA í forsetatíð Bills Clintons. Fréttaskýrendur segja að stjórn- völd verði að gera meira til að koma í veg fyrir að átökin verði túlkuð sem krossferð kristinna gegn múslímum. Condoleeza Rice, þjóð- aröryggisráðgjafi Bush forseta, kom fram í arabísku sjónvarpsstöðinni al Jazeera í gær og sagði einmitt að stríðið gegn Osama bin Laden væri ekki stríð gegn íslam. Engir arabar í trukkaskólanum Bandariska alríkislögreglan FBI hefur fengið staðfestingu á því að ekki hefðu neinir arabískir karl- menn, sem ekki töluðu ensku, skráð sig í ökuskóla fyrir flutningabíla í Kólóradó, að sögn talsmanns FBI. í nýjasta tölublaði tímaritsins Time kemur fram að starfsmaður ökuskóla í Kólóradó hafi gefið FBI upplýsingar um að milli 25 og 35 ar- abískir karlmenn hefðu stundað nám í skólanum á undanförnum tveimur árum. Að sögn Time töluðu mennirnir enga ensku og notuðu allir sama túlkinn. Ótti er við að hryðjuverkamenn kunni að beita flutningabílum í frekari árásum sínum á Bandaríkin eða bandaríska hagsmuni. Rudolph Giuliani Breska krúnan hefur ákveðiö að slá Giuli- ani, borgarstjóra New York, til riddara. Giuliani aðlaður Andrew prins, hertogi af York, sem nú er í heimsókn í New York, hefur staðfest að til standi að breska krúnan heiðri Rudolph Giuliani borgarstjóra og að hann verði sleginn til riddara fyrir frækilega framgöngu sína í kjöl- far hryðjuverkaárásanna á borgina. Prinsinn mun hafa tilkynnt Giulliani þetta um helgina og sagðist borgar- stjórinn bæði vera snortinn og þakk- látur fyrir þennan mikla heiður sem sér sé sýndur. „Ég vil nota tækifæriö til að þakka Bretum frábæran stuðn- ing, en lít þó á þetta sem viðurkenn- ingu til okkar allra," sagði Giuliani. Fundur Yassers Arafats og Tony Blairs í London: Blair ítrekar stuðning sinn við stofnun Palestínuríkis Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, notaði tækifærið á frétta- mannafundi í gær, sem haldinn var eftir fund þeirra Yassers Arafats, leið- toga Palestínumanna, að Downing- stræti 10 í London, til að ítreka ákveð- inn vilja sinn til stofnunar sjálfstæðs ríkis Palestínumanna og tók þar með undir yfirlýsingu Georg W. Bush Bandaríkjaforseta sem hann gaf fyrir heimsókn Donalds Rumsfelds til Mið- Austurlanda í fyrri viku. Blair hefur aldrei verið einarðari í afstöðu sinni til málsins, enda skynj- aði hann mikinn þrýsting arabaríkja í málinu í heimsókn sinni á svæðið í síðustu viku, þar sem ráðamenn gerðu honum ljóst að friöur í Palest- ínu væri algjört skilyrði fyrir áfram- haldandi samvinnu gegn hryðjuverk- um í heiminum. Orð Blairs á frétta- mannafundinum verða ekki túlkuð á annan veg en að stofnun ríkisins hafi nú allan forgang og að friðarviðræður við ísraelsmenn þoli enga bið. Það gæti þó orðið þrautin þyngri, því ísraelsmenn hafa gert það að al- gjöru skilyrði að umsamið vopnahlé stríðandi fylkinga í landinu haldi áð- Blair og Arafat Tony Blair, forsætisráöherra Bretlands, tekur á móti Arafat við komu hans til bústaðar hans að Downingstræti 10. ur en ferlið fari í gang, en á sama tíma gera hægri öflin í ríkisstjórn ísraels og róttækari armar Palestínu- manna allt til að spilla fyrir. ísraelar hafa þar ekki verið neinir eftirbátar Palestí'numanna og notuðu til dæinis tækifærið um helgina, meðan Arafat var í London, tO að myrða tvo hátt- setta foringja Hamassamtakanna, sem grunuð eru um að hafa staðið á bak við sjálfsmorðsárásir á ísraelska borg- ara á undanfórnum vikum. Fyrra morðið var framið á sunnu- daginn i þann mund sem Arafat var að halda til London og það seinna á mánudag, meðan Arafat fundaði með Blair. Á sama tíma hóf ísraelski her- inn að flytja herlið sitt frá herteknu svæðunum á yfirrráðasvæði Palest- ínumanna á Vesturbakkanum, sem sýnir að hver höndin virðist vera upp á móti annarri í herbúðum ísraela, þar sem hægri öflin vilja ekkert gefa eftir. Þeir segja að ekkert nýtt hafi komið fram í máli Arafats í London og að Blair viti það fullvel að hann sé ekkert annað en hryðjuverkamaður sem tali tveimur tungum. Á meðan fundurinn fór fram í London var ungur Palestínumaður, sem skotinn var til bana af eigin ör- yggissveitum í mótmælum sem fram fóru í Gaza gegn árásinni á Afganist- an, borinn til grafar og var búist við auknum óróa á svæðinu í kjölfarið. REUTER-MYND Andstæöur á flugvellinum í Istanbúl Tyrkneskir múslímar í hefðbundnum klæönaði spjalla saman nærri upplýstu auglýsingaskilti inni í flughöfninni í Istanbúl á meðan þeir bíða eftir að skrá sig í flug. Hálfnakta konan á auglýsingaskiltinu er að auglýsa tyrkneskt netfyrirtæki og er mjög áberandi í brottfararsal flugstöðvarbyggingarinnar. Mestu loftárásir í björtu frá upphafi átakanna: Ráðist 130 sinnum á talibanana í Kandahar Bandarískar orrustuvélar gerðu í gær hörðustu árásir sínar í dags- birtu á Afganistan frá því hernaðar- aðgerðimar hófust fyrir rúmri viku. Donald Rumsfeld, landvarna- ráðherra Bandarikjanna, varaði hersveitir talibana fyrir norðan af- gönsku höfuðborgina Kabúl að fleiri sprengjur væru á leiðinni. Talibanastjórnin sagöi í morgun að bandarískar flugvélar hefðu farið í 130 árásarferðir gegn höfuðvígi þeirra í Kandahar í sunnanverðu landinu í gær og að fjöldi manna hefði týnt lífi. í þeim árásum beittu Bandaríkjamenn AC-130-sprengju- flugvélum sem eru þær skaöræðis- legustu sem þeir hafa yfir að ráða. Rumsfeld sagði á fundi með fréttamönnum að síöustu daga hefði REUTER-MYND Ógnvekjandi drápstól Bandaríkjamenn beittu AC-130- sprengjuflugvélum í árásum sínum á borgina Kandahar í Afganistan. Bandaríkjamenn hafa ekki yfir að ráða flugvél sem getur valdiö meira tjóni en þessi. gengið betur að afla upplýsinga, bæði úr lofti og af jörðu niðri, eða frá því árásir í dagsbirtu færðust í aukana um helgina. Richard Myers, yfirmaður banda- ríska herráðsins, bætti við að bæði bandarísk og bresk herskip hefðu skotið flugskeytum á ný á skotmörk eins og flugvelli og þjálfunarbúöir hryðjuverkamanna. Liðsmenn Norðurbandalagsins, sem berst gegn talibönum, hafa hvatt Bandaríkjamenn að undan- fomu til að ráðast gegn rúmlega fimm þúsund hermönnum talibana norðan við Kabúl. Rumsfeld sagði aö næstu daga yrði ekki gott að vera þar. Hersveitir stjómarandstæðinga hafa nokkur landsvæði í norðan- verðu Afganistan á valdi sínu. Stuttar fréttir Samfylkingin lifi áfram John Prescott, aðstoðarforsætis- ráðherra Bret- lands, lét þá ósk í ljós í Moskvu í gær að samfylking- in sem nú hefur sameinast i barátt- unni gegn hryðju- verkamönnum gæti tekið á um- hverfismálum og útbreiddri fátækt I heiminum að átökunum loknum. Líkir íslam við nasisma í nýjasta flokksblaði Danska þjóð- arflokksins er nasisma og íslamstrú spyrt saman og því haldið fram að margt sé líkt með þeim og að þau eigi sameiginlega sögu. Loforð í Makedóníu Þingmenn í Makedóníu höfðu í gær uppi fögur fyrirheit um að blása nýju lífi i friðarferlið en ekki virðast miklar líkur á árangri nema þeir láti af skilyrðum sínum fyrir umbótum sem friðarsamningur við albanska skæruliða gerir ráð fyrir. Efnahagsmálin á dagskrá Bandaríkin fullvissuðu aðildar- lönd APEC, viðskiptabandalags Asíu- og Kyrrahafsþjóða, í gær um að baráttan gegn hryðjuverkum myndi ekki skyggja á fyrirhugaðan leiðtogafund. Tekið yrði á efnahags- málum og viðskiptum. Flugmenn varkárir Flugmenn sem fara í árásarferðir á Afganistan frá flugmóðurskipinu Carl Vinson eru sérlega varkárir í kjölfar frétta um að enn ein sprengja hafi fallið á rangt skot- mark, að sögn yfirmanna þeirra. Ekki fariö víðar Jack Straw, utan- ríkisráðherra Bret- lands, sagði í við- tali við arabísku sjónvarpsstöðina sem sýnt var i morgun að Bretar hefðu ekki uppi nein áform um að ráðast á önnur lönd en Afganistan i baráttunni gegn hryðjuverkamönn- um. Þá sagðist hann ánægður með stuðning ríkja við Persaflóann. Morð vegna vonds kaffis ítalskur karl sagöi í gær að hann hefði drepið 72 ára eiginkonu sina af því að kaffið sem hún hafði lagað var ódrekkandi. Karlinn, sem er 84 ára, barði konuna til bana með hamri. Fáránlegar tölur Donald Rumsfeld, landvarnaráðherra Bandarikjanna, sagði í gær að stað- hæfingar talihana- stjórnarinnar í Afg- anistan um að hundruð óbreyttra borgara hefðu fallið í árásum Bandaríkjamanna á þorp eitt væru fáránlegar. Talibanar sögðu að allt að tvö hundruð hefðu týnt lífi í þorpinu Khorum. Annan harmar mannfall Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, harmaði í gær að óbreyttir borgarar skyldu hafa fallið í lofthemaði Bandaríkja- manna og Breta gegn Afganistan síðustu daga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.